Morgunblaðið - 16.09.2017, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
Sætún - Kjalarnesi/Reykjavík
FJÁRFESTINGA-
TÆKIFÆRI
Eignarland sem
er rúmlega 6,5 ha
(65.803 fm) og
skiptist í fjóra hluti
skv. deiliskipulagi.
Gott tækifæri fyrir aðila til
að kaupa alla eignarhlutana
og taka þátt í heildarþróun
á svæðinu. Möguleiki að
kaupa einstaka hluta, en
verð fyrir alla hlutana er
kr. 160.000.000.
Svæði A:
3.125 fm lóð á spildu við þjóðveginn. Þarna
eru fjölbreytilegir nýtingarmöguleikar fyrir
þjónustuhúsnæði. Verð 6 millj.
Svæði B:
7.159 fm lóð undir iðnaðar/landbúnaðarhúsnæði.
Þar er í dag 778 fm alifuglahús (ca 50 fm í kjallara)
og að auki er byggingaréttur 2.240 fm.
Verð 120 millj.
Svæði E:
2.536 fm lóð undir íbúðarhús. Lóðin er með
stórum byggingarreit (1.080 fm). Falleg trjárækt
er á lóðinni. Verð 14,8 millj.
Svæði F:
52.983 fm land sem er skilgreint sem jörð (lögbýli).
Landið liggur að sjó með miklu og fallegu útsýni
yfir sjóinn til borgarinnar.
Verð 25 millj.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali
Sóltúni 20, 105 Reykjavík, s. 552 1400
Dapurlegt var það orð
sem menntamálaráð-
herra, Kristján Þór Júl-
íusson, notaði m.a. um
nýtt nafn á ensku um
nær aldar gamalt félag,
og líklega með þeim
elstu í heiminum, Flug-
félag Íslands, sem allir
Íslendingar hafa verið
svo stoltir af í gegnum
tíðina. Þarna var ekki of
sterkt til orða tekið. Nú skal þessu
áratuga gamla íslenska nafni breytt í
enskuslettuna Air Iceland Connect og
borið við markaðssetningu erlendis.
Ég hef verið undrandi á að góður
drengur, Árni Gunnarsson, forstjóri
flugfélagsins, skyldi taka þátt í þessari
dapurlegu nafngift. Það er lítill bógur í
því fólki sem sér um markaðssetningu
hjá félaginu ef því vefst tunga um tönn
við að markaðssetja hið fallega ís-
lenska nafn, Flugfélag Íslands, því svo
auðvelt er að tala um enska nafnið
þegar það á við. Allar flugvélar flug-
félagsins ættu að vera merktar með
stórum stöfum Flugfélag Íslands og
þá með smærra letri Air Iceland Con-
nect (t.d. í undirfyrirsögn).
Nýlega birtist í MBL. grein, sem
hafði yfirskriftina
„Enskan er orðin alls-
ráðandi í miðborginni,
undantekning ef versl-
anir og veitingahús
nota íslensku“. Grein-
arhöfundur segir þar
„að ganga má Lauga-
veginn á enda án þess
að finna verslun, krá
eða veitingahús, sem er
eingöngu merkt á ís-
lensku og víða er af-
greitt á ensku“.
Ljót er sagan. Þessar
enskuslettur á auðvitað að banna með
lögum tafarlaust og krafan auðvitað
sú að aðalheitið verði að vera á ís-
lensku með svokallaðri undirfyrirsögn
í litlum stöfum á þá ensku. Það er til
mannanafnanefnd sem setur veru-
legar skorður á nafngiftir íslenskra
einstaklinga. Einnig er nýlega orðin til
hestanafnanefnd þar sem hesta-
eigendur eru ekki frjálsir að því að
kalla hesta sína hvaða nafni, sem er.
Þar er meira að segja stöðvað nafn á
hesti ef það er með greini, sbr. Mósan.
Mósi og Mósa eru algeng nöfn.
Enskusletturnar á nöfnum fjölda fyr-
irtækja í íslensku samfélagi lýsa auð-
vitað aumingjaskap þeirra sem þarna
geta ráðið. Á meðan eigendur hesta
geta ekki ráðið nafngiftinni á eigin
hestum er látið viðgangast að enskan
sé látin tröllríða íslensku samfélagi.
