Fréttablaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 56
4 • LÍFIÐ 2. NÓVEMBER 2012
Eins og sjá má er fallegt heima hjá
Klöru.
Spegillinn stækkar rýmið.
Notalegt sófahorn.
MSOKN SINDRA
Klara Sigríður Thorarensen býr í fallegu húsi í
Garðabænum ásamt eiginmanni og tveimur börn-
um en þriðja barnið er væntanlegt í heiminn hvað úr
hverju. Klara er næsti gestur Sindra í þættinum
Heimsókn sem sýndur er í opinni dagskrá annað
kvöld strax að loknum fréttum á Stöð 2.
Eldhúsið er stílhreint.
Klara á von á sínu þriðja barni.
SOHO
MARKET
SOHO
MARKET
Grensasvegur 8, simi 553 7300
Opið món-fim 12-18. fös 12-19, lau 12-17
KEERINpUPJWITHiTHE
Magdalena Dubik fiðluleikari
KÖFUN UPPÁHALDSLÍKAMSRÆKTIN
Hvaða líkamsrækt stundar þú? Ég reyni að nýta
hversdaginn, velja stigann í staðinn fyrir lyftuna,
tabba út í búð og sjoppuna, lengja göngutúrana
með hundinn og svo er köfunin sem á hug minn
aUan um þessar mundlr auðvitað frábœr Ukams-
rækt. t»að eru svo mcugir mismunandi vöðvahðp-
ar notaðir vió köfwn og fyrir utarj það er þetta svo
skemmtilegt.
Hvaða vítamín tekur þú? Fjölvítamín. Ég reyni
svo aö borða mikið af ávöxtum til að fá vítamín úr
þeim.
Hvað gerir þú til að slaka á? Eftrr langa vfku
finrrst mér rosalega gott að vakna frekar snemma
á laugardagsmorgni þegar það er enn þá mikil
kyrrð og smá rökkur. Fá mér kaffibolla og setjast í
stofunni undír teppi með góða bók.
Skemmtilegasta útivist sem þú hefur prófað?
Köfun. Svo hef ég alltaf notið þess að fara í lang-
ar og góðar fjallgöngur.
Hvaða snyrtivörur notar þú daglega? Ég er alveg
kolfallin fyrir PENZIM, sem unnið er úr íslenskum
þorskaensímum og er 100% náttúrulegt. Vinnu
minnar vegna hef ég líka haft aðgang að Serum-
dropum og fleiri snyrtivörum sem unnar eru úr
þessum sömu ensímum og eru væntanlegar á
markaðinn innan fárra vikna. Þetta eru líka hrein-
ar náttúruvörur og það er auðvitað stór plús. Svo
nota ég uppáhaldspúðrið mitt All in one frá Body
Shop.
Uppáhaldsmatur? Það er án efa sushi. Rosalega
mikill fjölbreytileiki og létt í magann.
Uppáhaldsdrykkur? Aloe Vera King-drykkirnir eru
æðislegir! Ferskjubragðið er í sérstöku uppáhaldi.
Uppáhaldsheimasíða? Ég held ég verði að segja
Khanacademy.org. Það er svo rosalega mikið af
fróðleik þar og í náminu hefur þessi síða bjargað
mér gegnum margar raungreinar.
Uppáhaldstímarit? Ég á í rauninni ekkert
| *
1 iw
Magdalena Dubik
uppáhaldstímarit. Mér finnst gaman að fletta í
gegnum Vogue og önnur tískublöð en mér finnst
samt skemmtilegast að lesa góða bók.
Uppáhaldstilvitnun/lífsspeki? Að lifa lífinu lifandi
og njóta augnabliksins.