Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Marta María
martamaria@mbl.is
„Það sem ég hef mestan áhuga á
og hef unnið við síðustu 25 árin er
að kanna áhrif matar á heilsu okk-
ar og líðan og ráðleggja fólki í
samræmi við það sem við vitum í
dag og er byggt á rannsóknum á
matnum sem við erum að neyta.
Þá er ég að meina að við neytum
matar og síðan tekur melting-
arferlið við, síðan síast næring-
arefnin gegnum meltingarvegginn
og berast út í blóðið og þá gerist
eitthvað. Það sem gerist getur að-
stoðað okkur á margan hátt og
bætt heilsu okkar og líðan eða það
getur unnið gegn okkur á nánast
allan mögulegan hátt. Allur matur
kallar á viðbrögð af líkamans hálfu
og þessi viðbrögð hafa síðan áhrif
á matarlöngun, matarlyst, hvernig
orkan er hjá okkur og ekki síst
sykurlöngunina. Sykur er einstakt
næringarefni sem framkallar ein-
stök viðbrögð af líkamans hálfu
og það er ekkert verið að
ýkja hlutina neitt þegar því
er haldið fram að sykur sé
ávanabindandi því það er
ekkert í fæðu okkar sem
framkallar sömu við-
brögð og sykur og því
ber að leggja áherslu á
að minnka vægi hans í
mataræði okkar,“ segir
Gunnar Már þegar hann
er spurður út í það hvers
vegna hann fór að hafa áhuga
á sykurneyslu.
Hvað er það við sykurinn sem er
að eyðileggja fyrir okkur mat-
aræðið?
„Sykur eins og við þekkjum
hann, þessi hvíti viðbætti sem er í
öllu gosi og
nammi og við bökum
upp úr, kallast súkrósi. Þegar við
neytum súkrósa brotnar hann nið-
ur enda tvísykra og til verður
glúkósi og frúktósi. Þessar tvær
sykurtegundir hegða sér á ólíkan
hátt. Glúkósahlutinn hækkar blóð-
sykurinn og setur af stað fram-
leiðslu á hormóninu insúlín sem
sér um að koma sykrinum fyrir
m.a. í fitufrumunum. Insúlín er
drifkrafturinn bak við fitusöfnun
og ástæða þess að við bætum á
okkur. Hinn hlutinn sem er frúk-
tósinn brotnar aftur á móti niður
að mestu leyti í lifrinni og það er
verulegt áhyggjuefni því lifrin flyt-
ur frúktósann í fitufrumurnar til
geymslu en ef neysla á sykri er
ítrekuð og mikil ræður lifrin illa
við magnið og fitan safnast upp
innan lifrarinnar sem er byrjunin á
ótal stórkostlegum heilsufarslegum
vandamálum eins og áunninni syk-
ursýki.“
Þegar þú varst að byrja að
starfa sem einkaþjálfari fyrir 25
árum, var þá eitthvað verið að
pæla í sykurneyslu?
„Já og nei. Fyrir 25 árum var
næringaráherslan í einkaþjálfun
alls ekki jafnrík og hún er í dag þó
að hún hafi alveg verið til staðar.
Ég var til að mynda 17 ára að
kenna eróbikk í sponsoruðum
Pizza 67-galla.
Í dag vitum við að mataræðið
skiptir höfuðmáli en það má alveg
segja það að sykur hafi alltaf verið
í ákveðnum sérflokki og á bann-
lista flestra. Það sem hefur breyst
er að nú höfum við í höndunum
rannsóknir sem sýna það svo ekki
verður um villst að sykur getur í
óhófi haft ömurleg áhrif á heilsu
okkar og ég held að almenningur
sé mikið betur að sér varðandi það
að velja matvæli án sykurs en
nokkru sinni áður. Upplýsinga-
samfélagið sér um það. Það er
engu að síður sorgleg staðreynd að
ótrúlega hátt hlutfall neysluvara
okkar inniheldur fáránlegt magn
sykurs og meðal Íslendingurinn
innbyrðir enn í dag um 1 kg af
sykri í hverri einustu viku ársins.
WHO – World Health Org-
anisation hefur nýlega lækkað ráð-
lagt sykurmagn á dag töluvert en
ég trúi því að við verðum hvert og
eitt að taka þetta í eigin hendur og
lágmarka sykur eins og við mögu-
lega getum bæði í eigin neyslu og
þegar við erum að kaupa inn fyrir
yngri fjölskyldumeðlimina. Þess
vegna er svona átak eins og Syk-
urlaus september-átak Smartlands
mjög mikilvægt því þetta miðlar
upplýsingum og hvetur fólk og
getur verið fyrsta skrefið hjá jafn-
vel heilli þjóð til að minnka syk-
urneysluna sem væri risastórt
skref fyrir okkur öll og myndi
létta stórkostlega á útgjöldum rík-
isins til heilbrigðismála því flest
vandamál tengd sykri eru áunnin
og því unnt að snúa við sé ákvörð-
un tekin um að minnka neysluna.“
Hvað gerist þegar fólk hættir að
borða sykur?
„Það sem gerist er í raun er
bara lítið kraftaverk því óhófleg
sykurneysla hefur svo ótrúlega
mikil áhrif á daglegt líf okkar að
ég held að okkur óri ekki fyrir
hversu dagleg líðan getur batnar
og samneyti við mat getur orðið
gott þegar við takmörkum sykur
verulega. Það þarf eiginlega upp-
talningu í þetta og hún gæti litið
svona út …
– Húðin verður betri.
– Orkan verður margfalt betri og
jafnari yfir daginn.
– Hormónakerfið starfar betur og
eðlilegar þegar sykur er ekki til
staðar.
– Sykur kostar peninga og þegar
þú hættir að kaupa sykur muntu
spara ótrúlegar upphæðir.
– Matarlyst mun verða eðlilegri og
eitthvað sem þú ræður betur við
og borðar sjaldnar yfir þig.
– Minni sykurneysla þýðir að löng-
un í sykur minnkar og þú færð
margfalt betri stjórn á sykurlöng-
uninni.
– Matarlöngun verður eitthvað
sem þú munt ráða mun betur við,
þig langar ekki bara stanslaust í
ruslfæði.
Kraftaverkin gerast í sykurleysinu
September er líklega besti mánuður ársins til þess að laga matarvenjur sínar eftir kæruleysi sumarsins. Sykurlaus september
verður haldinn hátíðlegur á Smartlandi í ár líkt og undanfarin ár en sykur hefur mikil áhrif á heilsufar okkar. Allan mánuðinn
verður fróðleikur tengdur sykurneyslu í forgrunni á Smartlandi. Gunnar Már Kamban, einkaþjálfari og höfundur heilsubókanna
Hættu að borða sykur, LKL lífsstíllinn og 17:7 svo einhverjar bækur séu nefndar, verður lesendum innan handar allan mánuðinn
og mun veita stuðning inni á lokaðri Facebook-síðu. Gunnar hefur unnið við það í 25 ár að bæta heilsu fólks.
Morgunblaðið/Eggert
Sykurlaus Gunnar Már Kamban ætlar að
vera lesendum Smartlands innan handar.