Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess
að þau þekkja tal betur en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Áþað var bent í sambandi viðþátttöku heimsmeistaransMagnúsar Carlsen, semóvænt skráði sig til leiks á
heimsbikarmótinu í Tíblisi í Georgíu,
að hann gæti teflt undir minna álagi
en aðrir þátttakendur. Í Tíblisi er
keppt um tvö sæti í áskorendamótinu
sem fram á að fara á næsta ári og sig-
urvegarinn þar öðlast rétt til að
skora á heimsmeistarann. Nú eru
átta keppendur eftir af þeim 128 sem
hófu keppni – og Magnús er ekki
þeirra á meðal! Í Georgíu hafa stiga-
hæstu skákmenn heims fallið úr leik
hver á fætur öðrum; í tilviki Magn-
úsar var það Kínverjinn Xiangzhi Bu
sem var þessi örlagavaldur og aðrir
frægir sem pakkað hafa til heim-
ferðar fyrr en reiknað var með eru
Kramnik, Anand, Caruana, Nakam-
ura, Giri og Grischuk.
Kínverjar eru hið nýja stórveldi
skákarinnar og Bu hefur lengi verið í
flokki þeirra fremstu og nokkrum
sinnum teflt hér á landi. Hann virðist
hafa gengið óttalaus til þess verk-
efnis að mæta heimsmeistaranum,
vann glæstan sigur í fyrri skákinni
og átti aldrei í erfiðleikum í þeirri
síðari – jafntefli og niðurstaðan 1½:
½.
Heimsbikarmótið í Tiblisi 2017; 3.
umferð:
Magnús Carlsen – Xiangzhi Bu
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 Rc6 4. Rf3
Be7 5. O-O O-O 6. Bb3 d6 7. c3 Be6
8. He1 Dd7 9. Rbd2
Ítalski leikurinn nýtur mikilla vin-
sælda um þessar mundir.
9. … Hab8!?
Dularfullur leikur.
10. Bc2 d5 11. h3 h6 12. exd5!?
Tekur af skarið og hirðir peðið en
Bu er við öllu búinn.
12. … Rxd5 13. Rxe5 Rxe5 14.
Hxe5 Bd6 15. He1
15. … Bxh3!
Án þessarar fórnar væri svartur
einfaldlega peði undir með litlar
bætur. Það kemur á daginn að það er
erfitt að þróa hvítu stöðuna.
16. gxh3 Dxh3 17. Rf1 Hbe8 18. d4
„Vélarnar“ eiga erfitt með að finna
bestu leið hvíts en þessi leikur er ekki
lakari en 18. Bd2.
18. … f5! 19. Bb3 c6 20. f4 Kh7 21.
Bxd5?
Hér missir Magnús sitt besta tæki-
færi, 21. He2!, t.d. 21. … Rxf4 22.
Hh2! og svartur neyðist í drottninga-
uppskipti með 22. … Dg4+.
21. … cxd5 22. He3 Hxe3 23. Bxe3
g5! 24. Kf2 gxf4 25. Df3
Að gefa manninn til baka bjargar
engu en 25. Bd2 Dh4+ og 26. … Hg8!
er ekki betra.
25. … fxe3+ 26. Rxe3 Dh2+ 27.
Kf1 Hg8 28. Dxf5 Hg6 29. Ke1 h5?
Best var 29. ... Kg7! og svartur hef-
ur vinningsstöðu. Nú varð hvítur að
koma hróknum í spilið og leika 30.
Hd1.
30. Kd1 Kh6! 31. Rc2 h4 32. Re1
h3 33. Rf3 Dg2 34. Re1 Dg4+ 35.
Dxg4 Hxg4 36. Rf3
Reynir að stöðva h-peðið.
36. … Hg1+!
- og hvítur gafst upp, 37. Rxg1 er
svarað með 37. … h2 og peðið rennur
upp í borð.
