Fréttablaðið - 02.11.2012, Side 24
skoðun
24
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
Hvers konar þjóðkirkjuákvæði?
Ný stjórnarskrá
Hjalti
Hugason
prófessor
Lokatölur í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 20. október urðu
athyglisverðar. Kjörsókn var um
50%. Tveir þriðju vilja að byggt
verði á frumvarpi stjórnlagaráðs.
Þó vék meira en helmingur kjós-
enda frá þeirri meginvísbendingu
með því að svara þjóðkirkjuspurn-
ingunni með „Já“-i.
Það augljósa í stöðunni er að
þrátt fyrir mikið fylgi við tillögur
stjórnlagaráðs í heild verður að
víkja 19. gr. þeirra til hliðar. Mikill
stuðningur við frumvarp ráðsins
veldur því þó að reyna verður að
fara sem næst þeim grunni sem
þar er að finna.
Hvað merkir „Já"?
Spurning nr. 3 í atkvæðagreiðsl-
unni hljómaði ekki upp á óbreytta
62. gr. í núgildandi stjórnarskrá.
Við sem svöruðum með „Já“-i
getum hafa lagt mismunandi
merkingu í svarið. Við hljótum
samt að hafa verið sammála um
að þjóðkirkjuhugtakið þyrfti að
koma fyrir í stjórnarskrártext-
anum. Annars væri vart um þjóð-
kirkjuákvæði að ræða.
Fær leið?
Ein leið til að sætta framangreind
sjónarmið þessa er að orða nýja 19.
gr. í frumvarpi byggðu á tillögu
stjórnlagráðs á eftirfarandi hátt:
Kveða skal á um stöðu þjóðkirkj-
unnar sem og annarra skráðra trú-
og lífsskoðunarfélaga í lögum.
Nú samþykkir Alþingi breytingu
á ákvæðum laga um stöðu þjóð-
kirkjunnar og skal þá leggja það
mál undir atkvæði allra kosninga-
bærra manna í landinu til sam-
þykktar eða synjunar.
í ákvæði sem þessu er farin
sama leið og í 19. gr. stjórnlaga-
ráðs með því að skapa stjórnar-
skrárgrunn undir lagaákvæði þar
sem nánar er kveðið á um stöðu
þjóðkirkjunnar. Ákvæðið gengur
þó mun lengra en 19. gr. stjórn-
lagaráðs. Þar er um heimildar-
ákvæði að ræða. Hér er lögð sú
skylda á löggjafann að kveða á um
stöðu þjóðkirkjunnar í lögum. Þá
kemur þjóðkirkjuhugtakið fyrir í
ákvæðinu, öfugt við það sem uppi
er á teningnum hjá stjórnlagaráði.
Af ákvæðinu er því ljóst að í land-
inu starfar þjóðkirkja, að málefni
hennar heyra undir opinberan
rétt, að staða hennar sem þjóð-
kirkju er skilgreind í lögum og að
þjóðin hefur síðasta orðið þegar
um breytingar á stöðu þjóðkirkj-
unnar er að ræða rétt eins og nú
er.
Stjórnarskrárgrunnur
undir trúmálarétt
Styrkleiki þeirrar tillögu sem hér
er kynnt felst í því að hún skapar
stjórnarskrárgrunn undir trú-
málarétt sem er þó sveigjanlegri
og rúmar meiri jöfnuð en 62. gr.
núgildandi stjórnarskrár. Því er
slegið föstu að kveðið skuli á um
stöðu þjóðkirkjunnar í lögum.
Þetta er nú gert í 1. gr. laga nr.
78/1997 um stöðu stjórn og starfs-
hætti þjóðkirkjunnar. Þar segir:
íslenska þjóðkirkjan er sjálf-
stætt trúfélag á evangelísk-lút-
erskum grunni.
Ríkisvaldinu ber að styðja og
vernda þjóðkirkjuna.
Skírn í nafni heilagrar þrenn-
ingar og skráning í þjóðskrá veitir
aðild að þjóðkirkjunni.
