Fréttablaðið - 03.03.2018, Qupperneq 8
✿ Viltu að nýr Landspít-
ali rísi á núverandi stað
við Hringbraut?
39%
13%
47%
Já
Hlutlaus
Nei
AÐAL
FUNDUR
Félagið veitir ferða-
styrk til þeirra félags-
manna sem búa í meira
en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
Félags iðn- og
tæknigreina 2018
verður haldinn í Borgartúni 30,
6. hæð, laugardaginn 10 . mars
kl. 11.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu
starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu
og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna
reikninga, og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem
FIT er aðili að.
8. Önnur mál.
Hádegismatur
í boði félagsins.
Stjórnin
Aðalfundur Íslandsdeildar
Amnesty International
verður haldinn miðvikudaginn 14. mars 2018
kl. 20:00 í húsnæði deildarinnar,
Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Dagskrá:
Najmo Cumar Fiyasko frá Sómalíu
Najmo er tvítug stúlka sem var gefin í hjónaband
í heimalandinu aðeins 11 ára gömul. Þrettán
ára flýði hún land og hefur síðan unnið ötullega
að því að berjast gegn barnabrúðkaupum. Hún
kom til Íslands 16 ára gömul sem fylgdarlaust
barn. Najmo deilir átakanlegri sögu sinni.
Erindið fer fram á ensku
Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum deildarinnar
Flutningur læknastofu
Læknastofa mín að Melhaga hefur flutt í
Domus Medica, Egilsgötu 3, 101 R.
Sími 563 1000.
Árni Tómas Ragnarsson læknir
Sérgrein: Gigtlækningar
SkipuLagSmáL „Það eru mjög eðlileg
fyrstu viðbrögð að hafa efasemdir
um staðsetninguna,“ segir Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri aðspurður
um niðurstöður könnunar um
afstöðu borgarbúa til staðsetningar
nýs Landspítala sem birtar voru í
Fréttablaðinu í gær.
Niðurstöðurnar sýna að 47 pró-
sent þeirra sem taka afstöðu telja
spítalann ekki eiga að rísa á núver-
andi stað við Hringbraut.
„Það var líka reynslan í umfjöllun
borgarstjórnar á sínum tíma en eftir
að hafa farið ítarlega yfir öll sjónar-
mið og gögn í málinu, þá var líka
merkilegt að það varð þverpólitísk
samstaða í borgarstjórninni um að
þessi staðsetning væri rétt,“ segir
Dagur og vísar til samstöðu á síðasta
kjörtímabili er þessi hluti skipulags
fyrir viðbótina var kláraður.
„Það var ekki allt óumdeilt í því
deiliskipulagi en það varð þver-
pólitísk sátt um staðsetninguna, þó
svo hafi ekki verið í upphafi umræð-
unnar,“ segir Dagur.
„Í fyrsta lagi þá er nauðsynlegt
að velja framtíðarstaðsetningu
fyrir spítalann og fara í staðarvals-
greiningu sem fyrst um framtíðar-
uppbyggingu Landspítalans,“ segir
Eyþór Arnalds, oddviti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar.
Eyþór segir staðsetningu spítalans
í dag hafa ákveðna galla, bæði hvað
varðar rými og samgöngur. Hún hafi
upphaflega verið í útjaðri er borgin
var miklu minni en í dag.
„Til framtíðar eigum við að stefna
á að bæði stofnanir og fyrirtæki séu
líka austarlega í borginni. Það er
betri og heilbrigðari þróun sem léttir
á samgöngukerfinu og styttir ferða-
tíma fyrir okkur,“ segir Eyþór.
Aðspurður segir Eyþór mikilvægt
að tefja ekki framkvæmdir sem
þegar séu á framkvæmdastigi.
