Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 30

Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 ✝ Jón Halldórs-son fæddist á Valþjófsstöðum í Núpasveit í Norður-Þingeyjar- sýslu 26. febrúar 1927. Hann and- aðist á Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík, 8. sept- ember 2017. Hann var sonur hjónanna Unnar Árnadóttur húsfreyju, f. 5. des- ember 1900, d. 12. apríl 1987, frá Bakka á Kópaskeri og Hall- dórs Stefánssonar, f. 25. ágúst 1901, d. 20. nóvember 1983, frá Arnarsstöðum, bónda á Val- þjófsstöðum, þar sem þau bjuggu farsælu fjárbúi til ævi- loka. Einkadóttur sína, Hólm- fríði Halldórsdóttur, f. 26. febr- úar 1930, d. 22. febrúar 1942, misstu þau hjónin úr botnlangabólgu aðeins 12 ára gamla og var þá mikill harmur kveðinn að fjölskyldunni. Jón var því einungis 15 ára þegar systir hans lést, 3 árum eldri upp á dag. Jón naut barna- granna og vini við ýmis störf og viðgerð véla, sem hann hafði sérlega gott lag á. Eftir andlát foreldranna fór fljótlega að losna um hann í búskapnum og flutti síðast til Kópaskers og bjó sér brátt heimili í Klifagötu 6, gestrisinn og góður heim að sækja, þar sem hann bjó eins lengi og heilsan leyfði og naut á síðari árum þjónustu í Stóru- mörk, dagvistun fyrir eldri borgara á Kópaskeri, á virkum dögum. Árið 2013-2014 hafði slæmska í hné, minnisleysi og fleira ágerst það mikið að ekki var óhætt lengur fyrir Nonna að búa einan og fluttist hann þá á Hvamm á Húsavík í mars 2014, þar sem hann hafði aðset- ur allt til dauðadags, fékk þar góða umönnun og varð smám saman sáttur við að geta ekki snúið heim aftur. Þar átti starfsfólk Hvamms stóran þátt og ekki síst frændi hans á Húsavík, Sigurður Brynjúlfsson og fjölskylda, sem leit til hans reglulega og var honum innan handar á allan hátt. Útför Jóns fer fram frá Snartarstaðakirkju við Kópa- sker í dag, 16. september 2017, klukkan 14. fræðslu í sveitinni framundir ferm- ingu og tók jafn- framt þátt í bú- skap foreldranna eftir getu, en vet- urinn 1945-1946 sótti hann nám í Héraðsskólanum að Laugarvatni, ásamt frændum sínum, sem var mikil og góð upp- lifun á þeim tíma. Jón, eða Nonni eins og hann var ætíð kallaður, giftist aldrei en eignaðist einn son, Braga Jónsson, f. 2. mars 1962, barns- móðir Guðný Friðrika Stein- grímsdóttir frá Hóli við Rauf- arhöfn, f. 5. nóvember 1937. Bragi býr á Akureyri og á hann eina dóttur, Soffíu Mar- gréti, f. 29. janúar 2004, barns- móðir Íris Þorsteinsdóttir, f. 19. júlí 1976. Nonni vann heima við búskapinn að miklu leyti framundir 1990, ásamt því að taka íhlaupavinnu á Kópaskeri við uppskipun, sláturhússtörf og fleira svo og aðstoð við ná- Þá er Nonni frændi, eins og við systkinin kölluðum hann, fallinn frá 90 ára gamall. Hann var einn af föstu punktunum í tilveru okk- ar á Valþjófsstöðum í uppvextin- um, alltaf ljúfur og góður, tilbúinn að hlusta á okkur, leyfa okkur að snudda í kringum sig í skemm- unni sinni, sitja á gamla Fahr- traktornum sínum, þar sem voru þau forréttindi að það voru sæti með örmum fyrir farþega á báð- um afturhjólhlífum. Seinna feng- um við svo að grípa í að keyra hjá honum, sem var mikil upphefð. Nonni var með eindæmum ljúf- ur maður, geðgóður, barngóður og greiðvikinn og oft sagt að hann kynni ekki að segja nei. Hann gerði hins vegar alla tíð ákaflega litlar kröfur fyrir sjálfan sig. Hann fullorðnaðist í byrjun vél- væðingar í sveitum landsins og varð strax áhugasamur. Vann á