Gott gengi á EM ungmenna
Íslendingar sendu sex keppendur
á Evrópumót ungmenna sem lauk í
Rúmeníu á fimmtudaginn. Árangur
þeirra var með ágætum, en framan
af vakti hin 10 ára gamla Haile Batel
Goitom mesta athygli eins og rakið
var í síðasta pistli. Hún var komin
með 4½ vinning af sjö mögulegum
en tapaði tveim síðustu skákum sín-
um. Hún hafnaði í 41. sæti af 93 þátt-
takendum en hækkaði um 74 Elo-
stig.
Vignir Vatnar Stefánsson náði
bestum árangri íslensku krakkanna,
hlaut 6 vinninga af níu mögulegum í
flokki keppenda 14 ára og yngri og
varð í 18. sæti af 125 keppendum.
Jón Kristinn Þorgeirsson hækkaði
um 44 Elo-stig og og Gunnar Erik
Guðmundsson 10 ára hlaut 4 vinn-
inga og hækkaði um 20 Elo-stig.
Heimsmeistarinn féll úr leik
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Hvernig liði ungu
fólki með það þegar
leigan hjá því yrði
hækkuð um hundrað
prósent á einu ári? Ég
held að flest fólk myndi
sturlast af reiði. Ann-
aðhvort fara úr íbúð-
inni með fokkmerkið á
lofti eða hreinlega
kæra málið til lög-
reglu. Í þeirri svakalegu hækkun
sem hefur orðið á leigumarkaði hjá
öllum landsmönnum hafa engir aðrir
en aldrað fólk fengið aðra eins
hækkun á sig eins og þau sem búa í
Seljahlíð í Breiðholti.
Það hlýtur að vera hægt að finna
sátt á milli minni- og meirihluta í
Reykjavíkurborg til að koma í veg
fyrir þessa fásinnu.
Meðalaldur fólks í þjónustuíbúð-
unum í Seljahlíð er um 75 ár. Þegar
maður er ungur og fær á sig fráleita
reikninga og hækkanir á kostnaði þá
bregst maður við með þeim hætti að
vinna meira og þræla sér út til að
komast yfir vandamálið. En það er
engin 75 ára manneskja að fara að
gera það, tækifærin eru farin og
fólkið hefur þegar skapað samfélag-
inu verðmæti yfir ævina og er að
reyna að þrauka þá daga sem eftir
eru með þá aura sem þau hafa náð
að nurla saman.
Þeim til varnar, sem ákváðu að
hækka leiguna svona rosalega í
Seljahlíð, þá hefur hún verið lág um
nokkurt skeið hjá mörgum íbúanna.
Stjórnendum finnst
það réttlátt að allir séu
að borga sömu leiguna
fyrir sömu aðstöðu og
þjónustu. Það er skilj-
anlegt viðhorf en það
verður að horfa til þess
samnings sem er gerð-
ur við gamalt fólk sem
er að skipuleggja síð-
ustu ævikvöldin.
Stjórnendur benda
einnig á að hægt sé að
fá húsaleigubætur á
móti, en það á aðeins við um þá sem
ekki hafa safnað sér fé yfir ævina.
Félagsbústaðir þurfa líklega að
hækka leiguna hjá sér um 5-10% á
næstu árum og mér sýnist það skyn-
samlegt, því að rekstur félagslegs
húsnæðis á vegum Reykjavíkur-
borgar þarf að komast í betra lag.
En að hækka það hjá sumum íbúum
um 100% er of mikið. Sérstaklega
finnst manni óþægilegt að hugsa til
þess að það sé gert hjá gömlu fólki af
kynslóð sem bjó til ótrúlega mikil
verðmæti í þessu samfélagi.
Leigan hækkuð
um 100 prósent
hjá gömlu fólki?
Eftir Börk
Gunnarsson
» Það hlýtur að vera
hægt að finna sátt á
milli minni- og meiri-
hluta í Reykjavíkurborg
til að koma í veg fyrir
þessa fásinnu.
Börkur Gunnarsson
Höfundur er rithöfundur og 1. vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
borkurg@gmail.com