Fréttablaðið - 02.11.2012, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDACUR
Örn, œtlarðu að fd svans-
búninginn hennar Bjarkar
lánaðan fyrir giggið?
„Já, pottþétt. Svo höldum við
kannski aukatónleika á Álftanesi."
Örn Ellas Guðmundsson, Mugison, hljóp
I skarðið fyrir hljómsveitina Swans á
lceland Airwaves 1 gær.
NÝR IPAD Minni útgáfan er 5 fersentí-
metrum minni en iPad af venjulegri
Stærð. NORDiCPHOTOS/ÁFP
Sala hefst um heim allan:
Apple hefur
sölu á iPad mini
tækni Bandaríski tölvurisinn
Apple hefur sölu á nýjum
útgáfum af iPad-spjaldtölvunum
um heim allan í dag. íslenskar
verslanir hefja einnig sölu á tölv-
unum í dag.
Tim Cook, forstjóri Apple,
kynnti nýju spjaldtölvurnar á
þriðjudag í síðustu viku. Bæði er
um uppfærslu á þriðju kynslóð af
iPad að ræða og minni útgáfu af
tölvunni.
Áhrifa Steve Jobs á vörur
fyrirtækisins gætir í æ minni
mæli. Ný framleiðslutæki eru
notuð í vörur Apple og breyting-
ar á yfirstjórn hönnunardeilda á
miðvikudag gætu haft mikil áhrif
á notendaviðmót Apple-tækja
framtíðarinnar. - bþh
Varaforsætisráðherra l'raks:
Dæmdur öðru
sinni til dauða
Iraks. ap Dómstóll í írak hefur
kveðið upp dauðadóm yfir Tarik
al Hashemi, varaforseta landsins,
fyrir að hafa reynt að fá lífverði
til að myrða háttsettan embættis-
mann.
Þetta er í annað sinn á tæpum
tveimur mánuöum sem dauða-
dómur er kveðinn upp yfir
Hashemi, en hann flúði til Tyrk-
lands í lok síðasta árs.
Hann segist saklaus af ákær-
unum. - gb
2
Rannsóknafyrirtækið Laxfiskar nýtir byltingarkennda tækni til að rannsaka lífsferil þorska við Island:
Nota gervitunglamerki til þorskrannsókna
rannsóknir Rannsóknafyrirtækið Laxfiskar
og samstarfsaðilar hafa tekið í notkun nýja
tækni sem gerir kleift að fylgjast með ferð-
um þorska við ísland. Tæknin byggir á fisk-
merkjum sem senda upplýsingar um ferðir
fiskanna um gervitungl. Þannig fást gögn
um hegðun og umhverfi fiskanna án þess að
endurveiða fiskana, sem er nýjung í þorsk-
rannsóknum. Slík gögn gefa meðal annars
nýjar hagnýtar upplýsingar um þorskinn þegar
hann dvelur utan veiðislóðar.
Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum segir
að merkin séu á ýmsan hátt sambærileg þeim
sem notuð hafa verið til hvalarannsókna, en
gögnin frá gervitunglafiskmerkjunum skila
sér hins vegar á þann hátt að merkin losa sig
af fiskunum á fyrir fram ákveðnum tíma og
fljóta upp í yfirborð þar sem þau geta fyrst náð
sambandi við gervitungl ARGOS-gervitungla-
kerfisins. Um gervitungl berast þannig mæli-
gögn yfir fiskdýpi á farleiðinni hverju sinni,
sem og sjávarhita og birtumagn.
Fyrstu niðurstöður rannsókna sem hófust í
vor lofa góðu. „Vænir hrygningarfiskar sem
merktir voru í Faxaflóa hafa meðal annars
komið fram bæði sunnan við land og norðan,
allt að 600 kílómetrum frá merkingarstaðn-
um,“ segir Jóhannes.
Laxfiskar kynna rannsóknina á þorskinum,
ásamt öðrum rannsóknum, á opnum fundi
á þriðjudaginn kemur í Víkinni - Sjóminja-
safninu, Grandagarði. - shá
GOLÞORSKUR I MERKINGU Jóhannes og Erlendur
Geirdal við merkingar á þorski sem hafa skilað
áhugaverðum niðurstöðum. mvnd/iaxfiskar
Hnetum úthýst úr
skólum Reykjavíkur
Fimm grunnskólar í Reykjavík eru hnetufríir vegna bráðaofnæmis skólabarna.
