Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Síða 33
KYNNINGARBLAÐ
Brot af því besta
9. mars 2018 Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
ÚtfaRaRþjónuSta RÚnaRS GeiRmundSSonaR
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á höfuð
borgarsvæðinu. Rúnar hefur alla tíð
veitt fyrirtækinu forstöðu sem fram
kvæmdastjóri þess og útfararstjóri.
Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og
eiginkonu hans, Kristínar Sigurðar
dóttur, og starfa synir þeirra, elís og
Sigurður, þar ásamt föður sínum.
orðsporið skiptir útfararþjónustu
miklu. „ef maður sinnir sínu starfi
vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur þrjátíu ára reynslu
af útfararþjónustu. „fyrst og fremst
þarf að taka tillit til þess að fólk er í
sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum
að gæta að því sem við gerum og
segjum og eins að nálgast fólk með
hlýju og auðmýkt. það getur verið
mjög erfitt að bjóða fólki við þessar
aðstæður þjónustu gegn greiðslu en
þetta hefur lærst í gegnum árin og
við tökum mikið tillit til þess hvernig
aðstæður eru hverju sinni,“ segir
hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum við hefð
bundna útfararþjónustu er Rúnar
Geirmundsson formaður félags
íslenskra útfararstjóra. félagið hefur
verið starfrækt í yfir áratug og hefur
Rúnar verið formaður þess allt frá
upphafi. aðaltilgangur félagsins er
skapa vettvang til að halda utan um
siðareglur útfararstjóra. „Starf mitt
sem formaður felst aðallega í því að
halda utan um fundastarf og fram
fylgja reglum og samþykktum aðal
funda. Ég sæki einnig fundi erlendis
enda á félagið í talsverðum erlendum
samskiptum. Siðareglur evrópskra
útfararstjóra eru til að mynda grunn
ur íslensku siðareglnanna,“ segir
Rúnar. ekki er lagaleg skylda að
útfararstjóra séu í félaginu en nánast
allir starfandi útfararstjórar eru þó
félagsmenn og hafa undirritað siðar
eglur félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við útfarar
þjónustu frá því 1983, fyrst hjá
Kirkjugörðunum og síðan í eigin
fyrirtæki. aðspurður segist hann
hafa lært það á löngum ferli að það
skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk
aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú
yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé
alltaf í forgrunni. „og það þurfum við
alltaf að hafa í huga, án þess að taka
afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt
og virðing er það leiðarljós sem við
fylgjum alltaf.
þegar andlát ber að garði er mikil
vægt að hafa samband við útfarar
þjónustu sem fyrst,“ segir Rúnar. „Í
fyrsta lagi þarf að flytja hinn látna
af dánarstað og í líkhús og síðan að
byrja að undirbúa kistulagninguna.
Útfararstjórinn heimsækir yfirleitt
aðstandendur daginn eftir og þeir
leggja þá fram óskir sínar varðandi
framkvæmd kistulagningar og síðan
jarðarfarar. Í því felst í flestum tilfell
um að velja prest eða athafnarstjóra
og síðan að tímasetja allar athafnir
og bóka grafartöku eða bálför.
næsta skref er svo að ákveða hvað
kemur í okkar hlut að sinna en við
sjáum um allt er lýtur að undirbúningi
og framkvæmd útfara. til að mynda
höldum við utan um öll samskipti við
aðstandendur, tónlistarfólk, kirkjur,
blómabúðir, kirkjugarða og alla þá
sem koma að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars Geirmunds
sonar leggur mikið upp úr því að
vera með fallegar kistur á góðu verði
sem standast ströngustu kröfur
um umhverfisvernd. algengastar
eru hinar hefðbundnu hvítu kistur
en alltaf er eitthvað um að fólk vilji
harðviðar kistur, til dæmis eik eða
mahóní. Val á kistum getur vafist
fyrir aðstandendum enda úrvalið
nokkuð. „Við eigum umhverfisvæn
ar og fallegar hefðbundnar hvítar
kistur, sem eru algengastar, en einnig
töluvert úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta
sinn á Íslandi hefur Útfararþjónusta
Rúnars Geirmundssonar nú látið
hanna og smíða íslenskar kistur úr
íslenskum við í samstarfi við þorstein
B. jónmundsson trésmið. „Við höfum
hannað sérstaka kistu og duftker út
frá hugmyndinni um íslenska kistu úr
alíslenskum við til brennslu og jarð
setningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar
eru úr við sem er unninn og þurrkaður
í Hallormsstaðarskógi. „þessi kista er
mjög falleg, úr grófum við og ólökkuð
eða máluð á náttúrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er að finna á
utfarir.is eða í síma 567-9110 allan
sólarhringinn, alla daga ársins.