Myndmál - 01.07.1983, Síða 31
CHINO — HINN
ÓSIGRANDI
Aðalhlutverk: CHARLES
BRONSON, JILL
IRELAND, MARCEL
BOZZUFFI.
Leikstjóri: JOHN STURGES.
Myndin gerist í Nýja-Mexikó
í Bandaríkjunum árið 1880 og
fjallar um Chino Valdez, sem er
í senn af ættum indíána og
Mexíkana. Hann hefur mikla
ást á hestum, en það hindrar þó
ekki, að hann felli hug til
Louise, sem er dóttir félaga
hans, misindismanns að nafni
Maral.
Þegar Chino kynnist einnig
Jamie, sem er eins mikið nátt-
úrubarn og hann, verður hann
fráhverfur Louise á ný, en þá
ákveður Maral að hefna sín og
sendir menn til árásar á Chino.
Þegar árásarmennirnir ætla að
ræna hestum Chinos, sleppir
hann þeim lausum, svo að þeir
traðka bógana til bana. Síðan
kveikir Chino í býli sínu og
Jamie horfir á það með tárin í
augunum, er hann leggur ævi-
starf sitt í rúst.
VILLIGÆSIRNAR
Aðalhlutverk: RICHARD’
BURTON, ROGER
MOORE, o.m.fl.
Leikstjóri: ANDREW V.
McLAGLEN
Breskur iðjuhöldur Sir
Eward Matherson ræður Allen
Faulkner höfuðsmann, einn
besta málaliða sem völ er á, til
að taka að sér verkefni, — fara
til Afríku og sækja þangað
þjóðhöfðingja sem hafður er í
haldi. — Faulkner safnar um sig
gömlum félögum, hörkukörl-
um og eftir mikla þjálfun er lagt
af stað. — En þetta verður ör-
lagarik ferð, — miklir bardag-
ar, svik og óvæntar árásir. Það
eru ekki miklar líkur á að nokk-
ur komist lífs heim, en Faulkner
og menn hans eru harðir í horn
að taka.
Litur — 125 mín.
TATARALESTIN
Aðalhlutverk: CHARLOTTE
RAMPLING, DAVID
BIRNEY, MICHAEL
LONSDALE.
Leikstjóri: GEOFFREY
REEVE.
Hörkuspennandi bresk saka-
málamynd, gerð eftir sam-
nefndri sögu Alistair Mac-
Lean’s. Á fáförnum vegi í
hrjóstrugri fjallshlíð í Suður-
Frakklandi er tataravagn á ferð
sem heitið er til hinnar árlegu
tatarahátíðar í Saint-Máties-de-
la-Mer i Camargue héraði. Við
stjórnvölinn sitja maður og
kona sem eiga langa og hættu-
lega leið að baki því í vagninum
leynist farþegi sem þau hafa
smyglað yfir mörg landamæri
en sá er frægur vísindamaður
sem ætlunin er að senda til
Bandaríkjanna. En þeim órar
þó ekki fyrir því að á næsta leiti
leynist vopnaður maður sem
hyggst veita þeim fyrirsát og
brátt taka hjól atburðarásarinn-
ar að snúast fyrir alvöru.
Litur — ísl. texti.
LOKATILRAUN.
Aðalhlutverk: GENEVIEVE
BUJOLD, MICHAEL YORK.
Leikstjóri: PAUL ALMOND.
Nicole Thompson er sjón-
varpsfréttaritari í Kanada. —
Þegar forsætisráðherra lands-
ins fer í opinbera heimsókn til
Sovétríkjanna, fer hún með sem
fréttaritari. Nicole er frökk og
ákveðin, og kemst því fljótt i
kast við kerfið, verður ástfang-
in, en svo kynnist hún Dr.
Valentine Ulanov sem er vís-
indamaður og Nobelsverð-
launahafi, og þau kynni verða
örlagarík fyrir Nicole.
Litur — 105 mín.
JÁRNKROSSINN.
Aðalhlutverk: JAMES
COBURN, MAXIMILIAN
SCHELL, JAMES MASON,
DAVID WARNER.
Leikstjóri: SAM
PECKINPAH.
