Fréttablaðið - 02.11.2012, Síða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUPAGUR
Sagði frá niðurfellingu kauprétta
Forstjóri Eimskips greindi
formanni VR frá því að til
stæði að fella niður kaup-
rétti stjórnenda fyrirtækis-
ins áður en hlutafjárútboði
lauk. Fjármálaeftirlitið
rannsakar hvort allir bjóð-
endur hafi setið við sama
borð.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips,
sagði Stefáni Einari Stefánssyni,
formanni VR, að til stæði að falla
frá kaupréttum stjórnenda félags-
ins áður en fagfjárfestaútboði lauk
á fimmtudag í síðustu viku. Stef-
án Einar sagði Helga Magnússyni,
stjórnarformanni Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, frá málinu í kjöl-
farið.
Fjármálaeftirlitið rannsakar
hvort allir hafi setið við sama borð
í lokuðu útboði til fagfjárfesta á 20
prósenta hlut í Eimskip sem lauk
klukkan 14 síðastliðinn fimmtu-
dag. Á meðal þess sem það rann-
sakar er hvort forsvarsmenn Eim-
skips hafi upplýst einhverja um að
til stæði að fella niður kauprétt-
ina áður en útboðinu lauk og hvort
að umsjónaraðilar útboðsins hafi
boðið völdum þátttakendum að
gera fyrirvara um kaupréttina við
tilboð sín.
Umfangsmiklir kaupréttir
stjórnenda Eimskips urðu til þess
að nokkrir af stærstu lífeyris-
sjóðum landsins ákváðu að taka
ekki þátt í útboðinu. Stjórnendur-
nir féllu síðar frá kaupréttunum og
var tilkynnt um það til kauphallar
að kvöldi síðastliðins fimmtudags.
Lífeyrissjóðurinn Festa öskaði í
kjölfarið eftir því að FME myndi
taka útboðið til rannsóknar. Sjóð-
urinn vill meðal annars meina að
starfsmenn umsjónaraðila útboðs-
ins, íslandsbanka og Straums fjár-
festingabanka, hafi boðið sumum
þátttakendum í útboðinu að gera
tilboð í hlutabréf Eimskips með
fyrirvara um að kaupréttarsamn-
ingar stjórnenda yrðu felldir
niður. Festa taldi ótækt að valdir
fjárfestar hefðu fengið meiri upp-
lýsingar en komu fram í útboðs-
lýsingu og stóðu öðrum fjárfest-
um til boða. Auk þessa rannsakar
FME auk þess hvort einhverjir hafi
haft upplýsingar um að til stæði að
fella niður kaupréttina á meðan að
útboðinu stóð.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins fór eftirlitið meðal ann-
EIMSKIP Fjármálaeftirlitið fór í vettvangsferðir til umsjónaraðila útboðsins, íslandsbanka og Straums, fyrr í vikunni. Þar fékk það meðal annars afrit af samskiptum starfs-
manna þeirra við utanaðkomandi aðila. Cylfi Sigfússon er forstjóri Eimskips. fréttabuðib/stefAn
Gylfi gat ekki tekið ákvörðunina einn
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir að Gylfi Sigfússon, for-
stjóri Eimskips, hafi fengið skilaboð klukkan korter yfir eitt þennan fimmtudag
um að Stefán Einar væri að reyna að ná tali af honum. „Gylfi náði ekki að
svara honum vegna þess að hann var á fundi. Um hálf tvöleytið fékk hann
tölvupóstfrá Stefáni þar sem hann lýsir áhyggjum sínum og starfsmanna fyrir-
tækisins yfir þessu máli. Rétt fyrir klukkan tvö þá hringjast þeir á þar sem að
Gylfi fer yfir þennan tölvupóst og segist skilja þessar áhyggjur hans. Þeir sam-
mælast um að Gylfi haldi áfram að skoða þessi mál. Þegar útboðinu er lokið
klukkan korter yfir tvö koma þessir miklu fyrirvarar í Ijós, sem menn höfðu
verið að setja á tilboðin. Gylfi hringir síðan aftur í Stefán um klukkan korter í
þrjú og tilkynnir honum um fyrirvarana og að hann ætli sér að vera í sambandi
við framkvæmdastjóra fyrirtækisins til að sjá hvað sé hægt að gera varðandi
kaupréttina.
