Fréttablaðið - 02.11.2012, Qupperneq 18
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
www.forlagid.is - alvöru bókavérslun á netiiui
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahllð 24,105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndls Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Krístján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
(ÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is UÓSMYNDIR: Pjetur S\gur6sson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
Ógnvænlegt - fólk þorir ekki
að standa á rétti sínum
Valgerður
Bjarnadóttlr
alþingismaður
Fólk og fyrirtæki óttast að kvarta til
Umboðsmanns Alþingis vegna þjónustu
opinberra stofnana. Það geti komið í bakið
á þeim þegar leitað sé til stofnana síðar.
Hið sama á við ef fólk telur að hið opinbera
gangi á rétt þess. Þetta er auðvitað ekkert
annað en ógnvænlegt.
í skýrslu Umboðsmanns fyrir árið 2010
kom fram að hann hefði orðið var við að
forsvarsmenn fyrirtækja í atvinnurekstri
treystu sér illa til þess að bera fram form-
legar kvartanir vegna eftirlitsstjórnvalda
og bæru þá við ótta um að þeim yrði hegnt
af hálfu stjórnvaldsins þegar kæmi að
ákvörðunum í málum þeirra og tilefni til
eftirlits. Slík framkoma eftirlitsstofnana á
auðvitað ekki að líðast.
í skýrslu Umboðsmanns fyrir árið 2011
kemur fram að ef einstaklingur hafi kvart-
að til Umboðsmanns líði hann fyrir það.
í stuttu máli: Einstaklingur kvartar til
Umboðsmanns vegna þess að mál hans er
ekki afgreitt innan tilsetts tíma. Þá dregur
stjórnvaldið enn lappirnar og nú í skjóli
þess að Umboðsmaður hefur kvörtunina til
meðferðar. Hvers lags er þetta eiginlega?
Hegðan hins opinbera
sem veldur því að fólk og
fyrirtæki veigra sér við að standa
á rétti sínum þarf að uppræta.
Vald er vandmeðfarið. Það er alltaf óþol-
andi þegar sá sem valdið hefur misbeitir
því. Þetta á alltaf við, sérstaklega þegar hið
opinbera á í hlut. Hið opinbera er til fyrir
okkur öll og til að þjóna okkur öllum.
Sérstakar reglur eru til um hvernig fólk í
opinberum störfum á að starfa. Þessar regl-
ur heita stjórnsýslulög. Telji fólk að þessi
lög séu brotin á það að láta reyna á rétt sinn
- ekki hika við það. Umboðsmaður Alþingis
tekur það óstinnt upp ef hann hefur veður
af því að það komi á einhvern hátt niður á
þeim sem vilja standa á rétti sínum.
Mörgu þarf að breyta og margt að laga í
stjórnsýslunni. Hegðan hins opinbera sem
veldur því að fólk og fyrirtæki veigra sér
við að standa á rétti sínum þarf að uppræta.
skoðun
greinar@j
FRETTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDACUR
MAGNÞRUNGIN
ÖRLAGASAGA
llEI, llFI • ás ER EkKl ffi WA AV SoiLi
'fl fllRlftíflkES. É? B? BflRfl , on T°uR "
w ER ALtr flý FflRfl Tit FJANPAHS
ilf l/W flllT. SiöjtpilKREPPfl,
'OEiRÞ'R °s SMl/RLEQT yFÞtíft.
Þauivön
Nú ætla Siv Friðleifsdóttir og félagar
hennar i Norðurlandaráði að gera
Norðurlöndin reyklaus fyrir árið 2040,
Það er öllu háleitara markmið en
hitt: að draga úr áfengisdrykkju um
tíu prósent á næstu 13 árum. Allt að
einu getur Siv lagt til að byggt verði á
planinu sem hún og félagar
hennar í Framsóknar-
flokknum kynntu fyrir
kosningarnar 1999 um
vímuefnalaust fsland
2002. Það gekk vel.
Jarm
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir hélt fróðlegt erindi
á hádegisverðarfundi Félags við-
skipta og hagfræðinga í gær, þar sem
umræðuefnið var kvikmyndagerð á
fslandi. Ekki síður fróðleg voru orð
hennar um flokksfélaga sína: „Svo
ætla ég aðeins að nefna RÚV, og ekki
á sömu forsendum og þeir sem eru
til dæmis ( prófkjöri hjá Sjálfstæðis-
flokknum; að tala niður RÚV. Ég ætla
ekki að taka þátt í því jarmi." Flún
sagði ekki við hverja hún ætti, en það
vakti athygli á dögunum þegar Elín
Hirst gagnrýndi fyrrverandi kollega
sína á fréttastofu RÚV harkalega.
