Fréttablaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 42
42
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
sport
S sport@fre
sport@frettabladid.is
ATLI EÐVALDSSON var ( gær ráðinn þjálfari C-deildarliðs Reynis í Sandgerði en hann skrifaði undir þriggja ára
sannning við félagið. Atli þjálfaði íslenska landsliðið frá 2000 til 2003 en gerði einnig KR að íslandsmeisturum árið
1999. Hann stýrði slðast liði í efstu deild þegar hann tók við Val á miðju tímabili árið 2009.
ÚRSLIT
Dominos-deild karla
Njarðvík - Stjarnan 108-115
(46-50, 89-89, 98-98)
Njarðvik: Elvar Már Friðriksson 36/10 stoðsend-
ingar, Marcus Van 27/27 fráköst, Hjörtur Hrafn
Einarsson 23, Ágúst Orrason 13, Maciej Stanislav
Baginski 8/4 fráköst, Oddur Birnir Pétursson 1.
Stjarnan: Justin Shouse 33/12 stoðsendingar,
Brian Mills 24/8 fráköst, Jovan Zdravevski 15,
Sæmundur Valdimarsson 13, Marvin Valdimarsson
11/7 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 9, Dagur Kár
Jónsson 7, Sigurjón örn Lárusson 3.
ÍR - Grindavík 105-99 (44-52)
IR: Eric James Palm 35, Nemanja Sovic 24,
D'Andre Jordan Williams 14/10 stoðsendingar/5
stolnir, Hreggviður Magnússon 12, Sveinbjörn
Claessen 8, Hjalti Friðriksson 8, Þorvaldur
Hauksson 4.
Grindavík: Samuel Zeglinski 28/5 fráköst, Jóhann
Árni Ólafsson 25, Þorleifur Ólafsson 12, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 12/10 fráköst, Aaron Brouss-
ard 10/8 fráköst, Ómar örn Sævarsson 8, Björn
Steinar Brynjólfsson 3, Davíð Ingi Bustion 1.
Keflavík - Fjölnir 91-69 (46-40)
Keflavfk: Michael Graion 25/10 fráköst/3 varin
skot, Darrel Keith Lewis 22/16 fráköst, Kevin
Giltner 12, Magnús Þór Gunnarsson 8/5 stoðsend-
ingar, Almar Stefán Guðbrandsson 6/12 fráköst,
Hafliði Már Brynjarsson 5, Valur Orri Valsson 4/5
fráköst/7 stoðsendingar, Snorri Hrafnkelsson
4/5 fráköst, Andri Danlelsson 3, Ragnar Gerald
Albertsson 2.
Fjölnir: Árni Ragnarsson 18/9 fráköst, Sylverster
Cheston Spicer 17/10 fráköst, Tómas Heiðar
Tómasson 8, Arnþór Freyr Guðmundsson 6,
Róbert Sigurðsson 5, Elvar Sigurðsson 4, Björgvin
Hafþór Ríkharðsson 4, Leifur Arason 3, Christopher
Matthews 2, Jón Sverrisson 2/5 fráköst.
Tindastóll - Skallagrímur frestað
NÆSTU LEIKIR
Snæfell - KFf I kvöld kl. 19.15
ÞórPorl.-KR f kvöld kl. 19.15
Undankeppni EM 2014
1. riðill: Spánn - Portúgai 34-20
2. riðill: Þýskaland - Svartfjallaland 27-31
3. riðill: Frakkland - Litháen 27-18
5. riðill: Svíþjóð - Úkraína 27-23
ÚTSALA
ÁKAMÍNUM
Líttu við í verslun okkar
eða kynntu þér úrvalið
á heimasíðunni:
www.normx.is
NORMX
Setlaugar & kamínur
Auðbrekku 6 • 200 Kópav. • Sími 565 8899
íslendingarnir eiga að
draga vagninn fyrir KR
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að menn þar á
bæ séu ekki að fara á taugum þrátt fyrir slæma byrjun á vetrinum. Hugmynda-
fræði KR er að stóla á heimamenn en ekki útlendinga í vetur.
TREYSTIR A HEIMAMENN Uppöldu KR-ingarnir og landsliðsmennirnir Helgi Már
Magnússon og Brynjar Þór Björnsson eiga að vera í aðalhlutverki hjá KR. Þeir eru hér
með Böðvari formanni. FRÉTTABLABiÐ/ERNm
körfubolti KR var spáð titlinum
fyrir tímabilið í Dominos-deild
karla en það hefur verið lítill
meistarabragur á Vesturbæingum
í upphafi vetrar. 41 stigs tap á
heimavelli fyrir Snæfelli særði
stolt KR-inga, sem síðan töpuðu í
kjölfarið fyrir 1. deildarliði Ham-
ars í Lengjubikarnum. f kvöld
bíður svo erfiður leikur í Þorláks-
höfn gegn Þór.
