Morgunblaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Morgunblaðið/Þórður
Gljúfrasteinn í Mosfellsdal
Hús Nóbelskáldsins var tekið alfarið í gegn eftir að myglu- og
rakaskemmdir komu þar upp. Viðgerð uppá 34 milljónir kr.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tryggingastofnun ríkisins
Mygla kom upp á 5. hæð og í kjallara höfuðstöðva TR við
Laugaveg 114. Viðgerðir standa yfir fyrir tæpar 60 milljónir.
Morgunblaðið/Ófeigur
Tollhúsið
Mygla fannst í þaki 5. hæðar Tollhússins við Tryggvagötu árið
2015 og viðgerðum er nú lokið. Kostnaður um 70 milljónir kr.
Morgunblaðið/Golli
Velferðarráðuneytið
Ráðuneytið varð að flýja 4. hæð Hafnarhússins vegna myglu.
Faxaflóahafnir eiga húsið og viðgerð kostar 250-500 milljónir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veðurstofa Íslands
Búið er að útrýma myglu úr húsakynnum Veðurstofunnar við
Bústaðaveg, sem kom upp á 3. hæð. Viðgerð fyrir 12 milljónir.
Morgunblaðið/Hanna
Íslandsbanki Kirkjusandi
Kostnaður Íslandsbanka af myglu í fv. höfuðstöðvum á Kirkju-
sandi er um 1,7 milljarðar. Óljóst er hvort húsið verði rifið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Orkuveituhúsið - vesturbygging
Vesturbygging Orkuveituhússins við Bæjarháls er ónýt og
kostnaður OR gæti numið frá 1,7 til 3 milljörðum króna.
Morgunblaðið/Ófeigur
Vegagerðin Borgartúni
Vegagerðin varð að rýma 2. hæð álmunnar t.v. á myndinni
vegna myglu. Viðgerð gæti kostað 120-130 milljónir króna.
Morgunblaðið/Eggert
Kársnesskóli í Kópavogi
Kópavogsbær hefur ákveðið að rífa Kársnesskóla. Það mun
kosta bæinn um 1,2 milljarða króna að reisa nýja byggingu.
orðið hvað verst fyrir barðinu á
myglunni er Landspítalinn, einkum
aðalbyggingin við Hringbraut.
Rakaskemmdir hafa einnig gert vart
við sig í fjölda bygginga á vegum
spítalans. Að sögn Ingólfs Þóris-
sonar, framkvæmdastjóra rekstr-
arsviðs Landspítalans, er talið að
viðgerðarkostnaður vegna myglu-
og rakaskemmda sé 2-3 milljarðar
króna. Viðgerðum í aðalbyggingunni
er að mestu lokið. Um þessar mund-
ir er verið að gera við húsnæði
BUGL, Barna- og unglingageðdeild-
ar spítalans við Dalbraut, og tvö
rannsóknarhús sýklafræða við Bar-
ónsstíg, sem verða rifin og endur-
byggð í áföngum. Kostnaður við
þessar þrjár byggingar er hátt í einn
milljarður króna.
„Þetta eru mjög stórar viðgerðir,
um 400-500 milljónir í hvort hús,“
segir Ingólfur en spítalinn fékk sér-
staka fjárveitingu á þessu ári, um
einn milljarð, til að ráðast gegn
raka- og mygluskemmdum.
Í flestum tilvikum, þar sem mygla
hefur greinst, hefur viðhaldi bygg-
inga verið ábótavant og í leiðinni
verið ráðist í aðrar aðkallandi endur-
bætur auk mygluskemmda. Mygla
kom einnig upp á geðdeild spítalans
og í Eirbergi, húsi Háskóla Íslands á
Landspítalalóðinni. Þá hefur verið
ráðist í endurbætur á Landakots-
spítala, aðallega vegna raka-
skemmda.
Í Landspítalanum í Fossvogi hef-
ur mun meira borið á raka-
skemmdum en myglu. Þar þurfti að
fara í steypuviðgerðir og skipta um
alla glugga. Við hlið spítalans stend-
ur til að rífa Greniborg, byggingu
sem reist var undir skrifstofur. Þar
kom upp mygla og hefur byggingin
staðið auð um nokkurn tíma.
Ítarlega hefur verið greint frá
myglunni í höfuðstöðvum Orkuveit-
unnar, sem teknar voru í gagnið fyr-
ir aðeins 14 árum. OR hefur til skoð-
unar hvernig brugðist verður við en
ljóst er að kostnaðurinn gæti orðið
allt að 3 milljarðar, sem fyrr segir.
Hefur jafnvel komið til greina að láta
rífa vesturhluta hússins og byggja
minna hús í staðinn eða flytja starf-
semina.
