Fréttablaðið - 03.03.2018, Qupperneq 122
Auglýsingin er 90 sekúndur í heild en verður sýnd í þremur 30 sekúndna pörtum. Það er verið að aug-lýsa nýtt Toy Story-
land sem verður opnað í Flórída í
júní,“ segir leikstjórinn Samúel Bjarki
Pétursson spurður út í auglýsinguna
fyrir Disney og Pixar sem hann leik-
stýrði ásamt Gunnari Páli Ólafssyni.
„Auglýsingin fjallar um Pixar-boltann
sem margir kannast við, sem rúllar í
gegnum alla Ameríku. Svo kemur
Slingur, gormahundurinn úr Toy
Story, og byrjar að elta boltann.“
Auglýsingin var tekin upp í New
York, San Fransisco, Los Angeles og
Flórída. Samúel segir vinnuna á bak
við auglýsinguna hafa gengið vel,
fyrir utan byl sem gekk yfir New
York-borg í janúar, hann setti strik
í reikninginn. „Við byrjuðum sem
sagt að taka upp í byrjun janúar
í New York. Tökur tóku um tvær
vikur og svo er auglýsingin búin að
vera í eftirvinnslu í tvo mánuði hjá
tveimur stærstu eftirvinnslufyrir-
tækjum heims, Pixar og The Mill. Þar
er hópur fólks, tugir ef ekki hundruð
manna að teikna og púsla öllu saman
– og mála snjóinn í New York út,“
útskýrir Samúel.
„Við vorum þrír Íslendingar að
vinna að auglýsingunni, sem sagt
við Gunnar sem leikstýrðum og svo
Óttar Guðnason tökumaður sem
skaut auglýsinguna. Svo vorum við
með stórt tökulið með okkur.“
35-40 milljónir áhorfenda
Spurður út í hvort þetta sé stærsta
auglýsing sem þeir félagar hafa unnið
að svarar Samúel neitandi. „Nei, við
höfum unnið að auglýsingum sem
hafa verið stærri í sniðum, en þetta
er örugglega sú auglýsing okkar sem
fær besta útsendingartímann. Þessi
auglýsingatími, í útsendingu Óskars-
verðlaunanna, er bestur á eftir aug-
lýsingahléunum í Super Bowl,“ segir
Samúel en talið er að auglýsingin
muni ná til 35-40 milljón áhorfenda
í Bandaríkjunum.
Aðspurður hvort að þeir séu
stressaðir fyrir frumsýningu aug-
lýsingarinnar segir Samúel: „Nei,
við erum miklu frekar spenntir að
fá viðbrögðin. Og oft í kjölfarið á
svona frumsýningum koma fleiri
tilboð,“ segir Samúel.
„Eini gallinn við að horfa á
útsendingu Óskarsins í íslensku
sjónvarpi er að bandarísku aug-
lýsingarnar eru klipptar út,“ segir
hann og skellir upp úr. „Þannig að
við erum í smá vandræðum með
að sjá þetta sjálfir og njóta, því ekki
viljum við fara ólöglegu leiðina og
streyma bandarísku útsendingunni.
Það kemur ekki til greina.“
Meira drama í Ameríku
Samúel og Gunnar vinna líka að
gerð íslenskra auglýsinga og það
er töluverður munur á að vinna að
amerískri auglýsingu og íslenskri
auglýsingu að sögn Samúels. „Amer-
ískar auglýsingar eru alltaf svolítið
– amerískar,“ segir hann og hlær. „Í
Ameríku er aðeins meira drama.“
Þó að þeir Samúel og Gunnar séu
komnir inn á Ameríkumarkaðinn
eru þeir hvergi nærri hættir að
vinna að íslenskum auglýsingum
enda gengur þeim vel hér á landi,
til dæmis í gegnum fyrirtæki þeirra
Skot Productions sem þeir eiga
ásamt Ingu Lind Karlsdóttur og
Hlyni Sigurðssyni.
„Það er mikið að gera hér heima.
Við vorum til dæmis í fyrradag að
fá tvær tilnefningar til Lúðursins,
íslensku auglýsingaverðlaunanna,
fyrir bestu sjónvarpsauglýsinguna,
og ásamt öðrum leikstjórum Skots
eru tilnefningarnar átta talsins. Við
höfum svo verið að aðstoða unga og
efnilega leikstjóra hér heima við að
koma sér á framfæri,“ segir Samúel.
Hann bætir við að það sé margt
spennandi á döfinni sem hann má
þó ekki segja frá alveg strax.
gudnyhronn@frettabladid.is
Frumsýna í eftirsóttu
auglýsingahléi Óskarsins
Óskarsverðlaunahátíðin fer fram á sunnudaginn og leikstjórarnir
Samúel Bjarki og Gunnar Páll munu eiga þar hlut að máli þegar aug-
lýsing þeirra fyrir Disney og Pixar verður frumsýnd í auglýsingahléi.
Óttar Guðnason smellti þessari mynd af Gunnari og Samúel á setti í Los Angeles, nánar tiltekið á gervimatsölustað
sem hefur verið notaður í fjölmargar Hollywood-myndir. MYND/ÓTTAR
Toy Story-hundurinn kemur við sögu auglýsingunni. NORDICPHOTOS/AFP
Þetta er örugglega
sú auglýsing okkar
sem Fær besta útsendingar-
tímann. Þessi auglýsinga-
tími, í útsendingu Óskars-
verðlaunanna, er bestur á
eFtir auglýsingahléunum í
super bowl
Fréttablaðið.is
stendur undir nafni
Lifandi fréttamiðill með
nýjustu fréttum allan
sólarhringinn ásamt ítarlegri
umöllun um málefni
líðandi stundar.
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r70 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
1
D
-C
C
4
8
1
F
1
D
-C
B
0
C
1
F
1
D
-C
9
D
0
1
F
1
D
-C
8
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K