„Það er engin krísa í Vestur-
bænum. Menn eru að anda með
nefinu enda er mótið rétt að byrja.
Það verður enginn meistari í byrj-
un nóvember. Ef þörf er á verða
teknar einhverjar ákvarðanir en
þær liggja ekki á borðinu núna,“
segir Böðvar Guðjónsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar KR.
„Auðvitað taka menn það inn
á sig að tapa leikjum. Skellurinfi
gegn Snæfelli var högg. Það er gott
að eiga alvöru leik fram undan svo
menn geti snúið þessu við.“
Útlendingarnir ekki staðið undir
væntingum
Útlendingarnir í liði KR, Keagan
Bell og Danero Thomas, hafa
engan veginn staðið undir vænt-
ingum. Bell hefur til að mynda
aðeins skorað tvö stig samanlagt
í síðustu tveimur leikjum.
„Útlendingarnir hafa vissulega
ekki staðið undir væntingum.
Eins og við lögðum þetta samt upp
í haust eru útlendingarnir hluti
af liðsheildinni. Við vildum ekki
útlendinga til að draga vagninn
eins og í flestum öðrum liðum þar
sem þeir taka 60 til 70 prósent af
skotunum.
Það má ekki gleyma því að við
erum með þrjá landsliðsmenn í
okkar liði og marga aðra lipra
íslenska stráka. Ég neita að trúa
því að við þurfum tvær kanónur
frá Bandaríkjunum til að draga
vagninn fyrir okkur. Ég veit að það
býr miklu meira í okkar strákum,"
segir Böðvar um þá hugmynda-
fræði sem KR er að vinna eftir í
vetur, en hún er afar áhugaverð.
„Við erum ekki með dýra Kana.
Við fengum Helga Má og Brynj-
ar Þór til liðs við okkur og vilj-
um gera eins vel við okkar menn
og við getum. Við erum ekki að
spara heldur að búa til lið þar
sem íslensku leikmennirnir draga
vagninn. Kannski gengur það ekki
en ég trúi því að strákarnir sýni
mér að það sé hægt.“
Rétt ákvörðun að ráða Helga
KR tók þá ákvörðun að gera Helga
Má Magnússon að spilandi þjálf-
ara. Helgi hefur enga reynslu af
þjálfun og margir settu spurninga-
merki við þá aðgerð.
„Við erum á því að það hafi
verið rétt ákvörðun og stöndum og
Við vildum ekki
útlendinga til þess
að draga vagninn eins og í
flestum öðrum liðum.
BÖÐVAR GUÐJÓNSSON
FORMAÐUR KKND. KR
föllum með henni. Helgi er þraut-
reyndur landsliðsmaður og sterkur
karakter sem allir bera virðingu
fyrir. Hann er svo með Gunnar
Sverrisson sér til aðstoðar. Þetta
eru góðir menn,“ segir Böðvar og
bendir á að undirbúningstímabil
KR hafi verið í styttri kantinum
út af landsliðsverkefnum. Það hafi
SÍtt að segja. henry@frettabladid.is
CUNNAR HEIÐAR Hefur slegið í gegn
með Norrköping en hér bregður hann á
leik á æfingu með íslenska landsliðinu.
fréttablaðið/stefAn
íslenskir landsliðsmenn:
Þrír á meðal 50
bestu í Svíþjóð
fótbolti Sænska blaðið Express-
en birti á vefsíðu sinni í gær
úttekt þar sem 50 bestu leikmenn
sænsku úrvalsdeildarinnar voru
valdir. Þrír íslenskir landsliðs-
menn voru þar á meðal - Gunn-
ar Heiðar Þorvaldsson (9. sæti),
Alfreð Finnbogason (17. sæti) og
Ari Freyr Skúlason (47. sæti).
Gunnar Heiðar er næstmarka-
hæsti leikmaður deildarinnar en
hann hefur skorað sextán mörk
fyrir IFK Norrköping sem er í
sjötta sæti deildarinnar. Þá er Ari
Freyr Skúlason í lykilhlutverki
hjá GIF Sundsvall.
