Fréttablaðið - 03.03.2018, Page 108
Kvikmyndin Love-less eftir rússneska leikstjórann And-rey Zvyagintsev er á meðal fjölmargra s p e n n a n d i k vi k-
mynda sem verðar sýndar á Stock-
fish-kvikmyndahátíðinni sem hófst
í gær og stendur fram til 11. mars í
Bíói Paradís. Loveless hefur hlotið
mikið lof víða um heim og þykir
jafnvel líkleg til að vinna til Óskars-
verðlauna en aðspurður virðist leik-
stjórinn Andrey Zvyagintsev ekki
vera með hugann við þessa upphefð.
Fyrir honum er þetta fyrst og síðast
spurning um að halda áfram að skapa
list. „Það gleður mig þegar vel gengur
en núna er hugurinn samt allur við
handritsgerð fyrir mína næstu mynd.
Mér líður eins og ég blómstri í því
sem ég er að gera og ég get ekki séð
fyrir mér framtíð án listar, sköpunar
og kvikmyndagerðar. Þetta er líf
mitt.“
Leikstjórnarferill Andrey Zvyagint-
sev er í raun ekki ýkja langur. Hann er
fæddur árið 1962 og útskrifaðist sem
leikari frá leiklistarskólanum í Novo-
sibirsk aðeins tvítugur að aldri og
fluttist til Moskvu nokkru síðar þar
sem hann starfaði sem leikari án þess
að ferill hans næði miklum hæðum.
Árið 2000 tók Zvyagintsev svo að sér
að leikstýra þremur þáttum í vinsælli
sjónvarpsþáttaseríu. Það reyndist
eiga einstaklega vel við hann og eftir
það sneri hann sér alfarið að leik-
stjórninni. Hann leikstýrði sinni
fyrstu mynd í fullri lengd þremur
árum síðar og hans þekktasta mynd
til þessa, Leviathan, var árið 2014 til-
nefnd til Óskarsverðlauna.
Krafa um nánd
Andrey Zvyagintsev segir að bak-
grunnur hans sem leikara eigi mik-
inn þátt í að móta hvernig hann
vinnur sem leikstjóri og að í því felist
kannski einhver sérstaða og þar með
velgengni. „Ég veit ekki hvort það er
hægt að segja að myndirnar mínar
séu leikaramyndir en ég vona að
leikararnir séu sannfærandi og að
fólk treysti þeim – trúi á það sem
þeir eru að gera. Ég veit hvernig leik-
arar vinna og ég þekki það sem þeir
eru að glíma við. Ég man vel hvernig
það var að að koma í prufur, standa
fyrir framan myndavélina og finna
að leikstjórinn hefur ekki minnsta
skilning á því sem maður er að gera
og það getur verið erfitt. Ágætt dæmi
um þetta er rússneskur leikstjóri frá
sjöunda áratugnum sem var spurður
að því hvernig hann ynni með leik-
urum. Svarið var einfalt: Ég vinn ekki
með þeim, ég borga þeim peninga.
Þetta er auðvitað óraveg frá allri
skynsemi því ef maður nálgast leik-
ara út frá því að hjálpa honum eða
henni til þess að skapa persónu, þá
skilar það árangri. Þar kemur mín
reynsla sér vel og fyrir hana er ég
þakklátur og fyrir vikið sé ég auð-
vitað ekki eftir þeim árum í lífinu
sem ég varði sem leikari.“
Það er sitthvað við kvikmyndina
Loveless sem ber þessu gott vitni.
Senurnar fá að lifa lengi og leikar-
arnir fá gott rými til að mynda tengsl
við áhorfendur. Andrey Zvyagintsev
tekur undir þetta og segist elska þessa
nánd hvort sem verið er að skoða
leikara í ramma eða landslag og þá
líka borgarlandslag. „Nánd gerir
kröfu til þess að maður gefi sér tíma.
Leyfi senum að anda. Í kvikmynd er
sagan ekki einvörðungu sögð með
samtölum heldur þarf meira til. Það
þarf að hugsa um heildina og hleypa
áhorfendum inn í þessa veröld.
Leyfa þeim að dvelja þar um stund
og mynda tengsl við það sem þar á
sér stað.“
Fjarvera samkenndar
Loveless segir sögu óhamingjusamra
hjóna sem hafa tekið ákvörðun um
að þau verði að skilja. Eiginkonan
er í sambandi með öðrum manni en
eiginmaðurinn er meira hikandi þar
sem skilnaður getur kostað hann gott
starf hjá íhaldssömu fyrirtæki. Saman
eiga þau einn son sem verður vitni að
rifrildi þeirra á milli og hverfur dag-
inn eftir. Foreldrarnir fá litla hjálp frá
lögreglunni og leita því til sjálfboða-
liðasveitar sem sérhæfir sig í að finna
týnd börn. Þó svo grunnsagan sé ein-
föld þá er Loveless gríðarlega áhrifa-
rík mynd sem ýtir við áhorfendum á
mörgum plönum.
