Fréttablaðið - 02.11.2012, Síða 4
GENGIÐ 01.11.2012
4
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDACUR
CJALDMIÐLAR KAUP SALA
W1 Bandaríkjadalur 125,81 126,41
S 3 Sterlingspund 203,49 204,47
BBI Evra 162,84 163,76
Dönsk króna 21,825 21,953
-|—; Norsk króna 22,095 22,225
h ' Sænsk króna 18,905 19,015
0 Japanskt jen 1,5717 1,5809
SDR 193,44 194,60
i GENGISVlSITALA KRÓNUNNAR i
225,3397
HEIMILD: Seðlabanki (slands !
:..............................:
Pútín lítið sést opinberlega:
Rússar spá í
heilsu Pútíns
RÚ5SLAND. ap Undanfarnar vikur
hefur Vladimír Pútín Rússlands-
forseti lítið sést opinberlega utan
forsetabústaðar
síns.
Töluverðar
vangaveltur
hafa því verið
um heilsu hans,
og Rússar
spyrja sig hvort
hann hafi slas-
ast þegar hann
gerði í septem-
ber síðastliðnum tilraun til að
fljúga með trönum í von um að
geta hjálpað þeim til að rata.
Dmitrí Peskov, talsmaður Pút-
íns, segir ekkert hæft í þessum
vangaveltum. Ástæðan fyrir því
að hann fari sjaldan til skrifstofu
sinnar í Kreml sé sú að hann vilji
ekki að bílalest forsetans valdi
enn frekari truflunum á þungri
umferðinni í Moskvu. - gb
vladimIr pútín
Elsa Lára býður sig fram
Elsa Lára Arnardóttir býður sig fram
í þriðja sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi. Elsa
Lára er kennari í Brekkubæjarskóla á
Akranesi. Hún hefur verið varabæjar-
fulltrúi fyrir flokkinn frá 2010.
Sigríður Andersen fram
Sigríður Á. Andersen gefur kost á sér
I þriðja til fjórða sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík. Sigríður
er varaþingmaður fyrir flokkinn og
héraðsdómslögmaður.
Teitur vill 4. til 5. sæti
Teitur Atlason sækist eftir fjórða til
fimmta sæti á framboðslista Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík í prófkjörinu 16.
og 17. nóvember.Teitur hefur búið í
Svíþjóð undanfarin ár og hefur skrifað
mikið um þjóðfélagsmál hérlendis.
Verjendur sakborninga í Al Thani-málinu rökstuddu frávísunarkröfu sína:
Kvörtuðu yfir sérstökum saksóknara
dómsmál Verjendur sakborninga í
svonefndu A1 Thani-máli sérstaks
saksóknara héldu því fram fyrir
dómi í gær að starfsaðferðir sér-
staks saksóknara hefðu verið ólög-
mætar og því bæri að vísa málinu
frá. Tekist var á um frávísunar-
kröfur þeirra í málflutningi í allan
gærdag.
Meðal umkvörtunarefna Sig-
urðar Einarssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Kaupþings, er
alþjóðleg handtökuskipun sem sak-
sóknari gaf út á hendur honum
þegar hann hafði neitað að verða
við kalli um að koma til íslands í
yfirheyrslu vegna málsins. Gestur
Jónsson, verjandi hans, sagði ígær
að hún hefði verið allt of harkaleg
aðgerð og eyðilagt möguleika Sig-
urðar á að finna sér vinnu.
Fram kom í máli Karls
Axelssonar, verj-
anda Magnúsar
Guðmundssonar,
sem var banka-
stjóri Kaupþings
í Lúxemborg, að
saksóknari rann-
sakaði nú átta mál
þar sem Magn-
ús væri
sakborningur. Þau snerust mörg
hver um svipuð brot og eðlilegt
væri að ákæra í þeim öllum í senn.
Frávísunarástæðurnar sem verj-
endurnir tína til eru tíu. „Það hlýt-
ur að vera met,“ sagði saksóknarinn
Björn Þorvaldsson áður
en hann hóf að flytja
mál sitt og mótmælti
öllum ástæðunum
kröftuglega. - sh
MÆTTU Sigurður
Einarsson og Ólafur
Ólafsson mættu fyrir
dóminn í gær.
