Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Norður-Kóreumenn skutu í gær eld- flaug yfir Japan þrátt fyrir hertar refsiaðgerðir öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Eldflaugarskotið kynti undir ágreiningi milli stjórn- valda í Bandaríkjunum, Kína og Rússlandi um hvernig bregðast ætti við eldflauga- og kjarnorkutilraun- um Norður-Kóreumanna. Banda- ríkjastjórn sagði að Kínverjar og Rússar, helstu viðskiptaþjóðir Norður-Kóreu, þyrftu nú að þjarma meira að einræðisstjórn landsins til að knýja hana til að láta af ögrunum sínum. Kínverjar sögðust hins vegar ekki bera ábyrgð á vandamálinu og það væru Bandaríkin og Norður-- Kórea sem þyrftu að leysa það. Flauginni var skotið frá herstöð nálægt Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu. Þetta er í annað skipti á tæpum mánuði sem n-kór- eskri eldflaug er skotið yfir Japan. Sérfræðingar segja að eldflaugin hafi farið lengra en nokkur önnur flaug sem Norður-Kóreumenn hafa skotið til þessa. Nokkrum dögum áð- ur hafði öryggisráð SÞ samþykkt út- vatnaða ályktun um hertar refsiað- gerðir gegn landinu eftir að Norður-Kóreumenn sprengdu öflug- ustu kjarnasprengju sína til þessa í tilraunaskyni. Þeir sögðu hana hafa verið vetnissprengju og nógu litla til að eldflaug gæti borið hana. Norður-Kóreumenn skutu tveimur langdrægum eldflaugum í júlí en tal- ið er að eldflaugin í gær hafi verið meðaldræg eins og flaug sem var skotið yfir Japan 29. ágúst. Norður- Kóreumenn hafa nú skotið alls sex eldflaugum yfir landið frá árinu 1998. Deilt um olíusölubann Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, hafa hvatt Kínverja til að styðja algert bann við sölu á olíu til Norður-Kóreu í því skyni að knýja einræðisstjórn landsins til að hætta eldflauga- og kjarnorkutilraununum. Bandaríkja- stjórn beitti sér fyrir slíku banni í ör- yggisráðinu en Kínverjar og Rússar höfnuðu því. Svo fór að öryggisráðið samþykkti ályktun um að takmarka olíuinnflutninginn til Norður-Kóreu, banna útflutning þaðan á vefnaðar- vörum og banna útgáfu vegabréfs- áritana handa farandverkamönnum sem einræðisstjórnin hefur sent til annarra landa til að afla gjaldeyris. Kínverjar og Rússar hafa lagt til að Norður-Kóreumenn hætti kjarn- orku- og eldflaugatilraunum sínum og Bandaríkin hætti að taka þátt í árlegum heræfingum í Suður-Kóreu til að greiða fyrir samningaviðræð- um um lausn deilunnar. Kínverjar óttast að algert bann við sölu á olíu til Norður-Kóreu verði stjórn lands- ins að falli og það valdi glundroða og valdatómarúmi sem gæti orðið til þess að bandamenn stjórnvalda í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum kæmust til valda í Pjongjang. Stjórnvöld í Peking hafa m.a. áhyggjur af því að sameining Kóreu- ríkjanna verði til þess að Bandaríkin fái herstöð nálægt landamærunum að Kína. Algert efnahagshrun gæti orðið til þess að milljónir Norður- Kóreumanna flýðu til Kína. Sumir sérfræðingar telja einnig að olíuleiðsla, sem notuð er til að flytja olíu frá Kína til Norður-Kóreu, sé orðin svo úr sér gengin að Kín- verjar óttist að mjög erfitt yrði, eða jafnvel ómögulegt, að taka hana í notkun aftur ef skrúfað yrði fyrir hana. Stjórnvöld í Kína fordæmdu eld- flaugarskotið í gær en sögðu að auk- in spenna á Kóreuskaga væri ekki þeim að kenna. „Kjarni málsins er fólginn í átökum milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna,“ sagði talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins. „Þeir sem valda vandanum ættu að leysa hann.