Myndin gerist á austurvíg-
stöðvunum árið 1943. Þýski
herinn er á hröðu undanhaldi og
mannfallið er gífurlegt. Steiner
liðþjálfi er sannur og þraut-
reyndur hermaður af gamla
skólanum, tryggur undirmönn-
um sínum en hefur ógeð á
,,skrifstofuforingjunum“ sem
hann kallar svo.
Nýr foringi kemur til her-
deildarinnar, Kaft. Stransky,
prússneskur ,,aðalsmaður“ sem
er þarna sem sjálfboðaliði, fyrst
og fremst til að vinna til þess að
fá hinn fræga járnkross á
brjóstið. Þetta er einmitt sú
manngerð sem Steiner hatar og
veldur það Brandt höfuðs-
manni, sem er yfirmaður þarna,
áhyggjum. Og það er ekki af
ástæðulausu, en mikil og stór-
kostleg átök eiga sér stað, áður
en til uppgjörs kemur milli þess-
ara ólíku manna.
Litur — ísl. texti.
FIÐRILDIÐ
Aðalhlutverk: PIA ZADORA,
STACY KEACH.
Leikstjóri: MATT CIMBER.
Jess Tyler er heldur einrænn
og hefur lifað einmanalegu lífi
eftir að kona hans hafði yfirgef-
ið hann og tekið með sér tvær
dætur þeirra. Hann er umsjón-
armaður við gamla silfurnámu
sem ekki er lengur starfrækt, og
mjög afskekkt. — En einn dag
verður gjörbreyting þegar ung
falleg stúlka, hin 17 ára Kady
kemur i heimsókn. Hún kveðst
vera yngri dóttir hans, og ætla
að dvelja hjá honum. — Þetta
verður örlagaríkt fyrir þau bæði
og á eftir að hafa ýmsar afleið-
ingar.
Litur — 110 mín.
CANNONBALL
Aðalhlutverk: DAVID
CARRADINE, BILL
McKINNEY, VERONICA
HAMMEL.
Leikstjóri: PAUL BARTEL.
Cannonball er heitið á æsi-
spennandi ólöglegri kappakst-
urskeppni yfir þver Bandaríkin.
Verðlaunin eru hálf milljón
dollara og öll brögð leyfileg.
Litur —
CANNON BALL RUN
Aðalhlutverk: BURT
REYNOLDS, ROGER
MOORE.
Leikstjóri: HAL NEEDHAM.
Mikill kappakstur þvert yfir
Bandaríkin. — Það er mislitur
hópur sem mætir til leiks, og
farartækin eftir því, en allar
gerðir bíla eru leyfilegar. —
Þetta er æsispennandi keppni,
öll brögð eru notuð og margt
furðulegt og skoplegt gerist, —
enda löng leið!!
Litur — 105 mín.
ÁRÁSIN Á ENTEBBE
Aðalhlutverk: PETER FINCH,
CHARLES BRONSON,
YAPHET KOTTO.
Leikstjóri: IRVIN
KERSHNER.
27. júní 1976 var flugvél frá
Air France rænt af sjö palest-
ínskum hryðjuverkamönnum,
en hún var á ferð milli Tel Aviv
í ísrael og Parísar. Flugvélinni
var síðan flogið alla leið til
Entebbe-flugvallar í Uganda.
Kröfur hryðjuverkamannanna
voru nokkrir tugir félaga þeirra
yrðu látnir lausir úr fangelsum í
Frakklandi, Þýskalandi og
Sviss, en flestir þó í ísrael. Með-
an tíminn var tafinn í viðræðum
við flugræningjana undir-
bjuggu ísraelar herför til
Uganda til bjargar gíslunum.
Tókst að koma hryðjuverka-
mönnunum og félögum þeirra í
her Uganda gersamlega á óvart
og voru hinir fyrrnefndu allir
felldir, auk margra Uganda-
manna. Úr liði ísrael féll aðeins
einn. Einn gíslanna var hins
vegar á sjúkrahúsi í Kampala,
og var hún myrt að undirlagi
Amins.
Litur — 113 mín.
MYNDMÁL 31