Fréttablaðið - 02.11.2012, Síða 46
HELGIN
46
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR
„Ég er á bólakafi í Airwaves
og hef sjaldan skemmt mér
jafn vel. í kvöld œtla ég að sjá
Apparat Organ Quartet og Half
Moon Run. Á laugardaginn
spila ég með Sykri í Macland-
portinu hjá Sirkus og á Faktorý
um kvöldið. “
Halldór Eldjárn úr hljómsveitinni Sykri.
Láta reyna á „meikið“ eftir 20 ára hlé
„Okkur fannst tímabært að
draga fram þetta nafn í tilefni af
Airwaves-hátíðinni og láta reyna á
„rneikið," segir Stefán Hilmarsson
kíminn.
Hljómsveitin Beaten Bishops
spilar á Spot á laugardagskvöld.
íslendingar þekkja hana betur
undir nafninu Sálin en enska heit-
ið var notað þegar sveitin ætlaði að
slá í gegn á erlendri grundu í byrj-
un tíunda áratúgarins.
„Árið 1991 fórum við út til
Danmerkur að ég held og spiluð-
um í félagi við aðrar sveitir. Síð-
asta opinbera giggið var í Ósló
eða Stokkhólmi 1992. Biskuparnir
lögðu upp laupana þá,“ segir Stefán
og brosir í dag að þessum „meik“-
draumum. Aðspurður segir hann
þennan tíma hafa verið virkilega
skemmtilegan. „En við máttum
eiginlega ekki vera að því að sinna
þessu því það var svo mikið að gera
hérna heima.“
Á upphafsárum Airwaves stóð
Sálinni til boða að troða upp á
hátíðinni en hafði ekki tök á því þá.
Síðan hafa þeir félagar beðið þolin-
móðir eftir öðru tækifæri en ekk-
ert verið hringt. Þeir ákváðu því að
taka málin í eigin hendur og verða
rúmlega „off-venue“ í Kópavogi
í von um að erlendir útsendarar
plötufyrirtækja komi auga á þá.
Á sínum tíma tengdu sumir
útlendingar nafnið Beaten Bishops
við sjálfsfróun. Stefán kannast
við þessa umræðu. „Ég man ekki
hver átti þessa nafnahugmynd en
ætli það hafi ekki verið ég. Svo var
okkur bent góðfúslega á að „bishop“
væri slanguryrði yfir getnaðarlim
og „beat the bishop“ væri einhvers
konar sjálfsfróun. Þetta var svona
eftir á að hyggja ekki alveg besta
nafnið," segir hann og hlær.
Beaten Bishops gaf út eina plötu
á sínum ferli, Where Is My Dest-
iny?, og verða lög af henni í bland
við önnur Sálarlög spiluð á Spot.-fb
„MEIKIÐ" MISTÓKST Hljómsveitin
Beaten Bishops fyrir um tuttugu árum.
FISKIVIKA
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
CHIARA: ÉG HEF EKKI UNDAN AÐ SVARA SÍMTÖLUM OG SKILABOÐUM
Eurovision-drottning í
slagtogi með íslendingum
Chiara hefur tekið þátt í Eurovision í þrígang fyrir hönd Möltu. Samtals
hefur hún fengið 388 stig í keppninni og er því í þriðja sæti yfir stigahæstu
keppendur fyrr og síðar, á eftir þeim Dima Bilan frá Rússlandi og Carolu frá
Svíþjóð.
1998 söng hún ballöðuna The One That I Love og endaði í þriðja sæti.
ísland var ekki með þetta árið sökum slaks gengis árið á undan.
2005 náði hún öðru sætinu með lagið Angel sem hún samdi sjálf. Selma
Björnsdóttir fór sem fulltrúi okkar með lagið If I Had Your Love en
komst ekki upp úr undankeppninni.
2009 komst Chiara upp úr undankeppninni með lagið What If We og
endaði í 22. sæti í lokakeppninni. Við íslendingar enduðum í öðru
sæti með laginu Is It True í flutningi Jóhönnu Guðrúnar.
„Ég hef verið að syngja mikið
með Heru Björk um alla Evrópu
og ég tók eftir því hvað hún átti í
góðu sambandi við Valla, umboðs-
manninn sinn. Ég manaði mig
loksins upp í að spyrja hvort hann
hefði áhuga á að taka mig að sér
líka,“ segir maltneska Eurovision-
drottningin Chiara Siracusa.
