Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Verið
velkomin
Bolir
Peysur
Túnikur
Buxur
Kjólar o.fl.
NÝ SENDING
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX
FREE
af öllum
snyrtivörum
til 2. september
hækkað um 18% frá 2014 til 31. mars
2017. Laun þeirra sem heyra undir
kjararáð hefðu hækkað um 31%.
Hækkanir í áföngum
Með úrskurðum kjararáðs fylgir
rökstuðningur umræddra launþega/
stofnana fyrir launakröfum. Iðulega
er vísað til álags og ábyrgðar.
Kjararáð hefur sem áður segir
hækkað laun í áföngum síðustu ár.
Hinn 12. febrúar 2013 fundaði
kjararáð vegna ákvörðunar um al-
menna launahækkun til þeirra sem
heyra undir ráðið. Rifjað var upp að
1. febrúar sama ár hefðu laun sam-
kvæmt kjarasamningum á hinum al-
menna markaði hækkað að jafnaði
um 3,25%. Laun samkvæmt kjara-
samningum fjármálaráðherra og
ríkisstarfsmanna myndu hækka að
jafnaði um 3,25% 1. mars 2013. Með
hliðsjón af þessu ákvað kjararáð að
laun þeirra sem ákvörðunarvald
ráðsins nær til skyldu hækka um
3,25% 1. mars 2013.
Síðar á árinu 2013 tók kjararáð
ákvörðun um afturvirka launahækk-
un hjá mörgum sem undir það
heyra. Til dæmis voru laun útvarps-
stjóra, seðlabankastjóra og forstjóra
Isavia hækkuð frá og með 1. ágúst
2012 en laun bankastjóra Lands-
bankans hækkuð frá og með 1. júní
2012. Þá fékk þjóðminjavörður
hækkun frá og með 1. janúar 2013.
Fimmtudaginn 16. janúar 2014
fundaði kjararáð um eingreiðslu.
Var ákveðið að 1. febrúar 2014
skyldi greiða 38 þúsund í eingreiðslu
til þeirra sem heyra undir ráðið mið-
að við fullt starf í nóvember 2013.
Aðrir fengju hlutfallslega greiðslu.
Vísa til hækkana á markaði
Hinn 30. júní 2014 tók kjararáð
ákvörðun um almenna hækkun.
Vísað var til þess að kjarasamn-
ingar hefðu verið undirritaðir við vel
flest stéttarfélög ríkisstarfsmanna
og aðildarfélög ASÍ. Þeir hafi meðal
annars falið í sér að árið 2014 hefðu
laun hækkað um 3,4% að meðaltali.
Laun samkvæmt flestum kjara-
samningum fjármálaráðherra og
ríkisstarfsmanna myndu hækka frá
og með 1. febrúar 2014. Með hliðsjón
af þessu skyldu laun þeirra sem
heyra undir ráðið hækka um 3,4%
frá og með 1. febrúar 2014.
Kjararáðið fundaði næst um al-
menna hækkun þriðjudaginn 17.
nóvember 2015. Var þá rifjað upp að
ríkið hefði lokið kjarasamningum við
flesta viðsemjendur sína. Síðar sagði
orðrétt í úrskurði kjararáðs: „Kjara-
ráð telur að meginlínur í kjarasamn-
ingum séu orðnar það skýrar að ráð-
ið geti nú úrskurðað um almenna
launahækkun til þeirra sem undir
ráðið heyra. Lágmarkshækkun sam-
kvæmt kjarasamningum á almenn-
um vinnumarkaði á árinu 2015 er
3,2% en mesta hækkun 7,2%. Gild-
istími samninganna var frá 1. maí
2015. Úrskurður gerðardóms sam-
kvæmt lögum nr. 31/2015 um launa-
kjör 18 aðildarfélaga í Bandalagi há-
skólamanna (BHM) og Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH)
leiddi til 9,3% hækkunar launa að
meðaltali á árinu og er leiðrétting á
launatöflum þar meðtalin. Hækkun
til félaga í BHM gilti frá 1. mars
2015 en FÍH frá 1. maí 2015. Niður-
staða gerðardóms hefur í aðal-
atriðum verið lögð til grundvallar í
samningum ríkisins við stór stéttar-
félög,“ sagði þar um stöðuna.
