Fréttatíminn - 17.03.2017, Side 30
og Logan veltir fyrir sér hvort þau
hafi verið mistök almættisins,
frekar en næsta skref í þróunar-
sögunni.
Gamlir menn og mistök
Þetta er í raun á margan hátt
mynd um ellina – Logan sjálfur
er orðinn miðaldra og þótt hann
sé enn tæknilega ósæranlegur og
vinni flesta bardaga þá er þetta allt
erfiðara. Kúlurnar hrökkva ekki af
honum heldur þarf hann að tína
þær út eftir bardaga – og deyfa
sársaukann með ómældu magni
af áfengi. Hann er alkóhólisti sem
hreinlega getur ekki drukkið sjálf-
an sig í hel þótt hann glaður vildi
– en samt virðist ýmislegt benda
til þess að þegar aldurinn færist
yfir verði x-mennirnir dauðlegir
eins og við hin. Þetta á ekki síður
við um Prófessor X. Hann hefur í
gegnum tíðina sjaldnast verið mest
spennandi persóna sagnabálksins í
meðförum Patrick Stewart, til þess
var hann alltaf of vitur, sjálfsörugg-
ur og ákveðinn. En þegar aldurinn
færist yfir og hann fer að missa tök-
in á eigin kröftum þá birtist okkur
allt önnur og forvitnilegri persóna,
maður sem hefur reynt allt til að
breyta heiminum til betri vegar
en veit að honum hefur mistek-
ist. Stewart skilar þessum harmi
ellinnar hreint meistaralega, sem
og gleðinni yfir einföldum hlutum
eins og að fá að gista næturlangt
hjá almúgafjölskyldu sem lifir lífinu
sem hann hefur barist fyrir en þó
aldrei átt sjálfur. Rám rödd Johnny
Cash heyrist á einum eða tveim-
ur stöðum í myndinni og ef Cash
hefði gert ofurhetjumynd hefði
það getað verið þessi (enda leik-
stýrir James Mangold myndinni,
en hann leikstýrði áður Walk the
Line um ævi Cash) – hér syngja
allir sinn ráma söng um missi og
þyrnum stráða ævi sem brátt mun
ljúka. Harmur prófessorsins snýr
þó ekki að honum sjálfum – heldur
að því að hafa ekki getað skilið eftir
sig betri heim.
Við vitum ekki nákvæmlega
hvað hefur gerst á þessum tólf
árum sem hafa liðið frá okk-
ar dögum. Við sjáum einfald-
lega heim þar sem venjulegar
manneskjur virðast almennt
undir hælnum á stórfyrir-
tækjum eða ríkinu, stofnana-
væddur fantaskapur og ægi-
vald stórfyrirtækja mynda
eitraðan kokteil dystópísk samfé-
lags sem er ekki endilega svo ólíkt
okkar eigin, bara töluvert verra.
Það rímar ágætlega við samtímann
að útskýra ófarirnar ekki um of;
við vitum ekki hvert Trump-stjórn-
in mun leiða okkur – en við höfum
mörg illan grun um að það verði
alltaf miklu verri heimur.
Glasabarn Úlfsdóttir
Ég minntist áðan á að engin stökk-
breytt börn hefðu fæðst í aldar-
fjórðung. En það var misskilningur
þeirra félaga – þau hafa vissulega
ekki fæðst eðlilega, en á mexí-
könskum spítala höfðu Bandaríkja-
menn gert tilraunir með erfðavísa
x-mannanna – og látið konur sem
enginn myndi sakna ganga með
þessi börn. Það eru hins vegar
mexíkanskar hjúkrunarkon-
urnar sem reynast
hvunndagshetjur
myndarinnar –
og ná að forða
börnunum frá
sköpurum sín-
um.
