Fréttablaðið - 03.02.2018, Síða 18
Virgil van Dijk er bæði dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og dýrasti varnarmaður allra tíma. NorDicphotos/getty
Félag Leikmaður Verð (pund) Frá tímasetning
Arsenal
pierre-emerick
Aubameyang 56 milljónir Dortmund 31. janúar 2018
Bournemouth Nathan Aké 20 milljónir Chelsea sumar 2017
Brighton Jürgen Locadia 14 milljónir PSV janúar 2018
Burnley Chris Wood 15 milljónir Leeds sumar 2017
chelsea Álvaro Morata 58 milljónir Real Madrid sumar 2017
crystal palace Christian Benteke 32 milljónir Liverpool sumar 2016
everton Gylfi Þór Sigurðsson 45 milljónir Swansea sumar 2017
huddersfield Steve Mounié 11,4 milljónir Montpellier sumar 2017
Leicester Islam Slimani 29 milljónir Sporting sumar 2016
Liverpool Virgil van Dijk 75 milljónir Southampton janúar 2018
Man city Aymeric Laporte 57 milljónir Athletic Bilbao 31. janúar 2018
Man Utd Paul Pogba 89 milljónir Juventus sumar 2016
Newcastle Michael Owen 16 milljónir Real Madrid sumar 2005
southampton guido carrillo 19 milljónir Monaco janúar 2018
stoke Giannelli Imbula 18,3 milljónir Porto janúar 2016
swansea André Ayew 18 milljónir West Ham 31. janúar 2018
tottenham Davinson Sánchez 42 milljónir Ajax sumar 2017
Watford Andre Gray 18,5 milljónir Burnley sumar 2017
West Brom Salomón Rondón 12 milljónir Zenit sumar 2015
West ham Marko Arnautovic 20 milljónir Stoke sumar 2017
Dýrustu leikmenn liðanna í ensku úrvalsdeildinni
Sex lið slógu félagaskiptametið í janúar
Tæpur þriðjungur liðanna í ensku úrvalsdeildinni sló félagaskiptametið í fjörugum janúarglugga sem var lokað á miðvikudaginn. Öll
stærstu liðin í deildinni fengu til sín stór nöfn og liðin í botnbaráttunni tóku einnig þátt í eyðslunni sem hefur aldrei verið meiri.
Fótbolti Félagaskiptaglugganum
svokallaða var lokað á miðviku-
daginn. Liðin í ensku úrvalsdeild-
inni eyddu samtals 150 milljónum
punda í leikmenn á gluggadeginum
sem var afar fjörugur. Met var slegið
í janúarglugganum en alls keyptu
liðin í ensku úrvalsdeildinni leik-
menn fyrir 430 milljónir punda.
Gamla metið frá 2011 var 225 millj-
ónir punda samkvæmt úttekt Delo-
itte’s Sports Business Group.
Liðin í ensku úrvalsdeildinni
eyddu langmest í leikmenn ef litið
er á fimm stærstu deildir Evrópu.
Spænska úrvalsdeildin kom næst
með 250 milljónir punda. Liðin í
þýsku, frönsku og ítölsku úrvals-
deildunum eyddu samtals 135 millj-
ónum punda í leikmenn í síðasta
mánuði.
tíðindi frá Bítlaborginni
Janúarglugginn opnaðist og lokaðist
með hvelli. Liverpool stal fyrirsögn-
unum framan af mánuði, fyrst með
kaupunum á Virgil van Dijk og svo
með sölunni á Philippe Coutinho til
Barcelona.
Það vakti einnig mikla athygli
þegar Manchester United og Arse-
nal skiptu á Henrikh Mkhitaryan
og Alexis Sánchez. Everton styrkti
sóknarlínuna með Theo Walcott og
Cenk Tosun en seldi Ross Barkley til
Chelsea.
Það var svo nóg um að vera á loka-
degi félagaskiptagluggans. Arsenal
keypti Pierre-Emerick Aubameyang
frá Borussia Dortmund fyrir met-
verð, seldi Oliver Giroud til Chelsea
sem lánaði svo Michy Batshuayi til
Dortmund. Manchester City gerði
Aymeric Laporte að dýrasta leik-
manni í sögu félagsins, Tottenham
keypti Lucas Moura frá Paris Saint-
Germain og Swansea City og Stoke
City opnuðu veskið upp á gátt. Og
annan gluggadaginn í röð gerði
Riyad Mahrez örvæntingafulla til-
raun til að komast frá Leicester City
en án árangurs.
tæpur þriðjungur sló metið
Alls bættu sex af 20 liðum ensku
úrvalsdeildarinnar félagaskipta-
metið sitt í janúarglugganum í ár,
þ.e. keyptu leikmann fyrir metverð.