tímabilum á jarðvinnsluvél sem hann keypti i félagi við frænda sinn og jafnaldra, Árna Sigurðs- son. Hann vann einnig talsvert á jarðýtum við túnrækt, vegagerð og við flugvöllinn á söndunum norðan við Kópasker. Hann var enn fremur mjög natinn við við- hald og umhirðu véla og tækja heima á bænum, sem skilaði líka eindæma góðri endingu þeirra. Það var því ekkert smáræði sem ég skammaðist mín þegar ég eitt sinn sem unglingur fékk lánaða heyþyrluna hans og braut í henni drifið með því að kúpla óvarlega saman. Ég held ekki að Nonni hafi haft neinn sérstakan áhuga á búskap eða kindum, en hann gerði það fyrir pabba sinn, sem var bóndi af lífi og sál, að búa með honum með- an hann lifði. Síðan held ég að hann hafi haldið áfram búskap meira og minna af tillitssemi við móður sína, hana Unnu frænku, til að hún þyrfti ekki að rífa sig upp frá heimili sínu. Einn af eiginleikum Nonna var þrautseigja og til vitnis um það eru til dæmis allstór fjárhús og hlaða sem hann byggði að mestu leyti einn á löngum tíma kringum 1980, en tvö fjárhús hans úr torfi voru þá komin að fótum fram. Eft- ir að hann seldi Birni bróður jörð- ina 1990 vann hann hjá hreppnum um tíma og keypti sér litla íbúð á Kópaskeri. Þar átti hann mörg góð og áhyggjulítil ár, borðaði og spilaði í Mörk, aðstöðu eldri borg- ara, og umgekkst m.a. mikið Ingu móðursystur sína og Brynjúlf mann hennar. Var þeim reyndar stoð og stytta í veikindum þeirra á tímabili. Þegar heilsan fór að bila fluttist hann svo í meira öryggi í Hvamm á Húsavík. Með brotthvarfi Nonna fer mjög að fækka þeim sem voru í umgjörð stórfjölskyldunnar sem bjó á Valþjófsstöðum upp úr miðri 20. öldinni og skópu mér og systk- inum mínum ómetanlegar að- stæður öryggis, hlýju og hvatn- ingar í uppvextinum. Hafðu heila þökk fyrir þinn þátt í því, Nonni frændi. Sigurður Halldórsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Já er það tilfellið, eins og Nonni frændi sagði gjarnan, þessi ljúf- lingur sem nú hefur fengið hvíld- ina, líkt og þeir bræður og frænd- ur hans frá Valþjófsstöðum, Árni Sig. og síðast faðir minn Halli Sig., fyrir réttu ári. Mikið saknar mað- ur þeirra allra, sem með sinni góðu og hlýju nærveru gerðu lífið svo miklu betra, hver á sinn hátt, en hafa nú vonandi sameinast aft- ur í efra í starfi og leik, sitja ef- laust við spilaborð á ný, ásamt fleiri yfirveguðum öðlingum af Bakkaættinni, auk annars sam- ferðafólks héðan. Því eins og segir í vísu einni: „Í kirkjugörðum heimsins hvílir ómissandi fólk.“ Nonni var ætíð einstaklega hógvær, nægjusamur og hjálp- samur, eiginlega helst til meinlaus og hætti til að láta stjórnast af öðrum, ekki síst móður sinni, al- veg fram á fullorðinsár. Hann bjó lengst af með foreldr- um sínum á Valþjófsstöðum 2, í þarnæsta húsi við okkur, og nut- um við systkinin heldur en ekki góðs af í uppvextinum, því þar átt- um við s.s. annað sett af ömmum og öfum, með nokkurra metra millibili, sem endalaust spiluðu við okkur, sögðu okkur sögur eða lásu og fengum við gjarnan ýmislegt góðgæti í leiðinni – það var reynd- ar ekki eins vinsælt heimavið, ef það gerðist rétt fyrir hádegis- eða kvöldmat. Við vildum nú halda að þau hefðu svolítið gaman af þess- um heimsóknum okkar og von- andi smá gagn líka þegar við stækkuðum og gátum rétt þeim hjálparhönd við eitt og annað. Það var stutt í glettnina hjá Nonna frænda og góðlátlega stríðni í góðra vina hópi og það varði alveg fram á gamalsaldur, hann