Morgunblaðið - 16.09.2017, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
✝ Sverrir Vil-helmsson fædd-
ist í Reykjavík 18.
september 1957.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 14.
ágúst 2017.
Foreldrar hans
voru hjónin Ólína
Guðbjörnsdóttir,
húsfreyja, f. 1922, d.
1992, og Vilhelm
Kristinsson, deildarstjóri hjá
Sjóvá, f. 1920, d. 2010. Eftirlif-
andi eiginmaður Sverris er Wan-
lop Noimor.
Sverrir var yngstur systkina
sinna sem öll lifa hann. Þau eru:
1) Kristinn verkfræðingur, f.
1946, maki Auður Matthías-
dóttir, f. 1945, d. 2016, sonur
þeirra er Matthías, f. 1978,
kvæntur Liv Önnu Gunnell og
eiga þau þrjú börn. 2) Ólöf, f.
1948. Maki Finn Jansen, f. 1947,
þeirra börn eru Vilhelm Þórir, f.
1968, maki Hulda G. Guðnadótt-
ir, f. 1971, og eiga þau fjögur
börn, og Elsa Margrét, f. 1971,
gift Helga Þór Ágústssyni, f.
1970, og eiga þau tvö börn. 3)
bílum og bílaíþróttum og hann
lét að sér kveða í árdaga Kvart-
míluklúbbsins, í þá daga þegar
spyrnan fór fram á leyndum
stöðum á leyndum tímum. Jafn-
framt vinnu sinni hjá Shell hóf
hann að taka myndir af störfum
lögreglunnar og seldi þær mynd-
ir í Tímann sem þá var en var
seinna ráðinn við blaðið sem al-
mennur fréttaljósmyndari.
Vorið 1987 hóf hann svo störf
hjá Morgunblaðinu og starfaði
þar til 2008 að hann lét af störf-
um vegna heilsubrests. Sverrir
var fjölhæfur ljósmyndari, tók
þátt í sýningum blaðaljósmynd-
ara og vann til verðlauna á því
sviði.
Fréttaljósmyndarastarfinu
fylgdu einatt ferðalög, oft til
átakasvæða heimsins svosem
Bosníu og fleiri staða en einnig á
hörmungasvæði eins og til dæmis
Flateyri þegar snjóflóðið dundi
yfir þorpið. Af mörgu er að taka í
þessu efni en minnisstæðar eru
myndirnar sem hann tók í Taí-
landi eftir flóðbylgjuna miklu
sem þar skall yfir annan í jólum
2004.
Sverrir tók ástfóstri við Taí-
land og fólkið í því landi og var
meira og minna búsettur í Bang-
kok um árabil en seinustu árin
var hann búsettur jöfnum hönd-
um í Bangkok og Keflavík.
Útför hans hefur farið fram í
kyrrþey.
Björn bókbindari, f.
1949. 4) Gunnar
ljósmyndari, f. 1951,
fyrri maki er Matt-
hildur Kristjáns-
dóttir, f. 1949, og
dóttir þeirra er
Gyða, f. 1976, maki
Einar Freyr Sverr-
isson, f. 1975, og
eiga þau þrjú börn.
Seinni kona Gunn-
ars var Sigríður
Vala Haraldsdóttir, f. 1958, d.
2012, þau skildu en eignuðust eitt
barn saman, Kötlu Rós Völudótt-
ur, f. 1980, gift Ragnari Nikulás-
syni og eiga þau eina dóttur. 5)
Hafliði kennari, f. 1953, fyrri
maki er Anna Dóra F. Theódórs-
dóttir, f. 1954. Þau skildu, sonur
þeirra er Yannick Víkingur, f.
1978. Núverandi sambýliskona
Hafliða er Greta S. Guðmunds-
dóttir, f. 1961, og þeirra börn eru
Steinunn Ólína, f. 1996, og Tóm-
as Vilhelm, f. 2002.
Eftir grunnskólagöngu í
Hlíðaskóla hóf Sverrir vinnu við
bensínafgreiðslu hjá Shell og
starfaði við það í nokkur ár en
hugur hans beindist snemma að
Hjartkær vinur, félagi og leið-
beinandi hefur verið kvaddur,
hans verður sárt saknað en ég vil
hér aðeins minnast hans og
þakka leiðsögn hans á lífsleiðinni.
Sverrir var einn af þeim bestu í
fréttaljósmyndun, hann hafði
næmt auga fyrir líðandi stund og
atburðum. Meðal atburða sem
hann hefur myndað eru Ólympíu-
leikarnir í Sydney árið 2000,
stríðsátök á Balkanskaganum,
náttúruhamfarir á Íslandi og Taí-
landi, auk fjölda viðburða í dag-
legu lífi á Íslandi og víðar.
