Fréttatíminn - 17.02.2017, Page 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017
um. Þetta var eitthvað svo ótrú-
legt og mér fannst frekar ólíklegt
að af þessu yrði, sérstaklega vegna
staðsetningarinnar.“
Takmarkað rafmagn
En það varð úr að Eggert var ráðinn
og í dag vinnur hann fyrir írska fyr-
irtækið Digicel sem rekur sjónvarps-
stöðina sem hann stjórnar.
„Digicel er fjölmiðlunarfyrirtæki
sem setur sína starfsemi upp inni
á mörkuðum sem eru að verða til.
Þegar þeir komu hingað fyrr níu
árum var mjög takmörkuð síma-
notkun í landinu, einhverjar land-
línur en mjög takmarkað samband
og farsíma- og netnotkun var nánast
engin. Stór hluti íbúa hér býr í dreif-
býli með lítinn aðgang að nútíma-
tækni en Digicel hefur umturnað því
og þar af leiðandi umturnað þjóðfé-
laginu. Núna getum við endurvarp-
að 36 stöðvum út um allt land og
hver sá sem hefur rafmagn og get-
ur keypt af okkur gervihnattadisk
nær í merkið okkar, en rafmagn er
Eggert býr í höfuðborginni Port Moresby, sem er að hraðri leið til nútímans. Ein
sjónvarpsstöð er rekin af ríkinu og nást sendingar hennar í höfuðborginni og
öðrum stórum þéttbýliskjörnum. Digicel, sjónvarpsstöðin sem Eggert stjórnar er
einkarekin og nær til allra sem hafa gervihnattadisk.
ekki allra, þótt flestir í þéttbýli séu
með það.“
„Það er fátækt hérna en hún er
pínulítið öðruvísi hér en annars-
staðar í heiminum, því hér eiga allir
garða. Fjölskyldur eru iðulega alveg
sjálfbærar með mat svo það fer lítill
peningur í matarinnkaup. Fólk not-
ar aðallega þá litlu peninga sem það
á í að kaupa lúxus eins og hrísgrjón
og annað matarkyns sem er ekki
partur af þeirra mataræði en er að
koma til landsins núna. Og svo not-
ar fólk peninga til að kaupa sér síma
og inneign í hann, og jafnvel gervi-
hnattadisk. Það eru í raun ekki mikl-
ir peningar í hagkerfinu hérna og því
miður hafa ekki allir tækifæri til að
læra eða komast eitthvað áfram.“
Fallegur en skrítinn staður
„Þetta er mjög skrítinn staður að
vera á. Landið er ofboðslega fallegt,
hálfgerð paradís, en þar sem ég bý, í
höfuðborginni Port Morisby, er líka
mjög há glæpatíðni vegna mikillar
fátæktar. Landið er ekki strjábýlt en
það er mjög harðbýlt, það er mikið
af fjöllum hérna og miklar fjarlægð-
ir. Það er ekki búið að leggja hér vegi
svo höfuðborgin tengist ekki öðrum
þéttbýliskjörnum, hér þarf að fljúga
á milli staða. Svo getur hitinn hér
verið gífurlegur og merkilegt að
venjast því, komandi frá Íslandi,“
segir Eggert en veðurfar landsins er
mjög fjölbreytt. Það er í hitabeltis-
loftslagi með jöfnum hita en mikl-
ar úrkomur verða í regnskógunum
og í háum fjöllunum, allt að 4000
metrum yfir sjávarmáli, snjóar með
reglulegu millibili. „Það getur líka
verið flókið að vinna hér vegna allra
tungumálanna sem eru töluð hér,
yfir 800, því landið byggist upp af
ættbálkum. Þetta er óskaplegt karla-
veldi og landinu er stjórnað af höfð-
ingjum sem geta verið mjög spilltir.
En fólk er stolt af uppruna sínum og
hér er menning ættbálkanna allt um
kring. Fólk skrifar á ferilskrána sína
frá hvaða þorpi það kemur og þeir
sem tala sama mál styðja og hjálpa
hver öðrum.“
Reyna að hafa áhrif á pólitíkina
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika segist
Eggert vera kolfallinn fyrir landinu.