“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, ræddu málið í síma í gær og voru sammála um að eina leiðin til að draga úr spennunni á Kóreuskaga væri að hefja að nýju samningaviðræður við einræðis- stjórnina í Norður-Kóreu. Sunan ELDFLAUG SKOTIÐ YFIR JAPAN Heimild: Stjórnvöld í Suður-Kóreu og Japan PJONGANG Flaugin fór um 3.700 kílómetra Eldflaugin fór hæst 770 km, að sögn varnarmála- ráðuneytis Japans HOKKAIDO Erimo- skagi Sapporo Sendai Osaka Hiroshima Busan Sjanghæ TÓKÝÓ SEÚL PEKING Norður-Kóreumenn skutu eldflaug yfir japönsku eyjuna Hokkaido klukkan 07.06 í gærmorgun að staðartíma, að sögn japanskra yfirvalda JAPAN NORÐUR- KÓREA SUÐUR- KÓREA 500 km KYRRAHAF N-Kórea ögrar ör- yggisráðinu  Bandaríkjamenn, Kínverjar og Rúss- ar deila um hvernig bregðast eigi við Æfðu árás á herstöð » Suður-Kóreumenn svöruðu eldflaugarskotinu með því að skjóta eldflaug til að æfa hugsanlega árás á herstöðina þar sem flauginni var skotið í gær. » Fyrr í vikunni hófu Suður- Kóreumenn tilraunir með stýri- flaugar sem voru smíðaðar til að eyðileggja neðanjarðarbyrgi ráðamannanna í Pjongjang. AFP Spenna Vegfarendur í Tókýó við stóran sjónvarpsskjá þar sem sýndar voru fréttir af eldflaugarskotinu, með mynd af Kim Jong-un, leiðtoga N-Kóreu. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Breska lögreglan hóf í gær umfangs- mikla leit að manni sem skildi eftir sprengju sem sprakk í jarðlestar- vagni í London. Að minnsta kosti 29 manns særðust en enginn þeirra er í lífshættu. Sprengingin er rannsökuð sem hryðjuverk. Samtök íslamista, Ríki íslams, lýstu árásinni á hendur sér. Lestin var í Parsons Green-stöð- inni í London þegar sprengingin varð klukkan 08.20 að staðartíma í gærmorgun. Mark Rowley, yfirmað- ur hryðjuverkadeildar lögreglunnar í London, sagði að flestir þeirra sem voru fluttir á sjúkrahús hefðu orðið fyrir „leifturbruna“. Aðrir hefðu slasast í troðningi sem varð þegar farþegar hlupu skelfingu lostnir út úr lestarvagninum. Breskir fjölmiðlar birtu myndir af logandi hvítri fötu ofan í innkaupa- poka og upp úr henni virtust standa vírar. Breska ríkisútvarpið sagði að talið væri að í fötunni hefði verið sprengja með tímastilli. Sérfræðing- ar í öryggismálum telja að sprengjan hafi ekki sprungið að fullu og segja að annars hefðu allir í vagninum annaðhvort látið lífið eða særst al- varlega. Ummæli Trumps gagnrýnd Sjónarvottar sögðust hafa heyrt „háan hvell“. Einn þeirra kvaðst hafa séð „eldkúlu“ koma í áttina að sér og farþegarnir hefðu stokkið út úr lestarvagninum. Leyniþjónustan MI5 aðstoðar lög- regluna við rannsókn málsins, að sögn BBC. Hundruð lögreglu- og leyniþjónustumanna taka þátt í rannsókninni. Donald Trump Bandaríkjaforseti hringdi í Theresu May, forsætisráð- herra Bretlands, til að votta Bretum samúð sína vegna „þessarar löður- mannlegu árásar“, að sögn tals- manns breska forsætisráðuneytis- ins. Áður tísti Trump á Twitter um málið, sagði að „sjúkir og vitstola“ menn hefðu verið að verki. Hann bætti við að árásarmennirnir hefðu verið í „augsýn lögreglunnar“ og virtist ýja að því að þeir hefðu verið undir eftirliti hennar. Lögreglan í London vísaði þessum ummælum á bug og lýsti þeim sem „gagnslausum vangaveltum“. Ther- esa May gagnrýndi einnig ummæli Trumps. „Ég tel að það sé aldrei gagnlegt að menn séu að geta sér til um mál sem er í rannsókn,“ sagði forsætisráðherrann eftir skyndifund í bresku stjórninni vegna málsins. Öryggisviðbúnaður aukinn Stjórnvöld ákváðu að auka öryggisviðbúnaðinn vegna hættu á nýrri árás og er hann nú á hæsta stigi. May sagði að hermenn yrðu sendir að mikilvægum stöðum í land- inu. Þetta er fimmta hryðjuverkið í landinu frá því í mars þegar maður ók á gangandi vegfarendur og stakk lögreglumann með hnífi fyrir utan þinghúsið í London. Í fyrri árásun- um fjórum biðu alls 36 manns bana. Hryðjuverkamanns leitað  Hæsta viðbúnaðarstig í Bretlandi eftir hryðjuverk í London  Ríki íslams lýsir árásinni á hendur sér AFP Enn ein árásin Mynd sem birt var af logandi hvítri fötu í lestarvagninum eftir árásina þar í gær, þá fimmtu sem gerð hefur verið í Bretlandi í ár. New King s R d Chelsea Barnes WandsworthE. Putney Putney Bridge Fulham Bdy Earls Court Parsons Green LONDON Thamesá BRETLAND LONDON Kin gs Rd Chelsea FC Sprengja sprakk í lest í London Heimild: maps4news.com/©HERE 500 m King St Fulham Palace Rd Fu lha m Rd South Circular Rd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.