Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 32
Ég veit ekkert hversu traustum fótum Ragnar stendur innan VR. Það hefur eiginlega verið skipt um formann þar í næstum hverri einustu kosningu undanfarin ár,“ segir Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í sagnfræði. Hann ritaði 100 ára sögu ASÍ sem kom út árið 2016. Sumarliði segir að komandi kosningar í Eflingu og næstu kosningar
í VR geti skorið úr um það hvort breytingar séu að verða innan verka-
lýðshreyfingarinnar.
Eins og staðan er nú virðast blikur vera á lofti innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Ný kynslóð með róttækari áherslur sækist eftir
forystuhlutverkum í stórum stéttarfélögum. Viðmælendur Frétta-
blaðsins, sem eru að hasla sér völl á þessu sviði, tala um uppreisn
grasrótarinnar.
Ragnar Þór Ingólfsson, sölumaður í Útilegumanninum, var kjörinn
formaður VR, stærsta félagsins innan Alþýðusambands Íslands, í
mars 2017. Hann hafði setið í stjórn félagsins allt frá árinu
2009.
Nafni hans, Ragnar Þór Pétursson kennari, var svo
kjörinn formaður Kennarasambands Íslands í nóvember.
Hann tekur við embættinu í apríl. Þau Guðríður Arnar-
dóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Ólafur
Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, buðu sig
bæði fram í sömu kosningum. Í skrifum sínum fyrir kosn-
ingarnar vakti Ragnar Þór gjarnan athygli á því að hann
væri starfandi kennari, ólíkt mótframbjóðendum hans
sem störfuðu báðir í Kennarahúsinu. Eftir kosningarnar
fóru fram kosningar í Félagi grunnskólakennara þar sem
nýr formaður var kjörinn í stað Ólafs.
Síðustu daga hefur svo verið greint frá framboði Sólveig-
ar Önnu Jónsdóttur til formennsku í Eflingu, næststærsta
aðildarfélagi ASÍ. Hún býður sig fram gegn frambjóðanda
uppstillingarnefndar félagsins, Ingvari Vigur Halldórssyni.
Sigurður Bessason bauð sig ekki fram til endurkjörs eftir
átján ár í formennsku.
Sumarliði tekur undir þá skoðun að það sé undiralda
að rísa innan verkalýðshreyfingarinnar sem hugsanlega
megi rekja til fyrstu áranna eftir hrun.
„Þetta er náttúrlega að einhverju leyti sama fólkið sem
þarna lætur til sín taka. Bæði Sólveig Anna og Ragnar,“
segir Sumarliði. En Sólveig Anna er einn hinna svoköll-
uðu nímenninga sem ákærðir voru vegna mótmæla í
Alþingishúsinu 8. desember 2008 í tengslum við búsá-
haldabyltinguna. Ragnar Þór tók þátt í stofnun Borgara-
hreyfingarinnar, stjórnmálaflokks sem fékk menn kjörna
á þing í alþingiskosningunum 2009. Hann kom líka að stofnun Hags-
munasamtaka heimilanna.
Sumarliði telur hugsanlegt að erfið staða í húsnæðismálum kunni
að valda því að þau Ragnar og Sólveig hafi náð eyrum fólks að undan-
förnu. „Þetta hefur bara varla verið svona slæmt. Ungt fólk sem er að
reyna að koma sér fyrir og með þetta 300 þúsund kall í laun. Þetta
er bara vonlaust.“
Þau Ragnar og Sólveig segja bæði að líkja megi atburðarásinni
við uppreisn grasrótarinnar. Þau segja líka að breytingar í forystu
tveggja stærstu aðildarfélaga ASÍ gætu leitt til breytinga á forystu
samtakanna. „Auðvitað er þetta uppreisnarframboð,“ segir Sólveig.
„Stemningin í grasrótinni er þannig að þetta er hægt og fólk getur
haft raunveruleg áhrif ef það nennir þessu,“ segir Ragnar Þór Ing-
ólfsson.
Sólveig Anna segist knúin áfram í framboð til formanns Eflingar
vegna óboðlegrar stöðu láglaunafólks. „Tekjur sem ekki er hægt að
lifa af, sérstaklega eftir að húsnæðismarkaðurinn sprakk í loft upp. Þá
hafa aðstæður okkar versnað til muna. Á einhverjum tíma upplifum
við sem tilheyrum þessum láglaunastéttum þetta eins og við séum
Sólveig Anna Jónsdóttir býður sig fram til formanns Eflingar.
FréttAblAðið/Eyþór
grasrótarinnar
Sagnfræðingur telur að staðan á húsnæðismarkaðnum
kunni að vera ástæða þess að undiralda er að rísa innan
verkalýðshreyfingarinnar. Uppreisn grasrótarinnar á
hugsanlega rætur sínar að rekja allt til efnahagshrunsins.