í fríðum flokki
Sigurður Einarsson,
fyrrverandi banka-
stjóri, var viðstaddur málflutning
um frávísunarkröfu sína í Al Thani-
málinu ( Héraðsdómi Reykjavíkur (
gær. Sigurður býr í London og notar
greinilega öll tækifæri þegar hann er á
landinu til að njóta þess sem íslenskt
er. I hádegishléinu í gær fór hann með
verjanda sínum, Gesti Jónssyni, með-
sakborningnum Ólafi Ólafssyni
/ °8 öðrum verjendum og fá
sér pylsur á Bæjarins bestu.
L IA) Þeir bætast þar með í hóp
fleiri frægra manna sem
þar hafa átt viðskipti - til
dæmis hljómsveitar-
innar Metallicu og
Bills Clinton.
stigur@frettabladid.is
Stephemen
olafur@frettabladid.is
Svíþjóð og Finnland taka þátt í loftrýmisgæzlu:
Lítið skref,
stórákvörðun
Fyrir ekki svo löngu, á tíma kalda stríðsins, voru varnar-
og öryggismál bannorð á þingum Norðurlandaráðs. Þess
vegna eru yfirlýsingar stjórnvalda í Svíþjóð og Finnlandi
um að ríkin muni taka þátt í loftrýmisgæzlu Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) við ísland stórmerkileg tíðindi.
Þögnin um varnar- og öryggismálin á sínum tíma helgaðist af
ólíkri afstöðu norrænu ríkjanna til vestræns varnarsamstarfs.
Þótt kalda stríðið sé búið og
öryggismálin löngu orðin eitt af
umræðuefnum norræns sam-
?----starfs hefur það ekki breytzt að
Svíþjóð og Finnland standa utan
NATO og ekki er neinn pólitískur
meirihluti í ríkjunum fyrir því að
breyta því. Hins vegar hafa bæði
Svíar og Finnar starfað mjög náið
með bandalaginu í ýmsum verkefnum, til dæmis að friðargæzlu,
og stundum er því haldið fram að starfsemi herafla þeirra sé orðin
betur aðlöguð NATO en sum aðildarríkin geta státað af.
Nefnd undir forystu Thorvalds Stoltenberg, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Noregs, lagði á sínum tíma til að norrænu ríkin tækju
að sér það verkefni að líta eftir loftrými íslands. Sú framtíðarsýn er
ekki uppfyllt með þessari ákvörðun. Finnland og Svíþjóð hafa í raun
ekki skuldbundið sig til að gera meira en að taka þátt í loftrýmis-
gæzlunni í nokkrar vikur í ársbyrjun 2014, þegar Noregur á að sjá
um hana. Gera verður ráð fyrir að önnur NATO-ríki haldi áfram
að skiptast á að sinna þessu eftirliti, að minnsta kosti enn um sinn.
Engu að síður er þetta stór ákvörðun. Þótt utanríkisráðherrar
Svíþjóðar og Finnlands segi hana ekki til marks um breytingu á
afstöðu þeirra til NATO þýðir hún að sjálfsögðu að ríkin tvö stíga
skrefinu lengra inn í kjarna vestræns varnarmálasamstarfs.
Fyrir Norðurlandasamstarfið er þetta líka merkilegur áfangi.
Það er á mörgum sviðum eitthvert nánasta milliríkjasamstarf sem
þekkist. Með því að fikra sig lengra inn á svið varnarmálanna, þótt
það gerist með þessu litla skrefi, er samstaða Norðurlandaríkjanna
undirstrikuð enn betur en áður.
Fyrir íslenzka hagsmuni er þetta jákvætt skref. Þegar varnarliðið
fór frá Keflavíkurflugvelli 2006 var stórt svæði á Norður-Atlants-
hafinu skilið eftir án reglubundins eftirlits og ísland varð eina
NATO-ríkið án nokkurra loftvarna. Það var óviðunandi staða bæði
fyrir ísland og fyrir Atlantshafsbandalagið. NATO-ráðið ákvað enda
í kjölfarið að aðildarríkin skiptust á að sinna loftrýmisgæzlu við
ísland og kæmu í veg fyrir að til yrði öryggistómarúm, sem einhver
gæti viljað freistast til að notfæra sér.
Viðbrögðin við þessari merkilegu ákvörðun varpa enn nýju ljósi
á það hversu ósamstíga ríkisstjórn íslands er. Svíar og Finnar
undirstrika að yfirlýsing þeirra sé viðbrögð við beiðni íslenzkra
stjórnvalda. Engu að síður vill annar stjórnarflokkurinn ekkert við
málið kannast og telur varnir landsins, í hvaða formi sem þær eru,
tímaskekkju og óþarfa.
Þeir sem segjast vera í norrænni velferðarstjórn ættu fremur að
fagna norrænni samstöðu um að tryggja öryggi íslands og Norður-
slóða. Velferðin byggist nefnilega á friði og öryggi.
FRETTABLAÐIÐ
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTODARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn @frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út 190.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið I völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins (stafrænu formi og I
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871