Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 55
veruleika. Áðurnefndur forstjóri
HS Orku viðurkenndi í viðtali okk-
ar í sumar að hann hefði „aðeins
séð fossana í Eyvindarfjarðará ofan
af heiðinni“. Þaðan sjást fossarnir
hins vegar alls ekki, enda eru þeir
mörgum kílómetrum neðar í ánni
og ekki hægt að skoða þá nema í
návígi. Þessu má líkja við að skoða
málverkasýningu í gegnum póst-
lúgu safns og segja sýninguna lé-
lega. Jafnframt var haft eftir for-
stjóranum í nýlegu viðtali á Rás 1
að þeir (HS Orka) telji að „þarna sé
verið að fórna mjög litlu“ – fullyrð-
ing sem ég og fjöldi annarra er al-
gjörlega ósammála.
Fossadagatal og myndband
Máli mínu til stuðnings munum
við Ólafur Már Björnsson augn-
læknir á næstu 30 dögum birta
myndir af fossunum sem verða und-
ir, á Facebook-síðum okkar – einum
fossi á dag. Fossadagatalið munum
við síðan gefa út í bæklingi og
senda á fulltrúa fyrirtækja sem
koma að framkvæmdinni, Alþingis-
manna, bæjar- og sveitarstjórna á
Vestfjörðum, fulltrúa Umhverfis-
stofnunar, Skipulagsstofnunar,
Landverndar og Rammaáætlunar.
Þannig vonumst við til að lýsa með
myndum fegurð þessa einstaka
svæðis og um leið hjálpa fólki að
taka upplýsta ákvörðun um þessa
umdeildu framkvæmd.
Lokum fyrir kísiliðjuver í
Helguvík – tveir fyrir
einn ákvörðun
Það er göfugmannlegt að viður-
kenna mistök og enn mikilvægara
að læra af þeim. Ég skora á stjórn-
völd að loka strax verksmiðju Unit-
ed Silicon og ýta áformum um
byggingu Kísilvers Thorsils út af
borðinu, enda fjármögnun þess
verkefnis ekki lokið. Þarna eru ís-
lenskir bankar og lífeyrissjóðir í
lykilhlutverki því fjármögnun þess
verkefnis er ekki lokið en þessir að-
ilar ættu að halda að sér höndum
og fara skynsamlega með lífeyri
okkar. Þá munu börn og fullorðnir
á Reykjanesi ekki einungis njóta
betri heilsu með hreinna lofti held-
ur verður hægt að varðveita nátt-
úruperlur á Ströndum og Eldvörp-
um – enda kaupendur að orkunni
gufaðir upp. Slík ákvörðun væri því
eins og kaupmenn segja „tveir fyrir
einn“ – og öllum Íslendingum, ekki
síst komandi kynslóðum, til far-
sældar.
Höfundur er náttúruverndarsinni
og skurðlæknir.
Þrýstifall undir Svartsengisvirkjun á 900 m dýpi í eftirlitsholum í Svarts-
engi og Eldvörpum frá 1980-2013. Þrýstifallið hefur lækkað um 30 bör sem
jafngildir 300 lækkun á vatnsborði á örfáum árum. Línurit fyrir Reykjanes-
virkjun, sem einnig er að finna í ársskýrslu HS Orku, er svipað nema hvað
lækkunin er enn meiri, eða 40 bör sem jafngildir 400 m lækkun vatnsborðs.
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
SALEWA VERSLUN
ÍTALSKUR HÁGÆÐA FATNAÐUR
LAUGAVEGUR 91 • OPIÐ TIL 22:00
ÚTSALA
ALLT AÐ 40% AFSLÁTTUR
er líka margt bara svo miklu betra.
Mér hefur sjaldan liðið betur þrátt
fyrir allt og ég nýt þess að fá að vera
með og gefa af mér.
Lífið er í eðli sínu gott og blessað.
Ég hef val um það hvort ég ætla að
verja tíma mínum í reiði, fýlu og
endalausa depurð eða að njóta lífsins
eins og það er orðið og horfa framan í
dagana, fólkið mitt, samferðamenn og
Guð með hjartanu og í þakklæti.
Sleppum ekki takinu
Sleppum aldrei takinu á lífinu.
Horfum um öxl af virðingu og með
þakklæti, þrátt fyrir allt. Horfum
fram á við í von, þrátt fyrir vonbrigði
og efasemdir. Og lítum í kringum
okkur með kærleiksríkum augum.
Því þá vex og dýpkar trúin á lífið.
Slepptu ekki takinu. Jafnvel þótt þú
skiljir ekki alltaf og kannski sjaldnast
hvers vegna eða í hvað þú heldur.
Við eigum nefnilega vin sem vill
halda í höndina á okkur. Og þótt hann
virðist ósýnilegur getum við upplifað
hann og fundið fyrir honum. Með-
tekið friðinn og líknina sem hann hef-
ur heitið okkur og sannarlega veitir
þeim sem þiggja vilja í öllum kring-
umstæðum þótt ótrúlegt sé. Vin sem
ekki aðeins heldur í höndina á okkur
heldur styður og styrkir og tekur
okkur sér í fang og ber okkur þegar
við getum ekki meir.