„Pinnið á minnið“
brýtur á réttindum
Öryrkjabandalag íslands segir fyrirkomuiagið Pinnið á minnið brjóta á réttind-
um fatlaðra. Margir hafi ekki getu til að muna eða slá inn lykilnúmer. Undan-
tekningar vegna þessa hafa verið gerðar erlendis segja stjómendur verkefnisins.
SAMFÉLACSMÁL Öryrkjabanda-
lag íslands gagnrýnir verkefnið
„Pinnið á rninnið" harðlega og
segir fyrirkomulagið brjóta á
réttindum fatlaðra einstaklinga.
Ekki hafi allir líkamlega getu til
að slá inn tölur á posa, eða and-
lega getu til að muna fjögurra
stafa talnarunu.
Guðmundur Magnússon, for-
maður Öryrkjabandalagsins,
segir enga jafnræðisreglu vera í
fyrirkomulaginu.
„Það er svo margt sem getur
komið í veg fyrir að fólk geti
munað pinnin og stimplað þau
inn. Það er verið að brjóta á rétti
fatlaðra þar sem ekki er verið að
gera ráð fyrir fjölbreyttu mann-
lífi.“
Enn er hægt að nota posa í
verslunum upp á gamla móðinn,
það er með því að nota segulrönd
eða sleppa því að stimpla inn
lykilnúmer, en sá möguleiki er
einungis leyfilegur tímabundið.
Fljótlega verða allir beðnir um að
staðfesta viðskiptin með pinni í
stað undirskriftar.
Freyja Haraldsdóttir, fyrr-
verandi stjórnlagaráðskona,
segir það gefa augaleið að fyrir-
komulagið verði ekki aðgengilegt
fyrir mjög stóran hóp.
„Ef ég væri ekki með aðstoðar-
fólk gæti ég ekki stundað svona
viðskipti,“ segir Freyja. Hún
bendir einnig á að hreyfing
meðal aðstoðarfólks fatlaðra sé
töluverð og ef fyrirkomulagið
verði þannig að starfsfólk þurfi
að vita leyninúmer vinnuveitanda
þyrfti ekki að líða langur tími
PINNIÐ Á MINNIÐ (sland er með síðustu ríkjum Evrópu sem innleiða hinar nýju
kröfur, en markmið þeirra er að gera kortagreiðslur öruggari og draga úr kortasvikum.
FREYJA CUÐMUNDUR
HARALDSDÓTTIR MAGNÚSSON
þar til tölurnar væru komnar út
um víðan völl.
Hún segir málið verulega
umhugsunarvert. „Þetta getur
orðið verulega stórt vandamál og
er gott dæmi um hvernig sam-
félagið er hannað fyrir ákveðinn
hóp,“ segir hún.
Samkvæmt upplýsingum frá
stjórn verkefnisins Pinnið á minnið
þurfa fyrirtæki að tryggja aðgengi
fatlaðra að posunum, til dæmis með
þeim hætti að manneskja í hjólastól
geti fengið posann til sín og staðfest
greiðslu. Þá hafi sú leið verið farin
í Bretlandi fyrir þann hóp sem ekki
geti lagt tölurnar á minnið að fólk
geti sótt um kort þar sem örgjörv-
inn sé lesinn en korthafi fái áfram
að staðfesta með undirskrift. Þar í
landi eru innan við 0,35% korta af
þeirri gerð.
„Við væntum þess að útgefend-
ur greiðslukorta muni á næstunni
kynna sínar lausnir sem henta
þessum hópum korthafa sérstak-
lega,“ segir í svari verkefnastjórnar.
sunna@frettabladid.is
Rannsókn á umferðarlögum:
Ríkir brjóta
frekar lögin
danmörk Ríkt fólk er líklegra til
þess að brjóta umferðarlög en
fátækir. Þetta eru niðurstöður
rannsóknar sem gerð var í Dan-
mörku.