Ekkert heyrist í áhugafólki um
íslenska tungu
Nýlega byggðu húsi var gefið nafn-
ið Hús hinna íslensku fræða og kennt
við Vigdísi Finnbogadóttur, sem yf-
irleitt hefur látið sig tungumálið okk-
ar sig miklu varða. Lítið heyrist úr
því horni og nær að halda að íslensk
tunga hafi verið gróðursett með ein-
hverri trjáplöntunni. Einnig vil ég
minnast á mjög læsilega pistla eftir
ágætan Tryggva Gíslason, fv. skóla-
meistara MA, um íslenskt mál. Í
mörg ár hefur Tryggvi skrifað í blað-
ið Vikudag á Akureyri og nýverið um
örnefni. Ég er ekki frá því að honum
brygði í brún ef færu að sjást merki
og vegvísar hér og þar með fallegum
íslenskum örnefnum öll á ensku.
Ástkæra ylhýra málið
– íslenskan á undanhaldi
Eftir Hjörleifur
Hallgríms
Hjörleifur Hallgríms
» Ömurlegt að koma til
Reykjavíkur ef það
er eins og að koma í
borg í enskumælandi
landi.
Höfundur er eldri borgari.
hallgrims@simnet.is
Nýlega hafa birst
rannsóknir sem sýna
að sjálfsvíg eru færri
þar sem mikið lithí-
um er í drykkjar-
vatni, einnig að það
geti seinkað heila-
hrörnun. Nánast
ekkert lithíum er í
íslensku drykkjar-
vatni þannig að ég
fór að athuga hvort
fjölvítamínin sæju
ekki um þetta. Nei, þar var ekki
neitt. Lithíum, sem er léttasti
málmurinn, er notað í geðlyf í
þúsundföldum æskilegum dag-
skammti, það er því á lyfjaskrá og
má þá ekki setja í fjölvítamín eða
fæðubótarefni. Þangað til lyfja-
skrá verður löguð verðum við því
að láta okkur duga að nota sjáv-
arsalt (frekar en venjulegt borð-
salt) og borða söl og rækjur, en
einnig innihalda egg og mjólk
mikið lithíum, sem virðist því mik-
ilvægt þroska ungviðis. Í lyfjaskrá
er margt fleira undarlegt. Til
dæmis ef njálgur finnst hjá barni
þarf að byrja á því að panta tíma
hjá heimilislækni til að fá mest
notaða njálglyfið. Hver hefur
heyrt um heimilislækni sem skoð-
aði upp í endaþarm barns áður en
hann skrifað út lyfseðilinn?
Toxoplasma er frumdýr sem
hefur áhrif á heilann og veldur
hækkaðri tíðni glæpa og sjálfs-
víga. Það berst með kattaskít í
sandkassa og sýkir þar smábörn,
en mest óbeint í gegnum hrátt
kjöt. Góð frysting drepur dýrið og
því er mikilvægt að Ís-
lendingar standi fast á
því að flytja ekki inn
ferskt kjöt, enda ekki
auðvelt að greina dýr-
ið í kjötinu. En hvern-
ig er brugðist við þeg-
ar upp kemur
lambadauði af völdum
toxoplasma hér?
Lömbin sem hjarna
við fara án eftirlits á
markað svo mögulega
lendir kjötið léttgrillað
á diskinum okkar.
Nikótín er mikilvirkt geðlyf.
Mörgum sem hugleiddi sjálfsvíg
hefur eflaust snúist hugur við það
að fá sér rettu. Opinberir
forvarnarfulltrúar hafa barist hart
á móti reykingum, sem vissulega
eru heilsuspillandi, en nú snýst
baráttan gegn rafsígarettum.
Vitnað er í rannsóknir um hve gíf-
urlega ávanabindandi nikótín sé,
jafnvel verra en ópíumlyf, það sé
verst af öllum fíkniefnum. Það er
þægileg tilhugsun fyrir ungling
sem er að fikta við hassreykingar,
að mamma og pabbi reyki og það
sé miklu verra, en kannabis eykur
líkur á geðtruflunum og sjálfs-
vígum.
Aðkoma ríkisins
að forvörnum gegn
sjálfsvígum
Eftir Þorvald
Gunnlaugsson
Þorvaldur
Gunnlaugsson
» Lithíum er lífs-
nauðsynlegt málsalt
en má ekki setja í fjöl-
vítamín af því að það er
á lyfjaskrá.
Höfundur er náttúrufræðingur.
thgunn@gmail.com
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.