hafði gaman af því að spila og undi sér mikið á efri árum við að leggja kapal, lesa bækur, hlusta á útvarp og horfa á sjón- varp. Nonni var handlaginn, eins og áður hefur komið fram, og dútlaði lengst af sjálfur við viðhald á íbúð sinni á Kópaskeri og eftir að ára- langrar aðstoðar Ingiríðar móður- systur hans þar varðandi fatnað naut ekki lengur við tók hann til við að gera sjálfur við flíkur af sér, m.a. í gamalli saumavél móður sinnar, enda nýtni í blóð borin, hann saumaði meðal annars út og þetta hefur hann eflaust lært af því að fylgjast með fínlegu hand- verki hennar í gegnum tíðina. Það gaf Nonna heilmikið í áraraðir að geta nýtt sér dægradvöl með eldri borgurum á Kópaskeri, jafnt fæði sem félagsstarf, og það gerði hon- um kleift að búa heima lengur en heilsan þó leyfði, því gömul slæmska í baki og hné og fleira fór að ágerast verulega strax um 2012. Kunna ættingjar og vinir Nonna því starfsstúlkum Stóru- markar og samferðafólki þar, auk Fríðu frænku, bestu þakkir fyrir alúð og aðstoð við hann, einnig starfsfólki Hvamms á Húsavík fyrir góða umönnun þessi rúm þrjú síðustu ár sem hann dvaldi þar, svo og Sigurði Brynjúlfs frænda hans þar, sem var hans stoð og stytta allt til enda. Við minnumst þín, Nonni minn, með væntumþykju og þakklæti fyrir samfylgdina, Guð geymi þig. Rannveig Halldórs og fjölskylda. Jón Halldórsson Við lok seinna stríðs tóku amma mín og afi Ásthildi móður mína og Torfa bróður hennar með sér á skipið Goðafoss í skipa- lest til New York. Þá var móðir mín 14 ára en síðar sagði hún mér af skipunum við jaðar lestar- innar, sem sökkt var einu á fætur öðru af þýskum kafbátum. Sigl- ingin reyndist hinsta för Goða- foss til að ná á áfangastað, því á leiðinni aftur til Íslands varð skipið fyrir tundurskeyti og sökk. Þetta var þó aðeins sú fyrsta af fjölmörgum ferðum móður minn- Ásthildur Jóna Tómasdóttir (Gunnarsson) ✝ Ásthildur JónaTómasdóttir fæddist í Reykjavík 15. júní 1931. Hún lést í Vancouver í Kanada 24. ágúst 2017. Minningarathöfn um Ásthildi fór fram 30. ágúst 2017 í Richmond B.C., Kanada. ar yfir hafið. Hún sneri aftur til Ís- lands tveimur árum síðar en í þetta skiptið húkkaði hún sér far með annars tómri flutningavél fyrir herlið. Sú stát- aði hvorki af hita, sætum né salerni. Hún sagðist aldrei hafa verið jafn fegin að lenda og þegar flugvélin stoppaði í Labrador til að taka eldsneyti. Fáum mánuðum síðar hitti hún föður minn, Snorra Rögn- vald Gunnarsson. Hún hafði hitt hann einu sinni áður, þegar hún var sjö ára gömul, og sagði alltaf að hún hefði ákveðið þá þegar að hún myndi giftast honum. Og það gerði hún. Hann var stóra ástin í lífi hennar. Foreldrar mínir giftust árið 1949 og ég fæddist ári síðar. Þau voru ung, ástfangin og ævintýra- gjörn svo að þau ákváðu að reyna aftur við Ameríku. Að þessu sinni varð þó Kanada fyrir valinu. Þrátt fyrir að móðir mín væri með græna kortið var hún föst á því að hún myndi ekki fara með son sinn til lands þar sem her- skylda væri við lýði, og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Eftir að faðir minn átti sín fyrstu kynni af krabbameini ákváðu foreldrar mínir að lífið væri of stutt til að elta ekki drauma sína. Þau fluttust til Englands, þar sem þau keyptu stóran bát. Með tíð og tíma lá leið þeirra til Mexíkó, þar sem þau bjuggu í eitt ár. Fyrst og fremst fögnuðu þau þó lífinu. Um síðir sigldu þau norður, aftur til Vancouver, í tæka tíð til að móðir mín