Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Page 42
42 fólk - viðtal 9. mars 2018
Þ
ú ert 22 ára. Þú stendur í röð
fyrir utan Hótel Ísland ásamt
vinkonum þínum. Sumri er
tekið að halla og það er að-
eins svalt. Sólin rúllar eftir sjón-
deildarhringnum og brátt slökkvir
nótt dag. Ein vinsælasta hljómsveit
landsins, Sálin hans Jóns míns
mun fljótlega stíga á svið.
Árið er 1997.
Þú veist ekki að í kvöld mun líf
þitt breytast til frambúðar. Þið far-
ið inn hlæjandi og fullar tilhlökk-
unar. Svo kemur þú auga á hann.
Ungan og ljóshærðan. Þú veist
ekki að á þessari stundu ertu að
horfa á manninn sem verður sam-
býlismaður þinn. Faðir barnanna
þinna. Þið verðið saman í tvo ára-
tugi. Börnin verða þrjú, ljósgeisl-
ar í lífi þínu og foreldra þinna. Þú
átt eftir að verða svo ástfangin. Þú
munt aldrei trúa neinu slæmu upp
á hann.
Þar til hann fer að berja þig.
Og þá hrynur heimurinn. Þú
finnur líkamlegan sársauka en það
er sálin sem rotast og ástin deyr.
Undir hvítri skyrtunni er svört
brynja full af myrkri. Þú veist
ekki á þessari stundu, þar sem þú
stendur á dansgólfinu á Hótel Ís-
landi, að þessi maður á eftir að
gera þig skelfingu lostna. Þér hefði
aldrei dottið í hug að hann myndi
elta þig með hníf á lofti eins og í
hryllingsmynd.
Þegar þér loksins, mörgum,
mörgum árum síðar tekst að fylla
þig hugrekki til að flýja með börnin
bregst kerfið okkar þér. Kerfið sem
á að passa upp á þig. Þremur árum
síðar er kerfið enn að bregðast þér.
Þú færð ekki nálgunarbann,
þrátt fyrir að bera neyðarhnapp.
Þremur árum eftir flóttann mikla
á enn eftir að skipta eignum ykkar
þrátt fyrir að dómstólar hafi dæmt
þér í vil. Hann ferðast um heim-
inn, leikur sér og tefur málið með
lögfræðingum.
Eftir að þú skilur við manninn
á hann eftir að verða þjóðþekktur
þegar hann er kærður og grunað-
ur um að beita aðra konu skelfi-
legu ofbeldi í Texas. Er hann kall-
aður Texas-hrottinn í fjölmiðlum.
Það samband stendur stutt yfir. Sú
kona fær nálgunarbann, ekki þú.
Hún fær bætur, ekki þú. Þú missir
næstum trúna á réttlætið en neit-
ar svo að gefast upp. Þú ákveður að
stíga fram og segja sögu þína.
Fyrir þig og fyrir aðrar konur.
Lífið snerist um skíði
„Ekkert skipti var samt jafn slæmt
og kvöldið sem hann reyndi að
kyrkja mig. Ég man það eins og það
hafi gerst í gær. Hvernig ég barð-
ist á móti, sá brjálæðisglampann í
augunum á honum, hélt að þetta
væri mitt síðasta. Ég hugsaði til
ykkar, að þið yrðuð móðurlausar.
Ætli það hafi ekki gefið mér þann
fítonskraft sem ég fékk til að losa
hann ofan af mér.“
Þetta skrifaði Hildur Þorsteins-
dóttir meðal annars í löngu átak-
anlegu bréfi til barna sinna eftir að
hún hafði flúið Magnús Jónsson,
sambýlismann sinn til sautján
ára. Hildur kveðst hafa mátt þola
skelfilegt, andlegt, líkamlegt og
kynferðislegt ofbeldi af hálfu
Magnúsar. Magnús hafnar alfarið
öllum ásökunum.
Þegar Hildur kynntist Magnúsi
Jónssyni, sem oft er kenndur við
Atorku, var hún búsett á Akur-
eyri ásamt foreldrum sínum og
systkinum. Magnús hefur verið
fastagestur á síðum fjölmiðla eft-
ir að hann var handtekinn í Texas,
grunaður um að beita þáverandi
kærustu sína ofbeldi.
