Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 58
Áramót Helgarblað 29. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Íslenskur kalkúnn
frá Reykjabúinu
Hollur Hátíðarmatur og glæsilegur á borði
Flestir eru fastheldnir og vilja hafa jólamatinn eins ár eftir ár. Heill kalkúnn er orðinn að fastri
venju á mörgum íslenskum heimil-
um, ekki síst vegna þess að kjötið fer
einstaklega vel í maga. stór, fylltur
kalkúnn er glæsilegur á veisluborði og
skapar góða stemningu.
á heimasíðu reykjabúsins, kalkunn.
is, er gott úrval af kalkúnauppskriftum,
fyllingum, sósum, kryddlegi og fjöl-
breyttu meðlæti. eldunarleiðbeiningar
á síðunni eru mjög ítarlegar, allt frá
þíðingu fuglsins og steikingu og til þess
hvernig best er að skera fuglinn þegar
hann er borinn fram. Þar ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
100% hreint kjöt
Kalkúnninn fæst í nokkrum stærðar-
flokkum fyrir jól og áramót í flestum
verslunum. Kjötið er 100%, þ.e. engu
er bætt í það, hvorki vatni, salti né
öðrum aukaefnum.
íslenski kalkúnninn kemur frá
reykjabúinu þar sem kalkúnarækt
hefur verið stunduð allt frá árinu
1947. á reykjabúinu er lagður metn-
aður í að framleiða góða vöru, undir
vörumerkinu Holdakalkúnn. afurð-
irnar eru til sölu í matvöruverslunum
víða um land.
Heimaverslun, eldunarleiðbein-
ingar og uppskriftir á heimasíðu
Við skrifstofu reykjabúsins við
reykjaveg í mosfellsbæ er enn
fremur rekin lítil heimaverslun
þar sem hægt er að kaupa ýmsar
kalkúnaafurðir allan ársins hring.
sífellt fjölgar í hópi fastra viðskipta-
vina sem telja það ómissandi lið í
jólaundirbúningnum að skreppa að
reykjum, kaupa hátíðarkalkúninn
beint frá bónda og fá spjall og góð
ráð um matreiðsluna í leiðinni.
Á heimasíðu Reykjabúsins,
kalkunn.is, má sjá nánari upplýsingar
um heimaverslunina og búið.
Heimaverslunin er opin
alla miðvikudaga og
fimmtudaga
kl. 16.00–18.30.
Blóm, gjafavörur og
framúrskarandi skreytingar
blómabúðin runni
Blómabúðin runni, Hverafold 1-3 í grafarvogi, byggir á göml-um og traustum grunni. Hjón-
in rósa Williamsdóttir og sigurður
erlendsson tóku við rekstri búðarinn-
ar þann 15. september síðastliðinn.
Fyrri eigendur voru foreldrar rósu,
þau sigrún Jónsdóttir og William
gunnarsson. rósa er þriðji ættliður-
inn í blómasölu en hún hefur að baki
alls 50 ára reynslu í faginu, eða allt
frá því amma hennar, lára Fjeld-
steð Hákonardóttir, rak blómabúðina
runna í Hrísateig í mörg ár.
runni leggur áherslu á sölu
á ferskum blómum, hvers kyns
skreytingar, fjölbreyttar gjafavörur,
púða, skart, úr og fleira. Fjölbreytnin
er mikil en að sögn sigurðar erlends-
sonar er mesta salan í ferskum blóm-
um. „boðið er upp á heimsendingar
og ef þarf að senda einhverjum er-
lendis þá erum við tengd euroflorist.
margir nýta sér þetta,“ segir sigurður.
Framúrskarandi blómaskreytingar
og gjafaskreytingar eru á meðal þess
sem lyfta runna upp sem blóma-
verslun: „Hún rósa hefur þetta í
blóðinu enda hefur hún fengist við
blómaumsýslu frá barnsaldri. Ég vil
meina að þessar skreytingar hennar
séu margar hverjar listaverk enda
hefur hún fengið ákaflega góða dóma
fyrir þær,“ segir sigurður.
Barnavörur í Runna.
Blómabúðin Runni
er opin alla daga
vikunnar. Á sunnu-
dögum er opið frá 11
til 17 en aðra daga frá
10 til 19. Til að panta
blómasendingar eða
fá upplýsingar er best
að hringja í síma 567
0760. Runni er einnig
með ágæta síðu á
Facebook sem finnst
með því að slá inn
„Blómabúðin Runni“ í
leitargluggann.
Púðar
Blómaskreytinga-
konan Rósa
Williamsdóttir