Á þessum tímapunkti voru tveir framkvæmdastjórar erlendis, og annar
þeirra meira að segja í flugi. Þetta var ekki Gylfa ákvörðun ein og sér að taka,
heldur þurftu sex menn að taka þessa ákvörðun um að falla frá kauprétt-
unum. Það næst ekki fyrr en um sexleytið, líkt og komið hefur fram áður."
ars fram á það við Lífeyrissjóð
verzlunarmanna á mánudag að
hann upplýsti um hvenær forsvars-
menn sjóðsins hefðu fengið upplýs-
ingar um að fallið yrði frá kaup-
réttunum. Það hefur auk þess farið
í vettvangsferðir til umsjónaraðila
útboðsins og fengið afrit af sam-
skiptum starfsmanna þeirra sem
áttu sér stað á meðan á útboðinu
stóð.
Stefán Einar sendi forstjóra
Eimskips tölvupóst klukkan 13.30
síðastliðinn fimmtudag þar sem
hann gerði grein fyrir áhyggjum
sínum vegna kaupréttanna, enda
starfaði fjöldi félagsmanna VR
hjá Eimskip og að hans mati væri
málið farið að skaða fyrirtækið. í
póstinum lagði Stefán Einar síðan
til að kaupréttirnir yrðu látnir
niður falla. „Gylfi hringdi síðan í
mig klukkan 13.45. Þar gerir hann
mér grein fyrir því að hann sé að
kalla saman stjórnarfund þar sem
hann muni leggja til að þetta yrði
fellt niður. Hann bað mig fyrir
þessu í trúnaði sem ég geri ráð
fyrir að geri mig að tímabundn-
um innherja. Ég lofaði því, nema
ég spyr hvort ég eigi að hafa sam-
band við lífeyrissjóðinn vegna þess
að ég vissi að þeir voru á stjórnar-
fundi og að þeir væru að vinna að
yfirlýsingu um málið.“
Stefán Einar kallaði í kjölfarið
Helga Magnússon, stjórnarfor-
mann Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, út af stjórnarfundi í sjóðn-
um. Hann telur að klukkan hafi
þá verið um fimm mínútur í tvö.
„Ég hef það hins vegar staðfest úr
tölvukerfinu hér að ég sendi tölvu-
póst á Gylfa Sigfússon klukkan
13.30. Hann hringdi í mig klukkan
13.45 og ég var kominn upp á skrif-
stofu hjá lífeyrissjóðnum klukkan
fimm mínútur í tvö“.
Samkvæmt upplýsingum frá Líf-
eyrissjóði verzlunarmanna bárust
upplýsingarnar inn á stjórnarfund-
inn stuttu eftir að útboðinu lauk.
Þórður Snær
Júlíusson xÁj/a
thordur@fréttabladid.is MáStGfri-
FRÉTTASKÝRING: Fjármálaeftirlitið rannsakar hlutafjárútboð Eimskips
Golf kostar adeins fró
3.390.000 kr.
* Volkswagen Golf var sigurvegari í órlegri sparaksturskeppni Atlantsolíu 2012, í flokki disilbíla 1.4-1.6 cc.
Volkswagen Golf BlueMotion
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km**
** Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum
Volkswagen Golf BlueMotion 1.6
Das Auto.
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf
Reynslan er góð!
Laugavegi 170-174 • 590 5000 • hekla.ls • hekla@hekla.is • umboösmenn um land allt
Œl
HEKLA