Alfreð Finnbogason skoraði
tólf mörk í sautján leikjum með
Helsingborg, en þar var hann
í láni frá belgíska félaginu
Lokeren, sem svo seldi hann til
Heerenveen í Hollandi. Þar hefur
hann farið mikinn og skorað átta
mörk í jafn mörgum deildarleikj-
Um. - esá
Hollenska bikarkeppnin:
Jóhann Berg
skoraði tvö
FÓTBOLTI Jóhann Berg Guðmunds-
son var á skotskónum með liði
sínu, AZ Alkmaar, sem vann
4-1 sigur á D-deildarliðinu Boso
Sneek í hollensku bikarkeppninni
í gær.
Þá skoraði Helgi Valur Daníels-
son mark AIK, sem gerði 1-1
jafntefli við Hácken í sænsku
úrvalsdeildinni í gær. Með jafn-
teflinu urðu titilvonir Hácken að
engu. - esá
Síðustu sex leikir
Arons í Höllinni
Síðustu fimm leikir
Guðjóns Vais í Höllinni
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson raða inn mörkum í Höllinr
Sigur á Hvíta-Rússl.
Sigurá Hollandi
Jafntefli við Noreg
Sigur á Finnlandi
Sigur á Austurriki
11 (18 skot)
7 (8 skot)
4 (10 skot)
5 (7 skot)
8 (9 skot)
Samanlagt: 43 mörk
(63 skot, 68 prósent skotnýting)
handbolti Guðjón Valur Sigurðsson
og Aron Pálmarsson voru mennirnir
á bak við sigurinn í fyrsta leik hand-
boltalandsliðsins undir stjórn Arons
Kristjánssonar. Strákarnir úr Kiel
voru saman með 22 mörk í 36-28 sigri
á Hvít-Rússum og eins og undanfarin
ár hefur verið hægt að treysta á þeir
félagar finni fjölina sína í Höllinni.
Guðjón Valur skoraði 11 mörk úr 15
skotum, þar af komu fimm marka hans
á síðustu sjö mínútunum og tvö voru
af vítapunktinum. Aron nýtti 11 af 18
skotum sínum og komu þau öll utan af
velli. Aron skoraði 7 mörk úr 10 skotum
á fyrstu 22 mínútum leiksins.
Það heyrist líklega sjaldnast hærra í
stúkunni en þegar Guðjón Valur skor-
ar úr einu af sínum háhraða hraðaupp-
hlaupum eða þegar Aron lætur eitt af
þrumuskotum sínum þenja netmöskva
andstæðinganna.
Guðjón Valur og Aron hafa nú báðir
skorað yfir 50 mörk í átta síðustu leikj-
um íslands í Laugardalshöllinni og hafa
öðrum fremur séð til þess að liðið hefur
unnið 7 þessara leikja og ekki tapað
neinum þeirra. 46 af þessum 50 mörk-
um Guðjóns hafa reyndar komið í síð-
ustu fimm leikjum hans þar sem hann
hefur aldrei skorað minna en sjö mörk.
Aron er með 43 mörk úr 63 skotum
(68 prósent) í sex síðustu leikjum sínum
í Laugardalshöllinni en Guðjón Valur
hefur skorað 46 úr 58 skotum (79 pró-
sent) í sjö leikjum sínum í Höllinni á
sama tímabili.
Guðjón Valur náði að skora tíma-
mótamark í leiknum í fyrrakvöld því
hann er nú kominn með 202 landsliðs-
mörk í húsinu. Guðjón náði þessu í
aðeins sínum 33 landsleik í Höllinni og
er hann því búinn að skora 6,1 mark að
meðaltali í leikjum sínum þar.
Guðjón Val vantar þó enn 34 mörk
til að ná Ólafi Stefánssyni, sem skor-
aði 236 mörk í 53 landsleikjum sínum
í Laugardalshöllinni eða 4,5 að meðal-
tali í leik.
Guðjón lék sinn fyrsta landsleik í
Höllinni 2001 og hefur síðan skorað
átta mörk eða fleiri í 11 landsleikj-
um í Laugardalshöllinni, en hann var
einu marki frá því að jafna sinn besta
persónulega árangur. Guðjón Valur
hefur þrisvar náð því að skora tólf
mörk í einum leik í Laugardalshöllinni.
Aron Pálmarsson er þegar kominn
með 89 mörk í 14 leikjum sínum í Höll-
inni og því ekki ólíklegt að hann verði
kominn í 200 marka klúbbinn með Ólafi
og Guðjóni Val eftir nokkur ár. - óój
Sigur á Hvíta-Rússlandi 11 (15 skot)
Jafntefli við Noreg 8 (11 skot)
Sigur á Finnlandi 7 (9 skot)
Sigur á Austurríki 8 (10 skot)
Sigur á Þýskalandi 12 (13 skot)
Samanlagt: 46 mörk
(58 skot, 79 prósent skotnýting)