Fréttatíminn - 17.02.2017, Síða 34

Fréttatíminn - 17.02.2017, Síða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017 Kynntust fyrir algjöra tilviljun á ráðstefnu í Barcelona. Starfa náið saman sín í hverju landinu Baddý rekur vefstofufyrirtæki í Frankfurt og réð Höddu, sem býr í Barcelona, í vinnu hjá sér. Þær eru svo í reglulegum sam skiptum við Jóhönnu sem býr og starfar í Texas. Tæknin gerir það að verkum að þetta er næstum jafn einfalt og ef þær væru staddar í sömu byggingu. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Baddý Sonja Breidert er búsett í Frankfurt í Þýska-landi, Hadda Hreiðars-dóttir í Barcelona á Spáni og Jóhanna Bergmann í Texas í Bandaríkjunum. En þrátt fyrir fjarlægðina á milli þeirra hafa þær allar unnið saman að verk- efnum síðustu tvö árin. Baddý og Hadda reyndar hjá sama fyr- irtækinu, sem er í eigu þeirrar fyrrnefndu. En tæknin gerir þeim kleift að vera í nánu samstarfi þrátt fyrir að þúsundir kílómetra séu á milli þeirra. Nú koma þær til að mynda allar að skipulagningu ráð- stefnu sem haldin verður á Íslandi í lok febrúar. Baddý er forritari, eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins 1xINTERNET sem er svokölluð Drupal vefstofa. En hún rekur fyrir- tækið ásamt eiginmanni sínum og þriðja aðila í Frankfurt. Hinn venju- legi Íslendingur veit eflaust ekki hvað Drupal hugbúnaður er, þrátt fyrir að nýta sér reglulega vefsíður sem byggðar eru á honum. Blaða- maður sló á þráðinn til Baddýjar og Höddu og fékk þær til að útskýra aðeins hvað þær eru að gera og hvernig það er að starfa saman, en samt svo langt frá hvor annarri. „Við erum að vinna með opinn hugbúnað sem heitir Drupal sem mörg þúsund manns víða um heim hafa þróað. Þetta er hugbúnaður til að búa til vefkerfi. Vefur Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar, RÚV og fjölda annarra opinberra stofnana keyra á þessu vefkerfi. Það þyk- ir nefnilega ekki vinsælt að nota skattpeninga í að borga leyfisgjöld fyrir hugbúnað, en það þarf ekki að greiða slík gjöld af Drupal,“ útskýrir Baddý og heldur áfram: „Opinn hugbúnaður þýðir ein- faldlega að það þarf ekki greiða gjöld af honum og það geta í raun allir kóðað hluta af honum. Við ger- um það. Baddý og maðurinn hennar kynntust umræddum hugbúnaði fyrir 6 árum, stofnuðu fyrirtæki í kringum hann, og hafa verið að vinna með hann síðan. „Við vorum búin að vera að for- rita lengi og rákumst á þennan opna hugbúnað sem okkur leist svakalega vel á og sáum tækifæri í. Við ákváð- um í kjölfarið að stofna fyrirtæki. Við byrjuðum bara tvö heima í kjall- aranum. En sagan af því hvernig fyrirtækið fór að þróast hófst eig- inlega með því að við eignuðumst fyrir bura heima á Íslandi, stelpu sem fæddist 11 vikum fyrir tímann. Þá vorum við bæði hætt í þeim störfum sem við vorum í og farin að einblína á fyrirtækið. En fyrstu alvöru viðskiptavinina fengum við á Íslandi.“ Þau hjónin komust fljótt að því að fjöldi opinberra stofnana á Íslandi var að nota hugbúnaðinn og hafa starfað með mörgum þeirra síðan. En markaðurinn vex líka mjög hratt í Þýskalandi. Það var hinsvegar í Barcelona árið 2015 sem leiðir þeirra Baddýjar, Höddu og Jóhönnu lágu fyrst saman. Þá voru þær í fyrsta skipti á sama stað á sama tíma. Jóhanna starfaði þá hjá stofnun sem heldur utan um Drupal hugbúnaðinn í Bandaríkjunum. En þá er komið að Höddu að út- skýra hvernig í ósköpunum hún kemur inn í þetta, án þess að hafa neitt vit á forritun eða hafa nokkurn tíma heyrt um Drupal. En hún er viðskiptafræðimenntuð. „Ég kom þannig inn í fyrirtækið að Jóhanna og ég unnum saman fyr- ir 15 árum síðan. Hún var að koma á Drupal ráðstefnu í Barcelona, sem ég hafði ekki hundsvit á og vissi ekk- ert hvað var. Ég var nýbúin að segja upp vinnunni minni þegar hún kom í kaffi til mín og sagðist ætla að redda mér atvinnuviðtali. Áður en ég vissi af var búið að ráða mig í vinnu,“ segir Hadda sem nú er ver- kefnastjóri 1xINTERNET og situr á Spáni og talar við íslenska viðskipta- vini allan daginn. „Þú varst algjörlega ráðin á staðn- um, í bókstaflegri merkingu. Daginn eftir vorum við Hadda byrjaðar að vinna því okkur bauðst að taka þátt í útboði á Íslandi sem þurfti að skila inn. Þannig að Jóhanna er örlaga- valdur í þessu samstarfi. Þess vegna fannst okkur hún líka vel til þess fallin að koma til Íslands og vera í forsvari fyrir fyrstu Drupal ráðstefn- una á Íslandi,“ segir Baddý, en ráð- stefnan fer fram í lok febrúar. Sagan af því hvernig fyrirtækið fór að þróast hófst eiginlega með því að við eignuðumst fyrir­ bura heima á Íslandi, stelpu sem fæddist 11 vikum fyrir tímann.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.