Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 46
46 Áramótablað 29. desember 2017Völvuspáin 2017
Völvan sér skolhærðan fram-
bjóðanda í sveitarfélagi á Aust-
urlandi lenda í hagsmunaá-
rekstrum sem mun gera málefni
hreppsins altöluð. Einhverjir
hneykslast á framferði fram-
bjóðandans en viðkomandi
mun vinna stórsigur í sveitar-
félaginu. Málið verður gleymt í
júnímánuði en rifjað upp í sjón-
varpsþætti um haustið.
Óvinir forsetans
Völvan segir forseta Ís-
lands, Guðna Th. Jó-
hannesson, vera
hreinskiptinn og
heiðarlegan mann
sem ætli engum
illt. Hann eigi hins
vegar öfluga and-
stæðinga sem hafa
ekki sætt sig við að
hann hafi unnið for-
setakosningarnar og leita að
hverju tækifærinu á eftir öðru til
að bregða fyrir hann fæti. Þeir fá
litlu áorkað í þeim efnum, segir
völvan. Hún segist þó sjá úlfúð
hjá óvinahernum vegna fund-
ar forsetans við fólk sem telur
sig hafa verið blekkt í viðskipt-
um við bankakerfið. Þar verður
hamrað á því að forsetinn hafi
farið út fyrir verksvið sitt. Þjóðin
verður þó ekki sammála því og
málið mun ekki skaða forset-
ann. Völvan sér eiginkonu hans,
Elizu, á miklum ferðalögum sem
tengjast mannúðarmálum.
Hneykslismál
kringum auðmenn
Nokkrir af auðmönnum Íslands
munu rata í fréttir vegna lífsstíls
sem er í æpandi mótsögn við líf
hins venjulega Íslendings. Völv-
an sér leiðindahneykslismál hjá
tveimur þeirra og afleiðingarnar
verða alvarlegar. Þegar blaða-
maður vill forvitnast meira um
þau mál hristir hún höfuðið og
segir að allt muni þetta koma í
ljós en þarna muni mikil svika-
mylla opinberast. Málið verð-
ur lögreglumál sem endar með
fangelsisdómum.
Nýr biskup
Agnes Sigurðardóttir segir alls
óvænt af sér embætti biskups.
Fjölmargir prestar líta embættið
hýru auga, þar á meðal nokkr-
ar konur, en Geir Waage
og Bjarni Karlsson tak-
ast hart á um stólinn
sem fulltrúar gam-
alla og nýrra tíma.
Bjarni sigrar. Eft-
ir biskupskosn-
ingu munu konur
innan prestastétt-
ar ræða stöðu sína
og þá hörðu gagnrýni
sem Agnes fékk oft og tíðum
fyrir embættisverk sín. Niður-
staðan kemur ekki á óvart, en
hún er sú að erfitt sé fyrir konu
sem er í embætti innan þjóð-
kirkjunnar að njóta sannmælis.
Bjarni Karlsson, hinn nýi biskup,
mun taka hraustlega undir þessi
gagnrýnisorð kvenpresta.
Fleiri uppljóstranir
um kynferðisbrot
Völvan segir að ekkert lát muni
verða á sögum um grófa kyn-
ferðislega áreitni karlmanna.
Þar verði nefnd nöfn
nokkurra þekktra karl-
manna. Einhverj-
ir þeirra munu
harðneita ásök-
unum en aðrir
viðurkenna brot
sín. Í leikhús-
heiminum verður
síðan hulunni svipt
af ógnarstjórnun leik-
stjóra og yfirmanna. Þar er ekki
um að ræða kynferðisbrot heldur
öskur og niðrandi ummæli í garð
kvenna. Á íþróttasviðinu munu
koma fram hliðstæðar sögur um
framferði karla. Það vekur síðan
athygli þegar konur í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands stíga fram og
segja sláandi reynslusögur.
Æði meðal
ungmenna
Nýtt æði mun ríkja hjá ung-
mennum landsins síðla
vors tengdu hættulegu
athæfi. Myndbönd
fara í dreifingu á
samfélagsmiðlum
og foreldrar munu
þrýsta á lögreglu að
grípa inn í. Útbúin
verður herferð á veg-
um embættismanna
sem mun ekki hitta í
mark meðal ung-
menna. Ungling-
ur mun slasa sig lítils
háttar á efri hluta lík-
amans og verður það til að æðið
deyr niður.
Karlmaður á miðjum aldri
verður handtekinn við komuna
til landsins með ætluð fíkniefni
til sölu. Í ljós kemur að viðkom-
andi var blekktur og fíkniefn-
in voru í raun bökunarvörur.
Í kjölfarið fer af stað umræða
hvort glæpsamlegur ásetningur
sé grundvöllur til fangelsisvistar
eða ekki.
Þórarinn fær
viðurkenningu
Ikea á Íslandi mun komast í
fréttir vegna gjafmildi til þeirra
sem bágt eiga. Í kjölfarið munu
önnur fyrirtæki leitast við að
gera slíkt hið sama en fá ekki
sömu fjölmiðlaathygli og Ikea.
Framkvæmdatjóri fyrirtækisins,
Þórarinn Ævarsson, fær einhvers
konar viðurkenningu á árinu.
Ikea-geitin mun lifa góðu lífi um
næstu jól. Það verður reyndar
gerð tilraun til að kveikja í henni
af tveimur pörupiltum sem ör-
yggisvörður mun góma áður en
þeir hafa náð markmiði sínu.
Völvan sér þá ekki fá neina sérs-
taka refsingu, aðra en þá að for-
eldrar þeirra lesa yfir þeim.
Finnur gefur
út ljóðabók
Þjóðin heldur áfram að streyma
í Costco og völvan skynjar ör-
væntingu meðal heildsala.
Costco hefur til dæm-
is sett strik í reikn-
inginn hjá Högum og
þar verður róðurinn
þungur. Það er þó
ljós í myrkrinu hjá
forstjóranum, Finni
Árnasyni, að hann
gefur út ljóðabók sem
fær prýðisdóma í Kiljunni.
Það mun verða forstjóranum
áframhaldandi hvatning til af-
reka á ritvellinum.
Lilja og Sigmundur
takast á um RÚV
Þegar talið berst að fjölmiðl-
um segir völvan að ekkert geti
breytt yfirburðastöðu RÚV á
þeim markaði. Það verða menn
bara að sætta sig við, segir hún
ákveðin. Hún segir að á nýju ári
munu gagnrýnendur RÚV, að-
allega á hægri væng, ekki draga
af sér og fréttamenn og starfs-
menn RÚV muni verða að þola
vaxandi gagnrýni fyrir meintar
vinstri áherslur. Nokkrir starfs-
manna RÚV taka hraustlega til
varnar á opinberum vettvangi
en það mun einungis hleypa