Morgunblaðið - 01.09.2017, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Málflutningur hefst í Hæstarétti Ís-
lands í dag að loknu sumarhléi.
Jafnframt fækkar dómurum við
réttinn um einn frá og með deginum
í dag. Eiríki Tómassyni hefur verið
veitt lausn frá
störfum.
Eiríkur er 67
ára. Hann var
skipaður hæsta-
réttardómari 1.
september 2011
og hefur því
gegnt embættinu
um sex ára skeið.
Hann var áður
prófessor við
lagadeild Há-
skóla Íslands árin 1994 til 2011.
Þar sem Landsréttur tekur til
starfa um næstu áramót verður nýr
dómari ekki skipaður í stað Eiríks.
Samkvæmt lögum sem Alþingi sam-
þykkti s.l. í vor, verður ekki skipað í
embætti hæstaréttardómara sem
losna fyrr en þess gerist þörf til að
fjöldi hæstaréttardómara verði sjö.
Við Hæstarétt starfa nú eftirtald-
ir dómarar: Þorgeir Örlygsson, for-
seti Hæstaréttar, Helgi Ingólfur
Jónsson varaforseti, Benedikt Boga-
son, Greta Baldursdótir, Ingveldur
Einarsdóttir (sett), Karl Axelsson,
Markús Sigurbjörnsson, Ólafur
Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson
(í leyfi) og Viðar Már Matthíasson.
Á lista yfir áfrýjuð mál hjá
Hæstarétti má sjá að 335 mál bíða
þar afgreiðslu. Þar af eru 249 mál
sem áfrýjað hefur verið á þessu ári,
85 frá árinu 2016 og eitt mál frá
árinu 2015.
Í lögunum sem samþykkt voru s.l.
vor segir að til mótvægis við fækkun
dómara vegna þess fjölda mála sem
enn verða til úrlausnar hjá Hæsta-
rétti, muni Landsréttur taka við
þeim sakamálum sem áfrýjað hefur
verið til Hæstaréttar en ólokið verð-
ur hjá réttinum. Ekki er breytt því
fyrirkomulagi að Hæstiréttur ljúki
meðferð einkamála sem áfrýjað hef-
ur verið til réttarins þegar Lands-
réttur tekur til starfa.
Þriggja þrepa dómskerfi
Með tilkomu Landsréttar um
næstu áramót verður grundvallar-
breyting á dómskerfinu. Dómskerfið
verður þriggja þrepa í stað tveggja.
Til hins nýja dómstóls verður unnt
að skjóta úrlausnum héraðsdómstól-
anna átta og verða úrlausnir hans
endanlegar í flestum málum. Í sér-
stökum tilvikum og að fengnu leyfi
Hæstaréttar Íslands má skjóta nið-
urstöðum Landsréttar til Hæsta-
réttar.
Hundruð mála
bíða Hæstaréttar
Hefur störf í dag eftir sumarhlé
Einn dómaranna lætur af embætti
Morgunblaðið/Þórður
Hæstiréttur Mörg mál bíða réttar-
ins að loknu sumarhléi.
Eiríkur
Tómasson
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég vil því nota þetta tækifæri til
þess að koma því sérstaklega á
framfæri hversu þakklát namibíska
þjóðin er Íslendingum,“ segir Mor-
ina Muuondjo, sendiherra Namibíu
á Íslandi, en hún var stödd hér á
landi í síðustu viku til þess að af-
henda forseta lýðveldisins, Guðna
Th. Jóhannessyni, skipunarbréf
sitt.
Muuondjo var fyrst skipuð sendi-
herra í Svíþjóð árið 2013, en sendi-
ráð Namibíu í Stokkhólmi sér um
samskipti landsins við Norður-
löndin að frátöldu Finnlandi. Hún
segir að í upphafi hafi sendiráð
hennar átt að sjá um öll Norður-
löndin auk Eystrasaltsríkjanna, en
ríkisstjórn Namibíu hafi ákveðið að
stokka upp í utanríkisþjónustunni
og opna nýtt sendiráð í Finnlandi.
Allar þessar hræringar hafi því
miður tafið fyrir komu hennar
hingað til Íslands.
Samskiptin ná langt aftur
Muuondjo tekur þó fram að sam-
skipti ríkjanna hafi alltaf verið
traust, þrátt fyrir þá bið. „Ísland og
Namibía hafa átt í góðum sam-
skiptum í gegnum tíðina, og eiga
enn. Þau tengsl byrjuðu jafnvel áð-
ur en Namibía varð sjálfstæð
1990,“ segir Muuondjo, en Norð-
urlöndin hafi þá stutt landið með
þróunaraðstoð. Ísland hafi þar lagt
til aðstoð meðal annars í jafnrétt-
ismálum og við að bæta aðgang að
drykkjarvatni.