Hann var fljótur að tileinka sér
stafræna ljósmyndun og var okk-
ur hinum sérlegur leiðbeinandi í
þeim efnum. Hann innleiddi með-
al okkar ljósmyndara hagnýt for-
rit til vinnslu og vistunar mynda
og átti stóran þátt í að móta staf-
rænt myndasafn Morgunblaðsins
og notaði þar þekkingu sem hann
aflaði sér hjá erlendum blöðum,
meðal annars Verdens Gang í
Osló. Sverrir aflaði sér margra
vina vítt og breitt um heiminn í
fréttaljósmynduninni og var í
tengslum við marga þekkta
fréttaljósmyndara erlendis.
Hann var sannur vinur vina
sinna og vandlátur á þá skilgrein-
ingu því flestir voru kunningjar
hans. Víðsýnn, réttsýnn og bjart-
sýnn var hann fram á síðasta dag
og er mér í hjarta mikið þakklæti
fyrir þær gæðastundir sem við
áttum í Svíþjóð í sumar er faðir
minn kvaddi þessa jarðvist og
Sverrir kom til að vera viðstadd-
ur útförina en hann fór helst ekki
í útfarir yfir höfuð.
Þar aðstoðaði hann mig við að
skrá atburðinn í myndum og fá-
einum vikum síðar fór hann aðra
ferð til Svíþjóðar og sýndi þá
móður minni mikla hugulsemi og
færði henni blóm.
Sverris verður minnst sem
ljúfmennis og sérstaks öðlings í
alla staði og myndir hans og frá-
sagnir í myndum munu lifa og
segja komandi kynslóðum sög-
una hvernig hlutirnir hafa verið.
Hvíl í friði, kæri vinur, og samúð
mína votta ég aðstandendum og
vinum.
Vinarkveðja
Tárin væta vanga minn,
vinur kær er farinn.
Fari hann með frið í hjarta
í fjarlægð eilífa bjarta.
Tregatárin væta enn,
tíminn græðir sárin.
Kveðjustundin líður senn
með sóma við munum árin.
Vinur er því kvaddur hér
vinur veraldar og sinna
vinur var hann, þó enginn sér
vinur minn og þinna.
(JS 2017)
Jón Svavarsson.
Sverrir
Vilhelmsson ✝ Martin Steph-en Regal fædd-
ist í London 2.
ágúst 1951. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 22. ágúst
2017.
Foreldrar hans
voru Ivor Regal, f.
4. ágúst 1926, d. 1.
janúar 2008, og
Daphne Regal,
fædd Rifkin þann 9. apríl 1932.
Martin á tvo yngri bræður, Jon
(Jonathan), f. 30. janúar 1955,
börn hans eru James, Zach-
arias og Molly, og Barry, f. 23.
júní 1962, eiginkona hans er
Fran Regal og eiga þau þrjár
dætur; Ella, Megan og Martha.
Eftirlifandi eiginkona Mart-
ins er Kristína Benedikz, f. 3.
apríl 1966.
Börn Martins eru 1) Baldur
Andri, f. 22. september 1977,
móðir hans er Jóna Bald-
ursdóttir, maki Baldurs er El-
ínborg Sigurðardóttir, sonur
þeirra er Sigurður Rúnar, f.
28. nóvember 2012, dóttir
Baldurs er Petra, f. 22. mars
1999, móðir Ása Hafsteins-
dóttir. 2) Kári, f. 17. ágúst
1979, móðir hans er Björg Örv-
Davis (UCD) 1983 og Ph.D.-
gráðu í breskum og bandarísk-
um leikbókmenntum frá sama
háskóla árið 1991. Dokt-
orsritgerð hans fjallaði um
leikritaskáldið Harold Pinter.
Árið 1995 gaf MacMillan út
bók Martins; Harold Pinter: A
Question of Timing.
Martin hóf kennslu við
enskudeild Háskóla Íslands
1976 og starfaði þar til ævi-
loka. Hann var gestakennari
við Wolfson College í Cam-
bridge 1998 og starfaði einnig
við Stokkhólmsháskóla og
Konunglega tækniháskólann
(KTH) í Svíþjóð. Þá var hann
meðlimur í fjölda fé-
lagasamtaka, þ. á m. The Dic-
kens Society.
Rannsóknir hans voru á að-
allega á sviði leikbókmennta,
söngleikja og kvikmynda.
