Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 89

Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Norræna listkaupstefnan CHART, Copenhagen Art Fair, hefst í Char- lottenborg-sýningarbyggingunni í Kaupmannahöfn í dag og stendur fram á sunnudag. Á kaupstefnuna er öllum helstu atvinnugalleríum Norð- urlandanna boðið og sýna þau úrval verka þeirra listamanna sem þau vinna með. Einnig eru settar upp allrahanda aðrar sýningar. Hluti þeirra er undir hatti CHART De- sign, hliðarkaupstefnu með áherslu á norræna hönnun sem hófst í fyrra og þá er viðamikil dagskrá sem kall- ast CHART Social, þar sem lista- menn verða með gjörninga og boðið er upp á fyrirlestra og málþing um það sem efst er á baugi í samtíma- listinni, og einnig er rýnt í samskipti myndlistar, matarmenningar, hönn- unar og tónlistar. Gestum á kaup- stefnuna fjölgar ár hvert enda þykir hún gefa gott yfirlit yfir samtíma- myndlist í löndunum. Að þessu sinni taka 33 norræn gallerí í CHART og sýna bæði verk norrænna listamanna og listamanna frá öðrum heimshlutum. Þrjú ís- lensk gallerí taka þátt að þessu sinni. Hverfisgallerí setur upp sýn- ingu með verkum listamannanna Hildar Bjarnadóttur, Jeanine Co- hen, Sigtryggs Bjarna Baldvins- sonar og Steingríms Eyfjörð. I8 gall- erí sýnir verk eftir Alicja Kwade, Hildigunni Birgisdóttur og Ólaf Elí- asson og Berg Contemporary sýnir verk eftir þau Doddu Maggý, Harald Jónsson og Sigurð Guðjónsson. Þrjú íslensk gallerí taka þátt í CHART Hildigunnur Birgisdóttir Hildur Bjarnadóttir Þýðingar hafa frá öndverðuverið mikilvæg bók-menntagrein hérlendis,borið nýjungar út hingað og auðgað gróðurinn í túninu heima, stækkað þá veröld sem lesendum býðst á bók. Við þýðanda blasir jafn- an sá vandi að orða á sínu máli hugs- un sem annar maður hefur fellt í orð á öðru tungumáli, oft óskyldu og úr framandi umhverfi. Þetta er ekki einfalt verk; litir hafa t.d. mismun- andi tákngildi eftir menningar- svæðum og trúarbrögðum, náttúran er ný fyrir augum og þar fram eftir götum. Allir kunna vísu Jónasar: Vorið góða grænt og hlýtt / græðir fjör um dalinn o.s.frv. Hvernig birtir þýðandi þá mynd sem dregin er upp og túlkar þá vonglöðu kennd sem lýsir upp vísuna? Gyrðir hefur áður gefið út þýð- ingar, bæði ljóð og sögur og hefur hlotið marg- víslega viður- kenningu fyrir þessi ritstörf. Og nú bætir hann enn í púkkið. Birtan yfir ánni er stórt safn ljóða eftir 53 skáld frá 24 löndum. Sum eiga eitt til tvö ljóð í bókinni, aðrir fleiri og mest rúmlega 20 ljóð. Elsta skáldið var uppi á 3. öld f.Kr., hið yngsta er fætt 1981; lang- flestir höfundarnir voru í blóma lífs- ins á 20. öld. Rödd ljóðmælendanna flestra er lágstemmd og hógvær, enginn þeirra ber bumbur á torgum. Margir virðast vera einir á ferð. Öll ljóðin eru óbundin, myndmálið að jafnaði einfalt; talsvert um vísanir. Flest ljóðin eru þannig aðgengileg þótt inn á milli séu kvæði sem þessi lesandi átti ekki samleið með; því er þannig varið um allar ljóðabækur, lesandi verður að eiga eitthvað sam- eiginlegt með tjáningu skáldsins til þess að neisti á milli þeirra. Gyrðir hefur traustatök á máli og orðaval hans er í senn fjölbreytt og aðgengi- legt; hér eru eldflugur á ferð og suð- ræn blóm af ýmsu tagi, ókunnugleg náttúra gædd lífi. Í bókarlok er gerð grein fyrir höfundum og þeim stung- ið í bókmenntalegt samband. Sum skáldin eru kaldhæðin. Su Tung Po orti í Kína um það leyti sem kristni festi rætur á Íslandi á 11. öld: „Þegar barn fæðist snúast vonir / fjölskyld- unnar um afburðagáfur þess. / Ég, sem hef eyðilagt líf mitt / með svo- kölluðum gáfum, / vona aðeins að drengurinn / verði fáfróður og lítið gefinn. / Þá mun hann kóróna far- sæla ævi / með því að gerast embætt- ismaður.