Myndmál - 01.07.1983, Blaðsíða 29
SIX-PACK
Á næstunni hefjast sýningar
á myndinni Six Pack með
Kenny Rogers í aðalhlutverk-
inu. Þessi mynd segir frá
Brewster nokkrum Baker,
kappaksturshetju, sem ekki
hefur keppt i 2 ár vegna
meiðsla. Hann á leið um smá-
bæ í Texas, þar sem hann þarf
að fá bensín á bíl sinn og kasta
af sér vatni. Hann fer inná sal-
erni við litla bensínstöð en þeg-
ar hann ætlar út aftur hefur
hann verið lokaður inni. Eng-
inn sinnir köllum hans og loks
þegar honum tekst að brjótast
útúr prísundinni er búið að
stela nær öllu úr dýrgripnum
hans, kappakstursbíl sem
hann hefur haft aftan á pall-
inum á bíl sínum. Hann sér
ekkert til þjófanna því þeir
hafa forðað sér. Hann heldur
því áfram ferð sinni uns hann
kemur að matstofu. Þar ákveð-
ur hann að fá sér hressingu.
Meðan hann er þar inni tekur
hann eftir því að þjófar hafa
enn verið að verki við bílinn,
en nú sér hann hvar þeir
forða sér og eltir þá. Eltinga-
leiknum lyktar þannig að bíll
þjófanna lendir útí á þar sem
hann sekkur að meira eða
minna leyti. Baker tekst þó
að handsama þjófana, sex
talsins, sem reynast systkini,
sjö til sextán ára gömul. Við
eftirgrennslan kemur á daginn
að óprúttinn fógeti notar þessa
munaðarlausu krakka til að
stela bílahlutum. Baker tekur
börnin með sér, nauðugur
viljugur og hefur síðan keppni
á ýmsum stöðum. I ljós kem-
ur að krakkarnir eru hinir
bestu liðsmenn og lenda þau
í hinum margbreytilegustu
ævintýrum áður en tjaldið
fellur . . .
POLTERGEIST
Talandi um tjöld þá upplýs-
ist það hér með að myndin
sem allir hrollvekjuaðdáendur
hafa beðið eftir í heilt ár, nag-
andi á sér neglurnar, er á leið-
inni á hvíta tjald Nýja Bíós.
Hér er um að ræða mynd
Steven Spielbergs og Tobe
Hoopers: Poltergeist.
Ósköp venjuleg amerísk fjöl-
skylda, hjón með tvær dætur,
16 og 5 ára og einn son 12
ára lifir ósköp venjulegu lífi
þar til allt í einu að draugar
úr sjónvarpinu taka að herja
á fjölskyldulífið og ræna þeir
m. a. yngri dótturinni. Mynd-
in lýsir síðan baráttu fjöl-
skyldunnar með aðstoð sér-
fræðinga við að hrekja þenn-
an ófögnuð úr húsinu og kem-
ur þá í ljós að húsið er byggt
oná fornum kirkjugarði.
Sannarlega spennandi efni og
ætti fólki að geta runnið kalt
vatn milli skinns og hörunds og
jafnvU misst hjartað niður í
buxurnar því bellibrögðin ku
að vera meiriháttar, enda
voru þau tilnefnd til Óskars-
verðlauna 1983.
BÍÓUER
THE BERMUDA
TRIANGLE
Bíóbær sýnir um þessar
mundir, leikna heimildarkvik-
mynd eftir metsölubók Charles
Berlitz: Bermunda Triangle.
Bermúdaþrihyrningurinn,
hafsvæðið frá Miami, Florida
til Bermúdaeyja og Puerto
Rico, hefur lengi verið mönnum
mikil ráðgáta. í dagbók Kól-
umbusar Ameríkufara, er getið
um „Haf óttans. Þar segir frá
því að skyndilega hafi birst á
himninum furðuleg ljós og eld-
kúlur og áttavitinn hafi snúist í
hringi. Allt frá þeim tíma hafa
sögusagnir gengið um hafsvæð-
ið en það var ekki fyrr en árið
1800 þegar bandarískt herskip,
U.S.S. Pickering, hvarf ásamt
90 manna áhöfn að farið var að
skrá voveiflega atburði Ber-
múdaþríhyrningsins.
