Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017
Britta Bohlinger hefur áhuga á
svikum og áhættu, enda er hún
sérfræðingur á þessu sviði. Hún
beinir sjónum sínum að fjármál-
um, stjórnmálum og atvinnulífi.
Britta, sem starfaði áður hjá
fjárfestingabönkum og verðbréfa-
stofum í London, er nú að festa
rætur hér á Íslandi. Hún bloggar
um íslenskt samfélag og vill tengj-
ast inn í fræða- og stjórnmálalíf
landsmanna með það í huga að
gera samfélaginu gagn.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Það er ekkert sérstaklega róm-
antísk ástæða fyrir því af hverju
ég kom til Íslands. Ég varð ekki
ástfanginn upp fyrir haus eða neitt
þannig,“ segir Britta Bohlinger,
sérfræðingur í svikum, á kaffihúsi í
Borgartúni, innan um höfuðstöðvar
og háhýsi íslenska „fjármálahverf-
isins“. Britta er fædd í Þýskalandi,
ekki fjarri landamærum bæði Sviss
og Frakklands, en eftir háskólanám
í Bretlandi og átta ár í störfum í fjár-
festingabankakerfinu í London fékk
hún nóg af þeim heimi.
„Það er stundum sagt að eitt ár í
þessum bransa jafngildi sjö venju-
legum árum,“ segir hún og bros-
ir út í annað. „Þetta er ákafur og
krefjandi heimur sem ég kom inn
í eftir félagsvísindanám þannig að
ég er ekki af neinni bankamanna-
fjölskyldu. Þetta hefur eflaust gefið
mér aðra og gagnrýnni sýn á þennan
heim en gengur og gerist, allavega í
London.“
Að gera gott
Ekki fyrir svo ýkja löngu missti
Britta báða foreldra sína skömmu
áður en þau komust á eftirlaunaald-
ur og hún segir að það hafi haft áhrif
á hugsun sína. „Ég velti fyrir mér
hvað ég vildi gera í lífinu og hvernig
áhrif ég vildi hafa. Eftir að ég hætti
í bankanum lagðist ég í ferðalög og
heimsótti meðal Ísland. Ég sá að hér
Vill finna
glufurnar
í íslensku
samfélagi
vildi ég vera og nú er þetta annar
veturinn minn hér.
Eins og fleiri hafði ég fylgst með
því hvernig Ísland brást tiltölu-
lega hratt við í dómsmálum sem
tengdust hruninu og nokkur hópur
bankamanna fór í fangelsi. Ég veit
vel að það sem umheimurinn hef-
ur séð af þessum málum og stund-
um dáðst af, passar ekki endilega
alltaf alveg við upplifun Íslendinga
sjálfra og ég reyni að horfa á þetta
gagnrýnum augum, ekki í rósrauð-
um bjarma.“
Styrkleiki íslensks samfélags býr
í smæðinni en með henni myndast
líka hættur. Stuttar boðleiðir eru
oft af hinu góða en kunningjasam-
félagið getur líka skapað grá svæði.
„Þetta er lítið samfélag og jöfnuð-
ur enn tiltölulega mikill, sem ég tel
gríðarlega mikilvægt atriði, ekki síst
eftir að hafa búið í London þar sem
misskiptingin hefur aukist hratt.
Með efnahagslegum jöfnuði kemur
ákveðinn þrýstingur og vilji til að
taka á pólitískum álitamálum. Þessi
gagnrýna hlið íslensks samfélags
hefur verið lífleg frá hruni og er lík-
leg til að verða það áfram.
Íslendingar eru hins vegar hluti
af alþjóðavæddum heimi þar sem
glæpastarfsemi á sér stað þvert á
landamæri. Ástand í fjarlægum
löndum getur haft áhrif hér upp á
Íslandi, til dæmis í atvinnulífi, inn-
flytjendastefnu og svo framvegis.“
Að byrgja brunninn
Það er að skilja á hinni þýsku Brittu
Bohlinger að henni þyki ekkert sér-
staklega mikið til þess koma þegar
Íslendingar grípa til orðanna: „Þetta
reddast.“ Hún segir það mikilvægt
að reyna að sjá fyrir á hvaða svið-
um samfélagsins hætta á svikum,
undanskotum og spillingu getur
helst myndast. Það er alltaf betra
að bregðast við áður en skaðinn er
skeður.
