Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Síða 6
6 9. mars 2018fréttir
Tvífarar
vikunnar
Tvífarar vikunnar að þessu sinni
eru vinsælasti rannsóknarlög-
reglumaður landsins, Grímur
Grímsson, og tónlistarmaður-
inn Megas. Grímur og Megas
eiga það sameiginlegt að vera
frábærir í sínu fagi.
Hvaða ár?
n Íslenska hljómsveitin
GusGus var stofnuð
n Ögmundur Jónasson settist
fyrst á þing
n Bandaríska kvikmyndin Die
Hard with a Vengeance var
frumsýnd
n DVD-diskar voru kynntir til
sögunnar
Svar: Árið 1995
Hver er
hann
n Er 45 ára gamall,
fimm barna faðir og
uppalinn Breiðhyltingur
n Skrifaði íslenska
þýðingu söngleiksins
The Commitments
n Er mikill hjólreiðamaður og var
verslunarstjóri í Erninum um tíma
n Var í framboði fyrir Borgarahreyf-
inguna 2009 og Dögun 2013 og
2016 en náði ekki inn
n Var kjörinn formaður verkalýðs-
félags árið 2017 með 63 prósentum
atkvæða
Svar: ragnar Þór ingólfSSon
Ö
gmundur Jónasson, fyrrver-
andi ráðherra, segir það í
besta falli hlægilegt að halda
því fram að þingmenn og
ráðherrar geti ekki afsalað sér laun-
um og hlunnindum. Í versta falli
sé um að ræða samtryggingarkerfi
ráðamanna og embættismanna.
Ögmundur var ráðherra í rúma
40 mánuði í ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur. Fyrst heilbrigðis-
ráðherra árið 2009, dómsmála-
ráðherra árið 2010 og innanríkis-
ráðherra frá 2011 til 2013. DV
fjallaði ítarlega um greiðslur til
þingmanna í síðustu viku en margt
er á reiki um hvort þingmenn
geti afþakkað greiðslur til
sín frá Alþingi eða ekki.
Í umfjölluninni kom
fram að Ögmundur
afsalaði sér ráð-
herralaunum og
þáði aðeins þing-
fararkaup í tíð sinni
sem ráðherra.
Helgi Bern-
ódusson, skrif-
stofustjóri Al-
þingis, sagði að
þingmenn gætu
ekki afþakkað starfs-
greiðslur. „Það er
ekki hægt að segja sig
frá þessu.“ Varðandi ráð-
herralaun segir Helgi þau
vera á vegum stjórnarráðsins.
„Ráðherralaunin eru tvískipt.
Annars vegar þingfararkaup-
ið og hins vegar ráðherra-
parturinn. Við greiðum
þingfararkaupið, við höfum
ekkert með hitt að segja,“
sagði Helgi.
Gunnar Björnsson,
skrifstofustjóri kjara- og
mannauðssýslu ríkisins, segir í svari
við fyrirspurn DV að það sé ekki
hægt að afþakka ráðherralaun. „Það
eiga sömu reglur við hvað varðar
möguleika á að afþakka greiðslur og
gilda varðandi greiðslur frá þinginu,
þar sem þær eru lögbundnar er ekki
hægt að afþakka þær.“ Þetta þýðir að
sömu reglur gilda um greiðslurnar
sem Ögmundur afþakkaði og
greiðslurnar sem skrifstofustjóri Al-
þingis segir að sé ekki hægt að af-
þakka.
Í besta falli hlægilegt
DV bar þetta undir Ögmund sem
var nokkuð skemmt við svar skrif-
stofustjórans. „Ef Gunnar
Björnsson telur sig þess
umkominn að lýsa því yfir fyrir
hönd ríkissjóðs að ekki sé hægt að
afsala sér ráðherralaunum eins
og ég gerði þá vaknar sú spurning
hvort hann hafi umboð til að gera
þetta meinta lagabrot mitt upp og
þá væntanlega einnig fyrir hönd
ríkissjóðs,“ segir Ögmundur. Sam-
kvæmt lauslegum útreikningum
Ögmundar þá þýðir þetta að ríkis-
sjóður skuldi honum rúmlega 29
milljónir króna fyrir mánuðina
40 ef miðað er við launin sem
ákvörðuð voru af kjararáði árið
2016. Ef miðað sé við upphæðirnar
sem voru í gildi á ráðherra-
tíma Ögmundar sé upp-
hæðin hins vegar nær 20
milljónum.