Eitt þessara
barna, Laura,
lendir í for-
sjá Log-
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Ásgeir H Ingólfsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Þegar tökum lauk á Logan, þriðju og síð-ustu myndinni um mannúlfinn Wolverine (og alls tíundu X-Men
myndinni), leit allt út fyrir að
Hillary Clinton yrði næsti Banda-
ríkjaforseti. Það voru alls konar
vandamál í heiminum – en bann
við handvöldum innflytjendum
og múr á landamærum Banda-
ríkjanna og Mexíkó var ekki þar á
meðal. En góðir listamenn skynja
tímann öðruvísi og handritshöf-
undar Logan virðast hafa verið
furðu forspáir. Myndin gerist í ná-
lægri fortíð, árið 2029 nánar til-
tekið, en ártalið skiptir ekki öllu
máli – frekar það að einmitt svona
gæti maður ímyndað sér að fram-
tíðin muni líta út eftir nokkur ár af
Trumpisma (nema auðvitað maður
sé sérlega svartsýnn og búist við
heimstyrjöld, en það er önnur saga
– sem vafalaust verður sögð í ein-
hverri bíómynd fljótlega).
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Mannúlfurinn Logan og innflytjendurnir hans Kaurismäkis.
Logan reynir að forðast forna
frægð, vinnur við að keyra limús-
ínu fyrir Uber og við sjáum
skjannahvíta pabbastráka standa
upp úr topplúgunni og öskra „Am-
eríka, Ameríka!“ Það er enginn efi
eða spéhræðsla í þessari upphróp-
un þeirra, þetta er heimur þar sem
fölskvalaus þjóðernishyggja hefur
unnið fullnaðarsigur. Við erum
stödd í El Paso, rétt við mexík-
önsku landamærin. Handan þeirra
felur Logan Prófessor X, sem nú er
kominn á tíræðisaldur og er með
óútskýrða heilabilun. Sem væri
bara persónulegur harmleikur
gamals manns ef þessi heilabilun
ætti sér ekki stað í öflugasta heila
jarðkringlunnar, heila manns sem
les hugsanir og færir hluti úr stað
með hugarorkunni einni. Slík-
ur heili verður hættulegur þegar
hann hefur ekki fulla stjórn á
honum og Logan þarf reglulega
að sprauta hann niður með að-
stoð þriðja x-mannsins – ljósfælna
albínóans Calibans. Þeir eru síð-
ustu x-mennirnir – börn hafa ekki
fæðst stökkbreytt í aldarfjórðung
ans og prófessorsins og verður
þriðja aðalpersóna myndarinnar.
Þegar hún lendir í sínum fyrsta
bardaga sýnir hún svo klærnar,
bókstaf lega, og það er augljóst
hverra manna hún er. Þetta glasa-
barn Logans, ellefu ára leikkona að
nafni Dafne Keen, sem stelur sen-
unni rækilega af gömlu mönnun-
um Logan og Prófessor X – og gæti
vel orðið vísir að framtíðarsagna-
bálki. Hún mælir vart orð af munni
framan af mynd – en augnatillitið
segir oftast allt sem segja þarf og
þessi ylfingur er ennþá fimari bar-
dagaúlfur en Logan, enda fædd
með klær.
Hún og jafnaldrar hennar, sem
birtast einnig stuttlega, eru fram-
leidd af óvininum, rétt eins og
Logan sjálfur var – en hann brýn-
ir fyrir henni að verða ekki það
drápstól sem þeir ætluðu henni að
verða: „Don‘t be what they made
you.“ Þannig eru þau x-mennirn-
ir sem Trump skapaði (hún er ell-
efu ára og mun því fæðast á þessu
kjörtímabili) – en þau geta líka
verið börnin sem bjarga okkur frá
Trump og þeirri stefnu sem hann
og hans líkir hafa markað.
X-Mennirnir hafa alltaf verið
Trójuhestur hinna undirokuðu
inn í myndasöguheiminn – of-
urmennishugmyndir Nietzsche
og um margt ómakleg tengsl
hennar við fasismann hafa
Logan er máski 200 ára gamall – en núna er hann orðinn miðaldra og ekki alveg
jafn ósæranlegur og áður.
Charles Xavier er kominn
á tíræðisaldur – og
heilinn er farinn að bila.
Sem er vandamál
þar sem þetta er
ennþá öflugasti
og hættulegasti
heili í heimi.
Við vitum ekki hvert
Trump-stjórnin mun leiða
okkur – en við höfum
mörg illan grun um að
það verði alltaf miklu
verri heimur.
Úlfynja Laura ólst upp á mexíkönskum
spítala en var bjargað þaðan af góðvilj-
uðum hjúkrunarkonum.