Morgunblaðið - 01.09.2017, Side 56

Morgunblaðið - 01.09.2017, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2017 Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Skúli Halldórsson sh@mbl.is „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga, en flestar fyrirspurnir sem við fáum koma að utan. Þessi grein staðfestir fyrir þeim sem áður hafa heyrt um okkur að bátarnir og skrokkurinn okkar búi yfir mjög sérstökum eiginleikum sem ekki er hægt að finna í öðrum bátum.“ Þetta segir Þorsteinn Sigur- björnsson, markaðsstjóri skipa- smíðastöðvarinnar Rafnars. Ítarlega er fjallað um starfsemi fyrirtækisins í nýjasta tölublaði breska tímaritsins Yachting Matters, sem gefið er út tvisvar á hverju ári. Vísar Þorsteinn til greinar sem ritstjóri tímaritsins, Colin Squire, skrifar um ferð sem hann fór um Vestfirði í sumar í fylgd með Þor- steini og fleiri starfsmönnum Rafn- ars um borð í nýjum bát skipa- smíðastöðvarinnar, Fleng 850. Lagt var frá bryggju á Ísafirði og kemst ritstjórinn svo að orði: „Á leið yfir fjörðinn um borð í Fleng stefndum við á miklum hraða að fjarlægum höfða, og var ferðin merkilega þægileg á annars nokkuð úfnum sjó. Á þessum opna dælu- drifs-RIB-bát gat ég aftur vel kunn- að að meta – eins og ég gerði síðast þegar ég var um borð í öðrum bát Rafnars – þennan óvenjulega skort á skellum og skoppum sem ÖK- skipsskrokkurinn gefur manni.“ Heillast af „einstökum eigin- leikum skrokksins“ Hinn svonefndi ÖK-skips- skrokkur sem Squire vísar til er hönnun Össurar Kristinssonar, stofnanda Rafnars, en hann er var- inn með einkaleyfum. Ljóst er að Squire er heillaður af hönnuninni. „Munurinn á venjulegum RIB- báti og RIB-báti Rafnars [...] er ótrúlegur. Ég er hvorki skipahönn- uður né sérfræðingur í heilsu og ör- yggi, en ég hef verið á fleiri RIB- bátum en flestir og ég er enn stöðugt að heillast meira af ÖK-skips- skrokknum og einstökum eigin- leikum hans.“ Þorsteinn segir í samtali við Morgunblaðið að Squire hafi enda verið í skýjunum alla ferðina. „Hann sagði ferðina hafa verið eina þá bestu sem hann hefur upp- lifað, sem segir mikið þar sem hann hefur þegar ferðast um allan heim- inn og lent í ýmsum ævintýrum,“ segir Þorsteinn. Veiddu vel af þorski í Djúpinu „Bátsferðin um Ísafjarðardjúpið heppnaðist mjög vel. Dóttir hans var líka með í för og og fannst okkur mjög gaman að sjá hversu mikið þau skemmtu sér saman. Við lentum í um þriggja metra ölduhæð og tólf til fimmtán metrum á sekúndu fyrsta daginn og fannst þeim mjög merki- legt að sjá hversu vel báturinn hag- aði sér í slæmu veðri og öldum,“ seg- ir hann og bætir við: „Þau fengu ekki bara góða báts- ferð út úr þessu, heldur sáu þau einnig hvali og lunda og fengu að prófa sjóstangaveiði þar sem þau veiddu vel af þorski. Hvorki fyrr né síðar höfðu þau séð svo myndarlega þorska og hafði ritstjórinn orð á því að „strákarnir á barnum“ myndu hér eftir sjá um reikninginn, sökum afreka hans á fiskveiðum við strend- ur Íslands,“ segir Þorsteinn léttur í bragði. Fjöldi áhugasamra erlendis Í skipasmíðastöðinni eru nú allar hendur á dekki við að undirbúa ferð á árlegu snekkjusýninguna í Móna- kó, sem haldin er í lok september. „Þar munum við kynna fyrirtækið og bátana okkar fyrir skemmti- og snekkjubátamarkaðnum. Í því felst til dæmis að smíða sýningarbátinn okkar Ask, af gerðinni Leiftur 1100, sem sendur verður út til Mónakó um miðjan mánuðinn,“ segir Þorsteinn. „Við erum búin að byggja upp sterkt tengslanet inn í þennan mark- að og vinnum nú í að tryggja að allir þessir aðilar heimsæki okkur og prufusigli bátnum á sýningunni. Við höfum líka þurft að svara mörgum fyrirspurnum og erum að senda fjölda tilboða til aðila sem hafa áhuga á bátum frá okkur,“ bætir hann við. Auka þekkingu á útboðum Bendir hann á að fyrirspurnirnar lúti bæði að skemmtibátum og svo- kölluðum séraðgerðarbátum. „Í þeim efnum höfum við verið að auka þekkingu okkar á útboðsmörk- uðum erlendis með því að sækja ráð- stefnur þar sem kynnt er fyrir nýj- um þátttakendum hvernig útboðin virka og hvernig hægt sé að taka þátt.“ Mikill kraftur hefur verið settur í kynningarstörf erlendis að undan- förnu, einkum í Bandaríkjunum. „Leiftur 1100 kynningarbáturinn okkar, Embla, hefur farið víða á þessu ári. Hún fór frá Íslandi til Bresku Jómfrúareyjanna fyrr á árinu, þaðan til Miami og loks til Norfolk í Virginíu, þar sem hún var kynnt fyrir fulltrúum tollgæslunnar, bandaríska sjóhersins, og strand- gæslunnar. Núna er hún í St. Aug- ustine í Flórída þar sem löggæslu- yfirvöld hafa fengið að skoða hana og prufusigla.“ Mikil trú á tækninni vestanhafs Þorsteinn segir að vestanhafs hafi þau fundið fyrir mikilli trú á tækn- inni og eiginleikum skrokksins, sem henti vel fyrir þau hlutverk sem sér- aðgerðarbátar þurfi að gegna. Að lokum nefnir hann að skoðaður hafi verið sá möguleiki að bjóða bátaframleiðendum og skipasmiðum leyfi til að smíða eigin báta með ÖK- skrokknum. „Það er möguleiki sem mjög fáir bátaframleiðendur hafa haft tæki- færi til að nýta sér.“ Ljósmyndir/Yachting Matters Senda nýsmíðaða báta austur og vestur um höf Úfinn sjór Squire segist lítið hafa fundið fyrir „skoppum og skellum“ Önnur veröld Siglt var með ritstjórann og dóttur hans um Ísafjarðardjúp. Tær sjór Rafnar býr sig nú undir sýningu í Mónakó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.