Fréttablaðið - 03.02.2018, Qupperneq 2
sem kæmu til að fá sprautur og nálar
myndu sjálfkrafa afhjúpa að þeir
væru með fíkniefni á sér til neyslu.
„Það gæti verið snúið. Hugsan-
lega gætu þeir leitað til heilbrigðis-
starfsfólks, eða hægt væri að koma
upp aðstöðu í fangelsunum, ég veit
það ekki. Þetta er ekki alveg ein-
falt. Neyslunni fylgir oft ofbeldi og
vandamál í fangelsum þannig að
það er snúið að gefa eftir í því alveg.“
Bendir Páll á að svona nokkuð sé
augljóslega auðveldara úti í sam-
félaginu þar sem bíl er komið fyrir
á hlutlausu svæði og fólk fær hreinar
sprautur og nálar. Í ýmis horn sé því
að líta.
Annað sem lagt er til er að
föngum á Íslandi verði boðið upp
á skimun fyrir kynsjúkdómum.
Verði sóttvarnalækni falið að gefa
út leiðbeiningar um skimunina og
hún verði hluti af viðurkenndri heil-
brigðisþjónustu fanga. Páll kveðst
mjög hlynntur því en fangar hafa nú
þegar aðgang að ókeypis smokkum.
mikael@frettabladid.is
Veður
Suðvestan strekkingur og él en bjart
austantil á landinu. Frost um allt
land, jafnvel talsvert í innsveitum
fyrir norðan. sjá síðu 46
Stuðmaður kvaddur
Kista Tómasar Magnúsar Tómassonar, sem borinn var til grafar í gær, var sveipuð regnbogafánanum. Tómas var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju og
voru félagar hans úr Stuðmönnum kistuberar. Tómas var örlagavaldur í íslensku tónlistarlífi og einn afkastamesti tónlistarmaður landsins en hann
var meðal annars bassaleikari í Stuðmönnum. Tómas lést í lok síðasta mánaðar eftir stutt en erfið veikindi, 63 ára að aldri. Fréttablaðið/SteFán
dýralíf Kvartað hefur verið til Heil-
brigðiseftirlits Austurlands undan
því að fólk fóðri hrafna í útjaðri
Egilsstaða.
Í tilkynningu á vef Fljótsdalshér-
aðs kemur fram að gögn sem heil-
brigðiseftirlitið hafi sýni að mikið af
matarúrgangi sé borið út og að allt
að tugur hrafna hópist þar að.
„Hrafnarnir halda sig í trjám
og á ljósastaurum í norðurhluta
bæjarins og bíða næstu fóðrunar,
en krunka mikið fyrir birtingu og
halda jafnvel vöku fyrir íbúum,“
segir í tilkynningunni. „Hér með er
eindregið farið fram á að hrafnar séu
ekki fóðraðir, a.m.k. ekki svo nálægt
byggð. Villtum dýrum er eðlilegt að
afla sér fæðu af eigin rammleik.“ – gar
Ofaldir hrafnar
valda andvöku
Kunna gott að meta. Fréttablaðið/GVa
Viðskipti Sala á nýjum bílum í
janúar jókst um 31 prósent borið
saman við sama mánuð árið 2017.
Nýskráðir fólksbílar á tímabilinu
voru 1.622 á móti 1.233 í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Bíl-
greinasambandinu hefur árið farið
vel af stað og gefi ákveðnar vís-
bendingar um framhaldið. Bílasala
til einstaklinga og fyrirtækja hafi
tekið við sér og loks farið af stað í
fyrra að einhverju marki. Undan-
farin ár hafa bílaleigubílar verið
um 40 prósent af öllum nýskráðum
fólksbílum. – smj
Bílar rokseldust
í janúarmánuði
lögreglumál Maðurinn sem hand-
tekinn var við komuna til landsins
frá Spáni í síðustu viku vegna fíkni-
efnamáls hefur verið úrskurðaður í
fimm daga gæsluvarðhald til viðbót-
ar. Þetta staðfestir Margeir Sveins-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn er ásamt þremur öðrum
grunaður um aðild að fíkniefna-
innflutningi frá Spáni. Manninum
sem var handtekinn um sama leyti
vegna málsins hefur verið sleppt
úr haldi. Tveir sitja því enn í haldi
en tveimur hefur verið sleppt. Allir
hafa þeir stöðu sakbornings í mál-
inu. Rannsókn miðar vel. – aá
Þeim fjórða
sleppt úr haldi
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Heilbrigðismál „Þetta kann að vera
snúið í framkvæmd inni í fangels-
unum en við erum opin fyrir öllum
tillögum,“ segir Páll Winkel fang-
elsismálastjóri um tillögur sem
starfshópur um aðgerðir gegn kyn-
sjúkdómum hefur skilað af sér.
Þar er meðal annars lagt til að
tekin verði upp skaðaminnkandi
nálgun í fangelsum í samvinnu við
fangelsisyfirvöld þar sem fangar
hafi aðgang að nálum, sprautum og
smokkum sér að kostnaðarlausu.
Fangar eru áhættuhópur hvað
varðar kynsjúkdóma og sýkingar
sem berast milli einstaklinga með
blóðblöndun. Ekkert nálaskipta-
prógramm er rekið í fangelsum á
Íslandi.
Páll segir að Fangelsismála-
stofnun sé opin fyrir öllum til-
lögum sérfróðra aðila um að draga
úr útbreiðslu hættulegra sjúk-
dóma. Hvað framkvæmdina sjálfa
varðar verði þó að huga að öryggi
starfsmanna með tilliti til notaðra
sprautunála.
„Fangaverðir hafa það verkefni,
meðal annars, að leita í fötum fanga
og klefum. Þetta eru hvort tveggja
mjög mikilvægir hagsmunir sem
þarf að huga að en við erum opin
fyrir öllum tillögum í þessu.“
Spurning sé líka hvort nálaskipta-
prógramm, þar sem fangar geti
nálgast hreinar sprautur og nálar
sér að kostnaðarlausu, muni ganga
upp innan veggja fangelsa. Ljóst
er að fangar eiga hvorki né mega
vera með fíkniefni í fangelsum og
neyslan því falin. Páll tekur undir
að það kunni að vera snúið og velta
megi fyrir sér hvort markmiðin með
framtakinu næðust þar sem fangar
Nálaskiptaprógamm
fanga gæti reynst snúið
Starfshópur um aðgerðir gegn kynsjúkdómum leggur til að fangar fái aðgang
að nálum, sprautum og smokkum sér að kostnaðarlausu. Fangelsismálastjóri
kveðst opinn fyrir öllum tillögum þó sumar geti reynst snúnar í framkvæmd.
lagt er til að fangar fái aðgang að sprautum, nálum, smokkum og skimun
gegn kynsjúkdómum. Fréttablaðið/anton brinK
Páll
Winkel
Tveir menn sitja í haldi
vegna gruns um aðild að
fíkniefnainnflutningi hingað
til lands frá Spáni.
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-8
8
D
8
1
E
E
4
-8
7
9
C
1
E
E
4
-8
6
6
0
1
E
E
4
-8
5
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K