Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 54
Staða leikskólastjóra við leikskólann Vinagerði
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Vinagerði lausa til umsóknar.
Vinagerði er þriggja deilda leikskóli við Langagerði í Reykjavík. Leiðarljós leikskólans eru gleði, hvatning og nærgætni. Áhersla er
lögð á skapandi starf og að umhverfi barnanna veki forvitni þeirra og vellíðan. Markvisst er unnið með umhverfismennt og stærð-
fræði í leik með því að skoða liti, form, tegundir og fjölda í umhverfinu og náttúrunni. Endurvinnanlegur efniviður er hluti af leikefni
barnanna og er nýttur bæði úti og inni. Vinagerði er Grænfánaskóli, útileiksvæði leikskólans er gott og vel skipulagt og stutt í opið
leiksvæði í Grundargerðisgarði. Unnið er með fjölbreyttan barnahóp og heimamenningu barna og öll börn eru með ferilmöppu.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt
leikskólastarf í Vinagerði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. maí 2018. Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2018.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans
og umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
MATRÁÐUR
LÍTILL LEIKSKÓLI
Lítinn einkarekinn leikskóla í Kópavogi
vantar matráð frá 9:30 - 13:30
Jákvæðni, snyrtimennska og ísl.kunnátta skilyrði.
Uppl. UNDRALAND s. 554-0880, 9-16
Laus störf á skóla- og
tómstundasviði Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær er bær í sókn og hefur upp á margt að
bjóða. Má þar nefna öfluga grunnskóla og leikskóla,
menntaskóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, öflugt
tónlistar- og menningarlíf, eitt besta skíðasvæði landsins
og endalausa möguleika á að njóta einstakrar
náttúrfegurðar svæðisins. Í Ísafjarðarbæ búa um 3700
íbúar og þar eru fimm leikskólar og fjórir grunnskólar í
fjórum byggðakjörnum. Mikil áhersla er lögð á gott
samstarf milli skólanna en þó sjálfstæði og fjölbreytni.
Ísafjarðarbær auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Grunnskólinn á Ísafirði
• Umsjónarkennarar á öllum stigum 100%
• Þroskaþjálfi 100%
• Íþróttakennari 50-80%
• Kennari í myndmennt 50-80%
• Danskennari 50-80%
• Smíðakennari 50-80%
• Tónmenntakennari 50-80%
Grunnskólinn á Suðureyri
• Grunnskólakennarar á mið- og yngra stigi 50-100%
• Íþróttakennari 40-100%
Grunnskóli Önundarfjarðar
• Grunnskólakennarar 50-100%
• Íþróttakennari 25-50% Grunnskólinn á Þingeyri
• Íþróttakennari 60-100%
Leikskólinn Grænigarður Flateyri
• Deildarstjóri 100%
• Leikskólakennari 100%
Heilsuleikskólinn Laufás Þingeyri
• Deildarstjóri 100%
• Starfsmaður í leikskóla 60-100%
Leikskólinn Sólborg Ísafirði
• Leikskólakennarar 100%
Leikskólinn Tjarnarbær Suðureyri
• Leikskólakennari 100%
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 23. mars 2018. Frekari upplýsingar um störfin má nálgast á
vef Ísafjarðarbæjar (www.isafjordur.is) undir „Laus störf“.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.
-Við þjónum með gleði til gagns-
ÍSAFJARÐARBÆR
FASTEIGNASALA / FASTEIGNASALAR
Við á Fasteignalandi í Faxafeni 10 Reykjavík
ætlum að bæta við okkur þremur starfsmönnum við
sölu á fasteignum. Góð aðstaða, tæki og staðsetning.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Ingi í s: 897 4210 og
halldor@fasteignaland.is
VALITOR ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA
STARFSÞRÓUNARSTJÓRA TIL STARFA
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starð.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Valitor www.valitor.is
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2018.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Ari Stefánsson, mannauðsstjóri, sími 525 2000.
Starfsþróunarstjóri er ábyrgur fyrir gerð og framkvæmd starfsþróunar-
áætlunar og þjálfun starfsmanna Valitor.
Ábyrgðarsvið:
• Þróa og skipuleggja náms- og kennsluefni
• Starfs- og stjórnendaþróun
• Umsjón með nýliðafræðslu
• Umsjón með starfsmannasamtölum og gerð starfslýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í star
• A.m.k. mm ára reynsla af mannauðstengdu star eða ráðgjöf
• Reynsla af símenntun og notkun námsaðferða sem mæta nútímakröfum
• Alþjóðleg reynsla af ofangreindum ábyrgðarsviðum er æskileg
• Framúrskarandi færni í íslensku og ensku
Valitor er traust og framsækið þekkingarfyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar og
greiðslulausna sem er stöðugt að skapa nýjar lausnir fyrir viðskiptavini sína. Valitor
starfar á alþjóðlegum vettvangi, í nánu samstar við fjártæknifyrirtæki (Fintech) í
fremstu röð. Gildin okkar – frumkvæði, traust og samvinna – knýja samhentan hóp
um 350 starfsmanna á starfsstöðvum Valitor á Íslandi, Bretlandi og í Danmörku.
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 . m A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-1
6
5
8
1
F
1
E
-1
5
1
C
1
F
1
E
-1
3
E
0
1
F
1
E
-1
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K