Verði fyrrgreind tillaga sam-
þykkt verður þessari grein lag-
anna eða hliðstæðu hennar ekki
breytt án þjóðaratkvæðagreiðslu.
Öðrum greinum laganna má hins
vegar breyta án slíkrar veg-
ferðar. Að þessu leyti er tillagan
afdráttarlausari en tillaga stjórn-
lagaráðs sem kvað á urri „kirkju-
skipan ríkisins" og þjóðaratkvæða-
greiðslu um breytingar á henni. Að
vísu kann samstaða að hafa ríkt
um að inntak „kirkjuskipanar rík-
isins“ væri hvorki neitt meira né
minna en að ofan greinir. Það er þó
kostur að vera laus við tækniheiti í
stjórnarskrá sem kalla á sérstaka
túlkun - jafnvel sögulega túlkun á
því hvað „kirkjuskipan ríkisins"
merkti árið 1920 þegar orðalagið
komst inn í stjórnarskrána.
Tillagan rúmar jöfnuð
í tillögunni er einnig áskilið að
kveðið skuli á um stöðu annarra
skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga
í lögum. Það er nú gert í lögum
um skráð trúfélög nr. 108/1999
sem í framtíðinni munu vonandi
áskilja lífsskoðunarfélögum sam-
bærilegan rétt til skráningar og
trúfélög njóta nú að uppfylltum
skilyrðum sem tilgreind verða í
lögnum.
Á stöðu þjóðkirkjunnar og
stöðu annarra skráðra trú- og
lífsskoðunarfélaga er sá megin-
munur að ákvæðum laga um
stöðu trú- og lífsskoðunarfélaga
má breyta án þjóðaratkvæða-
greiðslu enda skarast þau ekki
við þjóðina með neinu sambæri-
legu móti og þjóðkirkjan. í tillög-
unni er því tekið tillit til sérstöðu
hennar hvað stærð og samfélags-
leg hlutverk áhrærir.
Það skyggir ekki á þjóðkirkjuna
þótt öðrum trú- og lífsskoðunar-
félögum sé skapaður traustari
stjórnarskrárgrunnur en nú er,
jafnvel þó það sé gert í þeirri
grein sem um hana fjallar. í því
efni rúmast ofangreind tillaga
enda innan ályktunar aukakirkju-
þings þjóðkirkjunnar sem kallað
var saman í aðdraganda þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar en henni lauk
með orðunum:
...hvetur þingið til þess að áfram
verði ákvæði um þjóðkirkju í
stjórnarskrá og að staða og rétt-
indi annarra trú- og lífsskoðunar-
félaga verði tryggð.
ÞÚ VERÐUR
AÐVIRÐA .
ÞREYTUNA
EFTIR SLAG!
Landsmönnum er boðið á Laugardagsfund
HEILAHEILLA laugardaginn 3. nóvember 2012 kl.11-13.
Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA’ opnar fundinn
Rætt við RAX Ijósmyndara [Ragnar Guðna Axelsson] og sýndar myndir
Edda Þórarinsdóttir, leik- og söngkona og félagar taka lagið
Ómar Ragnarsson og Magnús Ólafsson skemmta
Edda Þórarinsdóttir, leik- og söngkona og félagar taka lagið
Dr. Sólveig Jónsdóttir PhD fjallar um "þreytuna eftir slag" ■
Kaffihlé
Edda Þórarinsdóttir, leik- og söngkona og félagar taka lagið
Katrín Júlíusdóttir, ráðherra, segir frá reynslu sinni af slagi
Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA slítur fundi
BORGARLEIKHÚSINU
Allir velkomnir og kaffi á könnunni! Heiloheill
Ókeypis aðgangur! • *»»u **«*»
Leiðin krókótta
Ný stjórnarskrá
Hjálmtýr
Heiðdal
kvikmyndagerðarmaður
Nú hefur enn einn sjálfstæðis-
maðurinn bæst í hóp þeirra
sem sjá ný og óvænt tækifæri í
atkvæðum þeirra fslendinga sem
ekki mæta á kjörstað. Þorsteinn
Pálsson, fyrrverandi formaður
flokksins, skrifar í Fréttablaðið
27.10.12. um „svör minnihlutans
og þögn meirihlutans" í nýafstað-
inni þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þögn
meirihlutans" er hið nýja fagnaðar-
erindi og kemur í stað hefðbundinna
úrslita í lýðræðislegum kosningum.