„En umferðarlega er spítalinn á
röngum stað og þess vegna er mikil-
vægt að staðarvalið fari fram, þann-
ig að spítalinn sjálfur og aðrir geti
hugað að uppbyggingunni á nýjum
stað,“ segir Eyþór. „Þessi staðar-
valsgreining þarf ekki að taka mjög
langan tíma en þarf að vera gerð fag-
lega og þá sjá menn uppbygginguna
til framtíðar.“
Dagur segir raunveruleikann um
samgöngurnar í rauninni allt annan
en halda mætti af umræðunni.
„Vaktaskipti á spítalanum eru
utan háannatíma í umferðinni til
dæmis á morgnana, inniliggjandi
sjúklingar ferðast lítið á milli staða
og gestakomur dreifast á allan dag-
inn. Umferðarröskun er því ekki eins
mikil eins og halda mætti af umræð-
unni,“ segir Dagur og bætir við:
Þegar farið var yfir þetta þá var
líka skoðað hver áhrifin yrðu af því
að hafa aðra atvinnustarfsemi eða
íbúabyggð á svæðinu ef spítalinn
færi annað. Og í ljós kom að undan-
tekningarlaust hefði önnur upp-
bygging skapað meiri umferð á
svæðinu en uppbygging spítalans
mun hafa í för með sér.
Það myndi auðvitað hafa mjög
miklar afleiðingar fyrir verkefnið
og ég held að þeir, sem er alvara um
verkefnið, hljóti að nálgast alla slíka
umræðu af ábyrgð,“ segir Dagur
inntur eftir því hvort raunhæft sé
að breyta staðsetningunni.
„En þetta er stór ákvörðun og
gildir til langs tíma og eðlilegt að
menn hafi efasemdir í fyrstu. En
þeirri umfjöllun borgarstjórnar lauk
með því að allir voru sammála um
að staðsetningin styddist við mjög
traust rök og ítarlega skoðun.“
adalheidur@frettabladid.is
Segir meiri umferð af
íbúabyggð en spítala
Efasemdir um staðsetningu Landspítala eðlilegar, segir borgarstjóri, en tilhneig-
ing til að skipta um skoðun eftir nánari athugun. Eyþór Arnalds segir galla á
staðsetningunni vegna rýmis og samgangna og kallar eftir staðarvalsgreiningu.
Uppbygging Landspítala við Hringbraut er í fullum gangi en enn er deilt um staðsetninguna. FréttabLaðið/anton brink
Undantekningar-
laust hefði önnur
uppbygging skapað meiri
umferð á svæðinu en upp-
bygging spítal-
ans mun hafa í
för með sér.
Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri
umHVerfiSmáL Úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála vísaði
frá kæru Landverndar vegna Hvalár-
virkjunar á Ströndum. Kæran laut
að ákvörðun Orkustofnunar frá 21.
janúar í fyrra um að framlengja rann-
sóknarleyfi við virkjunina.
Úrskurðarnefndin féllst á þau rök
Orkustofnunar að Landvernd ætti
ekki lögvarinna hagsmuna að gæta í
málinu. Landvernd væri ekki á neinn
hátt aðili að málinu og því bæri að
vísa kærunni frá nefndinni.
Hvalárvirkjun var sett í nýtingar-
flokk í rammaáætlun fyrir sjö árum.
Hún var þá einn virkjanakosta á
Vestfjörðum sem voru metnir af
öllum faghópum rammaáætlunar.
Einnig var talið að orkuöryggi á Vest-
fjörðum ykist við virkjunina sem á
að vera um 55 MW.
Salome Hallfreðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, sagðist
í samtali við Fréttablaðið í gær ekki
telja tímabært að ræða úrskurðinn.
– sa
Kæru vegna Hvalárvirkjunar vísað frá
Hvalárvirkjun á Vestfjörðum er um-
deildur virkjunarkostur.
3 . m a r S 2 0 1 8 L a u g a r D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-D
1
3
8
1
F
1
D
-C
F
F
C
1
F
1
D
-C
E
C
0
1
F
1
D
-C
D
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K