Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
„Við erum að voka yfir skipi sem er á
fleygiferð í allar áttir og þurfum því
að passa bæði hæð og stöðu mjög vel.
Að gera þetta að nóttu til við vondar
aðstæður er mjög hættulegt og erfitt
– það er lifandi maður í vírnum og við
þurfum því að passa að hreyfa okkur
eins lítið og mögulegt er til að slasa
engan,“ sagði hann.
Því næst var þyrlunni flogið frá
Þór og vörpuðu varðskipsmenn þá
björgunarbát í sjóinn. Var nú komið
að því að bjarga tveimur mönnum úr
áhöfn Þórs úr hafinu auk þess sem
tveimur dúkkum var einnig kastað
frá borði. Þyrlan tók sér stöðu yfir
mönnunum og voru þeir hífðir um
borð einn af öðrum. Var það í höndum
kílómetra fjarlægð. Eftir því sem
þyrlan nálgaðist varðskipið lækkaði
hún flugið og var komið bakborðs-
megin upp að Þór. Var þá komið að
Daníel sem var búinn að opna hlið-
ardyrnar stjórnborðsmegin á TF-
GNA. Út fóru sigmaðurinn Gísli Val-
ur og kafarinn Aron Karl og sigu þeir
niður á dekk varðskipsins. Á meðan á
þessu stóð var þyrlunni handflogið yf-
ir Þór.
„Fylgstu vel með strompunum,“
heyrðist í öðrum flugmanni vélar-
innar á meðan flogið var þétt yfir
varðskipinu.
„Þetta er samspil margra þátta,“
sagði Sigurður Heiðar og vísar til
þess þegar þyrlu er flogið yfir skip.
Daníels að sjá til þess að menn kæm-
ust heilir inn úr vírnum, en sjálf
björgunin tók skamman tíma.
Þyrlurnar börn síns tíma
„Þetta eru mjög fínar þyrlur, en
þær eru hins vegar komnar til ára
sinna og eru börn síns tíma,“ sagði
Sigurður Heiðar spurður út í tækja-
búnaðinn, en undirbúningur er nú
hafinn vegna útboðs á þremur nýjum
björgunarþyrlum fyrir Landhelg-
isgæsluna. Segir hann „algert lág-
mark“ fyrir Gæsluna að búa yfir
þremur öflugum björgunarþyrlum.
„Við þyrftum helst að hafa fjórar góð-
ar þyrlur svo hægt sé að tryggja að
tvær vélar séu alltaf klárar.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndefni Gæsluþyrlan TF-GNA vakti mikla athygli göngufólks þegar hún flaug yfir Helgafell á leiðinni til Reykjavíkurflugvallar að lokinni æfingu og gripu sumir í myndavélarnar.
Undirbúningur Aron Karl Ásgeirsson kafari (t.h.) seig um borð í v/s Þór.
Við stjórnina Tryggvi Steinn (t.v.) og Sigurður Heiðar í stjórnklefanum.
Skriffinnska Gísli Valur Arnarson vinnur að skýrslugerð á bakaleiðinni.
• AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita
• 3 ára ábyrgð á verpingu
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem
er sterkari en Teflon og án eiturefna
• Nothæf fyrir allar eldavélar
• Má setja í
uppþvottavél
• Kokkalands-
liðið notar
AMT potta
og pönnur
Úlfar Finnbjörnsson
notar AMT potta og pönnur
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Ný sending
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan” according to VKD, largest German Chefs Association
*
Æfingaflug með Landhelgisgæslu Íslands