Með hliðsjón af þessu ákvað
kjararáð að laun þeirra sem heyra
undir ráðið skyldu hækka um 9,3%
frá og með 1. mars 2015.
Ákváðu 7,15% hækkun í fyrra
Hinn 9. júní 2016 fundaði kjararáð
aftur um almenna launahækkun.
Rifjað var upp að skv. úrskurði gerð-
ardóms um launakjör 18 aðildar-
félaga í Bandalagi háskólamanna
skyldu laun þeirra hækka um 5,5%
frá 1. júní 2016. „Að auki er kveðið á
um 1,65% framlag til útfærslu
menntunarákvæða úrskurðarins og
eftir atvikum annarra þátta í
stofnanasamningum,“ sagði þar m.a.
Með hliðsjón af þessu skyldu laun
þeirra sem heyra undir ráðið hækka
um 7,15% frá og með 1. júní 2016.
Meira er fjallað um málið á bls. 20.
Dæmi um úrskurði kjararáðs 2017
Að auki geta
fylgt fríðindi
31. janúar 13. febrúar 30. mars 30. mars 30. mars 15. maí 20. júní 22. júní 22. júní 22. júní
Bankastjóri
Íslandsbanka*
Forstjóri Hörpu
tónlistarhúss
Forstjóri
Borgunar
Skrifstofustjóri
Alþingis
Ríkislög-
maður
Forstjóri Um-
hverfisstofnunar
Forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins
Sendiherrar með
mannaforráð
Varaforseti
Hæstaréttar**
Forsetaritari
Mánaðarlaun 1.131.816 925.856 1.094.455 1.339.043 1.210.442 989.836 1.170.443 989.836 1.432.454 1.094.455
Fjöldi eininga fyrir
yfirvinnu og álag 100 40 75 50 40 40 65 33 48 25
Greiðsla á einingu 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572 9.572
Greiðsla fyrir einingar 957.200 382.880 717.900 478.600 382.880 382.880 622.180 315.876 459.456 239.300
Heildarlaun 2.089.016 1.308.736 1.812.355 1.817.643 1.593.322 1.372.716 1.792.623 1.305.712 1.891.910 1.333.755
Hækkun frá Ekki úrskurðað áður Ekki úrsk. áður Ekki úrsk. áður 1. júlí 2016 1. janúar 2016 1. janúar 2016 1. janúar 2016 1. júlí 2016 1. janúar 2016 1. október 2016
Dæmi um
rökstuðning fyrir
launakröfum
■ Fyrirtækið sé stórt.
■ Starfið geri mikilar
kröfur.
■ Árangur hafi verið
framúrskarandi.
■ Vinnutími sé 130 tíma
umfram venjulegan
dagvinnutíma.
■ Margir forstjórar í sam-
bærilegum fyrirtækjum
í fjármálakerfinu hafi
umtalsvert hærri laun en
bankastjóri Íslandsbanka.
■ Bankinn þurfi að geta
boðið samkeppnishæf
laun.
■ Starfið
krefjist mikillar
viðveru og
sýnileika.
■ Forstjórinn
sitji í stjórn
dótturfélaga
Hörpu auk
Ráðstefnu-
borgarinnar
Reykjavíkur og
þiggi ekki laun
fyrir þau störf.
■ Laun stjórnenda
eigi að standast
samanburð á þeim
sviðum sem fyrir-
tækið starfi á, en
séu ekki leiðandi.
■ Núverandi
launakjör forstjóra
samræmist kröf-
um sem gerðar
séu til hans.
■ Það sé talið fara
gegn hagsmunum
fyrirtækisins að
breyta launakjör-
um verulega.
■ Reglulegur vinnu-
tími sé til kl. 19.00.
■ Yfirvinna sé að
jafnaði meira en 50
stundir á mánuði, auk
þess meira en 10 klst.
eftir kl. 19.00.
■ Skrifstofustjóri sé á
stöðugri vakt.
■ Starfið sé sam-
bærilegt starfi
ráðuneytisstjóra í
forsætisráðuneyti.
Eðlilegt sé út frá stöðu
Alþingis að þessir
embættismenn séu
jafnstæðir.