Muuondjo talar hlýlega um Þró-
unarsamvinnustofnun, sem hafi
starfað í landinu alveg fram til árs-
ins 2012, þrátt fyrir að þróunar-
aðstoð hafi verið formlega hætt
tveimur árum fyrr, en dregið hefur
úr þróunaraðstoð til Namibíu á síð-
ustu árum. „Staða okkar er breytt,
þar sem við erum talin til ríkja þar
sem tekjur eru í efra meðallagi,“
segir Muuondjo, og bætir við að
þess vegna séu Namibíumenn nú að
skoða önnur tækifæri til samvinnu
og viðskipta sem muni koma báðum
löndum til góða. „Við erum til
dæmis að skoða samstarf á sviði
menntunar, skiptinám og ferða-
mennsku, bara svo ég nefni nokkur
atriði. Þá hefur Ísland leikið lyk-
ilhlutverk í sjávarútvegi Namibíu
og mun gera það áfram.“
Muuondjo segir að Namibíumenn
séu einnig að reyna að ýta undir
hagvöxt. „Helstu sóknarfæri okkar
þar eru í landbúnaði, framleiðslu-
iðnaði, ferðamennsku og í flutn-
ingum. Ég er sannfærð um að við
getum lært mikið af Íslendingum í
þessum efnum og öfugt.“ Muuondjo
bætir við í því sambandi að
Namibía búi yfir ýmsum kostum
fyrir þá sem hefðu hug á að taka
þátt í slíku samstarfi. „Landið er
lýðræðisríki, það er réttarríki með
sjálfstæða dómstóla og við búum
við pólitískan stöðugleika. Namibía
hefur upp á allt þetta að bjóða. Með
það í huga, þá tel ég að íslensk fyr-
irtæki ættu að hafa mikið svigrúm
til þess að finna starfsgrundvöll í
Namibíu, ekki bara fyrir Íslend-
inga, heldur einnig Namibíumenn.“
Eigum margt sameiginlegt
Muuondjo leggur á það áherslu,
að þó að ríkin tvö séu á ólíkum stað
á hnettinum eigi þau ýmislegt sam-
eiginlegt. Hún nefnir sem dæmi að
bæði ríki séu tiltölulega stór að
flatarmáli en dreifbýl.
Hún nefnir ferðalög á milli land-
anna sem góða leið til þess að auka
skilning fólks á ólíkum menningar-
heimum. Þá sé einnig hægt að ná
til fólks með ýmsum hætti, til dæm-
is með skiptinámi eða listasýn-
ingum. Þá mætti halda sérstaka
„Namibíu-viku“ í háskólunum hér
til þess að kynna landið ungu fólki.
Muuondjo leggur þó áherslu á
það að nú þegar séu mikil tengsl
sem hafi myndast á milli landanna.
„Flestir sem ég hef hitt hérna hafa
einhver tengsl við Namibíu eða
þekkja einhvern sem hefur verið
þar. Það eru þannig tengsl sem við
þurfum að varðveita og styrkja.“
Þessi tengsl þarf að varðveita
Morina Muuondjo, sendiherra Namibíu á Íslandi afhenti skipunarbréf sitt hér í síðustu viku
Namibíumenn eru mjög þakklátir fyrir þá aðstoð og velvilja sem Íslendingar hafi sýnt
Morgunblaðið/Hanna
Sendiherra Morina Muuondjo, sendiherra Namibíu á Íslandi, segir að varð-
veita þurfi þau sterku tengsl sem skapast hafi á milli Íslands og Namibíu.
Hún afhenti forseta Íslands skipunarbréf sitt á Bessastöðum í síðustu viku.
Namibía
» Elstu mannvistarleifar í
Namibíu eru um 25.000 ára
gamlar, en Þjóðverjar gerðu
landið að nýlendu sinni á 19.
öld.
» Eftir fyrri heimsstyrjöld var
landið fært undir yfirráð Breta
og síðar Suður-Afríkumanna.
» Namibía hlaut sjálfstæði ár-
ið 1990. Höfuðborgin heitir
Windhoek, og var stofnuð af
Búum árið 1840.
» Rúmlega tvær milljónir
manna búa í Namibíu, þar af
búa um 325.000 í Windhoek.
Endingargóð vatnsheldni og öndun
Eiginleikar og þægindi:
Verkfræðihönnun GORE-TEX®
VÖNDUÐ ÍTÖLSK GÆÐAVARA
Vibram® skósólar og GORE-TEX®
vatnsheldni í öllum skóm.
Komdu til okkar á útsöluna í ICEWEAR
MAGASÍN , Laugavegi 91, og fáðu þér
vandaða skó á einstöku verði.
Heldur fótum þurrum og eykur þægindi
GORE-TEX tryggt
Shiver GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 11.994.-
Til í mörgum litum
LAUGAVEGUR 91 • OPIÐ TIL 22:00
Parete Nord GV
Kr. 36.990.-
Nú kr. 22.194.-
Piolet GV
Kr. 34.990.-
Nú kr. 20.994.-
AltaVia GV
Kr. 39.990.-
Nú kr. 23.994.-