Margir ættu að kannast við
hið sögufræga Flug 19 sem
Steven Spielberg gerði m. a. skil
í mynd sinni Close Encounters
of the Third Kind. Árið 1945
hurfu fimm flugvélar ásamt
allri áhöfn, ekki fannst svo mik-
ið sem flís úr flugvélarskrokki.
Risastór leitarflugvél sem átti
að svipast um eftir Flugi 19
hvarf sömuleiðis gjörsamlega.
Margar tilgátur hafa verið
uppi um hvað raunverulega hafi
skeð. Sumir tala um gesti utan
úr geimnum, aðrir telja að hin
forna borg Atlantis hafi valdið
hvörfunum en sjón er sögu rík-
ari í Bíóbæ. Kvikmyndahúsið
býður uppá íslenskan þul með
myndinni sem er enginn annar
en Magnús Bjarnfreðsson.
THE TOY
Stjörnubíó mun taka til
sýninga nú á næstunni gaman-
myndina The Toy með Richard
Pryor og Jackie Gleason í aðal-
hlutverkunum. Pryor leikur
atvinnulausan blaðamann sem
er að fara að missa húsið sitt.
Hann verður þvi að taka hvaða
starfi sem býðst og fær loks
vinnu sem „þvottakona“ i stór-
verslun sem milljónamæringur-
inn U.S. Bates (Gleason) á. Þeg-
ar Eric (Scott Schwarz) 9 ára
gamall sonur milljónamærings-
ins kemur í hina árlegu viku-
heimsókn til föður sins, leyfist
honum hvað sem er. Hann kem-
ur í stórverslunina þar sem hann
fær það sem hann girnist. Eric
velur þvottakonuna fyrir leik-
fang og þó Brown (Pryor) sé lítt
hrifinn af þeim heiðri þá lætur
hann tilleiðast gegn vænni fjár-
fúlgu. Upphefst þá nýr kafli i
lífi Erics, sem aldrei áður hefur
átt vin. En það tekur hann
nokkurn tíma að læra að um-
gangast þennan vin sinn því
hann er vanastur að skipa öllum
fyrir i nafni sjálfs síns og föður
síns . .
MYNDMÁL 29
HANKY PANKY
Önnur gamanmynd er vænt-
anleg i Stjörnubíó innan tíðar,
Hanky Panky með Gene Wilder
og Gildu Radner. Leikstjóri er
Sidney Poitier.
Michael Jordon (Wilder) er
staddur í New York. Fyrir til-
viljun hittir hann unga stúlku,
Janet Dunn (Kathleen Quinlan)
sem biður hann að setja pakka í
póst fyrir sig sem hann og gerir.
Sama kvöld fer Jordon í fjöl-
leikahús. Áður en hann veit af
er hann í höndum bófa sem vilja
fá að vita hvert áðurnefndur
pakki var sendur. Jordon man
ekki heimilisfangið en bófarnir
gefa honum sprautu svo hann
leysi frá skjóðunni. Þegar hann
raknar úr rotinu þakka þeir
honum fyrir aðstoðina en segja
honum jafnframt að dagar hans
séu taldir. Jordon er ekki alveg
á því enda annt um líftóruna og
tekst að sleppa. En þegar hann
leitar á náðir lögreglunnar, er
hlegið að honum. Jordon er þó
ákveðinn að komast til botns í
málinu og sitthvað spennandi
gerist áður en yfir lýkur.
GANDHI
Þann 10. ágúst n.k. stendur
bíóið fyrir sýningu á heimsvið-
burði. Hér er um að ræða stór-
myndina Gandhi eftir Sir
Richard Attenborough, sem
hlaut 8 óskarsverðlaun í apríl
sl„ þ.á.m. Bestu myndina,
Besta leikstjórann og Besta
karlleikarann. Hér annarsstað-
ar í blaðinu er ítarleg grein um
þessa mynd og visum við á hana
til frekari upplýsinga.