Fréttablaðið - 02.11.2012, Qupperneq 32
32
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
mennmq
menning@frettabladid.is &
NÓTT HINNA GLÖTUÐU VERKA „Kvöld hinna glötuðu verka" nefnist gjömingadagskrá átta myndlistarmanna á
Hverfisgötu 61 klukkan 20 í kvöld. Viðburðurinn er hugsaður sem vettvangur fyrir verk sem enginn veit um eða hafa ekki enn þá
fengið tækifæri til að verða. Þátttakendur eru Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Þóroddur Bjarnason, Hulda
Vilhjálmsdóttir, Leó Ágústsson, Rakel McMahon, Óskar Gísli Þetzet og Ásdís Sif Gunnarsdóttir. Aðgangseyrir er 500 krónur.
Sér fyrir
Þriðji hluti myndaflokks-
ins Draumurinn um veg-
inn verður tekinn til sýn-
inga í Bíó Paradís í kvöld
en síðustu hlutarnir tveir
verða sýndir á næstu
vikum. Flokkurinn fjallar
um göngu Thors Vilhjálms-
sonar eftir Jakobsvegi en
Erlendur Sveinsson leik-
stjóri segir að sér líði eins
og nú sé hans eigin píla-
grímsför að lokum komin.
Árið 2005, árið sem hann varð átt-
ræður, lét Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur gamlan draum rætast
og gekk hinn 800 kílómetra langa
pílagrímsveg sem kenndur er við
heilagan Jakob. Erlendur Sveins-
son kvikmyndagerðarmaður fylgdi
Thor á göngu sinni og varð afrakst-
urinn Draumurinn um veginn,
kvikmyndabálkur í fimm hlutum.
Fyrstu tveir hlutarnir hafa þegar
verið sýndir en í kvöld og á næstu
tveimur vikum verða síðustu
myndirnar þrjár teknar til sýn-
inga í Bíó Paradís. Erlendur segir
ekki laust við að sér finnist hann
nú sjá fyrir lokin á sinni eigin píla-
grímsför.
„Það er einmitt það sem það er
og ég held að það hafi verið auð-
veldara að ganga sjálfan veg-
inn en fara hina leiðina eftir
á. Maður leggur af stað fullur
lokin á eigin pflagrímsför
eftirvæntingar en það reynir líka
á menn að vera saman í hóp í fimm
vikur að glíma við svona verkefni;
þetta var nánast eins og að vera um
borð í skipi.“
Ein mynd varð að fimm
Upphaflega átti Draumurinn um
veginn aðeins að vera ein mynd en
Erlendur segist ávallt hafa vitað
það innst inni að handritið væri
svo viðamikið að það væri ólíklegt
að það myndi takast. „Eftir mikla
umhugsun og undirbúning, þar sem
við ókum meðal annars um norður-
hluta Spánar og skoðuðum töku-
staði, ákvað ég hins vegar að láta
slag standa. Það er alltaf einhver
óvissa til staðar og maður getur
svo sem farið í það að brjóta hand-
ritið niður og reynt að sannfæra sig
um að maður sé kominn með þetta
niður í lengd einnar bíómyndar en
það er ekki endilega vinnunnar
virði.“
Erlendur segir þó hið mikla
myndefni sem safnaðist á ferðinni
ekki hafa ráðið því að ein mynd
varð að heilum bálk. „Við lögðum
af stað með handrit sem við reynd-
um að þjóna og þótt ýmislegt hafi
auðvitað farið öðruvísi en ætlað var
vorum við ekki í frjálsum spuna.“
En kemur til greina að taka hlut-
ana fimm saman í eina mynd? „Það
hafa margir spurt mig um það,“
segir Erlendur. „Ég hef bara ekki
hugmynd um hvernig ég ætti að
fara að því. Niðurstaða mín var sú
að efnið kallaði á þessa skiptingu í
fimm myndir og ég gerði mér far
um að draga eitthvað ákveðið fram
í hverri þeirra, þess vegna hafa
þær sína undirtitla. Það er einhver
innri farvegur í hverri mynd sem
gerir þær sérstakar á einhvern hátt
og sjálfstæðar. Það hefur reyndar
komið til tals að gera mynd án orða.
Slíkar myndir höfða gjarnan til
undirmeðvitundarinnar. Mér hefur
verið sagt að margt í Draumnum
geri einmitt það og mér finnst mjög
mikils virði þegar myndir hafa slíkt
áhrif."