Martin vann ötullega við þýð-
ingar og þýddi m.a. Gísla sögu
Súrssonar (The Saga of Gisli in
The Sagas of the Icelanders,
Penguin 1997) og ljóð Sigurðar
Pálssonar (Inside Voices, Out-
side Lights, Arc Publications
2014). Einnig ritaði hann leik-
húsgagnrýni fyrir Morg-
unlaðið, RÚV og fleiri fjöl-
miðla. Þá var Martin þýðandi
og þulur fjölda kvikmynda og
sýninga.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
ar, eiginkona
Kára er Elín Gísla-
dóttir, börn þeirra
eru Freyja, f. 30.
desember 2005, og
Snæbjörn og Arn-
grímur, fæddir 11.
júní 2010. 3) Vera,
f. 29. október
1981, foreldrar
hennar eru Hafdís
Vilhjálmsdóttir og
Sölvi Ólafsson,
dóttir Veru er Saga Ásgeirs-
dóttir, f. 7. júlí 2014, faðir
Sögu er Ásgeir Þórðarson. 4)
Sara Björk, f. 27. september
1989, móðir hennar er Hafdís
Vilhjálmsdóttir, maki Söru er
Saga Líf Friðriksdóttir, dóttir
Söru er Ronja f. 1. nóvember
2011, faðir Ronju er Jakob Óm-
arsson. Synir Martins og Krist-
ínu eru 5) Tristan, f. 17. sept-
ember 1990, faðir Svanur
Sigurgíslason, 6) Ísak Gabríel,
f. 20. mars 1994, 7) Matthías
Sólon og 8) Lúkas Stefán, f. 8.
maí 1999.
Martin fæddist á Royal Col-
lege-spítalanum og ólst upp í
Barnet í norðurhluta London.
Hann lauk B.A.-gráðu frá
Reading-háskóla 1975, M.A. í
ensku frá Kaliforníuháskóla í
Martin Regal er allur, sóma-
maðurinn sem kaus fremur að
búa í Reykjavík en stórborginni
London, okkur til gleði og
hagsbóta.
Ég hitti hann fyrst snemma
á níunda áratug síðustu aldar á
meðan hann bjó með vinkonu
minni Hafdísi Vilhjálmsdóttur
og urðu með okkur góð kynni.
Mér til happs vorum við
bæði í barneignaleyfi á haust-
mánuðum 1989 og urðum fé-
lagar í stússinu sem af slíkur
leiðir.
Undir þeim kringumstæðum
varð dálítill vinskapur sem
bæði var ánægjulegur og gef-
andi eins og öll samskipti við
Martin. Það átti jafnt við á öðr-
um vettvangi því að það munaði
sannarlega um hann á mæli-
kvarða þjóðfélagsins.
Hann kenndi ekki aðeins
nemendum í Háskóla Íslands
um árabil heldur lét hann einn-
ig að sér kveða í menningarlíf-
inu með þýðingum á bók-
menntaverkum og starfi í
leikhúsi.
Margir hafa óafvitandi heyrt
rödd Martins því að lengi vel
var hann eftirsóttur þulur þar
sem þörf var á upplestri á
vandaðri ensku.
Með sínum þýða rómi lagði
hann farþegum öryggisreglur í
flugvélum og skýrði undur
Þingvalla í nýrri fræðslumið-
stöð þar, ásamt því að hann
lagði til rödd sína í kvikmynd-
um.
Merkara er þó hversu fljótt
og vel Martin náði tökum á ís-
lensku, sem hann talaði nánast
lýtalaust og tjáði sig þess utan
af nákvæmni sem fæstum er
gefin, jafnvel á eigin tungu.
Á nýársdag 1988 flutti Mart-
in erindi í íslenska sjónvarpinu.
Það var inngangur að kynning-
armynd um Shakespeare í til-
efni þess að uppfærslur á leik-
ritum hans voru teknar til
sýningar.
Ég veit ekki hvort maður af
erlendu bergi brotinn hafði
nokkru sinni áður flutt erindi í
íslensku útvarpi en mig grunar
að þarna hafi orðið tímamót.
Þau urðu án þess að vekja
sérstaka athygli enda lá ekkert
beinna við en að einmitt hann
yrði fenginn til verksins.
Martin varð margra barna
auðið auk stjúpbarna. Ég votta
þeim, eiginkonu hans Kristínu
Benedikz og öðrum aðstand-
endum samúð mína. Genginn er
góður drengur og hans er sakn-
að.
Lára Magnúsardóttir.
Martin S. Regal
Kveðja frá
Skátagildinu í
Hveragerði
Það er komið að
kveðjustund. Ástríður hefur
kvatt okkur. Hún er farin heim.
Ásta gekk í skátagildið 2003
með eiginmanni sínum. Hún
tók virkan þátt í starfi gildisins
og mætti helst í alla dagskrá
Ástríður
Hjartardóttir
✝ Ástríður Hjart-ardóttir fædd-
ist 25. október
1932. Hún lést 9.
ágúst 2017. Útför
Ástríðar fór fram í
kyrrþey 18. ágúst
2017.
félagsins. Við mun-
um sakna glað-
værðar Ástu, dill-
andi hlátursins,
vináttu og trygg-
lyndis.