Stjórnendur Íslandsbanka standa
einnig frammi fyrir því að ákveða
hvort gömlu höfuðstöðvarnar á
Kirkjusandi verði rifnar eða ekki.
Kostnaður við að gera við húsið er
áætlaður um 1,7 milljarðar króna.
Landsbankinn þurfti einnig að glíma
við myglu við Austurstræti og Hafn-
arstræti, sem og í gamla Landssíma-
húsinu. Tjónið lenti aðallega á leigu-
sala, ekki bankanum nema að
takmörkuðu leyti.
Húsin rifin og hæðir rýmdar
Mygla kom upp í velferðarráðu-
neytinu á 4. hæð viðbyggingar í
Hafnarhúsinu. Þar urðu starfsmenn
að flýja óværuna en húsnæðið er í
eigu Faxaflóahafna. Viðgerð á hæð-
inni gæti kostað frá 250-500 millj-
ónir króna. Ráðuneytið var flutt til
bráðabirgða í Skógarhlíð en til
stendur að það fari í Sjávarútvegs-
húsið á Skúlagötu árið 2019.
Ríkiseignir sjá um stóran hluta af
húsnæði ríkisins. Alls eru 374 fast-
eignir í umsjá Ríkiseigna og frá
árinu 2015 hafa 15 tilfelli myglu
komið upp. Kostnaður við viðgerðir
á þessum eignum er um 300 millj-
ónir króna.
Má þar nefna húsnæði Veður-
stofunnar, Vegagerðina í Borgar-
túni, Gljúfrastein, Héraðsdóm
Reykjavíkur, Listaháskólann við
Sölvhólsgötu, Tryggingastofnun,
Tollstjórahúsið við Tryggvagötu og
Sólvang..
Þannig þurfti að rýma heila hæð
hjá Vegagerðinni við Borgartún og
starfsemin þar var flutt annað.
Daníel Árnason, forstöðumaður
rekstrardeildar Vegagerðarinnar,
segir kostnað við þá viðgerð vera
120-130 milljónir króna. Álíka
kostnaður verður vegna viðgerðar á
starfsstöðinni á Reyðarfirði, sem
nýlega þurfti að flytja í annað hús-
næði vegna myglu.
Skólabyggingar eru víða illa farn-
ar vegna myglunnar, þó líklega eng-
in eins mikið og Kársnesskóli í
Kópavogi, en þar hefur verið ákveð-
ið að rífa bygginguna og reisa nýjan
skóla. Það gæti kostað um 1,2 millj-
arða króna.
Milljarða króna mygluskemmdir
Margar opinberar byggingar illa farnar vegna myglu Landspítalinn illa leikinn af völdum
myglu- og rakaskemmda Þar er viðgerðarkostnaður 2-3 milljarðar Ráðist í viðhald í leiðinni
Morgunblaðið/Golli
Mygla Fjölmargar byggingar hér á landi eru skemmdar vegna myglu og raka í veggjum, loftum, gólfum og þiljum.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Rotnunarskán, lag af myglu-
sveppum sem sest á ýmis efni við
geymslu (einkum í raka).“
Þannig er myglu lýst í orðabók
Menningarsjóðs en þetta orð hefur
verið á hvers manns vörum undan-
farin misseri, nú síðast eftir að Orku-
veita Reykjavíkur upplýsti gríðar-
legt umfang mygluskemmda í höfuð-
stöðvum sínum við Bæjarháls. Þar
gæti kostnaður við viðgerðir á vest-
urbyggingu hússins numið frá 1,7 til
3 milljörðum króna, allt eftir því
hvaða leið verður farin.
Á undanförnum rúmum áratug
hefur geisað myglufaraldur hér á
landi en í nýlegri umfjöllun á mbl.is
kom fram að búið væri að rannsaka
ein 10 þúsund tilfelli og bara ein
verkfræðistofan hefði tekið að sér
um sjö þúsund verkefni á þessu
sviði. Talið er að heildarkostnaður
vegna viðgerða á myglu og raka-
skemmdum hlaupi á tugum milljarða
króna. Bæta má við talsverðum
kostnaði vegna heilsutjóns sem fólk
hefur orðið fyrir; á heimili jafnt sem
vinnustað. Þá ber að geta þess að
fasteignaeigendur margir hverjir
hafa ekki haft hátt um myglu í sínum
híbýlum, enda óvelkominn gestur.
Toppurinn á ísjakanum
Í þessari umfjöllun er aðeins tæpt
á helstu byggingum sem hafa verið í
umræðunni, aðallega á vegum hins
opinbera. Er þá m.a. ótalinn fjöldi
bygginga í eigu fasteignafélaga og
annarra einkaaðila, einstaklinga og
fyrirtækja, þar sem mygla hefur
komið upp.
Sú opinbera stofnun sem hefur
Barist við mygluna