„Svik (e. fraud) eru bæði mjög
neikvætt hugtak og vítt, en það er
mjög mikilvægt að þeir sem starfa
í fjármála- og stjórnmálalífinu átti
sig á því hvaða afleiðingar það getur
haft ef þeir vanrækja að kortleggja
hættuna á svikum,“ segir Britta. Hún
hefur eftir vinnu við innra eftirlit í
stórum fjárfestingarbönkum tak-
markaða trú á þeirri hlið starfsem-
innar. Stór hneykslismál, til dæmis í
Wells Fargo bankanum bandaríska,
styðji þá tilfinningu.
Siðferði og siðgæði blandast inn í
þessa umræðu og hvernig við rækt-
um þá mikilvægu eiginleika í skóla-
kerfinu og samfélaginu öllu. „Ef
við horfum til dæmis til fjármála-
geirans þá er umfjöllun um siðferði
innan hans oft á mjög óhlutbundn-
um nótum og sjaldnast tengd þeim
störfum sem fólk í þessum heimi
starfar við dagsdaglega. Það skiptir
máli að tengja milli athafna einstak-
lingsins og afleiðinganna sem þær
geta haft í för með sér. Við lifum í
samfélagi sem byggist á siðferði og
trausti, en gerum kannski minna af
því að hugsa um hvernig þessi atriði
lita allt okkar líf og hvað þau skipta
miklu máli við að halda samfélaginu
saman.
Annað vandamál er hve eftirlits-
aðilar á vegum ríkisins eiga erfitt
með að manna vel í stöður í starf-
semi sinni. Spekilekinn hjá eftirlits-
stofnunum er yfirleitt bara í eina átt,
yfir til þeirra fyrirtækja sem þessum
stofnunum er ætlað að hafa eftirlit
með. Bankar bjóða yfirleitt betur en
fjármálaeftirlit.“
Nýtt 2007
Íslendingar drekka víst orðið kampa-
vín af álíka áfergju og þeir gerðu fyr-
ir hrun. Túrisminn kyndir hagkerf-
ið, húsnæðisverð hækkar og margir
spyrja sig hvort það sé komið nýtt
góðæri, nýtt 2007.
„Ég, eins og fleiri, sé ákveðin
hættumerki, rauð f lögg,“ seg-
ir Britta. „Það er mikill þrýsting-
ur á íslenskt samfélag sem skapar
áskoranir og gerir kröfu um að Ís-
lendingar séu á varðbergi. Hækk-
andi húsnæðisverð og tækifæri og
áskoranir ferðamennskunnar, til
dæmis með tilliti til erlends vinnu-
afls, eru dæmi um þetta. Auðvit-
að hefur meðvitund um hættuna
á spillingu aukist hér eftir hrun en
umræðan mætti vera virkari, sýn-
ist mér. Þensla sem tengist ferða-
mannaiðnaðinum eykur þannig á
hættu á óheilbrigðum viðskiptahátt-
um, skattaundanskotum, svartri at-
vinnustarfsemi og veikari réttinda-
stöðu verkafólks. Þetta er vel þekkt
erlendis frá og mikilvægt fyrir Ís-
lendinga að vilja vera meðvitaðir
um hætturnar þegar svo miklar og
hraðar breytingar eiga sér stað.“
Britta Bohlinger er sérfræðingur í svikum.
Hún bloggar um samfélagsmál og tengir þau
áhættu og svikum á síðunni risikoklar.org.
Nafnið er samsett úr þýska orðinu yfir hættu
(risiko) og íslenska orðinu klár. „Ég reyni að
benda á að margt af því sem gerist í lífi okkar
á sér tengingar langt út í heim,“ segir hún.
Mynd | Hari.
Síðasta 7 vikna námskeið vetrarins
hefst 27. febrúar og lykur 28. apríl með tónleikum
Fyrir folk a ollum aldri e
Sem undirbuningur fyrir frekara songnam
eoa t6mstundagaman fyrir songcihugaf6/k
Kennslutimar •
Morguntimar I Siodegistimar I Kvoldtimar
Songtaekni e
Raddbeiting I Tulkun I Einsongur I Raddaour songur
T6nmennt •
T6nfro:?oi I T6nheyrnarpjalfun I N6tnalestur