gæti hitt nýja stúlku í lífi mínu – Judy Ko- onar. Þó svo að ég vissi það ekki þá var móðir mín viss um að Judy væri stóra ástin í mínu lífi. Faðir minn lést 26. mars 1979 og móðir mín stóð ein eftir, 49 ára gömul. Hún talaði oft um ævintýri þeirra og sagði alltaf að þau væru bestu stundir lífs hennar. Hún sá aldrei eftir því að hafa kastað ör- ygginu frá sér í skiptum fyrir tímann sem hún átti með föður mínum. Hún byggði sér nýtt líf sem fasteignasali í Richmond og sér- hæfði sig í að hjálpa ungu fólki að komast inn á markaðinn. Eftir að fregnin af andláti hennar barst út bárust okkur fjölmörg bréf frá fólki sem sagði hana hafa breytt lífi þess með því að hjálpa því við kaup á fyrstu eign. Móðir mín var ótrúlega ósér- hlífin. Hún lagði áherslu á að tryggja að ég, Judy og börnin blómstruðum. Hún hjálpaði okk- ur að kaupa okkar fyrsta heimili. Þegar Judy veiktist kom hún til hjálpar. Hún gerði okkur Judy kleift að fara einsömul á kvikmyndahátíð- ir og í frí, og þakkaði okkur í hvert sinn fyrir að leyfa henni að eyða svo góðri stund með barna- börnum sínum. Ásthildur lést á eigin forsend- um í síðustu viku – heima við, um- kringd ástvinum sínum. Eitt af því síðasta sem hún sagði var: „Ég hef reynt að vera góð mann- eskja.“ Og það var hún. Gjafmild, ástrík og trygg. Einlæglega góð manneskja. Móðir mín var sjálfstæð kona. Hún gaf mér lífið, kenndi mér hvernig á að elska og sýndi mér hvernig á að deyja. Hún skilur eftir sig hyldjúpt tómarúm í fjöl- skyldu okkar sem við munum brúa í sameiningu þar sem andi hennar lifir í hjörtum okkar. Sturla Gunnarsson. Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR ELÍASDÓTTIR, Suðurgötu 17, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 9. september. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 22. september klukkan 13. Ellý Björnsdóttir Magnús Þorgeirsson H. Svava Sigvarðardóttir Viðar Ólafsson Vigdís Sigvarðardóttir Sigurður Tryggvason Jens Snævar Sigvarðarson Elías Sigvarðarson Kristjana Magnúsdóttir Guðmundur Sigvarðarson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, KRISTJÁN ERLENDUR HARALDSSON, lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 21. september klukkan 11. Erla Hjartardóttir Guðmundur Haraldsson Guðfinna Sigurðardóttir Þórður Haraldsson Halla Sigríður Þorvaldsdóttir Marinella R. Haraldsdóttir Kristján R. Kristjánsson Valgerður D. Jónsdóttir Krista , Felicia, Ísak Haraldur Kristánsson Kristján Haraldsson Audrey Freyja Clark Kristján Dór, Davíð Örn, Benedikt Björn Ragnar Orri Benediktsson Helga Sigurðardóttir Sigurður Atli, Sigrún Björk, Helga Júlía Erla Heiðrún Benediktsdóttir Guðmundur Rúnar Árnason Erlen Inga, Guðmundur Árni, Auður María Guðný Ó. Á. Sveinbjörnsd. Þóra Margrétardóttir Guðrún Helga Sveinbjörnsd. Dagur Steinn Sveinbjörns. Gunnar H. Valdimarsson, Valdimar Valdimarsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÚLFAR BJÖRNSSON frá Skagaströnd, Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum 1. september. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 19. september klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast Úlfars er bent á Hollvinasamtök Droplaugarstaða eða Blindrafélagið, Hamrahlíð 17. Hanna Signý Georgsdóttir Haraldur Úlfarsson Nom Phonlap Birna Úlfarsdóttir Alda Úlfarsdóttir Björn Úlfarsson Sigurður Úlfarsson Inga Jóna Þórisdóttir og fjölskyldur þeirra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.