Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 18

Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 18
Virgil van Dijk er bæði dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og dýrasti varnarmaður allra tíma. NorDicphotos/getty Félag Leikmaður Verð (pund) Frá tímasetning Arsenal pierre-emerick Aubameyang 56 milljónir Dortmund 31. janúar 2018 Bournemouth Nathan Aké 20 milljónir Chelsea sumar 2017 Brighton Jürgen Locadia 14 milljónir PSV janúar 2018 Burnley Chris Wood 15 milljónir Leeds sumar 2017 chelsea Álvaro Morata 58 milljónir Real Madrid sumar 2017 crystal palace Christian Benteke 32 milljónir Liverpool sumar 2016 everton Gylfi Þór Sigurðsson 45 milljónir Swansea sumar 2017 huddersfield Steve Mounié 11,4 milljónir Montpellier sumar 2017 Leicester Islam Slimani 29 milljónir Sporting sumar 2016 Liverpool Virgil van Dijk 75 milljónir Southampton janúar 2018 Man city Aymeric Laporte 57 milljónir Athletic Bilbao 31. janúar 2018 Man Utd Paul Pogba 89 milljónir Juventus sumar 2016 Newcastle Michael Owen 16 milljónir Real Madrid sumar 2005 southampton guido carrillo 19 milljónir Monaco janúar 2018 stoke Giannelli Imbula 18,3 milljónir Porto janúar 2016 swansea André Ayew 18 milljónir West Ham 31. janúar 2018 tottenham Davinson Sánchez 42 milljónir Ajax sumar 2017 Watford Andre Gray 18,5 milljónir Burnley sumar 2017 West Brom Salomón Rondón 12 milljónir Zenit sumar 2015 West ham Marko Arnautovic 20 milljónir Stoke sumar 2017 Dýrustu leikmenn liðanna í ensku úrvalsdeildinni Sex lið slógu félagaskiptametið í janúar Tæpur þriðjungur liðanna í ensku úrvalsdeildinni sló félagaskiptametið í fjörugum janúarglugga sem var lokað á miðvikudaginn. Öll stærstu liðin í deildinni fengu til sín stór nöfn og liðin í botnbaráttunni tóku einnig þátt í eyðslunni sem hefur aldrei verið meiri. Fótbolti Félagaskiptaglugganum svokallaða var lokað á miðviku- daginn. Liðin í ensku úrvalsdeild- inni eyddu samtals 150 milljónum punda í leikmenn á gluggadeginum sem var afar fjörugur. Met var slegið í janúarglugganum en alls keyptu liðin í ensku úrvalsdeildinni leik- menn fyrir 430 milljónir punda. Gamla metið frá 2011 var 225 millj- ónir punda samkvæmt úttekt Delo- itte’s Sports Business Group. Liðin í ensku úrvalsdeildinni eyddu langmest í leikmenn ef litið er á fimm stærstu deildir Evrópu. Spænska úrvalsdeildin kom næst með 250 milljónir punda. Liðin í þýsku, frönsku og ítölsku úrvals- deildunum eyddu samtals 135 millj- ónum punda í leikmenn í síðasta mánuði. tíðindi frá Bítlaborginni Janúarglugginn opnaðist og lokaðist með hvelli. Liverpool stal fyrirsögn- unum framan af mánuði, fyrst með kaupunum á Virgil van Dijk og svo með sölunni á Philippe Coutinho til Barcelona. Það vakti einnig mikla athygli þegar Manchester United og Arse- nal skiptu á Henrikh Mkhitaryan og Alexis Sánchez. Everton styrkti sóknarlínuna með Theo Walcott og Cenk Tosun en seldi Ross Barkley til Chelsea. Það var svo nóg um að vera á loka- degi félagaskiptagluggans. Arsenal keypti Pierre-Emerick Aubameyang frá Borussia Dortmund fyrir met- verð, seldi Oliver Giroud til Chelsea sem lánaði svo Michy Batshuayi til Dortmund. Manchester City gerði Aymeric Laporte að dýrasta leik- manni í sögu félagsins, Tottenham keypti Lucas Moura frá Paris Saint- Germain og Swansea City og Stoke City opnuðu veskið upp á gátt. Og annan gluggadaginn í röð gerði Riyad Mahrez örvæntingafulla til- raun til að komast frá Leicester City en án árangurs. tæpur þriðjungur sló metið Alls bættu sex af 20 liðum ensku úrvalsdeildarinnar félagaskipta- metið sitt í janúarglugganum í ár, þ.e. keyptu leikmann fyrir metverð. Liverpool reið á vaðið þegar félagið keypti Van Dijk frá Southampton fyrir 75 milljónir punda. Hann er ekki bara dýrasti leikmaður í sögu Liverpool heldur einnig dýrasti varnarmaður allra tíma. Annan félagaskiptagluggann í röð keypti Arsenal framherja fyrir met- verð. Síðasta sumar borgaði félagið 46,5 milljónir punda fyrir Alexandre Lacazette og á miðvikudaginn keyptu Skytturnar Aubameyang frá Dortmund fyrir 56 milljónir punda. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, fékk ósk sína upp- fyllta þegar félagið keypti Laporte frá Athletic Bilbao. Kaupverðið nam 57 milljónum punda sem gerði hann að næstdýrasta varnar- manni sögunnar. City hefur alls eytt 272 milljónum punda í leikmenn á þessu tímabili, mest allra liða í ensku úrvalsdeildinni. Og síðan Guardiola tók við sumarið 2016 hefur City keypt leikmenn fyrir 418 milljónir punda. Liðin í fallbaráttunni létu einn- ig til sín taka í janúarglugganum. Southampton fékk sand af seðlum fyrir Van Dijk og nýtti tækifærið til að kaupa argentínska framherjann Guido Carrillo fyrir metverð (19 milljónir punda). Nýliðar Brighton keyptu hollenska framherjann Jürgen Locadia frá PSV Eindhoven fyrir 14 milljónir punda sem er það mesta sem félagið hefur greitt fyrir leikmann. Þá keypti Swansea City André Ayew frá West Ham fyrir metverð (18 milljónir). Swansea fékk Ayew á frjálsri sölu sumarið 2015 og seldi hann svo fyrir metverð til West Ham ári seinna. Ayew er nú kominn aftur til Swansea þar sem hann hittir fyrir bróður sinn, Jordan Ayew. risa sjónvarpssamningur Fjárhagslegt bolmagn liðanna í ensku úrvalsdeildinni jókst gríðar- lega þegar nýr sjónvarpssamningur tók gildi sumarið 2016. Verðmæti hans er rúmlega fimm milljarðar punda, sem er 71% hækkun frá síð- asta sjónvarpssamningi sem gilti frá 2013 til 2016. Liðin í ensku úrvalsdeildinni hafa mikið fé milli handanna og tækifæri til að láta til sín taka á félagaskipta- markaðinum. Líka „litlu“ liðin sem hafa efni á því að taka áhættu og gera mistök í leikmannakaupum. Síðan nýi sjónvarpssamningurinn tók gildi hafa 18 af þeim 20 liðum sem leika nú í ensku úrvalsdeildinni slegið félagaskiptamet sitt. Annað af þeim tveimur liðum sem hefur ekki gert það, West Brom, sló það sum- arið 2015 þegar það keypti Salomón Rondón frá Zenit fyrir 12 milljónir punda. Newcastle situr eftir Hitt liðið er Newcastle United en félagaskiptamet þess frá 2005 stendur enn. Þá keypti Newcastle Michael Owen frá Real Madrid fyrir 16 milljónir punda. Það er því ekki að furða þótt stuðningsmenn Newcastle séu orðnir langþreyttir á ástandinu og vilji að Mike Ashley selji félagið. Newcastle gerði Alan Shearer að dýrasta leikmanni heims þegar það keypti hann frá Blackburn fyrir 15 milljónir punda 1996. Nú er öldin önnur og svo virðist sem Newcastle hafi setið eftir í baráttunni á félaga- skiptamarkaðnum. Liðin í ensku úrvalsdeild­ inni keyptu leikmenn fyrir 430 milljónir punda í janúar­ glugganum. Gamla metið var 225 milljónir. Michael Owen er enn dýrasti leikmaður í sögu Newcastle. Hann var keyptur á 16 milljónir punda frá Real Madrid sumarið 2005. 272 milljónir punda hefur Man­ chester City borgað fyrir leikmenn á þessu tímabili, mest allra í ensku úrvals­ deildinni. Ingvi Þór Sæmundsson ingvithor@frettabladid.is 3 . F e b r ú a r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð spORt 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 4 -9 2 B 8 1 E E 4 -9 1 7 C 1 E E 4 -9 0 4 0 1 E E 4 -8 F 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.