Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 30
staðreyndir sem hafa ef til vill
ráðið úrslitum, þó án þess að af-
saka eða dæma nokkurn mann.
Maður er jafnvel ekki viss um að
hlutskipti mannsins hafi eftir allt
saman verið svo miklu verra en
þeirra sem fóru burt að leita ham-
ingjunnar á mölinni. Hann sýtir
ekki það sem aldrei varð (ekki
lengur alltént), kvelur ekki sjálfan
sig með sífelldum samanburði við
aðra, gengur öfund- og æðrulaus
á vit örlaga sinna. Hann skuld-
ar engum neitt, hefur skilað því
dagsverki sem honum var falið.
Því sem manni er trúað fyrir, því
er manni trúað fyrir, sagði hún
Gunna stóra í Innansveitarkron-
iku Laxness, andlegt skyldmenni
Arnfirðingsins. Eins þótt það sem
manni var trúað fyrir sé ekkert
merkilegra – í augum heimsins –
en að hirða um nokkrar rolluskját-
ur í harðbýlum afdal, vitandi að
eftir manns dag fari jörðin í eyði.
… og reykvískur
Í Borgarleikhúsinu er Hannes Óli
Ágústsson að sýna annan einleik,
Hún pabbi, sem mér finnst á ein-
hvern sérkennilegan hátt kallast á
við Gísla á Uppsölum. Hann fjallar
einnig um mann sem bindur bagga
sína öðrum hnútum en samferða-
mennirnir, en ólíkt Gísla, sem
sættir sig við orðinn hlut, afræð-
ur sá að taka málin í eigin hend-
ur. Hann er fæddur karlmaður,
en skynjar sjálfan sig sem konu,
stadda í öðrum líkama. Tækni-
vædd læknavísindi bjóða fólki,
sem þannig er ástatt fyrir, leið út
úr vanda þess, lausn sem eigi að
geta gert því fært að lifa í betri sátt
við sjálft sig. Þá leið ákveður hann
að halda, eins þótt það muni kosta
hann óheyrilegar fórnir.
Þetta er óvenju persónulegt og
nærgöngult verk, því að það lýsir
sambandi Hannesar Óla sjálfs við
föður sinn sem á miðjum aldri
fór í kynskiptaaðgerð, lét breyta
sér í kvenmann. Er yfirleitt hægt
að bera sjálfan sig og einn nán-
asta ættingja sinn svona á borð,
án þess að það verði vandræða-
legt eða smekklaust? Svarið við
þeirri spurningu er afdráttarlaust
já. Þó að efnið sé gerólíkt, þá er í
rauninni farið með það af sömu
hófstillingu, virðingu og ástúð,
og einkennir leik Bílddælinganna
um Uppsala-Gísla. Það er nálgast
af tilfinningu, án tilfinningasemi,
frá sjónarhorni sonarins sem er
á vissan hátt að syrgja horfinn
föður, reyna að sætta sig við að
nýr einstaklingur sé kominn í fjöl-
skylduna, finna leið til að sam-
þykkja hann, lifa með honum í
kærleik. Mun það takast? Vonandi
– en það verður aldrei einfalt eða
auðvelt.
Það mikilvægasta í lífinu er að
vera maður sjálfur, segir í Hún
pabbi. Hvílík klisja, kann ein-
hver að segja. Hugsanlega – og þó.
Vandinn er sá að sumir þurfa að
borga miklu hærra verð en aðrir
fyrir að vera þeir sjálfir. Eða svo
virðist að minnsta kosti í fljótu
bragði. En eru það í raun og veru
einhlít sannindi? Eiga afdala-
bóndinn og kynskiptingurinn, í
einsemd sinni, innri og ytri bar-
áttu, jafnvel meiri ítök í okkur en
við viljum – eða treystum okkur til
– að viðurkenna?
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017
Einleikir virðast hafa notið vaxandi vinsælda í íslensku leikhúsi á síðari árum. Þetta er auðvitað listform sem
hentar vel fjárvana leiklistarfólki,
en svo hefur það eflaust haft áhrif
að vestur á fjörðum hefur verið
haldin á hverju ári frá 2004 sér-
stök hátíð helguð einleiklistinni,
Act alone (Leikur einn). Hún hefur
fengið afar góðar undirtektir bæði
meðal gesta og heimamanna, enda
hafa ýmsir af fremstu leikurum
landsins komið þar fram, auk er-
lendra gesta sem voru tíðir fyrstu
árin en hefur fækkað heldur eftir
Hrun. En það hefur í rauninni
ekki komið svo mjög að sök, því
að yfrið framboð hefur verið af
innlendu efni – góðu efni – og það
svo að dagskráin hefur alltaf verið
umfangsmikil, metnaðarfull og
ótrúlega fjölbreytt.
