Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 1
Eigum val
17. SEPTEMBER 2017SUNNUDAGUR
Hreystií ýmsumstærðum
vokallaðrier enginávísun á góða heilsu 24
Að vera í skjörþyngd
Allt búiðÍ þriðja sinn á átta árum er ríkisstjórn meðSjálfstæðisflokkinn innanborðs sprungin 6
Rauðir skór ograuðar flíkurfrá toppi tiltáar eru vístþað allraheitastaí haust ogvetur 26
Eldrauðurvetur
L A U G A R D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 106. tölublað 105. árgangur
SVONA SIRKA
SVONA ER SÝN-
ING HALLDÓRS
FAGNA
30 ÁRA
AFMÆLI
ÁLFALAND 12LISTAMENN GALLERÍ 46
Mikil óvissa er um framhald þing-
starfa eftir að Bjarni Benediktsson
boðaði til kosninga í kjölfar stjórnar-
slita Bjartrar framtíðar. Óvissa er um
fjjárlagafrumvarpið og framundan
eru kjarasamningar.
Fram kom í ávarpi Bjarna í Valhöll
í gær að „alltof langt“ hefði verið milli
forystumanna flokkanna til að hægt
væri að ná samstöðu. Því væri ekki
annað í spilunum en að efna til þing-
kosninga. Nefndi Bjarni nóvember í
því efni. Vegna sveitarstjórnar-
kosninga í vor væri óheppilegt að
ganga til kosninga eftir áramót.
Skilyrði og skeytasendingar
Bjarni hefur óskað eftir því að
Björt framtíð eigi ekki aðild að starfs-
stjórn sem starfa mun fram að kosn-
ingum. Þá taldi ráðgjafaráð Viðreisn-
ar einsýnt að Bjarni og Sigríður
Andersen dómsmálaráðherra þyrftu
að víkja sem ráðherrar meðan á rann-
sókn stæði á þeirra þætti í málinu
sem leiddi til stjórnarslita, þ.e. að-
komu föður forsætisráðherra að því
að dæmdur maður fékk uppreist æru.
Samkvæmt þessu virðist samsetn-
ing starfsstjórnar ekki augljós. Þá
virðist vera kominn algjör trúnaðar-
brestur milli stjórnarflokkanna.
Forystumenn flokkanna, sem rætt
er við í Morgunblaðinu í dag, eru á
einu máli um að ekki hafi verið annað í
stöðunni en efna til kosninga.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
og Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins, segja mikið
hafa borið í milli hjá stjórnar-
flokkunum. Stjórnarslitin komi í því
ljósi ekki á óvart. Birgitta Jónsdóttir,
formaður þingflokks Pírata, telur
málið undirstrika að breyta þurfi
stjórnarskrá lýðveldisins.
Fundir á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, fundar í dag með formönnum
flokkanna á Bessastöðum.
Birgir Guðmundsson, dósent í fjöl-
miðlafræði við Háskólann á Akureyri,
reiknar með að forsetinn samþykki
þingrof.
„Ef Guðni Th. Jóhannesson er
samkvæmur sjálfum sér, og á sömu
línu og þegar hann var álitsgjafi, mun
hann örugglega ekki reyna annað en
að samþykkja þingrof. Að hann telji
þingrofsréttinn hjá forsætisráðherra
en ekki hjá forsetanum líkt og Ólafur
Ragnar Grímsson var að gæla við.
Það verður þá væntanlega tilkynnt
um þingrof strax eftir helgi og þá
mega líða 45 dagar þar til kosningar
verða að vera afstaðnar.“
Birgir telur meiri óvissu um hvað
forsetinn gerir varðandi starfsstjórn-
ina sem starfar fram að kosningum og
hugsanlega meðan verið er að mynda
nýja stjórn. Slíkt geti tekið nokkra
mánuði.
„Ég tel einboðið að það þurfi að
mynda nýtt ráðuneyti. Nema þá að
einhver sé tilbúinn að styðja hugsan-
lega minnihlutastjórn Bjarna, eða
eitthvað slíkt. Það þarf tæknilega að
mynda nýja stjórn til að starfa fram
yfir kosningar. Það er málið sem
Guðni þarf að finna út úr,“ segir Birg-
ir ennfremur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórnarslit Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt blaðamannafund í Valhöll í gær, eftir að ljóst var að ríkisstjórn hans væri fallin.
Boðað til nýrra kosninga
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fallin eftir að Björt framtíð sleit stjórnarsamstarfinu á dramatískan hátt
Bjarni boðar til þingkosninga og fundar í dag með forseta Íslands, sem hefur boðað aðra flokksformenn til sín
Kosningar líklegar í nóvember Kröfur ganga á víxl hjá fráfarandi stjórnarflokkum um að ráðherrar víki sæti
MRíkisstjórnin fallin»4, 6, 14, 16, 18, 20, 22
Samtals eru á þingmálalista ríkis-
stjórnarinnar 188 mál sem eru í al-
gjörri óvissu eftir fall ríkisstjórn-
arinnar í gær. Verði þing rofið og
efnt til kosninga í haust eða byrjun
vetrar falla öll óafgreidd þingmál
niður þegar þinginu verður slitið.
Fjárlagafrumvarp ársins 2018 er
skammt á veg komið í þinginu.
Fyrsta umræða hófst á fimmtudag
og það er ekki enn gengið til nefnd-
ar.
Hver sem pólitíska atburðarásin
verður á næstu mánuðum, hvort
sem tekst að mynda nýja ríkisstjórn
eftir kosningar eða starfsstjórn sit-
ur næstu mánuði, ber samkvæmt
stjórnarskránni að afgreiða fjárlög
næsta árs fyrir áramótin. Sambæri-
leg staða var uppi í fyrra þegar það
dróst að mynda ríkisstjórn fram
yfir áramót og kom það í hlut
Bjarna Benediktssonar, þáverandi
fjármálaráðherra, að leggja fram
fjárlagafrumvarp fyrir hönd starfs-
stjórnar í desember.
Stéttarfélög sett í biðstöðu
Viðræður 17 aðildarfélaga
Bandalags háskólamanna (BHM)
við samninganefnd ríkisins um
gerð nýrra kjarasamninga eru í
biðstöðu. „Við erum eins og aðrir
eiginlega bara að bíða eftir því að
það komi í ljós hvað verður og hvað
stjórnmálamennirnir ákveða og
hvaða umboð fjármálaráðuneytið
hefur til áframhaldandi samninga-
viðræðna,“ segir Þórunn Svein-
bjarnardóttir, formaður BHM.
Ótal mál í óvissu eftir
fall ríkisstjórnarinnar