Þorsteinn viðurkennir að nýja
„leiðin er að sönnu krókóttari“ „því
að menn vita ekki hvað meirihlut-
inn vill“. En menn eru tilbúnir til að
leggja mikið á sig til að ná til nýrra
stranda og þótt leiðin sé „að sönnu
krókóttari11 skal hún samt farin að
mati Þorsteins!
Þorsteinn varpar fram spurn-
ingu um „hvort skynsamlegt sé að
líta svo á að meirihlutinn sé svo
hugsunarlaus og skoðanalaus um
þessi efni að ekki eigi að gera til-
raun til að ná til hans“. Það sem
fyrst kemur upp í hugann er sú stað-
reynd að boðað var til kosninganna
með öllum tiltækum ráðum og þær
voru frjálsar öllum íslendingum
með atkvæðisrétt. „Tilraun" sú
sem Þorsteinn ræðir um hefur því
þegar verið framkvæmd, þ.e. hér
fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla. En
„tilraunin" fór ekki að óskum Sjálf-
stæðisflokksins og því er hún ekki
marktæk - þetta er raunverulega
innihaldið þegar orðskrúði manna
um annan tilgang sleppir.
Þetta afhjúpast ágætlega í eftir-
farandi hugmynd Þorsteins um að
„Sjálfstæðisflokkurinn leggi fram
heildstætt frumvarp að endurskoð-
aðri stjórnarskrá og geri kröfu um
að þjóðin fái að velja á milli tveggja
kosta samhliða næstu alþingiskosn-
ingum. Slíkri kröfu er ekki unnt
að hafna málefnalega í ljósi þess
að meirihluti kjósenda hefur ekki
lýst viðhorfum sínum“. Sem sagt,
á meðan meirihluti kjósenda hefur
ekki greitt atkvæði samkvæmt vilja
Sjálfstæðisflokksins er ekki „unnt
að hafna kröfu“ hans um nýjar
aðferðir til að sætta þjóðina við
vilja hans.
Þorsteinn telur að viðhorf sín
geti helgast af málinu sem er til
meðferðar, sjálfri stjórnarskrá lýð-
veldisins og mikilvægi sátta um
slíkt stórmál.
Vissulega er stjórnarskráin
grundvallarmál sem þjóðin tekst
á við og hefur ferlið verið í þeim
anda. Boðað var til þjóðfundar með
slembiúrtaki, stofnaður var hópur
sérfræðinga og valinna leikmanna
til að vinna úr niðurstöðum þjóð-
fundarins sem síðan lagði málið í
hendur stjórnlagaráðs. Kosið var
til stjórnlagaþings með opinni kosn-
ingu sem allir atkvæðisbærir gátu
tekið þátt í. (Millileikur Hæsta-
réttar er á skjön við reglur réttar-
ríkisins og verður ekki ræddur hér).
Stjórnlagaráð starfaði fyrir opnum
tjöldum og var í sambandi við þús-
undir manna sem lögðu orð í belg.
Og stuttu fyrir atkvæðagreiðsluna
var gefinn út vandaður bæklingur
sem útskýrði málið lið fyrir lið.
Tvær skoðanakannanir voru
framkvæmdar fyrir kosningar
og sýndi sú sem hefur verið birt
(MMR) nánast sömu niðurstöðu
og kosningin sjálf. Af óútskýrðum
ástæðum hefur Capacent ekki
viljað birta niðurstöðu skoðana-
könnunarinnar sem þeir gerðu.
Vandaður undirbúningur, opið
ferli og skoðanakannanir eru and-
stæða „krókóttu leiðarinnar" sem
Þorsteini líst svo vel á.