Aðspurður hvað
Ögmundur hafi gert til að afþakka
launin, hvort hann hafi leitað til
skrifstofu Alþingis eða skrifað Fjár-
sýslu ríkisins, segir Ögmundur.
„Ég man ekkert hvað ég gerði
enda skiptir það engu máli. Það
eina sem máli skiptir er niðurstað-
an. Og hún var þessi. Allt tal um að
þetta sé ómögulegt bæði varðandi
afsal ráðherralauna eða hlunninda
þingmanna er í besta falli hlægi-
legt. Í versta falli erum við að verða
vitni að samtryggingarkerfi læsa að
sér. „Ég bara gat ekki annað, annars
hefði ég brotið lög, mamma bann-
ar mér að leifa matnum!“ Veruleik-
inn hlýtur hreinlega að vera sá að
lögin vísi til þess eins að ekki sé
hægt að krefjast meira en þau
kveða á um en að sjálfsögðu ekki
til hins að taka minna í sinn hlut
en þau heimila. Fyrr mætti nú
vera. Fyrr má rota en dauðrota.“
Ætlar þú að sækja þessar 29
milljónir?
„Að sjálfsögðu ekki. Ekki
nú fremur en fyrri daginn.
En væntanlega munu
Gunnar Björnsson og
ríkissjóður eiga það við
samvisku sína hvernig
þeir snúa sér gagnvart
þessu meinta lögbroti
mínu.“ n
Útreikningar
Ögmundar
- Þingfararkaup er 1.101.194 kr. á
mánuði miðað við úrskurð kjararáðs.
- Ráðherralaun eru 1.826.273 kr. á
mánuði.
- Mismunur er 725.079 kr.
- Ögmundur var ráðherra í 40 mánuði.
725.079 x 40 =
29.003.160 kr.
29 milljónir
á Ögmundur inni
Afsalaði sér ráðherralaunum og gefur lítið fyrir skýringar um að það sé ekki hægt
ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Ögmundur Jónasson
Fyrrverandi ráðherra.
Framleiða íslenskan ost úr sænskri mjólk
Í
byrjun árs kynnti Kú mjólkurbú
ostinn Glaðning með pomp og
prakt. Um er að ræða fyrsta líf-
ræna hvítmygluostinn á mark-
aðinum. Osturinn er þó ekki síð-
ur merkilegur fyrir þær sakir að
hann er búinn til úr lífrænni mjólk
frá Svíþjóð, sem er sérstaklega flutt
inn til landsins vegna framleiðsl-
unnar. Ekki er ólíklegt að þetta sé
í fyrsta skipti sem mjólk er flutt inn
til ostaframleiðslu. „Þetta helg-
ast af því að það er ekki framleitt
nægilega mikið magn af lífrænni
mjólk hér á landi,“ segir Guðni Þór
Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Stjórnendur fyrirtækisins hafi
því ákveðið að fara þessa leið og
flytja inn sænska mjólk. „Þetta er
fyrsti osturinn sem við framleiðum
með mjólk erlendis frá. Það má því
segja að um tilraunaverkefni sé að
ræða en þetta fer ágætlega af stað,“
segir Guðni.
Kú mjólkurbú var stofnað árið
2009 af Ólafi Magnússyni og hóf
framleiðslu ári síðar. Markmið
fyrirtækisins hefur frá upphafi
verið að berjast gegn fákeppni á
mjólkurmarkaði. Í júní 2017 var
tilkynnt um kaup Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar á fyrirtækinu. n
Sænskur glaðningur Hvítmygluosturinn
lífræni er búinn til úr sænskri mjólk.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Megas og grímur