Fréttablaðið - 02.11.2012, Page 59
LÍFIÐ 2. NÓVEMBER 2012 * 7
Röð áfalla
Þið hafið tekist á við svolít-
ið persónulegri verkefni undan-
farið, bæði erfið og ánægjuleg.
Þú greindist með brjóstakrabba-
mein, misstir bróður þinn Loft
Gunnarsson, sonur ykkar veikt-
ist og þið eignuðust dásamlega
dóttur á svipuðum tíma. Hvern-
ig líður þér í dag með lífið og til-
veruna og hvernig er heilsan?
K: Heilsan er góð enda vel fylgst
með manni. Að greinast með
krabbamein var það fyrsta í röð
áfalla á árinu. Við það að missa
bróður sinn og þegar elsta barn-
ið veikist þá lærir maður að vera
ómetanlega þakklátur fyrir lífið og
að fá Isabel Míu í fangið nokkrum
dögum áður en Loftur bróðir dó var
einstakt á erfiðum tíma. Það minnir
okkur á hvað lífið er mikil gjöf sem
ber að fara vel með.
Hefur þessi tími breytt viðhorfi
ykkar og iífsstíl?
G: Það hljómar eins og frasi en
maður lærir að meta lífið upp á nýtt
og það sem maður á og hvað skipt-
ir máli og hvað ekki. Liðnir dagar
koma aldrei aftur. Sama hversu
góðir eða slæmir þeir voru. Dagur-
inn í dag er það sem skiptir máli.
Maður þarf að spyrja sjálfan sig; er
ég að eyða mínum dýrmæta tíma í
það sem gefur mér mest? Ef svarið
er nei þá þarf maður að breyta sínu
lífi. Dóttirin mætti í heiminn svona
líka óvænt og er mikil guðsgjöf í alla
staði. Fáránlega mikil krúttsprengja.
Fjöiskyldulíf er
sameiginlegt verkefni allra
Hver er helsti munurinn á því að
verða foreldri núna komin yfir
fertugt og þegar þið áttuð ykkar
fyrsta barn fyrir sextán árum?
K: Börn eru það dásamlegasta sem
lífið færir manni. Með aldrinum öðl-
ast maður meiri visku og ró og það
hefur áhrif á mann sem foreldri.
Að ala upp einstakiinga er mikið
ábyrgðarhlutverk.
G: Það er mikill munur að eiga barn
25 ára eða 40 ára. Það er dásam-
legt að eiga börn ungur en þá tekur
maður hlutunum meira sem sjálf-
sögðum. Núna er það alls ekki svo.
Nú veit maður virkilega hversu dýr-
mætt það er að fá að eignast barn.
Hvernig gengur barnauppeldið
samhliða starfinu? Eruð þið
skipulögð þegar kemur að vinnu
og starfi og leyfið þið ykkur að
njóta stundarinnar saman án
barna og án þess að ræða vinn-
una?
K: Ég er mjög skipulögð, einum
of segir Gunni. Verkin skiptast
nú jafnt á okkar heimili enda fjöl-
skyldulíf sameiginlegt verkefni allra.
Við höfum alltaf gefið okkur góðan
tíma yfir kaffibolla á kaffihúsum til
Framhald á síðu 8
■
Gunnar horfði á Kolbrúnu
í tvö ár áður en hann
þorði að tala við hana.
Hann var alveg bálskot-
inn i henni.
KOLLA
REiMASÍfiA? Ég fer oftast inn á Style.com, vel uppfærð
síða með mikið af efni og götutísku.
HÖNNUÐUR? Hedi Slimane er að gera frábæra hluti
með YSL.
TÍMARIT? Franska Officiel.
VERSLUN? One Vintage í London.
DEKUR? Dagur sem maður þarf ekki að gera neitt nema að
gera það sem mann langar með fjölskyldunni.
HREYFING? Pilates hjá Auði Daníels.
GUNNI
HEIMASÍÐA? Samkvæmt tölvunni minni er það Net-a-
porter.com, ég hefði sagt Fotbolti.net en staðreyndir
tala sínu máli!
HÖNNUÐUR? Alber Elbaz hjá Lanvin.
TÍMARIT? LOVE Magazine.
VERSLUN? Liberty í London.
0EKUR? Sundlaugarbarmur á Miami.
HREYFING? Hlaup og aftur hlaup.
25% afsláttur
af öllum vörum
Herra Hafnarfjörður og Herra Kópavogur
Smáralind
>