Fréttatíminn - 17.03.2017, Qupperneq 52
8 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017BÍLAR
Guðmundur E. Björnsson er framkvæmdarstjóri Automatic. Hann segir að Ombrello sé
algjört töfraefni. Mynd | Hari
Ombrello er framrúðubrynvörn sem veitir
einstaklega góða vörn gegn rigningu á
bílrúður. Mynd | Hari
Að sögn Ara byggir Gullfoss bón á bandarísku hugviti. Fyrirtækið ákvað að innleiða
það vegna góðrar reynslu erlendis. „Þetta er alveg brilljant,“ segir Ari Rafn Vilbergsson,
framkvæmdastjóri Bón og þvottastöðvarinnar, um svokölluðu Gullfoss bónaðferðina.
Mynd | Hari
Ombrello eykur öryggi við akstur
Automatic er heildsölufyrirtæki með bílarekstrarvörur fyrir bílaiðnaðinn.
Verslunin flutti árið 2011 í stærra og betra húsnæði við Smiðjuveg 11 í Kópavogi.
Unnið í samstarfi við Automatic
Guðmundur E. Björnsson er framkvæmdarstjóri fyrirtækisins. Fyrirtækið er m.a. með umboð fyrir
töfraefnið Ombrello.
En hvað er Ombrello?
„Ombrello er framrúðubryn-
vörn sem veitir einstaklega góða
vörn gegn rigningu á bílrúður.
Þetta hefur náttúrlega ofboðs-
lega mikið umferðaröryggi í för
með sér, bætir útsýni ökumanns
og farþega al-
veg svakalega
mikið og ekki
síst í myrkri.
Þegar maður
er búinn að
bera þetta á
framrúðuna
þá þarf maður ofboðslega lítið
að nota þurrkurnar í rigningu,
vatnið einfaldlega fýkur af. Þetta
er nanoefni og það sem nanoefni
gerir er að það fyllir upp í míkró-
holur í glerinu. Nanoefni hafa
verið að ryðja sér til rúms í margs
konar iðnaði. Þetta er stórsnið-
ug uppfinning, þú ert
í raun að sparsla í
holur sem þú getur
ekki séð með ber-
um augum með því
að smyrja efninu
á framrúðuna ná
vatnsmólekúlin ekki að bindast
við rúðuna. Það þýðir ekki að nota
efnið á neitt annað en gler. Einn
kosturinn við efnið er líka sá að
rúðuþurrkublöðin endast miklu
lengur. Stærsti ávinningurinn er
náttúrulega að auka öryggi fólks í
umferðinni,“ segir Guðmundur.
En hvað virkar efnið lengi eftir
það er borið á rúðuna?
„Þetta hefur virkni í allt að 10
mánuði eftir að efnið er borið á
rúðuna. Efnið fjarar út hægt og
rólega. Það sem Ombrello hefur
fram yfir sílíkonefnin er að þau
efni skafast af með
rúðuþurrk-
unum
frekar
fljót-
lega eftir
að þau
efni eru
borin á.
Virknin á
Ombrello er því
miklu endingarlengri
en sílíkonefnin. Þegar það
er nýbúið að bera Ombrello á
rúðuna þá hrímar rúðan síður í
frosti,“ segir Guðmundur.
Hvaðan kemur þetta
undraefni?
„Þetta er upphaflega fundið
upp af þýska hernum og þróað
áfram af honum. Það var svo
Endingarbetra bón og aukinn gljái
Bón- og þvottastöðin innleiddi á síðasta ári nýja bónaðferð sem hefur slegið í gegn.
Unnið í samstarfi við
Bón og þvottastöðina
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Ari Rafn Vilbergsson, segir við-skiptavini hæstánægða
með þjónustuna.
„Þetta er ný byltingarkennd
aðferð sem fer þannig fram að bíll
fer í gegnum þykkt lag af bóni,
eða undir hálfgerðan foss af bóni,
sem rennur í alla króka og kima,“
útskýrir Ari, þegar blaðamaður
grennslast fyrir um þjónustuna.