Uppreisn
óvelkomin í samfélaginu. Sem er náttúrlega þversögn, vegna
þess að annars vegar vinnum við vinnu sem er lífsnauðsynleg
til þess að samfélagið haldi áfram að ganga. En á sama tíma er
ekki gert ráð fyrir að við getum átt mannsæmandi líf,“ segir
Sólveig Anna. Hún segir félagið geta beitt sér betur með því að
krefjast betri kjara fyrir félagsmenn, hugsanlega ráðast sjálft
í byggingu húsnæðis fyrir fé úr eigin sjóðum og setja meiri
þrýsting á stjórnvöld um aðgerðir. „Þetta snýst ekki bara um
það að skipta um formann eða stjórn heldur að virkja fólk til
þátttöku í baráttunni.“
Ragnar Þór Ingólfsson segist geta hugsað sér að beita sér
fyrir hallarbyltingu í ASÍ. „Fyrir mér eru tveir vegir færir til
að tengja sig betur við fólkið. „Annaðhvort verður það gert í
gegnum ASÍ-þingið eða þá að við segjum okkur úr ASÍ, sem
ég tel meiri líkur en minni á að við gerum.“ Hvernig sem fari
þá sé staða Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, orðin afskap-
lega veik. Málið snúist hins vegar ekki bara um Gylfa. „Þetta
er stefna hreyfingarinnar, taktleysi og sambandsleysi við gras-
rótina. Á því ber öll miðstjórnin ábyrgð. En þessir menn og
konur sem sitja í miðstjórn ASÍ hafa misst öll tengsl við fólkið.
Og þetta hefur gerst á lengri tíma. Núna finnst mér á gras-
rótinni og fólkinu almennt að það sé búið að fá nóg af þessu
og nú sé kominn tími breytinga.“
„Þú þarft ekki annað en að horfa á skiltið niðri í Guðrúnar-
túni. Þá sérðu hverjir eru í sama húsinu. Starfsgreinasamband-
ið, Landssamband lífeyrissjóða, Efling, Gildi lífeyrissjóður.
Þetta er eins og einn stór kjarni af lobbíistum fyrir sömu
stefnuna sem er að verja sjóðakerfið, auka sjóðssöfnunina.
Það er eins og að það tali allir sama tungumálið sem eru inni
í þessu húsi,“ segir Ragnar.
Sólveig segir ótímabært að segja hvort hún eða hennar fólk
muni sækjast eftir forystu í ASÍ þegar þing sambandsins fer
fram í haust. „En ég get samt svarað því að ef við náum kjöri þá
ætlum við okkur stóra hluti í verkalýðsbaráttunni. Við ætlum
okkur stóra hluti og meinum það sem við erum að segja. Við
ætlum ekki að mæta á einhver ASÍ-þing og halda okkur til hlés.“
Núverandi forseti, Gylfi Arnbjörnsson, segist ekki hafa tekið
afstöðu til þess hvort hann gefi kost á sér til áframhaldandi
setu sem forseti á þingi ASÍ í haust. „Ég hef gert það vanalega
fyrir sumarleyfi,“ segir Gylfi, sem situr nú sitt tíunda ár sem
forseti.
Stemningin í
graSrótinni er
þannig að þetta
er hægt og fólk
getur haft raun-
veruleg áhrif ef
það nennir þeSSu.
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR
á einhverjum tíma
upplifum við Sem til-
heyrum þeSSum lág-
launaStéttum þetta
einS og við Séum óvel-
komin í Samfélaginu.
Sólveig Anna Jónsdóttir,
frambjóðandi til formans Eflingar
Styttist í fyrstu
skóflustunguna
Vonast er til þess að hægt verði
að taka skóflustungu að fyrstu
150 íbúðum íbúðafélagsins Bjargs
í þessum mánuði, segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ. Félagið er í
eigu ASÍ og BSRB. Íbúðirnar verða
byggðar í Spönginni í Grafarvogi.
Gylfi segir að fasteignafélagið sé
með 600 íbúðir á teikniborðinu.
„Við erum auðvitað að glíma við
skipulagsyfirvöld en ég reikna
með því að við getum farið að
byrja framkvæmdir í þessum
mánuði. En við erum með áform
og samkomulag við borgina um
að byggja 1.450 íbúðir á næstu
árum. Ég skil vel að menn séu
óþreyjufullir eftir því að þetta
kerfi fari að komast í gang og
skila íbúðum. Það hefur verið
áhersluatriði okkar,“ segir hann.
Hann segir verkefnið silast
áfram, „því miður að mínu mati
allt of hægt en það þarf að klára
hönnun og það tekur tíma að
teikna 150 íbúðir.“ Gylfi reiknar
með því að það verði regluleg
tíðindi af þessu verkefni næstu
misserin.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@
frettabladid.is
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-8
D
C
8
1
E
E
4
-8
C
8
C
1
E
E
4
-8
B
5
0
1
E
E
4
-8
A
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K