Viðhorf Þorsteins Pálssonar mót-
ast af mislukkaðri aðför sjálfstæðis-
manna og fleiri að ríkisstjórninni
sem kom þessu ferli af stað með
stuðningi meirihluta Alþingis.
Niðurstaða Þorsteins er sú „að
hvorki ríkisstjórnin né stjórnarand-
staðan ríður feitum hesti frá þess-
ari atkvæðagreiðslu". Hann er fast-
ur í flokkshagsmunum og átökum
við stjórnarflokkana. Hann víkur
ekki einu einasta orði í greininni að
efnisatriðum í stjórnarskrártillög-
unum, ekkert skrifar hann um það
hvaða vandamál hann sér í þeim.
Hann einblínir á tæknileg atriði
vegna þess að þar sér hann tæki-
færi til þess að flokkurinn stjórni
för eins og þeir hafa vanist.
Framferði þeirra er aðför að lýð-
ræðinu en ekki tilraun til að skapa
okkur betri framtíð.
Öryggi farþega í Strætó
Strætó bs. hefur á undanförnum
árum unnið af miklum metn-
aði að bættu öryggi í umferðinni.
Einn liður í þessari vinnu er
sérstakt forvarnarsamstarf
milli Strætó og VÍS sem staðið
hefur yfir frá árinu 2008. Þetta
samstarf hefur skilað veru-
lega marktækum árangri, því
umferðaróhöppum og -slysum
hefur fækkað um 73% á þessum
tíma.
Núna standa einmitt yfir form-
legir öryggisdagar Strætó og
VIS í þriðja skipti undir heitinu
Öryggisdagar Strætó bs. og VÍS,
þar sem meðal annars er lögð
áhersla á aukið öryggi farþega í
strætisvögnunum.
En hvernig geta farþegar
tryggt eigið öryggi þegar þeir
ferðast með strætó?
Helstu atriði sem gott er að far-
þegar hugi að:
að standa ekki alveg á ystu
brún gangstéttar þegar þeir bíða
eftir strætisvagni á biðstöð, sér-
staklega eftir að fer að kólna
og hætta er á að hálkublettir
myndist.
I að hafa fargjaldið tilbúið áður
en komið er inn í vagninn.
■ að gefa sér tíma til að framvísa
kortum og skiptimiðum þannig að
vagnstjóri fái tækifæri til að lesa
gildistímann.
■ að vera viðbúnir þegar vagninn
tekur af stað.
■ að forðast troðning og færa sig
aftarlega í vagninn á anna- og
álagstímum.
■ að sýna tillitssemi og standa
upp fyrir þeim sem augljóslega
þurfa frekar sæti.
B að gæta vel að yngri börnum,
bæði á leið inn og út úr vagn-
inum.
■ að vera ávallt viðbúnir þegar
vagninn nemur staðar.
Öll þessi atriði auka öryggi far-
þega og gera ferðirnar ánægju-
legri og skilvirkari.
Óhappa- og slysatíðni hjá
Strætó bs. er hlutfallslega mjög
lág miðað við almenn óhöpp og
slys í umferðinni. Að ferðast
með strætó er því öruggari og
þægilegri leið til að fara til og
frá vinnu eða skóla, eða bara
skreppa í heimsóknir. Að auki
er það miklu ódýrara og minna
mengandi ferðamáti.
Strætó bs. hefur stöðugt unnið
að bættu aðgengi á biðstöðum.
Undanfarið hefur verið gert veru-
legt átak í þeim efnum en þetta er
þó nokkuð stórt verkefni og eftir
er að lagfæra og endurbæta víða.
Við vagnstjórar hjá Strætó
bs. reynum að leggja okkar af
mörkum til þess að auka öryggi
farþega okkar. Það er hlutverk
okkar að hafa farþega Strætó í
fyrirrúmi og að þeir komist heilir
og sáttir á áfangastað.
Góða og öruggaferð með Strœtó!