■ Við
ákvörðun
kjara ríkislög-
manns hafi
kjararáð haft
hliðsjón af
launakjörum
ríkissak-
sóknara.
■ Málum hafi
fjölgað og
hvert þeirra
sé umfangs-
meira en áður.
■ Vísað í ný lög
um stjórn vatns-
mála frá 2011.
■ Stofnuninni hafi
verið falið að ann-
ast stjórnsýslu á
sviði vatnsverndar.
■ Um sé að ræða
umfangsmikla lög-
gjöf sem innleiði
vatnatilskipun
ESB.
■ Rekstur við-
skiptakerfis ESB
með losunarheim-
ildir sé viðamikill.
■ Verulegar
breytingar hafi
orðið á launum
í þjóðfélaginu
undanfarin
misseri.
■ Það geti verið
erfitt fyrir FME að
halda í starfsfólk
sem stofnuninni
sé nauðsynlegt.
■ Laun stjórn-
anda nemi um
helmingi algengra
launa millistjórn-
enda í banka.
■ Laun sendi-
herra hafi dregist
aftur úr grunn-
launum annarra
embættismanna
innan stjórnar-
ráðsins án þess
að til grundvallar
því liggi sérstök
ákvörðun kjara-
ráðs.
■ Varaforseti
gegni störfum
forseta í forföll-
um hans, eða
þegar hann sé
fjarstaddur.
■ Varaforseti
hafi sinnt fag-
legum tengslum
og samráði við
æðstu dómstóla
annars staðar á
Norðurlöndum.
■ Hafi sinnt
ýmsum skyldum
er lúti að innri
stjórn réttarins.
■ Skrifstofa
forseta sé
sjálfstæð í
stjórnskipun
landsins og því
sambærileg til
dæmis stöðu
Alþingis og
Hæstaréttar.
■ Umsvif emb-
ættisins hafi
aukist mikið
síðustu ár.
* Fram kom í Morgun-
blaðinu 22. febrúar sl. að
með úrskurðinum hefðu
laun Birnu lækkað um
40%. Þau hefðu verið um
3,6 milljónir árið 2015.
Ríkissjóður eignaðist öll
hlutabréf í Íslandsbanka
sem hluta af stöðug-
leikaframlagi Glitnis við
uppgjör slitabúsins.
**Hér er miðað við að ein-
ing sé 1% af launaflokki
502-136, skv. launatöflu
kjararáðs nr. 502.
Mikið álag í yfirstjórn landsins
Fulltrúar ríkisstofnana vísa til álags og ábyrgðar þegar þeir rökstyðja kröfur um launahækkanir
Kjararáð hefur hækkað laun um að meðaltali 31% frá 2014 ASÍ krefst sömu hækkana í vor
Morgunblaðið/Ófeigur
Stjórnarráðið Forystumenn ríkisstofnana vísa til annríkis og ábyrgðar í
rökstuðningi fyrir því að laun þeirra skuli hækkuð hjá kjararáði.
Fóru í 1.144 þúsund
» Meðallaun hjá ASÍ fóru úr
377 þúsund 2014 í 445 þúsund
til og með 31. mars 2017, án
mótframlags. Hjá kjararáði
fóru meðallaunin úr 873 þús-
und í 1.144 þúsund í mars.
» Tölurnar eru heildarlaun að
meðaltali.
» Tölur fyrir laun á öðrum árs-
fjórðungi í ár hafa ekki verið
birtar á vef Stjórnarráðsins.
Þær munu bregða frekari birtu
á launaþróunina.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Laun þeirra sem hafa heyrt undir
kjararáð hafa hækkað í nokkrum
skrefum undanfarin ár og að hluta
afturvirkt. Endurskoðuð lög um
kjararáð taka gildi 1. janúar nk. Með
þeim fækkar þeim sem heyra undir
ráðið. Nánar er fjallað um þá breyt-
ingu á blaðsíðu 20 hér í blaðinu í dag.
Haft var eftir Gylfa Arnbjörns-
syni, forseta ASÍ, í Morgunblaðinu
sl. miðvikudag að kjararáð hefði sett
viðmið um launaþróun í landinu. ASÍ
krefjist sömu hækkana.
Fram kom í Morgunblaðinu 22.
ágúst að meðallaun hjá ASÍ hefðu