„Það er ekki blettur á bílnum eftir
á. Hann kemur út alveg tandur-
hreinn og glansandi.“
Og er góð ending á bóninu?
„Já, Gullfoss bónið endist klár-
lega lengur. Og þar fyrir utan
veitir það aukinn gljáa líka,“ svar-
ar Ari kampakátur og getur þess
að viðskiptavinir Bón og þvotta-
stöðvarinnar séu afskaplega
ánægðir með þessa þjónustu.
„Já, fólk hefur verið alveg í
skýjunum síðan við fórum að
bjóða upp á Gullfoss bónið síð-
asta sumar. Leigubílstjórar, sem
geta nú margir hverjir verið
kröfuharðir, tala sérstaklega um
hvað það sé gott.“
Af kynningarmyndbandinu á
heimasíðunni ykkar að dæma
(www.bon.is) er líka heilmikið
„show“ í kringum þetta, ef svo
má að orði komast; blikkandi ljós
og læti. Ari hlær. „Já, flestir hafa
því gaman af því að sitja inni í
bílnum þegar hann rennur í gegn.
Ekki síst krakkarnir.“
Já, þannig að farþegar sitja í
bílnum á meðan hann er þrifinn
og bónaður? „Þeir sitja bara
sallarólegir á meðan hann er
þveginn hátt og lágt,“ svarar
hann og getur þess að fyrirtæk-
ið sé líka eina sjálfvirka bón- og
þvottastöð landsins „sem þrífur
allt í höndunum“ eins og hann
orðar það. „Við notum sem sagt
ekki kústa eða bursta til þess
heldur sérstaka svampa sem
lágmarkar hættu á rispum og fer
betur með lakkið.“
Bíllinn er sem sagt „þrifinn
í höndunum“ áður en hann fer
undir „fossinn“. En hvernig er
það, hentar Gullfoss bón öllum
gerðum af bílum?
„Allir bílar sem koma inn á
stöðina, hvort sem það eru jeppar
eða litlir fólksbílar, geta feng-
ið Gullfoss bónið. Svo sem lengi
sem þeir eru undir 2,30 á hæð.
Það er hámarkið. Þannig að stórir
bílar, jeppar á allt að 38 tomma
dekkjum, sleppa hæglega í gegn.“
Og Ari getur þess að Gullfoss
bón fylgi frítt með í kaupum á
klippkortum stöðvarinnar. „Ef þú
kaupir kort hjá okkur þá borgarðu
fyrir 10 þvotta en færð raunveru-
lega 12 og svo fylgir „Gullfoss“
í kaupbæti með hverju skipti,“
segir hann. „Þannig að nú er bara
að mæta og prófa. Sjón er sögu
ríkari!“
Bón og þvottastöðin er
til húsa að Grjóthálsi 10 í
Reykjavík. Nánari upplýsingar á
www.bon.is.
þýskt fyrirtæki sem hélt áfram að
þróa efnið fyrir almennan mark-
að. Þannig að það yrði einfalt að
vinna þetta og ekki flókið að bera
þetta á. Efnið kemur í innsigluðu
glerhylki sem er áfast filt-púða.
Notandinn rýfur innsiglið með því
að kreista handfang og þá þarf
að koma því strax á rúðuna svo
að virknin verði sem best. Þetta
er því einnota „treatment“,“ segir
Guðmundur.
Hvar er hægt að nálgast
Ombrello og er þetta dýrt efni?
„Þetta kostar ekki nema
rétt rúmar 2000 krónur. Með-
al útsölustaða má nefna bens-
ínstöðvar Olís, AB Varahluti,
Brimborg, MAX1 og ýmsa sjálf-
stæða sölustaði út um allt land,“
segir Guðmundur.
Allar nánari upplýsingar
er hægt að nálgast á
www.automatic.is