Faðir Hildar er Þorsteinn Vil-
helmsson sem hefur verið um-
svifamikill í íslensku viðskiptalífi
en móðir hennar er Þóra Hildur
Jónsdóttir. Foreldrar hennar lýsa
henni sem glaðlyndu barni sem
var hugfangið af skíðaíþróttinni.
Hún var bæði í unglinga- og full-
orðinslandsliðinu í íþróttinni þrátt
fyrir ungan aldur. Blaðamaður
hitti Hildi, Þorstein föður hennar
og Laufeyju systur hennar á heim-
ili foreldranna. Saga Hildar er
átakanleg og varpar ljósi á mein-
gallað kerfi sem bregst konum
þegar þær þurfa hvað mest á hjálp
að halda. Eftir að Hildi hafði loks
tekist að öðlast kjark eftir sautján
ára eldfimt samband hélt ofbeldið
áfram, nema nú var það kerfið sem
braut á henni með grófum hætti.
„Þegar ég kynntist Magnúsi var
ég búin að vera erlendis í skíða-
skóla þar sem ég bæði keppti og
æfði af kappi. Ég meiddist sem
varð til þess að ég lagði skíðin á
hilluna. Líf mitt hafði snúist um
skíði og vonbrigðin voru mikil. Á
þessum tímapunkti fékk ég upp í
kok og fór ekki á skíði aftur fyrr en
níu árum síðar.“
Opinberaði sig fyrir fjölskyldunni
Það var í júní 2010 sem Magnús
opinberaði sig fyrir tengdafjöl-
skyldunni. Foreldrar Hildar og
börn þeirra og makar höfðu
ákveðið að eiga glaðan dag í sum-
arbústað norður í Eyjafirði. Hlýtt
var í veðri, krakkarnir voru í leikj-
um og til stóð að grilla ofan í liðið.
Segir Laufey að Magnús hafi
sparkað í barnakerru, en í henni
lá eins árs gamall sonur Hildar og
Magnúsar þar sem börnin voru að
horfa á sjónvarpið, sem hentist utan
í vegg. Varð uppi fótur og fit þegar
fólkið reyndi að róa Magnús niður.
„Hann reyndi að rífa af mér
lyklana og ætlaði að keyra í bæinn.
Ég neitaði að láta hann hafa þá þar
sem hann var drukkinn. Þá braut
hann hliðarspegil í bræði sinni á
bílnum okkar,“ segir Hildur. Þor-
steinn faðir hennar bætir við að
hann hafi haft samband við yfir-
völd en þegar lögregla kom á
svæðið var Magnús búinn að
panta leigubíl til að aka honum
Reykjavíkur en það tekur minnst
fjóra klukkutíma að keyra í bæinn.
Eftir sat fjölskyldan í áfalli.
„Þarna opinberaði hann sig
fyrir fjölskyldunni,“ segir Laufey.
„Þegar hann verður reiður, aug-
un svört og hann umbreytist. Í
því ástandi er Magnús til alls vís,“
bætir hún við.
„Ég fékk sjálf bara taugaáfall,“
segir Hildur. „Ég sagði þarna frá
hluta af því sem hafði átt sér stað
í sambandinu,“ segir hún.
„Hann einangraði þig samt. Við
misstum nánast af þér í fjögur ár,“
segir Þorsteinn, faðir hennar.
Bréf til dætra „Ég átta
mig ekki á því fyrr en nýlega
að líf mitt snerist að mestu
leyti um að halda honum
góðum og að reyna að gera
hann hamingjusaman og
glaðan. Það var mikil vinna
fólgin í því.“
n Kerfið styður ofbeldismanninn
n Fékk neyðarhnapp en ekki nálgunarbann
„Þess
vegna
„Þegar ég kom
inn í anddyri og
sá stelpurnar náfölar af
hræðslu sneri ég mér við
og spurði: „Ætlar þú að
drepa mig hér fyrir fram-
an börnin?“
Kristjón Kormákur Guðjónsson
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
kristjon@dv.is / gudrunosk@dv.is
segi ég
söguna“