Liverpool reið á vaðið þegar félagið
keypti Van Dijk frá Southampton
fyrir 75 milljónir punda. Hann er
ekki bara dýrasti leikmaður í sögu
Liverpool heldur einnig dýrasti
varnarmaður allra tíma.
Annan félagaskiptagluggann í röð
keypti Arsenal framherja fyrir met-
verð. Síðasta sumar borgaði félagið
46,5 milljónir punda fyrir Alexandre
Lacazette og á miðvikudaginn
keyptu Skytturnar Aubameyang frá
Dortmund fyrir 56 milljónir punda.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri
Manchester City, fékk ósk sína upp-
fyllta þegar félagið keypti Laporte
frá Athletic Bilbao. Kaupverðið
nam 57 milljónum punda sem
gerði hann að næstdýrasta varnar-
manni sögunnar. City hefur alls eytt
272 milljónum punda í leikmenn
á þessu tímabili, mest allra liða í
ensku úrvalsdeildinni. Og síðan
Guardiola tók við sumarið 2016
hefur City keypt leikmenn fyrir 418
milljónir punda.
Liðin í fallbaráttunni létu einn-
ig til sín taka í janúarglugganum.
Southampton fékk sand af seðlum
fyrir Van Dijk og nýtti tækifærið til
að kaupa argentínska framherjann
Guido Carrillo fyrir metverð (19
milljónir punda). Nýliðar Brighton
keyptu hollenska framherjann
Jürgen Locadia frá PSV Eindhoven
fyrir 14 milljónir punda sem er það
mesta sem félagið hefur greitt fyrir
leikmann.
Þá keypti Swansea City André
Ayew frá West Ham fyrir metverð
(18 milljónir). Swansea fékk Ayew
á frjálsri sölu sumarið 2015 og seldi
hann svo fyrir metverð til West Ham
ári seinna. Ayew er nú kominn aftur
til Swansea þar sem hann hittir fyrir
bróður sinn, Jordan Ayew.
risa sjónvarpssamningur
Fjárhagslegt bolmagn liðanna í
ensku úrvalsdeildinni jókst gríðar-
lega þegar nýr sjónvarpssamningur
tók gildi sumarið 2016. Verðmæti
hans er rúmlega fimm milljarðar
punda, sem er 71% hækkun frá síð-
asta sjónvarpssamningi sem gilti frá
2013 til 2016.
Liðin í ensku úrvalsdeildinni hafa
mikið fé milli handanna og tækifæri
til að láta til sín taka á félagaskipta-
markaðinum. Líka „litlu“ liðin sem
hafa efni á því að taka áhættu og
gera mistök í leikmannakaupum.
Síðan nýi sjónvarpssamningurinn
tók gildi hafa 18 af þeim 20 liðum
sem leika nú í ensku úrvalsdeildinni
slegið félagaskiptamet sitt. Annað af
þeim tveimur liðum sem hefur ekki
gert það, West Brom, sló það sum-
arið 2015 þegar það keypti Salomón
Rondón frá Zenit fyrir 12 milljónir
punda.
Newcastle situr eftir
Hitt liðið er Newcastle United
en félagaskiptamet þess frá 2005
stendur enn. Þá keypti Newcastle
Michael Owen frá Real Madrid
fyrir 16 milljónir punda. Það er því
ekki að furða þótt stuðningsmenn
Newcastle séu orðnir langþreyttir
á ástandinu og vilji að Mike Ashley
selji félagið.
Newcastle gerði Alan Shearer að
dýrasta leikmanni heims þegar það
keypti hann frá Blackburn fyrir 15
milljónir punda 1996. Nú er öldin
önnur og svo virðist sem Newcastle
hafi setið eftir í baráttunni á félaga-
skiptamarkaðnum.
Liðin í ensku úrvalsdeild
inni keyptu leikmenn fyrir
430 milljónir punda í janúar
glugganum. Gamla metið var
225 milljónir.
Michael Owen er enn
dýrasti leikmaður í sögu
Newcastle. Hann var keyptur
á 16 milljónir punda frá Real
Madrid sumarið 2005.
272
milljónir punda hefur Man
chester City borgað fyrir
leikmenn á þessu tímabili,
mest allra í ensku úrvals
deildinni.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@frettabladid.is
3 . F e b r ú a r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
spORt
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-9
2
B
8
1
E
E
4
-9
1
7
C
1
E
E
4
-9
0
4
0
1
E
E
4
-8
F
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K