Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 90
90 fólk Áramótablað 29. desember 2017
Mokaði frá öllum húsum bæjarins um jólin
G
rindvíkingar þurftu ekki að
hafa mikið fyrir að moka
snjóinn frá húsum sínum
þessi jólin, því þegar hluti
þeirra fór á fætur var einn þeirra,
Arnar Már Ólafsson, löngu vakn-
aður og búinn að ganga hringinn
um bæinn og moka frá innkeyrsl-
um bæjarbúa.
Arnar Már, sem er 23 ára gam-
all, er vel þekktur í bænum, bæði
sem göngugarpur og fyrir góð-
mennsku sína. Lýsir hún sér vel í
þessu jólagóðverki hans, en Arn-
ar Már tók enga greiðslu fyrir allan
moksturinn.
„Ég byrjaði að moka á jóladag
klukkan fimm um morguninn,“
segir Arnar Már, sem er vaknað-
ur snemma alla daga til að fara
út í göngu. Hann kláraði að moka
kl. 17 seinnipart mánudags og var
síðan byrjaður aftur kl. 4 á þriðju-
dagsmorgun og mokaði til kl. 13.
„Það tók einn og hálfan dag
að moka í hverri einustu götu í
Grindavík,“ segir Arnar Már, en
þetta er annað árið í röð sem hann
tekur upp á þessum mokstri. Hann
áætlar að húsin séu um 100 talsins,
en er ekki með nákvæma tölu. „Ég
moka fyrir alla í Grindavík, þetta
er góð líkamsrækt og ég geri þetta
til að aðstoða bæjarbúa í Grinda-
vík, ég mokaði líka fyrir elliheimil-
ið Víðihlíð og gistiheimilin.“
Enginn greinarmunur var gerð-
ur á hvort Arnar Már þekkti íbúa
viðkomandi húss, hann einfald-
lega gekk á röðina með skófluna að
vopni. En ættu starfsmenn bæjar-
ins ekki frekar að sinna mokstrin-
um en hann? „Þeir voru í jólafríi,“
svarar Arnar Már að bragði og
brosir áður en hann heldur af stað
í morgungönguna.
Arnar Már gerði góðverk
fyrir Grindvíkinga
Félagar Arnar Már og vinur hans, Hilmir.
Mokað frá
hundrað
húsum Bæj
arbúar voru að
vonum hæst
ánægðir þegar
þeir vöknuðu og
búið að moka
fyrir þá. Nokkrir
þeirra deildu
myndum á
samfélagsmiðl
um og hrósuðu
Arnari Má fyrir
góðverkið.
Orðasnakk – Sérð þú lausnarorðið?
Leikurinn sem allir og amma þeirra eru að spila
J
ólin eru komin og farin fljót-
ar en hendi og dagatalið á
festi, en eitt af því sem situr
eftir að loknum jólum er leik-
urinn Orðasnakk, sem bókstaflega
allir sem eiga snjallsíma virðast
hafa náð sér í yfir jólin og byrjað
að spila.
En hvað er Orðasnakk og út
á hvað gengur leikurinn? Orða
Snakk heitir Word Snack á ensku
og má sækja hann sem app í
snjallsímann. Leikinn má spila á
nokkrum tungumálum, eða alls
31, þar á meðal á íslensku, ensku,
frönsku, þýsku og rússnesku
(undirbúningur fyrir HM 2018?).
Leikurinn er einfaldur, eða
alla vega virkar hann það. Sex
eða sjö stafir eru í boði, sem á að
raða saman til að mynda nokkur
þriggja til sjö stafa orð. En það sem
virðist einfalt er það ekki alltaf og
oft horfir maður framhjá augljós-
asta orðinu og lausninni um leið.
Stig fást fyrir rétt orð og auka-
stig fyrir reiti með stjörnum á. Í
boði er síðan að skipta stigunum
út fyrir aðstoð, sem er samt dýru
verði keypt: 120 stig fyrir einn staf.
Einnig er í boði að spyrja vini með
því að deila skjámyndinni inn á
Facebook. Má segja að fréttaveit-
an hjá manni hafi einkennst af
litlu öðru en slíkum hjálparbeiðn-
um síðustu daga, innan um mynd-
ir af jólatrjám týndum innan um
jólapakka og vel útilátnum veislu-
borðum.
En Íslendingar eru eldsnöggir
að taka við sér og láta sér ekki nægja
að deila skjámyndum á Facebook-
veggi sína og í einkaskilaboðum
um aðstoð. Þegar þetta er skrifað
hafa verið stofnaðir sex hópar á
Facebook þar sem meðlimir hjálp-
ast að við að leysa borðin eitt af
öðru, fjölmennasti hópurinn telur
yfir 1.100 meðlimi.
Ef þú ert einn af þeim örfáu sem
átt eftir að ná þér í leikinn, hugs-
aðu þig vel um áður en þú sækir
hann því hann er jafn ávanabind-
andi og grárra hára valdandi og
hann er skemmtilegur. Ef þú ert
þegar að spila hann þá vantar mig
aðstoð með fimm stafa orð, í boði
eru stafirnir R D Ý Á N og R.