Nemendur í skólunum eiga ekki að koma með nesti í skólann sem inniheldur
hnetur eða er unnið úr hnetum. Bráðaofnæmi fyrir hnetum verður æ algengara.
HEILBRIGÐISMÁL í FoSSVOgSSkÓla
eru fimm börn með bráðaofnæmi
fyrir hnetum. Þar hefur sú stefna
verið innleidd að foreldrar barna
í skólanum sendi þau ekki í skól-
ann með nesti sem inniheldur
hnetur.
„Börnin eru voða dug-
leg að koma með ávexti í
nesti. Það var hins vegar
eitt og eitt barn sem kom
með eitthvað sem inni-
hélt hnetur og því send-
um við út ábendingu
um að því ætti helst að
sleppa,“ segir María
Skaftadóttir, hjúkr-
unarfræðingur. Hún
er verkefnisstjóri yfir
heilsugæslu í Réttar-
holtskóla, Breiða-
gerðisskóla,
Hvassaleitisskóla
og Fossvogskóla.
„Við byrjuð-
um á þessu í
fyrra því það
eru óvenju
mörg börn með
hnetuofnæmi í
skólanum núna
og þeim fer allt-
af fjölgandi,"
segir María.
„Þetta hefur
ekki verið vanda-
mál en það þarf
að passa vel upp á
þetta. Hnetur leyn-
ast í mjög mörgu
þótt það sé ekki
uppgefið á umbúð-
um,“ segir María.
„Við vinnum náttúr-
lega að forvörnum £ to
og fræðslu líka. Við bíðum ekki
bara eftir að einhver slasist."
Markmiðið með því að gera
skólana hnetufría er að skapa
öruggt umhverfi fyrir alla nem-
endur. María segir foreldra barna
í skólunum hafa tekið vel í þetta
verkefni og segir þá skilnings-
ríka.
„Við Björg Cortes erum
tveir hjúkrunarfræðingar með
þessa fjóra skóla og höfum
verið að vinna að þessum hnetu-
fríu skólum. Þetta er mikið rætt
meðal okkar skólahjúkrunar-
fræðinga að flestir skólar taki
tessa stefnu upp,“ segir María.
saksskóli er einnig „hnetufrír"
skóli.
birgirh@frcttabladid.is
Fyrst af öllu hringt í Neyðarlínuna
eir sem hafa bráðaofnæmi fyrir hnetum mega helst ekki komast
í tæri við hnetur eða nokkur matvæli sem innihalda hnetur.
Hnetusmjör, hnetujógúrt og ýmsar brauðtegundir
innihalda til dæmis hnetur. „Þeirsem eru með
bráðaofnæmi fyrir hnetum eru svo viðkvæmir
fyrir þeim að það eitt að borða matvæli frá
einhverjum sem er nýbúinn að handleika
hnetur getur kallað fram einkenni," segir
María.
Um viðbrögð við bráðaofnæmis-
einkennum segir María það einfaldlega
mjög gott að vita hvort einhver sé með
bráðaofnæmi. Þá sé maður fljótari að
átta sig á einkennunum. „Óþægindi
í öndunarvegi eru það sem maður er
hræddur við. Fyrstu einkennin sem
krakkarnir segja sjálfir frá eru pirringur
í öndunarveginum, í tungunni eða í
vörunum."
Einkenni bráðaofnæmisins eru að ein-
staklingurinn bólgnar upp og bólgan getur
lokað öndunarveginum.
„Fólk er hvatt til að nota adrenalín-
sprautuna fyrr en seinna. Ég hef verið að
hvetja starfsfólkið í skólunum til að nota
sprautuna frekar en að sleppa því."
í hvert skipti sem svona tilfelli kemur
upp er hringt í Neyðarlínuna, 112. „Það
fyrsta sem maður gerir er náttúrlega að
hringja í 112,"segirMaría.
