Myndmál - 01.07.1983, Blaðsíða 28

Myndmál - 01.07.1983, Blaðsíða 28
THE HOWLING í hinn myndarlega sýningar- sal við Snorrabraut sem daglega gengur undir nafninu Austur- bæjarbíó, eru væntanlegar spennandi myndir. Þar má nefna hrollvekjuna The Howl- ing eftir Joe Dante með Dee Wallace og Patrick McNee í aðalhlutverkunum. Hugrökk sjónvarpsfrétta- kona, samþykkir hættulegt stefnumót vegna vonar um góða frétt. Hún á að hitta morð- óðan brjálæðing sem skelft hef- ur íbúa Los Angeles með sund- urkrömdum líkum, og hyggst síðan afhenda lögreglunni brjálæðinginn. En þegar til á að taka hefur lögreglan einhvern- veginn gufað upp. Fréttakonan er stödd á dimmum, skuggaleg- um stað þegar hún uppgötvar ógreinilegar útlínur einhvers- konar veru með leiftrandi, grimmdarleg augu. Hún skynj- ar nærveru illra afla og ekki mannlegra . . . „Ýlfrið“ er hafið. THE WICKED LADY Nýlega var frumsýnd í Bret- landi, endurgerð hinnar „klass- ísku“ kvikmyndar The Wicked Lady, leikstýrð af Michael Winner og með Fay Dunway, Alan Bates og John Gielgud í helstu hlutverkum. Þessi mynd er væntanleg í Austurbæjarbíó innan tíðar. Myndin er byggð á sögu Magdalen King-Hall The Life and Death of the Wicked Lady Skelton og greinir frá Lady Skelton (Dunway) sem giftist brúðguma bestu vinkonu sinnar en verður siðan leið á sveitalíf- inu og gerist þjóðvegaræningi. Sá eini sem grunar hana um hið tvöfalda liferni er dyggur fjöl- skylduþjónn (Gielgud). Lady Skelton ákveður að byrla hon- 28 MYNDMÁL um eitur en það tekur timann sinn. Á meðan kynnist hún karl- kyns þjóðvegaræningja (Bates) og lenda þau í ýmsum ævintýr- um þar til Lady Skelton upp- götvar að Jackson (ræninginn) er í tygjum við aðra konu. Hún ákveður að svíkja hann í hendur yfirvaldanna . . . The Wicked Lady olli nokkru umróti þegar hún var frum- sýnd. Breska kvikmyndaeftir- litið vildi klippa nokkur atriði úr myndinni sem þóttu gróf en Winner stóð fyrir allsherjar her- ferð um landið allt gegn þessum fyrirætlunum með þeim afleið- ingum að kvikmyndaeftirlitið varð að láta í minni pokann. LAUGARÁ THE THING í Laugarásbíó er væntanleg innan tíðar, hin þekkta og vin- sæla hrollvekja John Carpenter, The Thing. Myndin segir frá hópi vísindamanna á Norður- pólnum, þar sem þeir komast i kast við eitthvað algerlega óskil- greint fyrirbæri sem sest að í líkömum þeirra og breytir þeim í skrýmsli. Eins og sjá má af þessari lýsingu hefur Carpenter athyglisvert hugmyndaflug og spennandi verður að sjá hvernig honum tekst að beisla það. Man is the warmest place to hide GHOSTSTORY Önnur hrollvekja og ekki síðri birtist bráðum á sama stað. Ghost Story kallast myndin eft- ir samnefndri metsölubók Peter Straub. Leikstjóri er John Irvin og aðalhlutverkin eru ekki í höndum neinna smákalla, Fred Astaire, Melvyn Douglas, Douglas Fairbanks Jr. og John Houseman. Sears, Ricky, Edward og John hafa löngum haft ánægju af að hittast og skrafa saman. Þeir ræða ýmsa hluti en einna oftast segja þeir hver öðrum frá óhugnanlegum atburðum sem erfitt er að fá nokkurn botn í. En það er fleira sem gerist þarna en sögur, sem þeir félagar segja hver öðrum. David, sem er son- ur Edwards, verður var við konu í íbúð sinni að morgni dags. Konan liggur nakin