Fréttablaðið - 03.03.2018, Side 96

Fréttablaðið - 03.03.2018, Side 96
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r44 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð tímamót Það er söngkonuhljómur í rödd Ágústu Sigrúnar Ágústsdóttur þegar hún svarar símanum enda er hún félagi í kór Breiðholtskirkju. Svo er hún líka formaður kórsins og hennar hlutverk er að halda fólki við efnið. Yfirleitt segir hún vel mætt á æfingar. „Reyndar setti flensan rosalegt strik í reikninginn í vetur, það var bara eins og kórinn væri tannlaus á tímabili, en nú eru allir að verða hressir,“ segir hún. Það er líka eins gott því nú á að halda veglega tónleika klukkan 17 í dag til að fagna tvennum tímamótum, þrjátíu ára vígsluafmæli kirkjunnar og fjörutíu og fimm ára afmæli kórsins. Í efnisskrá tón­ leikanna er nokkrum trúarlegum verk­ um Jóns Leifs fléttað inn í hina frægu sálumessu eftir Gabriel Fauré. „Þetta eru allt verk sem eru þrungin miklum tilfinningum,“ upplýsir Ágústa. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson tón­ skáld samdi lag fyrir kórinn fyrir fjörutíu ára afmælið, Rennur upp um nótt, nefn­ ist það. Nú segir Ágústa unnið að útgáfu á því. Höfundurinn syngur með kórn­ um, Ágústa segir hann einn af máttar­ stólpunum í bassanum. „Við erum rík af tónskáldum því auk Hróðmars Inga eru þrír félaganna í tónsmíðanámi.“ Fjöldinn í kórnum er í kringum tuttugu og fimm að hennar sögn. „Svo erum við með stúlknakór til að syngja með í einu verkinu, undir stjórn Sigrúnar Þorgeirs­ dóttur. Þar var hóað saman dætrum og frænkum kórfélaga, svo hann er nokkurs konar afurð,“ segir Ágústa glaðlega. Einsöngvarar á tónleikunum eru Ágúst Ólafsson, Marta Guðrún Hall­ dórsdóttir og Ásta Sigríður Arnardóttir og hljóðfæraleikarar eru Elísabet Waage á hörpu og Steingrímur Þórhallsson á orgel. Kórstjóri er Örn Magnússon. Breiðholtskirkja er eitt af kenni­ leitum Bakkanna neðst í holtinu. „Ég segi stundum að hún sé eins og félags­ heimilið í myndinni Með allt á hreinu, hún er miklu stærri að innan en að utan, því það er svo góður salur í kjallaranum,“ segir Ágústa. „En fækkað hefur í söfnuð­ inum með árunum enda hefur margt fólk í öðrum trúfélögum hreiðrað um sig í Bökkunum.“ Tónleikana ber upp á sama dag og Söngvakeppni Sjónvarpsins. Ekki telur Ágústa þá viðburði þó stangast á, heldur þvert á móti. „Tónleikarnir eru ágæt upp­ hitun fyrir kvöldið og ef fólk jafnar út áhrifin af þeim og keppninni held ég að gott jafnvægi skapist í sálinni. gun@frettabladid.is Upphitun fyrir kvöldið Tímamót í tjaldkirkjunni er yfirskrift tónleika í Breiðholtskirkju síðdegis í dag í tilefni þess að hún á þrjátíu ára vígsluafmæli á árinu og kórinn verður fjörutíu og fimm ára. „Þetta eru allt verk sem eru þrungin miklum tilfinningum,“ segir Ágústa um efni tónleikanna í dag. Fréttablaðið/anton brink Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðfinna Snæbjörnsdóttir fv. ellimálafulltrúi, Löngulínu 2, Garðabæ, lést að Hrafnistu í Hafnarfirði að morgni 28. febrúar sl. Jarðarförin fer fram frá Vídalínskirkju þann 9. mars kl. 15.00. Snæbjörn Tr. Össurarson María H. Baldursdóttir Guðrún H. Össurardóttir Brynjólfur Steingrímsson Bjarni S. Össurarson Britt Augustson Birgir Össurarson Ómar Össurarson Steinunn Geirsdóttir Hulda S. Össurardóttir Markús Jóhannesson Margrét Össurardóttir Albert Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Salómon Gunnlaugur Gústaf Kristjánsson Erluhrauni 9, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeildinni í Kópavogi 26. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. mars kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu minnast hans er bent á Ljósið og Krabbameinsfélagið. Ingibjörg Kjartansdóttir G. Margrét Salómonsdóttir Júlíus Jóhannesson Hulda S. Salómonsdóttir Steingrímur Ólason Kjartan F. Salómonsson Kolbrún K.B. Alexandersdóttir og barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Helga Ívarsdóttir Hátúni 8, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 22. febrúar. Útför hennar fer fram í Langholtskirkju þriðjudaginn 6. mars nk. kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á SKB, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir Sigurður V. Gunnarsson Sólrún Ása Guðjónsdóttir Rúnar Friðgeirsson Vignir Guðjónsson Guðný Atladóttir Hraunfjörð Guðjón Guðjónsson Margrét Grétarsdóttir barnabörn og langömmubörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna FALLEGIR LEGSTEINAR til 15.mars af öllum legsteinum Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Afsláttur 0 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 1 D -E 0 0 8 1 F 1 D -D E C C 1 F 1 D -D D 9 0 1 F 1 D -D C 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 8 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.