“ Portúgalinn Miguel Torga er ekki síður kaldhæðinn í ljóði sem heitir ,Samhljómuŕ: „Gæfuríkur er fuglasöngurinn / sem enginn getur skilið. / Gæfurík er stjarnan / sem ekki fær vikið af braut sinni. / Gæfu- ríkur er fellibylurinn / sem sér ekki eftir neinu. // Og gæfurík eru ljóð- skáldin / sem enginn les.“ Pólverjinn Tadeusz Rozewicz yrkir um börn sem vaxandi ráðgátu: „börn eru ráð- gáta / sem vex með aldrinum/ og hverfur síðan / á braut.“ Tao Yuan Ming frá Kína minnir á að „Vel- gengni og erfiðleikar eiga sér / hvergi fastan samastað“. „Þegar hendingin færir honum / könnu af víni, nýtur hann þess / meðan rökkr- ið sígur yfir.“ Hann tínir líka „tryggðablóm“ sem er myndríkt orð. Skáldkonan Hsi Muren frá Taivan minnist látins vinar í ,Sorgarljóði’ og ítrekar hin endanlegu skil sem dauð- inn er. Minningar „eru aðeins smá- brot / af fullreyndum árum / og hverfulum tíma.“ Ljóð Norðmanns- ins Hans Börli eru hnitmiðuð og beinskeytt. ,Fangakúlan’ hljóðar svo: „Nei, hvernig ættirðu að geta flúið? / Því sjálf jörðin er kúlan / á enda keðjunnar sem fest er / um ökkla þinn.“ Mörg skáld hafa ort um þann vanda að fanga hugsanir sínar í orð. Börli yrkir ,Ljóðið sem mig dreymdi alltaf um’: „Þegar ljóðið sem mig dreymdi alltaf um / þýtur um hug minn, / þá fjúka orðin undan, / einsog skrælnuð lauf á hrímgrárri jörð / þegar stór fugl hefur sig til flugs í skóginum / með þungum vængjas- lögum.“ Þetta er fallega gert. Fær- eyingurinn Thoroddur Poulsen er hnyttinn og myndmál hans hugvits- samlegt. Eitt ljóða hans í flokknum ,Útsýni’ er svona: „þegar maður eld- ist / verður maður minna fyrir fiðurfé / segir hún afsakandi / og ýtir diskn- um / með kjúklingnum yfir til mín // í seinni tíð hef ég heyrt / ósýnilegan vængjaslátt / það getur ekki verið rétt / að borða englana / segir hún svo sannfærandi / að ég missi líka matarlystina“. Ísraelinn Yehuda Amichai hnippir ónotalega í okkur í ljóði sem heitir Að gleyma ein- hverjum: „Að gleyma einhverjum er einsog / að gleyma að slökkva ljósið í bakportinu / svo það logar allan dag- inn á eftir. // En þá er það ljósið / sem fær þig til að muna.“ Birtan yfir ánni hefur verið mér til hugarhægðar í allt sumar, einkar þekkileg bók með fjölbreyttum kveð- skap sem í senn veitir ánægju og vekur til umhugsunar. Bókin er snot- urlega úr garði gerð af hálfu forlagsins. Morgunblaðið/Einar Falur Þýðandinn „Gyrðir hefur traustatök á máli og orðaval hans er í senn fjöl- breytt og aðgengilegt; hér eru eldflugur á ferð og suðræn blóm …“ Næturganga á sólskinsvegi Ljóð Birtan yfir ánni bbbbn Ljóð eftir ýmsa höfunda. Gyrðir Elíasson þýddi. Dimma, 2017. Innbundin, 382 bls. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Pink Floyd-sýningin á V&A-safninu í Lundúnum er í þann mund að taka fram úr sýningunni um David Bowie sem vinsælasta tónlistarsýningin þar í húsum. Frá þessu er sagt á vefsíðu The Guardian. Sýningin um Bowie var opnuð árið 2013 og var sótt af um 311.000 gestum. 300.000 gestir hafa þegar sótt sýninguna Pink Floyd: Their Mortal Remains og mun hún standa til 15. október. Vinsælasta sýning safnsins er þó enn sýning um fata- hönnuðinn Alexander McQueen, sem laðaði til sín um 480.000 gesti á 21 viku árið 2015. Auk þess er Bowie enn talsvert vinsælli á alþjóðavelli en um 1,5 milljónir manns hafa alls sótt sýninguna á ferð hennar um ýmis lönd. Pink Floyd slær Bowie við Roger Waters ERIKURNAR ERUKOMNAR 999kr 3 stk. SÝND KL. 5, 8, 10.25 SÝND KL. 4, 6 SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 4, 6 SÝND KL. 10.30SÝND KL. 8 Miðasala og nánari upplýsingar 5%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.