Lét Thor lifa með mér
Thor Vilhjálmsson féll frá í fyrra,
nokkrum dögum áður en annar
hluti bálksins var frumsýndur, og
lifði því ekki til að sjá hann til enda.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn og
ekki annað sem ég upplifi það að
aðalpersónan í mynd sem ég er
að gera fellur frá áður en ég lýk
henni.” segir Erlendur. „Þannig
var þetta með föður minn í mynd
sem ég gerði um hann, og formann
skipshafnar á árabát sem ég gerði
aðra mynd um. En ég strengdi þess
heit að klára myndina.
Næsta árið var dálítið skrítið
tímabil, þar sem ég hafði Thor fyrir
augunum og rödd hans í eyrunum
svo til alla daga. Þannig lifði hann
áfram með mér meðan ég kláraði
bálkinn. Það var ekki fyrr en ég
sýndi myndirnar sem ég varð var
við þessari nístandi tilfinningu
að hann væri ekki lengur á meðal
okkar - nema auðvitað í anda. Og í
andanum er nærvera hans sterk.“
bergsteinn@frettabladid.is
ERLENDUR SVEINSSON Lagði upp með að gera ein mynd um pílagrímsförThors Vil-
hjálmssonar, sem varð þegar upp var staðið bálkur í fimm hlutum. fréttablaðið/vilhelm
VERÐUR VONANDI SYND ERLENDIS
Draumurinn um veginn er ekki bara mynd um íslenskan rithöfund og hans
innri íhugun heldur eina frægustu pílagrímsleið heims. Spurður hvort hann
hafi orðið var við áhuga frá erlendum aðilum kveðst Erlendur ekki hafa
haft tök á að kynna myndina erlendis. „Þetta er svo vanbúin framleiðsla í
peningum og mannafla, eiginlega bara eins manns fyrirtæki, og því ekki
verið hægt að halda uppi neinum áformum um slíkt. Ég geri mér hins vegar
ákveðnar vonir um að myndin verði sýnd utan landsteinanna. Þá þarf hins
vegar að þýða herlegheitin. Fyrsti hlutinn hefur að vísu verið þýddur á ensku
og sýndur í Santiago-borg en draumurinn er að láta þýða allan bálkinn, ekki
bara ensku heldur líka spænsku."
D-vítamínskortur er einn algengasti og alvarlegasti vítamínskorturinn
hjá íslendingum á meðan sífellt er að koma betur í Ijós hve mikilvægt
það er fyrir starfsemi líkamans.
rUGGUTÖFLl (HENTA BORNUI JR
B
2,000 IU
• Matattln Suon*
.unDn.nlHul*’ ÆJ)
120 Softgel* S(gf
'.000 IU - High PotenQ'
' Hdpj Maintain Sirong Bono
•Supporu Dental Health’
180 Softgels
Hámarks upptaka
1,OOOIU
•H<Ip,M,inuinStatag8“'
‘ Wpom IHnul Hullk'
•NouuiFruilfUm.
180 Chewablos
GMP vottað
Norðurlandaráð verð-
launar barnabækur
Barna- og unglingabókmenntir
verða verðlaunaðar af Norður-
landaráði frá og með næsta
ári en menningarmálanefnd
Norðurlandaráðs samþykkti í
gær að veita slík verðlaun að
fenginni tillögu norrænu ráð-
herranna.
„Norræn barna- og unglinga-
bókmenntaverðlaun munu
ásamt fjölmörgum öðrum verk-
efnum auka lestraráhuga barna
og ungmenna á sýnilegan hátt.
Við höfum séð að önnur nor-
ræn menningarverðlaun eiga
þátt í að vekja athygli á menn-
ingunni jafnt á Norðurlöndum
og alþjóðavettvangi, og það
verðum við að nýta okkur á
sviði barna- og ungmenna-
menningar", sagði Hadia Tajik,
menningarmálaráðherra Nor-
egs við tækifærið.
Barna- og unglingabók-
menntaverðlaunin verða
fimmtu verðlaunin sem
Norðurlandaráð veitir en
meðal þekktustu verðlauna
ráðsins eru bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs.
Þau hafa verið afhent í 50 ár
og jafnan vakið athygli á höf-
undum sem þau hljóta. Norður-
landaráð veitir þar fyrir utan
kvikmyndaverðlaun, náttúru-
og umhverfisverðlaun og tón-
listarverðlaun en þau voru
einmitt afhent íslenska tón-
skáldinu Önnu Þorvaldsdóttur
við hátíðlega athöfn í gær.
„Finnst gömul bein eða
húsarústir vera fjársjóður
segir Birna Lárusdóttir
fornleifafræðingur