Allt þetta hefur meira og minna
byggst á framtaki eins manns,
Elfars Loga Hannessonar, sem hef-
ur jafnframt starfað sem leikari,
höfundur, útgefandi og leikstjóri í
fullri vinnu, fyrir vestan og víðar.
Honum hefur tekist að virkja þá
krafta sem eru þarna í nærsam-
félaginu og beina þeim í réttan
farveg. Þarf ekki að hafa mörg orð
um það hversu miklu þetta hefur
skipt menningarlíf á Vestfjarða-
kjálkanum og hafa vestfirskir
forystumenn þó síst hampað því
um of að landshlutinn státar nú
ekki aðeins af einu atvinnuleik-
listarhátíð þjóðarinnar heldur
einnig þeirra langlífustu. Blikur
eru vissulega á lofti nú hvað fram-
haldið varðar, en við verðum að
vona að úr rætist, því að það væri
áfall, ekki aðeins fyrir Vestfirðinga
heldur allt íslenskt leikhús, ef hún
liði undir lok.
Elfar Logi hefur í eigin leiksköp-
un einbeitt sér að einleikjum sem
hann hefur flesta samið sjálfur eða
í samvinnu við aðra. Efniviðinn
hefur hann oftast sótt í vestfirska
sögu og mannlíf. Nýjasti ávöxtur
þessa starfs (og einn sá allra besti)
hefur verið sýndur víða um land
síðustu vikur og mánuði, nú sein-
ast í Þjóðleikhúsinu þar sem hann
gengur enn við vinsældir. Hann
fjallar um einyrkjann Gísla á Upp-
sölum, manninn sem varð lands-
frægur þegar Ómar Ragnarsson
sótti hann heim og gerði um hann
sjónvarpsþátt árið 1981.
Vestfirskur einfari …
Gísli bjó á bæ sínum í Selárdal yst
við Arnarfjörðinn og hafði lifað
þar alla ævi nánast af sjálfsþurftar-
búskap, einn í meira en þrjátíu ár.
Hann talaði orðið svo óskýrt að
samtalið varð að texta, sá aldrei
peninga (mundi ekki einu sinni
hvort hann fengi ellistyrk eða
ekki), hafði ekki kosið í áratugi;
var eiginlega eins mikið utan við
nútímann og nokkur maður frek-
ast getur verið, segi hann sig ekki
hreinlega úr lögum við samfé-
lagið. Á yngri árum hafði hann
þráð að komast burt, sjá heiminn
og mennta sig, sem hann hafði
alla burði til, kvænast, eignast
fjölskyldu, en þær vonir urðu að
engu; hann sat um kyrrt í dalnum
þegar aðrir fluttu burt. Þau örlög
voru í sjálfu sér dæmigerð fyrir
ýmsa af hans kynslóð, sveitafólk
sem af einhverjum sökum fylgdi
ekki straumnum yfir í þéttbýl-
ið heldur varð eftir, fast í öðrum
tíma.
Í einleik þeirra Elfars Loga og
Þrastar Leós Gunnarssonar, sem
annast sviðsetningu og leikstjórn,
er brugðið upp svipmynd af
undarlegu lífi mannsins, brota-
kenndri mynd en þó einkennilega
heillandi; mynd sem vekur miklu
fleiri spurningar en hún svarar
og býr yfir dýpt sem veldur því að
hún leitar á mann löngu eftir að
leik er lokið. Það er einn megin-
styrkur verksins, virðist mér, að
þar er ekki reynt að skýra þetta
lífshlaup; aðeins bent á fáeinar
Tveir einleiknir einfarar
Jón Viðar Jónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
○ Gísli á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu ○ Hún pabbi í Borgarleikhúsinu
„Það er einn meginstyrkur verksins, virðist mér, að þar er ekki reynt að
skýra þetta lífshlaup; aðeins bent á fáeinar staðreyndir sem hafa ef til
vill ráðið úrslitum, þó án þess að afsaka eða dæma nokkurn mann.“
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á wwww.serlyfjaskra.is
Fyrir þig í Lyfju
Verð: 1.506 kr.
Verð áður: 1.883 kr.
Verð: 537 kr.
Verð áður: 671 kr.
Naso-ratiopharm
Nefúði við nefstíflu, t.d. vegna kvefs.
Nasofan
Bólgueyðandi steri í nefúða,
- við ofnæmi.
fluticasonprópíónat
50 µg/sk – 60 skammtar
xylometazolinhýdróklóríð.
0,5 og 1 mg/ml – 10 ml
Nefstífla
Nefrennsli
Kláði í nefi
Hnerri
afsláttur
Gildir út f
ebrúar
20 %