HNETUSMJÖR Allar þær
matvörur sem innihalda
geta verið
sm
fyrir
Fólk gæti tapað ævisparnaði:
Eir skuldar átta
milljarða króna
félagsmál Hjúkrunarheimilið
Eir er í miklum rekstrarvanda en
unnið er hörðum höndum að því
að leysa vanda félagsins. Félagið
skuldar um átta milljarða en laust
fé er nánast uppurið. Af átta millj-
örðum skuldar Eir sex milljarða
tii lánardrottna, íbúðalánasjóðs
og lífeyrissjóða en um tvo millj-
arða til eldri borgaranna sem búa
í öryggisíbúðunum sem félagið
rekur. Ævisparnaður margra íbúa
gæti glatast, færi félagið í þrot.
Eir er sjálfseignarstofnun en
meðal stofnaðila Reykjavíkur-
borg, Seltjarnarnes, stéttarfélög
og h'feyrissjóðir.
Eir rekur meðal annars 173
hjúkrunarrými og 206 öryggis-
íbúðir fyrir aldraða. - aó
Ekkert ferðaveður á landinu:
Varað við stormi
víðaumland
veður Veðurstofa íslands varar
við norðanstormi víða um land i
dag. Vindhraði gæti mælst meiri
en 20 metrar á sekúndu og sums
staðar, sérstaklega á sunnanverðu
landinu, gætu vindhviður náð 55
metrum á sekúndu.
Þá má búast við nokkurri
úrkomu um land allt í formi snjóa
og hiti fer víðast undir frostmark.
Fólki er ráðið frá miklum ferða-
lögum enda færð á vegum afar
léleg. í gærkvöldi voru hálkublettir
og þæfingsfærð víða á vegum.
Ófært er á hálendinu. Ekki er gert
ráð fyrir að veðrið gangi niður fyrr
en á morgun eða á sunnudag. - bþh
SAMFÉLAGSMÁL
Dagur gegn einelti
Baráttudagur gegn einelti hér á landi
verður haldinn 8. nóvember. I tilkynn-
ingu frá menntamálaráðuneytinu er
þjóðin hvött til að standa saman gegn
einelti, ekki síst í skólum og á yinnu-
stöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt
af mörkum til að einelti fái ekki þrifist.
Félagar í Geðhjálp athugið:
Geðhjálp auglýsir félagsfund
þann 3. nóvember kl. 14-16.
Efni fundarins er:
• Kynning á nýjum framkvæmdastjóra félagsins.
• Kynning á verkefnum félagsins á árinu og
þeim verkefnum sem liggja fyrir.
• Kynning á framkvæmdum og afkomu.
• Opnar umræður og skoðanaskipti.
GEÐHJÁLP
Fréttablaðið efnirtil verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna:
Jólasagan birtist á aðfangadag
samkeppni Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni
um bestu frumsömdu jólasöguna í ár. Verðlauna-
sagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, mynd-
skreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.
Samkeppnin er öllum opin. Einu skilyrðin eru þau
að sagan fjalli um jólin eða fangi anda jólanna með
einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk eru 1.000 til
1.300 orð (um það bil 5.500 til 7.000 slög með bilum)
en að öðru leyti eru efnistök frjáls.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu sögurnar að
mati dómnefndar, sem Fréttablaðið skipar. í fyrstu
verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba,
auk þess sem sagan birtist í blaðinu. Verðlaun fyrir
annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af gerðinni
United. Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.
„Þetta er hugmynd sem okkur langaði til að prófa
og ef vel tekst til gæti hún orðið að árlegri hefð,“
segir Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri
Fréttablaðsins. Hún hvetur áhugasama höfunda,
reynda sem óreynda, til að senda inn sögur og gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn. „Andi jólanna er
víðfeðmt hugtak. Skemmtilegustu sögurnar eru oft
þær sem koma manni svolítið á óvart.“
JÓLIN NÁLGAST Auk þess að fá sögu sína birta I Fréttablaðinu
á aðfangadag, myndskreytta af Halldóri Baldurssyni teiknara,
hlýtur sigurvegari jólasögukeppninnar fartölvu I verðlaun.
FRÉTTABLAÐIÐ/CVA
Texta skal senda í Word-skjali (eða á sambærilegu
formi) á netfangið jolasaga@frettabladid.is ásamt
nafni höfundar, netfangi og símanúmeri. Starfs-
maður Fréttablaðsins tekur á móti sögunum og
sendir þær nafnlausar áfram til dómnefndar. Skila-
frestur er til 5. desember. - bs