400
Þar sem þetta mun vera 400. grein
mín hér í Morgunblaðinu frá tvítugs-
aldri eða í 33 ár leyfi ég mér að nota
tækifærið og þakka lesendum blaðs-
ins, lífs og liðnum, fyrir gefandi sam-
fylgd, gjöful kynni og jafnvel dýr-
mæta vináttu í meðbyr sem mótbyr.
Bæði í mínu lífi og ykkar svo ótal
margra í gegnum tíðina.
Kæru vinir!
Njótum dagsins, því að lífið er
núna. Ekki vera að bíða eftir ein-
hverju sem verður kannski seinna.
Lifðu núna og láttu það eftir þér.
Núna er þín stund. Vertu ekki eins og
skugginn af sjálfum þér.
Hvað veistu annars merkilegra en
það að vera valinn í lið lífsins og fá að
spila með til sigurs?
Og þótt einstaka viðureignir kunni
að tapast muntu að lokum standa
uppi sem sigurvegari.
Lifum því í þakklæti. Lifi sam-
staðan, trúin, vonin og kærleikurinn.
– Lifi lífið!
lífsins í þakklæti
»Njótum dagsins í
þakklæti, lífið er
núna. Ekki vera að bíða
eftir einhverju sem
verður kannski seinna.
Lifðu núna og láttu það
eftir þér.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Ríkisstjórn og Al-
þingi eiga strax að
stórhækka lífeyri aldr-
aðra og öryrkja. Ríkis-
stjórnin á að sam-
þykkja að lífeyrir
einhleypra aldraðra og
öryrkja hækki strax og
Alþingi kemur saman í
400 þúsund krónur á
mánuði fyrir skatt að
lágmarki. Það þýðir
u.þ.b. 305 þúsund kr. eftir skatt.
Þetta gildir fyrir þá, sem eingöngu
hafa tekjur frá almannatryggingum.
Ríkisstjórnin þarf ekki að hafa
áhyggjur af þeim sem hafa góðan líf-
eyrissjóð eða háar aðrar tekjur, þar
eð grunnlífeyrir hjá þeim var þurrk-
aður út um síðustu áramót.
Lifa ekki á hungurlúsinni
Ástæðan fyrir því að ég legg þetta
til er augljós: Það er engin leið að
lifa af þeirri hungurlús sem fyrri rík-
isstjórn (Bjarni og Eygló) skammt-
aði öldruðum og öryrkjum. Þá fengu
aldraðir í sambúð og hjónabandi 197
þúsund krónur á mánuði eftir skatt
en einhleypir fengu tæpar 230 þús-
und kr. á mánuði eftir skatt. Það er
spurning út af fyrir sig hvers vegna-
einhleypum og þeim sem voru í
hjónabandi eða í sambúð var mis-
munað á þennan hátt. Og það er brot
á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Lífeyrir einhleypra aldraðra og
giftra aldraðra á að vera sá sami.
Algerar lágmarksaðgerðir
Framangreindar aðgerðir, sem ég
legg til fyrir aldraðra og öryrkja,
eru algerar lágmarksaðgerðir. Vel-
ferðarþjóðfélag, þar
sem allt flóir í pen-
ingum og öll eyðsla er í
hámarki, getur ekki
verið þekkt fyrir að
halda kjörum lífeyris-
fólks niðri við um það
bil 200 þúsund kr. á
mánuði eftir skatt.
Þetta er hlægileg upp-
hæð, sem bannar öldr-
uðum og öryrkjum að
veita sér eitt eða neitt
og setur það í hættu, að
þeir geti leyst út lyf sín
og farið til læknis! Samhliða naumri
skömmtun á lífeyri hefur verið dreg-
ið úr húsnæðisstuðningi við aldraða
og öryrkja einmitt frá sama tíma og
lífeyrir hækkaði um hungurlús.
Minni húsnæðisstuðningur kom því
til frádráttar lífeyrishækkun og
sléttaði hana alveg út hjá sumum.
Lífeyrir dugi til
mannsæmandi lífs
Það á að mínu mati að vera fyrsta
verk þingsins, þegar það kemur
saman í haust, að samþykkja hækk-
un lífeyris aldraðra og öryrkja í 400
þúsund kr. á mánuði fyrir skatt.
Þetta er aðeins hærra en lágmarks-
tekjur verkafólks eru. Það er í góðu
lagi. Enda þótt lægstu launum
verkafólks sé haldið niðri og þau séu
of lág að mínu mati réttlætir það
ekki að lífeyri sé haldið jafnlágum.
Aðalatriðið er að lífeyrir og laun séu
það há að dugi til þess að unnt sé að
lifa mannsæmandi lífi af þeim
greiðslum.
Stórhækka á lífeyri aldraðra
Eftir Björgvin
Guðmundsson » Það er engin leið að
lifa af þeirri hungur-
lús sem fyrri ríkisstjórn
skammtaði öldruðum og
öryrkjum.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er fyrrverandi
borgarfulltrúi.
vennig@btnet.is
Móttaka aðsendra greina
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.