Fréttablaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 60
8 • LI'FIÐ 2. NÓVEMBER 2012
<
MYNDIR/STEFÁN
Gunnar er með tvö húðflúr, „Keep walking" og „March to the beat of your own drum“. Hann lifir eftir þeim.
TYGGÐU
EFTIR
HVERJA MALTIÐ
(0)
l.innl.i'kii.ilr'l.ui Isl.imls m.i‘lir
moó nolkun xylitols sem
nónls.ntuRfnÍH i tyugiyummii
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.
Framhald af síðu 7
að ræða málin, skoða fólk og tíma-
rit og leyfa huganum að reika.
G: Það hafa alltaf komið hjá okkur
geðveikar tarnir þar sem öll tilveran
er eitt samfellt tímaspan. Við reyn-
um samt að hafa kvöldin án vinnu
en tekst það allt of sjaldan. Þar sem
við teiknum bæði þá er ekki mikil
skipting í sjálfu sér í vinnunni. Við
vinnum yfirleitt heima svo að þetta
er eitt samfellt streymi af öllu í einu.
Teikna, hjálpa við nám, setja í vél,
elda kjötbollurog allt það...
Stolt af útkomunni
En að nýja og fallega verkefninu
ykkar. Segið okkur allt um til-
komu merkisins Freebird og hug-
myndina á bak við það.
K: Ég er venjulega þannig að ég vil
góðan tíma til að hugsa hvort við
eigum að fara út í verkefnin en ég
var viss um að Freebird var eitthvað
sem við vildum gera. Þurfti ekki að
hugsa mig um lengi. Þetta er svo
fallegt merki sem búið er að skapa
og tækifærið svo mikið. Við munum
taka okkur tíma til að gera þetta vel
enda liggur okkur nákvæmlega ekk-
ert á. Ég stefni á að leyfa mér aö
njóta hverrar mínútu.
G: Ég hef verið og er að vinna fyrir
E-label en fyrir nokkrum vikum þá
hafði fyrirtæki í New York sam-
band við okkur og bauð okkur að
gera nýja línu algerlega á okkar
forsendum. Við höfðum verið með
nafnið Freebird á flögri f nokkurn
tíma og við ákváðum að slá til. Við
vorum strax farin að sakna þess að
vinna saman og þetta hefur geng-
ið hratt og við erum stolt af útkom-
unni. Þetta er mjög fallegt merki og
stendur fyrir allt sem við viljum gera.
Hvar munu íslenskar konur getað
nálgast fatnaðinn?
K: I uþpáhaldsbúðinni minni, Tiia á
Laugavegi, og á Freebird-vefnum.
G: í dásamlegu búðinni Tiia á
Laugavegi 46 og á www.freebird-
clothes.com. Næstu daga verð-
ur hægt að kaupa sérvöld item úr
vor 2013 Freebird-línunni á www.
freebirdclothes.com sem eingöngu
eru framleidd 20 stykki af fyrir ís-
land. Fleiri stykki koma ekki. Þessi
örfáu stykki verða send beint heim
til viðskiptavina fyrir jól svo að það
verða konur í fallegum Freebird-
hlutum um jólin. Það er góð tilhugs-
un. Fyrstir komafyrstirfá...
í hverju felst vinna þín með
E-label, Gunni?
G: Hún gengur út á að taka merk-
ið í gegn, hanna nýjar línur, byggja
upp teymi og koma merkinu á er-
lendan markað sem og koma því á
góðan stað á heimamarkaði. Eig-
andi E-label, Jón Ólafsson, hefur
mjög fagra sýn um fyrirtækið sem
ég er hrifinn af og mun framfylgja.
Sýnin er að E-label verði gróðrar-
stöð fyrir nýja hönnuði og gefa nýju
fólki tækifæri til góðra verka og til
að læra. Fleiri mættu hugsa svona.
Hæfileikarfkir
en reynsluiitlir hönnuðir
Hvar standa íslenskir hönnuðir í
dag að ykkar mati og hvernig er
fyrir ungt og hæfileikaríkt fólk að
leggja í þennan heim?
K: Hér er mikið af góðu fólki en
vantar reynslu. Það eru margir sem
átta sig ekki á hvaða fórnir þarf að
færa til að geta gert línu eftir línu
sem stenst alþjóðlega samkeppni.
Það má ekki missa úr dag í sköpun-
inni. Þá fer lestin fram hjá.
G: Þeir standa nokkuð vel. Mikil
þróun hefur verið siðustu árin og
fyrir ungt fólk eru sömu tækifæri
og fyrir hvern sem er. Heimurinn er
minni en hann lítur út fyrir að vera.
Ógnin er reynsluleysið.
Eitthvað að lokum/lífsspeki, til-
vitnanir, málsháttur?
K: Að vera samkvæmur sjálfum sér
og sáttur í eigin skinni. Það er út-
gangspunktur alls í lífinu.
G: Ég er með tvö húðflúr með
mínum möntrum, „Keep walking"
og „March to the beat of your own
drum“. Ég lifi eftir þeim. Þetta er
ekki flókið, gera það sem hjartað
segir manni og gefast aldrei upp.