En skyldi það hafa verið eitthvað
ákveðið sem varð til þess að Andrey
Zvyagintsev ákvað að segja þessa
tilteknu sögu? „Nei, í rauninni ekki.
Þetta er ekki sönn saga en þetta eru
engu að síður raunverulegar aðstæð-
ur. Barn hverfur í rússneskri borg og
það er litla hjálp að fá frá lögreglunni.
Eina hjálpin er í þessum samtökum
sem eru raunveruleg og reyna að
hjálpa þeim að finna drenginn.“
Er þetta þá spurning um kerfið
annars vegar og manneskjur hins
vegar? „Já, í Loveless er það tilfellið
að einhverju leyti enda er Rússland
í miklum umbrotum. Það eitt að
þessar aðstæður eru raunverulegar
þó svo sagan sé skálduð segir okkur
eitthvað. En það er ekkert nýtt að við
Rússar séum að takast á við kerfið í
okkar skáldskap – takast á við valdið
með einum eða öðrum hætti. Í Love-
less eru fleiri slík minni á borð við
einsemdina í stórborginni.“
Zvyagintsev leggur þó einnig
áherslu á að þetta sé ekki pólitísk
kvikmynd í þeim skilningi heldur
fjalli hún mun fremur um manneskj-
una sem slíka. „Þetta er kvikmynd
um samkennd eða kannski öllu
heldur skort á henni. Þessi skortur
eða jafnvel algjöra fjarvera á sam-
kennd er eitt elsta einkenni mann-
legs eðlis. Hann birtist með ýmsum
hætti í lífinu og nær líka inn í stjórn-
málin og kemur þar fram í viðhorfum
valdsins til mannslífa.“
Skellum skuldinni
Í Loveless birtist samfélag sem er um
margt svipað því sem við þekkjum
á Vesturlöndum þar sem samfélags-
miðlar eru nánast þungamiðjan í lífi
fólks. Á sama tíma sjáum við einnig
nánast dystopískt vald afturhalds-
samra stórfyrirtækja sem virðast
hafa tögl og hagldir í lífi starfsmanna
sinna. Andrey Zvyagintsev segir
Loveless endurspegla rússneskan
veruleika og hvað varðar samfélags-
miðla og annað sem fólk þekkir vel
þá sé það normið.
„En hvað varðar aðstæður eigin-
mannsins í sínu starfi þá er það
vissulega undantekning frá reglunni
en engu að síður byggt á ákveðnum
veruleika þó hann sé ekki lýsandi
fyrir rússneskt samfélag. Þessi veru-
leiki er sóttur í þekktan vinnu-
veitanda í litlum bæ rétt utan við
Moskvu sem varð frægur fyrir að
skikka alla sína starfsmenn til þess
að vera kvæntir og það þurftu allir
að hafa gengið í hjónaband í kirkju.
Ef starfsfólkið vildi ekki hlíta þessu
þá beið bara eftir því uppsagnarbréf.
Þetta var auðvitað galið og það var
mikið grín gert að honum í fjölmiðl-
um. En ég nýti þessa sögu og þessa
hugmynd til þess að sýna breyting-
arnar í samfélaginu og ótta föðurins
Fjarvera samkenndar og hvernig hún birtist í lífinu
Kvikmyndin Loveless er á sigurför um heiminn. Leikstjórinn Andrey Zvyagintsev er lærður leikari og
starfaði lengi sem slíkur og hann segir að hann geti ekki séð fyrir sér framtíð án sköpunar og lista.
Andrey Zvyagintsev, leikstjóri Loveless, segist gera kröfu um nánd í verkum sínum og að slíkt kalli á að gefa sér tíma.
Maryana Spivak
og Matvey
Novikov í hlut-
verkum móður
og sonar í Love-
less.
við valdið en það er eitthvað sem er
óneitanlega sterkt í Rússum.“
Zvyagintsev bendir á að það séu
fleiri slík atriði innan sögunnar
sem þjóni þeim tilgangi að skerpa
á ákveðnum hugmyndum og eigin-
leikum sem eru ríkjandi innan sam-
félagsins. Ágætt dæmi sé ömurlegt
samband móðurinnar við sína eigin
móður sem virðist ekki vilja hafa
neitt með hana að gera eða þær hvor
aðra. „Það sem við erum og það sem
við gerum er oft eins konar enduróm-
ur af okkar eigin æsku. Það er líka svo
auðvelt að skella skuldinni á foreldra
sína og segja: Ég er eins og ég er út af
foreldrum mínum og hvernig þau
lifðu sínu lífi. En það er óábyrgt. Við
verðum sjálf að taka ábyrgð á okkar
eigin lífi. Eigum ekkert með að skella
skuldinni af okkar eigin mistökum
á aðra. Fullorðið fólk á ekkert með
að skella skuldinni á foreldra sína
fremur en að samfélag geti réttlætt
sig með sinni sögu.“
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r56 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
1
D
-C
2
6
8
1
F
1
D
-C
1
2
C
1
F
1
D
-B
F
F
0
1
F
1
D
-B
E
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K