Sofnar drótt, nálgast
nótt,
sveipast kvöldroða
himinn og sær.
Allt er hljótt, hvíldu
rótt.
Guð er nær.
(Kvöldsöngur skáta)
Félagar í Skátagildinu í
Hveragerði kveðja hér góða
skátasystur.
Blessuð sé minning hennar.
Helga Jósefsdóttir.
Með Magnúsi
Þorsteinssyni
bónda í Höfn á
Borgarfirði eystra
er fallinn frá traustur máttar-
stólpi byggðarlagsins um langt
skeið.
Hann ólst þar upp á ætt-
aróðali sem fjórði liður frá Þor-
steini Magnússyni, langafa sín-
um, sem þar byrjaði búskap
1867 með Önnu Bjarnadóttur
frá Breiðuvík. Síðan hafa þar
skipst á nöfnin Magnús og Þor-
steinn í þrjá ættliði. Bæjar-
nafnið Höfn vísar til lendingar í
Hellisfjöru innan við Hafnar-
hólma, sem veitti dálítið skjól
fyrir úthafsöldunni. Bænda-
kirkjan í Njarðvík átti hólmann
fyrrum og það var fyrst með
kaupum á landi í Njarðvík í tíð
Magnúsar að Hafnarbændur
eignuðust meirihluta í þessari
gullkistu við fjöruborðið. Líf
hans varð nátengt þessum
hólma, þar sem hann hlúði að
æðarvarpi og öðrum fugli til
hinstu stundar.
Hann sat í hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps frá 1970 í
nær aldarþriðjung og var sveit-
arstjóri öllu lengur eða til vors
2006.
Hafnleysa stóð fiskveiðum á
Borgarfirði fyrir þrifum þar til
á síðasta fjórðungi liðinnar ald-
ar að úr rættist með lífhöfn fyr-
Magnús
Þorsteinsson
✝ Magnús Þor-steinsson fædd-
ist 1. ágúst 1936.
Hann lést 7. sept-
ember 2017.
Útför Magnúsar
fór fram 14. sept-
ember 2017.
ir smábáta við
Hafnarhólma.
Jafnframt var í
hólmanum komið
upp aðstöðu fyrir
ferðafólk til að
fylgjast með fugla-
lífi utan varptíma.
Fullyrða má að
þessar fram-
kvæmdir í tíð
Magnúsar hafi
skipt sköpum fyrir
byggðarlagið.
Eftir að leið mín lá fyrst til
Borgarfjarðar 1964 hitti ég
Magnús ár hvert og átti við
hann margháttað samstarf,
ekki síst þá áratugi sem ég átti
sæti á Alþingi. Hann lét sig
ekki vanta á fundi sem ég boð-
aði til þar heima fyrir og vakti
þar máls á hagsmunamálum
byggðarlagsins.
Við undirbúning að tillögu
um byggðaþróunaráætlun fyrir
Borgarfjörð, sem Alþingi sam-
þykkti 1980, hafði ég við hann
náið samráð, en hún veitti góða
viðspyrnu til aðgerða næsta
áratuginn.
Löngu seinna þegar kom að
því að skrifa um Víkur og
Borgarfjörð í árbók Ferða-
félagsins 2008 gekk ég í smiðju
til Magnúsar sem fræddi mig
um margt og las yfir texta.
Hann var margfróður og hafði
yndi af bókum, einlægur nátt-
úruunnandi sem galt varhug
við hersetu og hernaðarbrölti.
Hógværð einkenndi alla hans
framgöngu en jafnframt var
hann kíminn og léttur í lund.
Slíkra manna er gott að minn-
ast.
Hjörleifur Guttormsson.
Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma,
RÓSA GUÐBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn
1. september. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að hennar ósk.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
hjúkrunarheimilinu Mörk.
Einar Örn Reynisson Ása Sóley Hannesdóttir
Ingibjörg Reynisdóttir Ólafur Tryggvason
Ragnar Már Reynisson María Gomez
Anna Margrét Kristinsdóttir
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR H. BJARNADÓTTIR,
Sléttuvegi 31,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 12.
september 2017.
Guðlaug Lýðsdóttir Bjarni Guðmundsson
Þröstur Lýðsson Klara Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HULDA SIGURVINS,
Leiðarenda við Hafravatn,
verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju
mánudaginn 18. september klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Ljósið.
Halldór Sigurðsson
Hólmfríður Halldórsdóttir Kolbeinn Sigmundsson
Sigurður Svan Halldórsson Katrín Lóa Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn