Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 1
Lögregla telur að Thomas Møller
Olsen hafi reynt að hafa áhrif
á framburð Nicolaj Olsen um
hvarfið á Birnu Brjánsdóttur,
með því að ljúga að honum
hvað gerðist nóttina örlagaríku.
Thomas sagði Nicolaj að tvær
stelpur hefðu verið í bílnum. Þó
Nicolaj sé talinn trúverðugur í
yfirheyrslum hefur lögregla ekki
útilokað að hann hafi átt þátt í að
brjóta gegn Birnu. Thomas verð-
ur áfram í gæsluvarðhaldi.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Þegar Polar Nanoq hafði siglt frá
Hafnarfjarðarhöfn, laugardags-
kvöldið 14. janúar eftir að Birna
Brjánsdóttir hvarf, ræddi Thom-
as Møller Olsen við Nicolaj Olsen
um hvað hafði gerst. Nicolaj hefur
ávallt borið við minnisleysi vegna
mikillar ölvunar nóttina sem Birna
hvarf. Vitni hafa staðfest hve ölvað-
ur Nicolaj var og það sést greinilega
á myndbandsupptöku frá höfninni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans gaf Thomas sig á tal við
Nicolaj um borð og lét eins og tvær
stelpur hefðu verið með þeim í
rauðu Kia Rio bifreiðinni. Lögregla
telur að Thomas hafi með margvís-
legum hætti reynt að hafa áhrif á
minni og framburð Nicolaj með því
að bera í hann ósannindi um það
sem átti að hafa gerst. Ekki er talið
að aðrir en Birna hafi verið með
þeim í bílnum.
Nicolaj mun hafa greint frá því
í fyrstu yfirheyrslunum að hann
héldi að tvær stelpur hefðu ver-
ið í bílnum. Eftir nokkurn tíma í
gæsluvarðhaldi sagðist hann hafa
áttað sig á því að hann minntist
þess ekki að hafa séð tvær stelp-
ur og greindi lögreglu frá því að
þær upplýsingar hefði hann frá
Thomasi.
Lögregla telur að annar skip-
verjanna eða báðir hafi brotið á
Birnu Brjánsdóttur áður en hún
var myrt. Ekki er vitað hvort það
hafi gerst áður en Nicolaj yfirgaf
bílinn og Thomas varð einn eftir
með Birnu. Þó Thomas sé grunað-
ur um að hafa ráðið henni bana, er
ekki hægt að útiloka að Nicolaj hafi
verið í bílnum og jafnvel átt þátt í
að veitast að henni. Þess vegna er
Nicolaj ekki alveg laus allra mála,
þó hann sé ekki lengur í haldi.
Ekki er talið að Nicolaj geti veitt
frekari upplýsingar sem varpa ljósi
á atburðarásina.
Héraðsdómur Reykjaness fram-
lengdi í gær gæsluvarðhald yfir
Thomasi um tvær vikur. Úrskurð-
urinn verður kærður til Hæsta-
réttar.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
13. tölublað
8. árgangur
Föstudagur 17.02.2017
Rekstrarfélag Hrafnistu, Naustavör ehf., er gert að endurgreiða sjö eldri borgurum á Hrafnistu í Kópavogi samtals 1,3 milljónir króna, með
dráttarvöxtum, vegna hússjóðs sem stóð meðal annars straum af skrifstofukostnaði, púttvelli og eftirlitskerfum í sameign. Frá vinstri, Guðlaug
Gunnarsdóttir, Halldór Gíslason, Hörður Guðmundson og Jón G. Þórðarson.
Mynd | Hari
Thomas plantaði lygum í Nicolaj
14 36 24
KRINGLUNNI ISTORE.IS
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreingaraðili DJI á Íslandi
Sérverslun með Apple vörur
Phantom 4
Lækkað verð
149.990 kr. Phantom 4 Pro
Frá 229.990 kr.
Inspire 2
Frá 449.990 kr.
©
I
nt
er
I
K
EA
S
ys
te
m
s
B
.V
.
20
17
100.000,-
Taktu þátt
í fermingar-
leik IKEA
Þú getur
unnið vörur
fyrir allt að
Sjá nánar á
www.IKEA.is
ÖSKUDAGSBÚNINGAR
Faxafeni 11 | sími 534 0534
Finndu
okkur á
Lífið leikur við íslenskan
sjónvarpsstjóra á Papúa
Nýju-Gíneu Ævintýri
Eggerts Gunnarssonar
Eftir sjö ára baráttu við Hrafnistu höfðu
íbúar loks betur fyrir dómstólum.
Hrafnista
ofrukkaði íbúa
Píparinn
Svanborg
Vilbergs-
dóttir Kann
vel við sig í
skítnum
Skemmtilegustu
biðraðir
landsins
Fjölmiðlahrun í kjölfar
efnahagshruns
Nú taka sérhagsmunirnir við
Rassían gegn
Mossack Fonseca
Rannsóknir á Íslandi
8
12