í rúmi hans. Hann kannast ekki við hana en hún svarar honum þeg- ar hann ávatpar hana. Þegar hann ætlar að velta henni við til þess að sjá andlit hennar, finnur hann að hún er köld. Svo snýr hann henni og þá er andlit henn- ar afmyndað og augun tryllings- leg. Honum verður svo um þetta að hann hrökklast aftur- ábak út um glugga og hrapar niður á jafnsléttu þar sem hann bíður samstundis bana. Edward kallar son sinn, Don, þegar heim vegna þessa hroða- lega atburðar sem engin skýring finnst á. Don er helst þeirrar skoðunar að David muni hafa verið drepinn en getur þó ekki sannað það eða skýrt. En þarna er skammt válegra atburða á milli, því nokkru síðar sést til Edwards, þar sem hann er staddur á brú við bæinn en síð- an hrapar hann af henni og bíð- ur bana. Það er ljóst að einhver ókennileg og fjandsamleg öfl eru að verki í umhverfi þeirra og verður sumu af því sem gerist ekki lýst í stuttu máli, enda er sjón jafnan sögu ríkari . . . MY BLOODY VALENTINE Háskólabíó tekur brátt til sýninga blóði drifna hryllings- mynd eftir George Mihalka sem nefnist því huggulega nafni My Bloody Valentine. Sagan gerist í bandarískum smábæ á austur- ströndinni. Hanninger námu- félagið er helsti atvinnuveitandi staðarins og hefur svo verið allt frá árinu 1800. Tuttugu árum áður en sagan hefst, varð slys í námunum sem varð fimm manns að bana. Orsök slyssins var athugunarleysi tveggja verkstjóra sem höfðu yfirgefið eftirlitsskálann, án þess að athuga styrk metan-gassins í námunum, til þess að komast á dansleik í þorpinu í tilefni St. Valentine dágsins. Það tók síð- an sex vikur að finna fórnar- lömbin og sá eini sem lifði, hafði étið dauða félaga sína til að halda lífi. Hann er síðan sett- ur á geðveikrahæli en kemur svo á St. Valentine deginum ári síðar til þorpsins, klæddur sem námuverkamaður. Hann finnur verkstjórana tvo, gengur frá þeim með öxi, sker úr þeim hjörtun og býr um þau í hjarta- laga boxum með þeirri aðvörun til þorpsbúa að halda daginn ekki hátíðlegan framar . . . Tuttugu árum siðar er þetta orðið að fjarlægri minningu og þorpsbúar undirbúa hátíð sína. En „námuverkamaðurinn" vill að fyrirmæli hans séu virt og sendir bæjarstjóranum áhrifa- mikla aðvörun . . . REDS Bíóáhorfendur eiga von á miklum glaðningi á Háskólabíó innan tíðar, sem er mynd Warren Beatty, Reds. Hún greinir frá bandaríska blaða- manninum John Reed, sem tók þátt í rússnesku byltingunni og vinkonu hans Louise Bryant (Diane Keaton). Einnig koma fram i myndinni Jack Nochol- son sem leikritaskáldið Eugene O’Neill og Maureen Stapleton sem róttæka kvenréttindakon- an Emma Goldman, en Staple- ton hlaut Óskarsverðlaun árið 1982 fyrir túlkun sína. Og tal- andi um Óskarsverðlaun þá má minna á að Reds var tilnefnd til 12 óskarsverðlauna 1982 og hlaut Warren Beatty þessi eftir- sóttu verðlaun fyrir leikstjórn Not since 'Gone With The Wind’ has there been a great romantic epic like Klilli sína og einnig hlaut kvikmynda- tökumaðurinn Vittorio Storaro (sem m.a. filmaði Apocalypse Now) óskarinn fyrir snilldar- handbragð sitt. Reds, er tvímælalaust í hópi mestu kvikmyndaafreka síðari tíma og mynd sem „allir verða að sjá“.

x

Myndmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.