Chiara hefur skrifað undir
samning við íslenska útgáfufyr-
irtækið Hands Up Music, sem
er í eigu Valgeirs Magnússonar,
eða Valla Sport, og Örlygs Smára
Jakobssonar. Saman gáfu þau út
sitt fyrsta lag, Forget Forgetting
Me, á þriðjudaginn. „Ég hef varla
undan að svara símtölum og skila-
boðum þar sem fólk er að lýsa yfir
ánægju með lagið,“ segir Chiara,
en það var frumflutt í sjónvarps-
Íætti á Möltu á sunnudaginn.
slendingar ættu að þekkja lagið
betur undir heitinu Allt fyrir
ástina og í flutningi Páls Óskars
Hjálmtýssonar, en það er samið
af Örlygi Smára, Niclas Kings og
Danielu Vecchia. Chiara segist
ekki hafa þekkt lagið áður en þeir
Valgeir og Örlygur Smári bentu
henni á það. Hún hefur heldur
aldrei hitt Pál Óskar, þótt þau deili
ást á Eurovision-söngvakeppninni
og hafi bæði tekið þátt. „Ég byrjaði
ekkert að fylgjast með keppninni
af alvöru fyrr en ég tók sjálf þátt
árið 1998. Síðan þá hef ég verið
mikill aðdáandi og er algjörlega
föst í Eurovision-heiminum núna,“
segir Chiara, en hún hefur tekið
þátt í keppninni í þrígang fyrir
hönd Möltu. Hún segir sigurlagið
frá árinu 1987, Hold Me Now með
Johnny Logan, hennar uppáhalds-
lag í keppninni frá upphafi og af
íslensku lögunum sé það lag Heru
Bjarkar, Je ne sais quoi. „Það lítur
kannski illa út því þau eru bæði
góðir vinir mínir, en þetta eru í
alvöru uppáhaldslögin mín,“ segir
hún og hlær.
Aðspurð segir hún Eurovision-
ferli sínum vonandi ekki lokið. „Ég
er viss um að keppnin á eftir að
toga mig til sín aftur í framtíðinni.
Mér líður eins og ég eigi enn eitt-
ÞRISVAR í EUROVISION
hvað ógert þar,“ segir Chiara og
þegar blaðamaður bendir henni á
að hún eigi augljóslega enn eftir
að fara með sigur af hólmi hlær
hún dátt og svarar; „Nákvæm-
lega.“ Hún segir þó íslandsheim-
sókn vera á dagskrá fyrst því hana
dreymi um að koma hingað, kynn-
ast landi og þjóð og vonandi taka
lagið. tinnaros@frettabladid.is
250 þúsund seld í Frakklandi
Glæpasagan Myrká eftir Arnald
Indriðason hefur notið mikilla
vinsælda í Frakklandi frá því hún
kom út í vasabroti síðastliðið vor
og hefur selst í 250 þúsund eintök-
um á fáeinum mánuðum.
Bókin heitir á frönsku La riviére
noire. Hún flaug beint inn á vin-
sældalistann við útgáfu og var
í sautján vikur samfleytt í einu
af tíu efstu sætunum. Áður hafði
innbundna útgáfan trónað á toppi
metsölulista yfir glæpasögur þar
í landi.
Von er á Bettý eftir Arnald í
vasabroti í Frakklandi í næsta
mánuði og í febrúar verður bókin
Furðustrandir gefin þar út
innbundin. Það verður tíunda
bókin sem kemur út eftir
hann í Frakklandi.
Vinsældir bóka Arnaldar
á erlendri grund fara stig-
vaxandi en nú hafa á átt-
undu milljón bóka hans selst
á heimsvísu. Arnald-
ur var val-
inn einn af
tíu bestu
núlifandi
glæpa-
sagna-
höfund-
um í
Evrópu af Guardian á síð-
asta ári og var þar meira
að segja efstur á blaði.
Ný bók eftir Arn-
ald, Reykjavíkur-
nætur, er nýkominn út
en hún fjallar um fyrsta
mál lögreglumannsins
Erlendar Sveinssonar.
- fb
VINSÆLL
Arnaldur
Indriðason
nýtur mikilla
vinsælda í
Frakklandi.