„Sérstaklega er ég fallinn fyrir þessu
fólki hérna, mér finnst þau bara al-
gjört æði. Þetta er magnaður hópur
sem margt hvert á við hluti að glíma
sem við getum ekki ímyndað okk-
ur,“ segir Eggert en hann er með
60 manna hóp starfsmanna á sinni
könnu sem sér um framleiðslu á inn-
lendu efni. „Ég hefði getað kosið að
ráða útlendinga í þessi störf en ég
ákvað að gera það ekki heldur ráða
frekar fólkið sem býr hér því það
þekkir umhverfið. Við erum með
fréttaflutning, beina útsendingu
einu sinni á dag þar sem fluttar
eru fréttir af því sem er að gerast,
og það hefur ýmislegt komið upp
á þetta ár sem ég hef verið hérna.
Það hafa verið óeirðir þar sem fólk
verður fyrir byssuskotum og fólkið
mitt hefur verið í mikilli hættu við
að afla frétta. Það hafa orðið upp-
þot á íþróttaleikjum þaðan sem
við erum að senda beint út. En við
erum líka byrjuð með viðtalsþætti
þar sem við köfum dýpra í hlutina og
það virðist vera að hafa áhrif á póli-
tíkina í kringum okkur. Næsta stóra
mál á dagskrá hér eru kosningar,
sem standa yfir í heilan mánuð, svo
það verður mikil vinna hjá okkur.
Við sendum líka beint út frá rögbík-
eppni, National Rugby Leage í Ástr-
aliu, en það er þjóðaríþróttin og fólk
er gjörsamlega brjálað yfir henni.
Svo erum við með samtalsþætti,
matreiðsluþætti, umræðuþætti í
sjónvarpssal, viðskiptaþátt, frétta-
skýringaþætti og tónlistarþætti,
íþróttaþætti og svo byrjuðum við
með hæfileikakeppni í vetur sem
er svakalega vinsæl og hefur verið
mikil vinna á bak við. Mest af mín-
um tíma fer í að tala við fólkið í
kringum mig og ákveða hvernig við
matreiðum efnið. Ég gerði mér fljót-
lega grein fyrir því að hérna gæti ég
notað mín evrópsku augu í að laga
tæknilega hluti en efnislega verð ég
að treysta á þeirra smekk og viðhorf.
Það sem virkar á Íslandi er ekkert að
fara að virka hér.“
Eggert er ráðinn til tveggja ára og
svo veit hann ekki hvað tekur við.
Fjölskylda hans varð eftir á Íslandi
og segir hann það erfiðasta við dvöl-
ina vera fjarlægðina við hana. „Það
verður gott að vera aftur með fjöl-
skyldunni. Öll þessi tækni gerir okk-
ur kleift að tala saman oft á dag en
það er ekki það sama þegar það er
engin snerting. Mitt hlutverk hér á
stöðinni er fyrst og fremst að leið-
beina og koma þekkingunni áfram
svo fólkið hér geti tekið við, kannski
á næsta ári. Það verður allavega
gaman að skilja við stöðina í hönd-
um þessa frábærra hóps sem ég hef
fengið að vinna með.“
„Mest af mínum tíma fer
í að tala við fólkið í kring-
um mig og ákveða hvernig
við matreiðum efnið. Ég
gerði mér fljótlega grein
fyrir því að hérna gæti ég
notað mín evrópsku augu
til að laga tæknilega hluti
en efnislega verð ég að
treysta á þeirra smekk og
viðhorf.“
Dagskrárgerðin dregur Eggert á nýjar slóðir, stundum langt inn í regnskógana.
Eitt af því allra vinsælasta sem Eggert framleiðir eru beinar útsendingar frá þjóðar-
íþróttinni, rugby. Hæfileikakeppnir og tónlistarþættir eru líka vinsælt efni.
1
6
-0
2
5
0
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nærandi millimál
… er létt mál
Gríptu með þér gríska jógúrt eða kotasælu
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með
hreinum grunni og hollum og stökkum toppi.
Grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum
eða kotasæla með berjum og möndlum.
möndlur
sólblómafræ
chiafræ
döðlur
grísk jógúrt
graskersfræ