Rannsóknin byggði á gögnum
frá árinu 1985 og fram til
nútímans og voru hinir brotlegu
flokkaðir eftir tekjum. Sam-
kvæmt henni höfðu 3,6 prósent
efri stéttar fengið dóm fyrir
umferðarlagabrot. Tvö prósent
millistéttarfólks höfðu fengið
slíkan dóm og 1,8 prósent lág-
stéttarfólks. - þeb
230 milljónir í brúargerð:
Brýr úr landi að
odda Geirsnefs
SKIPULACSMÁL Borgarráð sam-
þykkti í gær að ný hjóla- og
gönguleið yfir Elliðaárósa yrði
opnuð 3. maí á næsta ári. Með
þessu styttist vegalengd hjólandi
og gangandi milli Grafarvogs og
miðborgar um 700 metra.
„Byggðar verða tvær göngu- og
hjólabrýr yfir Elliðaárósa, þær
tengdar við stígakerfið og lagður
göngu- og hjólastígur milli þeirra
yfir norðurenda Geirsnefs,“
segir í tilkynningu Reykjavíkur-
borgar. Fram kemur að brýrnar
tvær verði um 36 metra langar og
breidd brúargólfs þeirra um 4,5
metrar. Þá segir að nýja hjóla-
og gönguleiðin verði aðskilin
frá hundasvæðinu með girðingu
þvert yfir Geirsnefið.
Verkið á að kosta um 230
milljónir króna sem skiptast
milli Vegagerðarinnar og
Reykjavíkurborgar. - gar
Innanlandsflug Ernis:
Flýgur áfram á
ríkisstyrkjum
samcöncur Flugfélagið Ernir
mun áfram starfrækja innan-
landsflug sitt næstu vikur, að
minnsta kosti til áramóta.
Flugfélaginu er gert kleift að
halda fluginu áfram eftir að full-
trúar innanríkisráðuneytisins,
Vegagerðarinnar og flugmála-
stjórnar ákváðu að styrkja áætl-
unarferðir Ernis.
Félagið flýgur til Vestmanna-
eyja, Hafnar í Hornafirði, Húsa-
víkur, á Bíldudal og Gjögur.
Samningur flugfélagsins um
flug á þessum ríkisstyrktu flug-
leiðum rennur út í lok næsta árs
en stefnt er að því að semja um
framhald verkefnisins á næstu
vikum. -bþh
VEÐURSPÁ
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
ÓVEÐUR verður á
mestöllu landinu
I dag. Hvassviðri
eða stormur verður
mjög víða en
hvassast verður
sunnan Vatnajökuls
þar sem búast má
við vindhviðum
yfir 40 m/s. Tals-
verð eða mikil
snjókoma verður á
Norður- og Norð-
austurlandi.
Á MORCUN &>
Hvasst V-lands, stormur Efó
allra syðst en dregur úr *—
vindi um kvöldið.
SUNNUDAGUR Q~\
Hvasst allra syðst og
með A-strönd, annars U
fremur hægur vindur.
HEIMURINN Alicante 22°
Basel 14°
Berlín 9°
Billund 9°
Frankfurt 10°
Friedrichshafen 12°
Gautaborg 8°
Kaupmannahöfn 8°
Las Palmas 27°
London 8°
Mallorca 22°
New York 12°
Orlando 25°
Ósló 3°
París 11°
San Francisco 18°
Stokkhólmur 9°
Vindhraði er f m/s.
Hitastig eru i°C
Gildistimi korta er um hádegi.
AUGLYSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS - AUGLYSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@lrettabladidis ALMENNAR SlMI 512-5401: Einar DavHJsson einar.davidsson@365js. Guðmundur Steinsson gjdmundursg365Js. Hjordls Zoega hjordis&iettabladídjs. Hlynur bór Sleingnmsson hlynur@365.is, Laila Awad fai/o@365A
Öm Geirsson om.geirsson@365js FÓLK/LlFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365js, Elsa Jensdóttir eisaj@365js, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365Js, Sigrtður Dagný Sigurbjömsdóttir sigridurdogny@365.is. Svenir Birgir Svenisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SlMI 512-5403: Hrannar Helgason Jirannar@365.rs, Vióar Ingi Pétursson wpi@365.is WÓNUSTUAUGLÝSINGAR SlMI 512-5407: Ama Rut Kristínsdóttir amarut@36Sjs, Sigtún Helga Guómundsdóttir sigrunh@365js